Morgunblaðið - 29.10.2003, Blaðsíða 14
ERLENT
14 MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SKÓGARELDAR, sem hafa kostað að minnsta
kosti sautján manns lífið, ógnuðu í gær þúsundum
húsa á þéttbýlum svæðum nálægt Los Angeles.
Að minnsta kosti 1.137 hús hafa þegar brunnið til
ösku í Kaliforníu og óttast er að þetta verði skæð-
ustu skógareldar í sögu ríkisins.
Yfir 10.000 slökkviliðsmenn reyna að hefta út-
breiðslu eldanna sem hafa eyðilagt 205.000 hekt-
ara lands.
„Þetta verður kostnaðarsamasti skógarbruni í
sögu Kaliforníu, bæði hvað varðar eignatjónið og
kostnaðinn við slökkvistarfið,“ sagði Dallas Jones,
framkvæmdastjóri almannavarnaþjónustu Kali-
forníu.
Bush lýsir yfir neyðarástandi
Einn af stærstu eldunum breiddist út í Santa
Susana-fjöllum sem aðskilja San Fernando-dal í
Los Angeles og Simi-dal í Ventura-sýslu. Um 1,3
milljónir manna búa í San Fernando-dal. Sextán
hús hafa brunnið til kaldra kola í dalnum frá því á
laugardag og eldurinn ógnar stórum og dýrum
íbúðarhúsum í einu úthverfa Los Angeles.
Talið er að brennuvargar hafi komið nokkrum
eldanna af stað. Yfirvöld hafa dreift teikningu af
manni sem talið er að hafi valdið skógareldi sem
eyðilagði a.m.k. 450 hús og kostaði tvo menn lífið í
San Bernardino-sýslu. Neyðarblys vegvillts veiði-
manns olli stærsta skógareldinum, sem kostaði
ellefu manns lífið, og hann á nú yfir höfði sér
ákæru.
George W. Bush Bandaríkjaforseti lýsti yfir
neyðarástandi í Los Angeles og sýslunum San
Bernardino, San Diego og Ventura. Íbúar þeirra
geta því sótt um styrki, lán eða aðra aðstoð frá al-
ríkinu vegna tjónsins af eldunum.
Þéttbýl svæði í hættu
! "
" #
$
"
"$ %$$
&
"
"$ '
(
)&
((
* &
&
+,,
((
-
!"#$%!&
%
)
"
+,,
$
!!" # $%&''('''" $
!# )()''"* ( +$!"$ #%(
.
/
-
"
0
.
/
0
/
. 123
4
' 5/
'()!*!) $
! +
Yfir 1.100 hús hafa brunnið til ösku í Kaliforníu og sautján manns látið lífið
Simi-dal. AP.
NORSKA lögreglan leitaði enn í
gær að átta mönnum sem rændu
pósthús í Ósló á mánudagskvöld, að
sögn Aftenposten. Mennirnir voru
vopnaðir og kom til skotbardaga
milli þeirra og lögreglumanna,
hugsanlegt er að einn ræningjanna
hafi særst. Ekki er vitað hve ráns-
fengurinn var mikill en talið að hann
sé undir einni milljón norskra
króna, þ.e. innan við 11 milljónir ísl.
kr.
Brúða í líkamsstærð
Mennirnir átta óku um klukkan
22:30 að staðartíma stórum, fjór-
hjóladrifnum Chevrolet-bíl að inn-
gangi byggingarinnar og beindu
byssu að verði á staðnum en hann
starfar fyrir Securitas. Maðurinn er
með aðsetur bak við þykkan stein-
múr og öryggisgler og gat hann
kastað sér á gólfið. Ræningjarnir
gáfu þá í botn og brutu sér leið í
gegnum öflugar dyrnar á bíla-
geymslu hússins. Vörðurinn hringdi
þá í lögregluna sem sendi vopnaða
menn á staðinn.
Áður en ræningjarnir, sem
klæddust hvítum samfestingum og
voru með hettur á höfði, yfirgáfu
Chevrolet-bílinn skildu þeir eftir
brúðu í líkamsstærð í bílnum og
virðist sem þeir hafi ætlað að
blekkja lögreglumenn ef þeir kæmu
nógu snemma á vettvang. Ef til vill
var ætlunin að vinna tíma til und-
ankomu ef lögreglan biði við bílinn
sem var í gangi og með ljósum. Þeg-
ar ræningjarnir komu inn í húsið,
þar sem alls voru um 120 manns að
störfum, tóku þeir strax tvo gísla.
Þvinguðu þeir gíslana til að opna
dyr að fjórðu hæðinni þar sem er
bréfamiðstöð fyrir verðmætan póst.
Póstgíróstofan í húsinu sér um
dreifingu á jafnt innlendum sem er-
lendum pósti til nokkurra svæða í
Noregi. Einn af yfirmönnum póst-
gíróstofunnar, Line Fredriksen,
furðaði sig á því að mennirnir
skyldu ræna stofuna. „Ég er alveg
miður mín. Hvað í ósköpunum geta
þeir fundið þar? Hér er fátt sem
gæti freistað,“ sagði hún. Annar yf-
irmaður, Vidar Eilertsen, bendir á
að ekki séu yfirleitt mikil verðmæti
á staðnum enda sé ekki um neinn
banka að ræða.
