Morgunblaðið - 29.10.2003, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 29.10.2003, Blaðsíða 43
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 43 FÓLK  PÁLL Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari 3. deildarliðsins Ár- borgar. Páll, sem jafnframt leikur með liðinu, hefur góða reynslu að baki sem leikmaður með Leiftri, ÍBV, ÍA og Selfossi, auk þess sem hann lék með Raufoss í Noregi og Ionikos í Grikklandi.  HÖSKULDUR Eiríksson, knatt- spyrnumaður, hefur skrifað undir þriggja ára samning við Víking. Höskuldur gekk í raðir Víkings fyrir síðasta tímabil frá KR. Hann lék 14 leiki liðsins í 1. deildinni í sumar og skoraði tvö mörk.  PAUL Scholes, 28 ára, miðvallar- leikmaðurinn sterki hjá Manchester United mun ekki leika með liðinu næstu fjórar vikurnar vegna meiðsla á nára. Hann mun missa af tveimur stórleikjum á Englandi – þegar Unit- ed mætir Liverpool og Chelsea í nóv- ember og einnig tveimur leikjum í Meistaradeild Evrópu, Glasgow Rangers og Panathinaikos.  OLIVER Kahn, fyrirliði Bayern München og þýska landsliðsins, var hetja Bæjara í bikarleik gegn Nürn- berg í gærkvöldi. Liðin skildu jöfn 1:1, en Kahn gerði sér síðan lítið fyrir og varði tvær vítaspyrnur í vítaspyrnu- keppni, sem Bæjarar unnu, 6:5.  „ÉG er mjög ánægður. Leikmenn- irnir léku fyrir Stevens og fögnuðu sigri,“ sagði Dieter Hoeness, fram- kvæmdastjóri Herthu Berlín, en leik- menn Berlínarliðsins björgðu þjálfar- anum Huub Stevens, með því að leggja Hansa Rostock í vítaspyrnu- keppni, 4:3, eftir að liðin skildu jöfn, 2:2.  JOE Royle, knattspyrnustjóri Ips- wich, segist ætla að hætta þegar samningur hans við félagið rennur út eftir 20 mánuði. Ipswich verði síðasta félagið sem hann starfi hjá. Eftir 22 ár við knattspyrnustjórn hjá ýmsum fé- lögum sé mál til komið að rifa seglin og lifa áhyggjulausara lífi en því sem fylgi stjórnun knattspyrnuliðs. Royle er 54 ára.  HERMANN Hreiðarsson leikur með Charlton gegn Everton á Goodi- son Park í Liverpool, þegar liðin mætast þar í kvöld í deildabikar- keppninni. Þá leikur Mathias Svens- son sinn fyrsta leik með liðinu í sex mánuði, en hann hefur verið frá vegna meiðsla. Paolo di Canio, Shaun Bart- lett, Carlton Cole og Kevin Lisbie eru aftur á móti á sjúkralista, þannig að þeir Jonatan Johansson og Jason Euell verða í fremstu víglínu hjá Charlton.  FLORENTINO Perez, forseti Real Madrid, hefur gefið sterklega til kynna að spænski landsliðsmaðurinn Michel Salgado verði ekki í herbúð- um spænsku meistaranna á næsta ári, en samningur Salgado við félagið rennur út í vor. Perez segir að Real Madrid eigi erfitt með að mæta kröf- um Salgados og verði samningum ekki lokið fyrir lok þessa mánaðar megi ætla að Salgado verði að róa á önnur mið. Vitað er af áhuga innan raða Manchester United og Chelsea á miðvallarleikmanninum.  KÄRNTEN, lið Helga Kolviðsson- ar, rak í gær þjálfarann Johannes Haubitz vegna slaks gengis liðsins á leiktíðinni. Kärnten hefur aðeins tek- ist að vinna tvo af 14 leikjum sínum í austurrísku deildinni og er í níunda sæti af tíu liðum. Haubitz tók við lið- inu um mitt tímabil í fyrra og undir hans stjórn komst liðið í bikarúrslit og tryggði sér sæti í UEFA-keppninni í ár þar sem það sló út Grindavík í 1. umferð en var svo slegið út af Feyenoord.  