Morgunblaðið - 29.10.2003, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 29.10.2003, Blaðsíða 24
LISTIR 24 MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Þegar þú ferðast ferðastu þá með AVIS Verð pr. dag kr. 2.500 M.v. lágmarksleigu 7 daga Opel Corsa eða sambærilegur Við gerum betur AVIS Sími 591 4000 www.avis.is Orlando N ÝVERIÐ gaf listelski skip- stjórinn á Detti- fossi mér glóð- volga bók um málarann Carl Henning Ped- ersen. Hinn sjálflærði málari hefur komið við sögu síðustu pistla minna og með bókina í höndunum er mér ekki til setunnar boðið að herma enn frekar af þessum félaga Svavars Guðnasonar, og fyrrum stríðsmanni kringum tímaritið Helhesten, jafn- framt eins af frumkvöðlum Cobra- hópsins. Upprunalega dreymdi Pedersen um að verða tónlistamaður, en eftir að hann kynntist málaranum Else Alfelt sem varð eiginkona hans 1934, komst ekkert annað að en að hand- leika liti. Það hefur hann og gert með úrskerandi tilþrifum allar götur eftir það, allt þar til hann lagði frá sér penslana um stóraldarmót, tók í staðinn að liðka lúna limi með löngum gönguferðum, einkum úti í guðs grænni náttúrunni. Afmælisdaginn bar upp 23. sept- ember og kringum tímamótin var mikið um að vera í fæðingarborg hans Kaupmannahöfn, líkast til einn- ig Herning á Jótlandi. Fyrir all- nokkrum árum hafði iðnaðarfursti nokkur á staðnum fengið þá hug- mynd að reisa þar safn yfir málverk Carls Hennings Pedersens og Else Alfelt, bretti upp ermarnar og fram- kvæmdi hana. Safnið var opnað 1974 og ber nafn listamannanna. Sem áður greinir í skrifummínum má helst nefna yfirlitssýningu á Ríkis-listasafninu og bók listsögu- fræðingsins Michaels Wivel í útgáfu Aschehoug. Wivel varði á sínum tíma doktorsritgerð um samlanda sinn málarann Niels Larsen Stevens 1864–1941, var þar ekki að leita langt yfir skammt. Fyrir landa Svavars Guðnasonar og hönd fleiri framsæk- inna málara kemur það nokkuð und- arlega fyrir sjónir, að listsögufræð- ingurinn er sagður færast mikið í fang. Sögð ómæld áskorun að skrifa bók um listamann sem væri þegar jafnvel kynntur, þrældókumenter- aður, þá þegar búið að skrifa margar bækur um hann og verk hans allstaðar sýnileg ekki síst í formi grafíkmynda og eftirprentana, að auki hafi þjóðin löngu tekið hann upp á arma sér. En Michael Wivel virðist hafa staðist prófraunina því bókin hefur að ég best fæ greint fengið góðar viðtökur gagnrýnenda og al- mennings. Allar forsendur fyrir því að áhuginn á listamanninum gangi í endurnýjun lífdaga í heimalandinu, listsögufræðingurinn er svo einnig ábyrgur fyrir framkvæmd sýning- arinnar á Ríkislistasafninu. Dönum margfalt sýnna um að halda sínum mönnum fram en gerist hér á út- skerinu, fram má koma að Wivel þekkti ekki listamanninn nema úr hæfilegri fjarlægð er hann tók að sér verkefnið. Í stuttu máli hefur málaranum hlotnast flestur ef ekki allur sá heið- ur sem mögulegt er að uppskera í Danaveldi. Kom fyrst fram á Kunstnerenes Efterårsudstilling, 1936, sem síður skal ruglað við Høstudstillingen sem var allt annað síðbúnara og skammlífara fyrirbæri. Líf þeirra Else var síður en svo dans á rósum fyrstu áratugina, mér er í fersku minni hinn skrautlegi kumb- aldi í nágrenni sýningaskálans Den Frie við Østerport, þar sem verk ab- straktmálaranna voru helst til sýnis, en skálinn