Skutu sér leið út
Þegar óboðnu gestirnir komu aft-
ur niður á fyrstu hæðina sáu þeir að
lögreglan var komin á staðinn. Hófu
þeir að skjóta á lögreglumennina ut-
an við húsið úr skammbyssum og
brotnuðu tvær rúður úr öryggisgleri
en glerið reyndist svo sterkt að kúl-
urnar komust með naumindum í
gegn. Síðar var skotið af öflugum
vélbyssum og komust mennirnir
undan á hlaupum en að sögn heim-
ildarmanna var blóð á staðnum og
talið að það sé úr póstræningjunum.
Gætu DNA-rannsóknir á blóðinu
komið að gagni við að leita þá uppi.
Einnig munu hafa náðst myndir af
þeim í öryggismyndavélum. Audi-
bíll sem lögreglan álítur að hafi
tengst ráninu fannst síðar nálægt
Trasop og hafði verið kveikt í hon-
um.
Bíræfið rán framið
í pósthúsi í Ósló
Skotbardagi
milli lögreglu-
manna og ræn-
ingjanna átta
VINSTRIMENN og óháðir fram-
bjóðendur sigruðu víða í sveitar-
stjórnarkosningunum í Kólumbíu sl.
sunnudag og í höfuðstaðnum Bogota
var 52 ára gamall kommúnisti, Luis
Eduardo Garzon, kjörinn borgar-
stjóri. Hann hefur gagnrýnt harka-
lega aðferðir Alvaro Uribe forseta í
baráttunni gegn hryðjuverkasveit-
um tveggja marxistahreyfinga sem
hafa undanfarna áratugi barist gegn
stjórnvöldum.
Á laugardag fór fram þjóðarat-
kvæðagreiðsla um umbótatillögu í 15
liðum sem Uribe hafði samið og var
ætlað að vinna bug á spillingu. Hann
vill m.a. fækka þingmönnum úr 268 í
218, setja skorður við ríkisútgjöldum
og banna kauphækkanir hjá ríkinu í
tvö ár. Tillagan féll vegna þess að
þátttaka var of lítil en samkvæmt
kólumbískum lögum þarf minnst
fjórðungur kjósenda að greiða at-
kvæði ef niðurstaða í þjóðaratkvæði
á að teljast gild. Úrslitin eru sögð
mikið áfall fyrir Uribe sem beitti sér
ákaft í baráttunni fyrir tillögunum.
Mikið er um ofbeldi í tengslum við
kosningar í landinu og er liðsmönn-
um marxista kennt um það. Alls féllu
13 manns á laugardag og 12 eftirlits-
mönnum var rænt þótt um 300.000
hermenn gættu öryggis á kjörstöð-
um. Rúmlega 200 frambjóðendur til
sveitarstjórna drógu framboð sitt til
baka í kosningabaráttunni vegna
morðhótana frá uppreisnarmönnum.
Uribe for-
seti beið
ósigur
Bogota. AFP, AP.
Reuters
Alvaro Uribe, forseti Kólumbíu,
ræðir við fréttamenn í Bogota.
Kólumbía
RÚSSNESKT Sojuz-
geimfar með Banda-
ríkjamanni, Rússa og
Spánverja innanborðs
lenti „draumalendingu“
í eyðimörk í Kasakstan í
gær, rúmlega þremur
klukkustundum eftir að
geimfararnir fóru frá
Alþjóðlegu geimstöð-
inni sem er á sporbaug
um jörðu.
„Þetta var drauma-
lending,“ sagði Rob
Navia, talsmaður
bandarísku geimvís-
indastofnunarinnar
NASA, eftir að hylkið
með mönnunum þremur hafði lent mjúkri lendingu kl. 2:41 að íslenzkum
tíma í fyrrinótt.
Rússinn Júrí Malentjenkó og Bandaríkjamaðurinn Ed Lu, sem fóru til
geimstöðvarinnar fyrir tæpu hálfu ári í sama Sojuz-geimfarinu, og Spán-
verjinn Pedro Duque, sem kom til stöðvarinnar fyrir átta dögum í öðru
geimfari, stigu út úr hylkinu með bros á vör og virtust við góða heilsu.
„Allt gekk að óskum. Við erum mjög lánsamir. Lendingin var eins mjúk
og við vonuðumst til,“ sagði Vladimír Popov hershöfðingi, sem er yfir
teyminu sem ber ábyrgð á leitarstarfi í tengslum við geimferðaáætlun
Rússa. Hann bætti við að geimfarið hefði lent nákvæmlega á áætluðum
lendingarstað.
Þetta var í annað skiptið sem bandarískur geimfari snýr aftur til jarðar í
rússnesku geimfari og lendir á erlendri grundu. Eftir að bandaríska geim-
ferjan Kólumbía fórst í febrúar hefur öllum geimskotum Bandaríkjamanna
verið slegið á frest.
Geimfararnir með kasakskar hempur um
herðar í borginni Astana eftir lendinguna.
„Draumalending“
með þrjá geimfara
AP
Arkalyk í Kasakstan. AFP.