Morgunblaðið - 29.10.2003, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 29.10.2003, Qupperneq 20
LANDIÐ 20 MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Akranesi | Það eru gömul sannindi og ný að íþróttamenn og -konur sem ætla að ná betri árangri verða að leggja mikið á sig til þess að ná settu marki og rúmlega 30 ungir knattspyrnuiðkendur á Akranesi hafa undanfarnar vikur vaknað snemma til þess að mæta á æfingar í íþróttahúsinu við Vesturgötu – með það að leiðarljósi að verða betri íþróttamenn. Þór Hinriksson, yfirþjálfari yngri flokka knattspyrnufélags ÍA, og Grétar Rafn Steinsson, leik- maður meistaraflokks ÍA, taka dag- inn snemma fjóra virka daga í viku og stýra æfingunum sem hefjast stundvíslega kl. 6.30 og standa yfir í rúma klukkustund. Þór segir að hugmyndin hafi kviknað er farið var þess á leit við hann að taka að sér æfingar í knatt- spyrnuskóla Arnórs Guðjohnsen í Reykjavík og hafi áhugi barnanna komið öllum á óvart. „Við erum með tvo 17 manna hópa sem mæta tvisvar í viku. Nám- skeiðið var lítið sem ekkert auglýst en samt sem áður er biðlisti og komust færri að en vildu. Næsta námskeið verður í febrúar og mars, en þá er líklegt að við verðum með fjóra hópa í gangi og verðum í báð- um íþróttahúsunum á sama tíma,“ segir Þór. Áhugi barnanna er mikill segir Grétar, enginn mæti of seint, þvert á móti. „Ég er mættur í Brauða- og kökugerðina klukkan sex til þess að sækja morgunmatinn sem krakk- arnir fá áður en þau fara í skólann. Á meðan er Þór að gera allt klárt í íþróttahúsinu og það er oftar en ekki að það séu fjórir til fimm krakkar á tröppunum þegar hann mætir rétt rúmlega sex í íþrótta- húsið,“ segir Grétar. Það var ekki annað að sjá en að börnin væru hress og kát þegar Morgunblaðið mætti á svæðið sl. þriðjudag, en á þessum æfingum er aðaláherslan lögð á tækniæfingar. „Það er ánægjulegt hve breiður aldurshópur er á þessum æfingum, þeir elstu eru í 2. flokki, 17 ára gamlir, og þeir yngstu eru 9 ára. Við höfum aðeins fengið jákvæð viðbrögð frá því að við byrjuðum og greinilegt að krakkarnir og for- eldrar þeirra vinna vel saman við svona verkefni. Þetta stendur yfir í átta vikur og síðan tökum við okkur frí fram í febrúar en þá ætlum við að fara af stað á ný,“ segir Þór og er þakklátur þeim aðilum sem hafa aðstoðað við umgjörðina á þessum æfingum. „Allir fengu bolta frá Víf- ilfelli, við fáum allt til alls í grill- veislu frá SS og að ógleymdum morgunmatnum sem Brauða- og kökugerðin hefur séð um að útbúa handa okkur. Það fara því allir saddir og eldhressir í skólann eftir æfingar.“ „Mættir á tröppurnar við íþróttahúsið klukkan sex“ Morgunblaðið/Sigurður Elvar Sigurjón Guðmundsson 11 ára, Grétar Rafn Steinsson og Steinunn Guð- mundsdóttir 13 ára hafa vaknað snemma undanfarnar vikur til þess að sparka í bolta – en Sigurjón og Steinunn eru systkini. Ungir knattspyrnumenn á Akranesi leggja mikið á sig og vakna snemma Mývatnssveit | Minnisvarði var á laugardaginn afhjúpaður um þrjá menn sem fórust við lagningu ljós- leiðara á Mývatni 26. október 1999. Þeir sem fórust voru Böðvar Björg- vinsson úr Reykjavík, fæddur 1942; Jón Kjartansson frá Húsavík, f. 1945 og Sigurgeir Stefánsson, f. 1962 úr Mývatnssveit. Athöfnin hófst með því að kirkjukór Mývatnsþinga söng Smávinir fagrir, undir stjórn Þráins Þórissonar. Formaður félags síma- manna, Einar Gústafsson, flutti ávarp og Örnólfur J. Ólafsson, sókn- arprestur, fór með bæn. Svanhildur Pétursdóttir og Böðvar Freyr Stefn- isson afhjúpuðu síðan minnisvarð- ann. Loks söng kórinn Blessuð sértu sveitin mín, og sr. Örnólfur fór með vísu Friðriks Steingrímssonar orta að þessu tilefni: Minninganna myndir streyma mýkja hjartans djúpu und. Ég vil biðja Guð að geyma góða drengi alla stund. Minnisvarðinn sem er úr stáli er hannaður af þeim Þresti Ármanns- syni og Jóni Aðalsteinssyni en smíð- aður af Daða Gráns. Áletrun steypt í málmsteypunni Hellu. Hann er stað- settur á Grímsstaðaöxl í landi Grímsstaða á gatnamótum. Þaðan gefur einstaklega fagra sýn yfir Ytri-Flóa þar sem sá sorgaratburð- ur gerðist sem verið var að minnast. Á þessum slóðum var til vísa fyrir löngu, sem oft er vitnað til af Mý- vetningum: Fagurt er af Flatskalla fyrir norðan sveitina. Horfa yfir hólmana hraun og báða flóana. Mikið fjölmenni, eða yfir 300 manns, ættingjar, vinnufélagar og sveitungar, var samankomið við at- höfnina sem fór fram í stilltu haust- veðri. Að athöfn lokinni bauð Raf- iðnaðarsambandið öllum viðstöddum til kaffidrykkju í grunnskólanum í Reykjahlíð. Konur úr Slysavarna- deildinni Hringnum sáu um veiting- arnar. Morgunblaðið/BFH Minnisvarði afhjúpaður Skagaströnd | Óvenjulegur gestur gerði sig heimakominn í höfninni á Skagaströnd einn góðviðrisdaginn nú í október. Þar var á ferðinni stór rost- ungur sem svamlaði um í rólegheit- unum og virtist ekki láta athafnalífið á hafnarsvæðinu hafa nein áhrif á sig. Um tíma héldu menn sem fylgdust með rostungnum að hann ætlaði sér að skríða á land á grjótvarnargarði sem er í höfninni en honum leist greinilega ekki nógu vel á það og eftir rúmlega hálftíma skoðunarferð um höfnina synti hann í rólegheitunum út úr henni aftur á vit nýrra ævin- týra. Sagnir herma að þetta sé í annað sinn sem rostungur sést í höfninni á Skagaströnd þó mjög langt sé síðan sá fyrri sást. Ljósmynd/Guðmundur H. Stefánsson Rostungurinn var hinn rólegasti og virtist ekki hafa neitt á móti því að vera Ijósmyndaður í bak og fyrir. Rostungur í höfninni á Skagaströnd

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.