var hitaður upp með kola- ofni. Einnig kröfuganga framsæk- inna listamanna, sem prófessorinn minn Kræsten Iversen kallaði gad- ens parade, gaf okkur nemendum sínum um leið vísbendingu um að halda okkur frá slíkum fáránleika. Gangan hlykkjaðist um göturnar og endaði við Kristjánsborg þar einhver uppákoma og loks dansað. Í þvög- unni minnist ég helst þeirra Else Al- felt og Carl Hennig fyrir lífsgleðina sem gneistaði af þeim þótt danslistin væri ekki í heimsklassa, klæðnaður frumstæður líkt og annarra lista- manna sem lifðu á sósíalnum. Ekki alveg laust við að áhugi minn á Else og Carli Henning hafi einkum tengst heimsókn þeirra til Íslands 1948, og sýningu þeirra og félaga Svavars kringum Helhesten í Lista- mannaskálanum gamla við Kirkju- stræti. Hafði rekist á allan hópinn á flötinni fyrir utan skálann og meðal þess sem menn tóku með sér heim voru íslenzkar ullarpeysur sem gögnuðust þeim vel og voru yfirmáta stoltir af, ekki síst Asger Jorn sem var hér alla tíð gangandi auglýsing. Það var svo ekki fyrr enfrægðarsól Cobra fór aðrísa á sjötta áratugnum aðveruleg breyting varð á kjörum meðlima listhópsins en áður hafði nokkur hópur listunnenda skynjað hvað klukkan sló. Hér gegndi safnarinn Elise Johansen, sem keypt hafði sína fyrstu mynd af Carli Henning 1939 drjúgu hlutverki, einkum með þeirri ákvörðun sinni 1954 að gefa Ríkislistasafninu úrval hins mikla samsafns sem hún hafði viðað að sér af abstraktlist. Árið 1940 hafði önnur kona Elna Fonnesbech- Sandberg keypt sína fyrstu mynd af Carli Henning, seldi fimm árum seinna hið mikla safn sitt af eldri kynslóð myndlistarmanna listhöfð- ingjunum Önnu og Kresten Kresten- sen, sem þar næst seldu það Lista- safni Norður-Jótlands, Álaborg 1962. Elna hafði lent í fjárhagserfiðleikum 1939, og þess vegna neyðst til að selja safnið, hóf þá í staðinn að kaupa verk hinna ungu og framsæknu sem voru á lágu verði, hreinlega vegg- fóðraði hús sitt af þeim. Þannig voru einstaklingar með hjarta fyrir mynd- list og aðallega konur helstir stuðn- ingsmenn þarlendra núviðhorfa á þessum tímum, aftur á móti sváfu listsögufræðingar, sem þá voru helst karlmenn, á verðinum. Rumskuðu einungis við sér varðandi viðurkennd viðhorf frá útlandinu og á því virðist hafa orðið lítil breyting, varð til að mynda orsök heiftarlegrar sennu milli þeirra og Asger Jorns, sem átti stóran þátt í að hann yfirgaf Dan- mörku og sneri aldrei aftur nema sem gestur. En þau Else Alfelt og Carl Henning Pedersen kusu að þreyja þorrann í heimalandinu og hér voru þau líkast til rekin áfram af lífsgleðinni, sem á þeim árum var helsta næring þeirra ásamt danska rúgbrauðinu, með ástina sem for- og eftirrétt. Carl Henning Pedersen var gædd- ur þeim kostulega eiginleika að geta hlegið hressilega á sorgarstundum, að eig- in sögn hló hann er hann sá kistu föður síns síga niður í gröfina. Og líkt og stendur nokk- urn veginn skrifað í inngangi bókarinnar; ekki vegna gleði og hugarléttis, menn gráta við slík tækifæri en menn geta einnig hlegið. Um að ræða eins konar tilfinn- ingalega brynju. Mál- aranum var þannig frá barnæsku áskapað að bresta óvænt í hlátur án nokkurs tilefnis og við ólíklegustu tækifæri, einkum í hvert sinn sem eitthvað bjátaði á eða miklir erfiðleikar steðjuðu að, og átti erfitt með að hætta þegar hann