Morgunblaðið - 29.10.2003, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 29.10.2003, Blaðsíða 45
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 45 Vegna fjölda áskorana snýr leiksýning ársins aftur í Borgarleikhúsið!! Það varð allt vitlaust í haust þegar Kvetch sneri aftur í Borgarleikhúsið og biðlistar mynduðust. Því er sýningin tekin upp aftur, en aðeins í takmarkaðan tíma með nýjum leikurum: Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur og Halldóri Gylfasyni. Miðasala í Borgarleikhúsinu, sími 568 8000. Leikhópurinn Á senunni, www.senan.is Borgarleikhúsið, www.borgarleikhus.is Síðasta tækif ærið til að sjá sýnin guna sem hla ut einróma lof g agnrýnenda, frábærar viðtökur áhor fenda og sjö t ilnefningar og fern verðlaun Grímunnar, íslensku leikli starverðlauna nna. „... Veisla! ... ef ykkur langar að eiga stund þar sem þið getið velst um af hlátri, ekki missa af þessari leiksýningu ...“ (SA, Mbl.) „... Katla Margrét virðist búa yfir gífurlegu öryggi og hún naut sín í hlutverkinu ...“ (SH, Mbl.) „... Uppsetning Stefáns Jónssonar á þessum gráglettna gamanleik hjá Á senunni var einstaklega vel heppnuð og þar lagðist allt á eitt: Útsjónarsöm en táknræn leikmynd, búningar og gervi, frábær lýsing en umfram allt ótrúlegur kraftur ...“ (Dómnefnd, Menningarverðlaun DV) SÍÐASTA eina og hálfa árið hafa Mezzoforte verið iðnir við spila- mennsku víða um veröld. Þeir eru nú nýkomnir frá Slóvakíu, Eistlandi og Litháen þar sem þeim félögum var vel fagnað. Haft var samband við Eyþór Gunnarsson vegna viðræðna sveit- arinnar við þýsku útgáfuna ESC Re- cords um útgáfu á nýrri hljóðvers- skífu Mezzoforte. Það yrði fyrsta hljóðversplata sveitarinnar síðan Monkey Fields kom út árið 1996. „Það er rétt að viðræður eru að nálgast lokastig en blekið er þó ekki komið á pappírinn,“ segir Eyþór. „Þeir myndu þá gefa út nýja plötu sem verður tekin upp á næsta ári úti í Þýskalandi. ESC er útgáfa sem gefur út bræðingslistamenn eins og Joe Zawinul, Hiram Bullock og Randy Brecker.“ Einnig eru saxófónleikararnir Bill Evans og Maceo Parker á mála hjá fyrirtækinu. Eyþór segir að framundan sé meiri spilamennska, í Þýskalandi og Litháen. Sveitin á aðdáendur í fjölda landa og segir Eyþór að við- brögðin í Austur-Evrópu hafi verið mjög góð. „Við fengum mikil viðbrögð þar og sumir sögðust hafa verið búnir að bíða lengi eftir þessu!“ Nýr saxófónleikari fer með sveit- inni í komandi tónleikaför. Heitir hann David Wilczewski og er einn af stofnendum bræðingssveitar- innar Vital Information. Hann hefur jafnframt leikið inn á hljómplötur listamanna eins og Cardigans, Stinu Nordenstam og Stakka Bo. Mezzoforte í viðræðum við þýsku útgáfuna ESC Morgunblaðið/Jim Smart Gunnlaugur Briem, Jóhann Ás- mundsson og Eyþór Gunnarsson skipa Mezzoforte ásamt Friðriki Karlssyni sem var fjarri góðu gamni. Munu gefa út nýja plötu www.mezzoforte.com DISKURINN hans Benedikts, forðum liðsmanns Mósaíks og núver- andi félaga í Rúnk-hópnum, hefur yf- irskriftina Summerplate, les: sumar- diskur, og víst er tónlistin sumarleg, lögin einföld og útsetningar skemmtilega lausar í reipunum. Blásarar í fyrsta lagi gefa því þannig skemmtilegan blæ, gera það sumar- legt. Orgel í öðru lagi plötunnar gerir sama gagn, kemur inn undir lokin og lyftir laginu, gít- argripaklifun, til muna, en síðan er slegið í með trommuheila og tilheyr- andi. Í þriðja lagi plötunnar notar Bene- dikt rafeindaþrusk á skemmtilegan hátt sem taktgjafa og einnig gera ósamstæðar raddir mikið fyrir lagið sem er vissulega stutt en þarf ekki að vera lengra. Fjórða lagið er býsna ævintýra- legt, afskaplega skemmtileg víruð samsetning þar sem Benedikt slepp- ir fram af sér beislinu, saman við frumskógatrommutakt hrærir hann bútum héðan og þaðan, rafhljóðum, glamrandi kassagítar og svo má telja. Frábært lag. Fimmta lag plötunnar er hið klassíska sumarlag, ótrúlega væm- inn texti og ýktur flutningur svona eins og til að undirstrika textann. Sjötta lagið, og það síðasta, er svo eiginlega ekkert nema skæld píanó- laglína með frumstæðum takti. Góð- ur endir á sumarplötu. Summerplate Benedikts er bráð- skemmtileg og þá ekki bara fyrir for- vitnilegar umbúðirnar, heldur er tónlistin skemmtilega óvenjulegt og lágstemmt sumarpopp með ótrúleg- ustu tilbrigðum, laust við klisjur og tilgerð. Því miður er diskurinn ekki gefinn út nema í 30 eintökum, enda umbúðirnar mjög sérstakar, en von- andi á Benedikt eftir að gefa ein- hverjum laganna annað líf síðar. Tónlist Óvenjulegt sumarpopp Bennihemmhemm Summerplate Bennaplötur Summerplate, plata með lögum eftir Bennahemmhemm, Benedikt Hermann Hermannsson. Hann leikur á hljóðfæri og syngur, stýrir upptökum og hljóðvinnslu. Auður hannaði umbúðirnar, en diskurinn er aðeins tæpir átta sm í þvermál í sér- hönnuðum umbúðum. Árni Matthíasson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.