LAUREN, bakvörður Arsenal, mun að nýju leika með landsliði Kamerún 11. nóvember í Lyon, en þar fer fram minningar- og ágóðaleikur fyrir fjöl- skyldu Marc Vivien Foe, sem fékk hjartaáfall og dó í landsleik fyrir Kamerún. Lauren, 26 ára, segir að það sé alltaf gaman að leika með landsliði Kamerún, en hann er þó ekki viss um hvort hann gefur kost á sér í liðið í öðrum verkefnum. Reuters Spánverjinn Francesc Fabregas Soler (t.h.) braut blað í sögu Arsenal í gærkvöldi þegar hann varð yngsti leikmaðurinn til að leika með aðalliði félagsins. Hér á hann í höggi við Darren Byfield hjá Rotherham. Þór vill fá Sigurð Það fór eins og við mátti búast aðHaukar myndu hrista af sér eitthvað af því sleni sem legið hefur yfir þeim í síðustu tveimur leikjum. Það tókst þó ekki alveg og deyfð var yfir leik þeirra, mótstaða ÍBV var á köflum lítil sem engin og því varla nema von að Íslandsmeistar- arnir næðu ekki stemmningu í leik sinn. „Þetta var heldur dapur leikur og það var bara vegna okkar mistaka sem það hljóp smá spenna í þetta í lokin,“ sagði Birkir Ívar Guðmunds- son, markvörður Hauka í leikslok. „Þessi leikur er endurtekning á því sem hefur verið að gerast hjá okkur þar sem við spilum vel í 20-25 mínútur af 60. Það nægði okkur til sigurs í kvöld, ólíkt því sem hefur gerst í síð- ustu tveimur leikjum.“ Haukarnir höfðu yfirhöndina allan fyrri hálfleik- inn, náðu mest 9 marka forskoti 15:6 uppúr miðjum hálfleiknum en ÍBV náði að minnka muninn í 5 mörk fyrir leikhlé. Það var því engin ástæða fyr- ir Viggó Sigurðsson, þjálfara Hauka, að byrsta sig neitt yfir sínum mönn- um í leikhléinu og á fyrstu 8 mínútum seinni hálfleiks rúlluðu Haukarnir hreinlega yfir ÍBV, skoruðu 6 mörk gegn 1 og náðu 10 marka forystu. Eyjamenn áttu nokkuð góðan leik- kafla í framhaldi af því auk þess sem Viggó skipti „óreyndari“ mönnum inná. ÍBV hélt þó áfram að ganga á lagið og þegar um 10 mínútur voru eftir af leiknum höfðu þeir náð að minnka muninn aftur niður í 5 mörk og síðar niður í 3 mörk. Birkir Ívar sagði aðspurður að þessar innáskipt- ingar hjá Viggó ættu ekki að skipta neinu máli. „Ef að menn eru að koma inn af bekknum, þá eru þetta menn sem hafa verið að fá minni séns og þeir eiga að koma inná og berjast. Það hefur bara ekki verið að gerast. Ég veit ekki hvað er að þó ég telji þetta ekki vera neina krísu hjá okkur. Menn eru auðvitað þreyttir, það hef- ur verið rosalega mikið álag og ég tel einu mögulegu skýringuna á þessum leikjum hjá okkur að við höfum haft lítinn æfingatíma. Við erum að spila það þétt að við höfum í rauninni af- skaplega lítinn tíma til að pússa leik okkar og bæta okkur,“ sagði Birkir. Lélegasti leikur vetrarins Eyjamenn léku ekki vel frekar en leikmenn Hauka. Leikur beggja liða var mjög tilviljanakenndur á köflum og bæði lið gerðust sek um óteljandi mistök í sóknarleik sínum og fengu fyrir vikið fjöldann allan af hraðaupp- hlaupum í bakið. Erlingur Richards- son, þjálfari ÍBV, var ekki sáttur við leik sinna manna í þessum leik. „Ég