var byrjaður. Það var honum léttir að hlæja en um leið neyðarlegt, þannig mátti hann bíta sig harkalega í vör- ina við gröf föður síns til að geta hætt. Sálfræðingar kunna góða og full- nægjandi skýringu á slíku geðslagi og hátterni, það sé einfaldlega til- finningalegs eðlis, komi einkum fyrir persónur gæddar einhverju er nefna mætti tilfinningalega ofvirkni, sem viðkomandi ráða ekki við. Því fylgir svo náttúrlega, að hafa eðlislæga hæfileika til að hlæja og gráta ef ein- staklingurinn á að vera fær um að skapa mikla list. Ég verð þó að efast um að mál- aranum hafi verið hlátur í hug þegar kletturinn Else varð öllum að óvör- um bráðkvödd á götu úti, en gæfu- hjólið hætti þó ekki sínum snúningi. Málarinn kynntist annarri konu sem studdi ekki síður við bakið á honum en hin fyrri og gerir enn, hefur verið kvæntur henni í 30 ár og er helstur förunautur á löngu göngferðunum, sem geta allt eins átt sér stað í skóg- arþykkninu í Tidsvilde. Listakonuna og arkitektinn Sidsel Ramsted hafði hann hitt í Jerúsalem 1975, málarinn var að tala við kunningja sinn sem beið eftir norskri vinkonu sinni er hún kom gangandi niður tröppur er lágu til þeirra og varð sem lostinn eldingu. Sama kvöld hafði hann eng- ar vöflur á og stakk upp á að þau giftu sig, gerðist þó fyrst tveim árum seinna. Þó ekki svo að það væri tilmarks um innri ánægju efmálarinn yggldi brýrnar,nei aldeilis ekki og hann ljómaði eins og sól á heiðum himni á góðum stundum. Hins vegar gefur þessi hlið skapgerðar hans innsýn í hið mikla og ólgandi tilfinningaflæði sem í honum bjó og myndveraldir hans um leið, dugði honum til stöð- ugrar endurnýjunar allt lífið þótt við- föngin væru í það heila hin sömu. Eitthvað í líkingu við ævintýraheim H.C. Andersens með bernskar kenndir og óbeislað hugarflug í stafni, hann var líka málari sól- arinnar, gleðinnar og furðuvera í ætt við list frumstæðra ættbálka Afríku og Asíu. Landkönnuður í ríki hins óræða, myndsviðið yfirleitt þanið til hins ýtrasta hvort heldur einfalt sem margbrotið, málunarhátturinn óformlegur og þyngdarlögmálið af- stætt hugtak. Það væri ofsögum sagt að almenn- ingur hefði verið með á nótunum á þessum árum og þannig var ég iðu- lega einn að skoða núviðhorf í danskri list í útibúi Ríkislistasafnsins að Kastelsvej, stundum opið á kvöld- in. Í öllu falli voru hinir fáu og vin- samlegu safnverðir oftast fleiri en gestirnir. Hinir mörgu og nafn- kenndu skopteiknarar blaðanna lágu hér ekki í liði sínu um skemmtileg- heit á kostnað abstraktmálaranna, en það var nú ekkert annað en til að brosa að í landi þar sem fólk er gætt jafnþróuðum og dásamlegum húmor. Hér einungis vakin athygli á mik- illi og fallegri listaverkabók þar sem frásagnahátturinn líður áfram í takt við upplýsandi myndefnið, málarinn og lífsverk hans í aðalhlutverki, síður köld fræðimennskan. Málarinn sem hló SJÓNSPEGILL Bragi Ásgeirsson bragi@internet.is Málarinn sem hló og konan sem ljómaði. Carl Henning Pedersen og Else Alfelt á yngri árum. Venus, 1981, olía á léreft, 127 x 104 cm.Standandi verur í appelsínugulu, 1948, olía á léreft, 122 x 102 cm, 1944. Svavar Guðnason, Carl Henning Pedersen og Elna Fonnesbech-Sandberg á sýningu Corner-listhópsins 1943. Verkið á veggnum er eftir Lauritz Hartz.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.