segi að þetta hafi verið lélegasti leik- ur okkar í vetur og sjálfsagt er hægt að segja það sama um leik Hauka. Af okkar hálfu var þetta hörmung, sér- staklega í fyrri hálfleiknum. Ungu strákarnir sem hafa verið að spila ágætlega voru ekki sannfærandi. Við höfum verið að skora 28 mörk að meðaltali í leik og höfum reyndar ver- ið að fá á okkur 31 mark þannig að ég tel að við séum með betra lið núna heldur en í fyrra. Það sést líka vel á því að við erum ekki að tapa eins stórt og í fyrra á móti liðum eins og Hauk- um og ÍR. Við verðum að fara að fá einn óvæntan sigur til að fá sigurvilj- ann og sjálfstraustið í gang. Þegar við erum komnir vel undir þá er eins og menn kveiki á því að þeir þurfi að gefa meira í sinn leik. Þetta er nokkuð sem við þurfum að laga, við verðum að fara að spila af fullum krafti frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu,“ sagði Erlingur Richardsson, þjálfari ÍBV. Leikmenn liðanna verða tæplega dæmdir út frá þessum leik. Til þess var hann of dapur, rislítill og leiðin- legur. Tveir leikmenn eiga þó hrós skilið og eru það markverðirnir Birk- ir Ívar Guðmundsson, Haukum, og Jóhann Guðmundsson, ÍBV. Þeir vörðu báðir ágætlega í þessum leik sem minnti á stundum meira á skot- æfingu heldur en handboltaleik í al- vörumóti. En á Birkir Ívar einhverja skýr- ingu á þessu slaka gengi Hauka í síð- ustu þremur leikjum. Er Evrópu- keppnin eitthvað að trufla leik- mennina? „Já það getur verið að hún sé að því. Menn virðast eiga erfitt með að einbeita sér að þessum verk- efnum. En mótið er bara rétt að byrja og við vorum í nákvæmlega sömu stöðu í fyrra. Við náðum takmarki okkar þá og gerum það aftur núna.“ Létt hjá Haukum HAUKAR unnu léttan sigur, 30:27, á ÍBV í suðurriðli Íslandsmóts karla í handknattleik í gærkvöldi en leikurinn fór fram að Ásvöllum í Hafnarfirði. Algjör lognmolla einkenndi leikinn frá upphafi til 58. mínútu er pínulítil spenna hljóp í leikinn þegar ÍBV minnkaði mun- inn í tvö mörk 29:27. Þær tvær mínútur sem eftir lifðu af leiknum dugðu þó Eyjamönnum ekki til stigs í þessum rislitla leik. Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar RAGNA Ingólfsdóttir og Sara Jónsdóttir badmintonkonur halda á morgun til Ungverja- lands þar sem þær taka þátt í opna ungverska mótinu sam haldið verður um helgina. Mótið er eitt af A-mótunum svokölluðu sem gefa stig til þátttöku á Ólympíuleikunum. Ragna og Sara hafa svo sann- arlega verið á ferð og flugi undanfarnar vikur. Þær höfn- uðu í öðru sæti á alþjóðlegu móti í Slóvakíu fyrir nokkru og um síðustu helgi komust þær í undanúrslit á móti á Miami á Flórída. Ragna og Sara á ferðinni ÞÓRSARAR á Akureyri hafa rætt við Sigurð Lárusson um að taka við þjálfun karlaliðs félagsins í knattspyrnu. Jónas Baldursson þjálfaði Akureyr- arliðið í sumar, en hann gat ekki haldið áfram þar sem hann er fluttur til Hull vegna starfa sinna hjá Samherja. Sigurður hefur ekki svarað Þór, en að sögn forráðamanna liðsins er hann efstur á óska- lista þeirra. Sigurður lék með Þór á ár- um áður, síðast 1990 og þjálf- aði Þórsliðið frá 1991–1994.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.