Morgunblaðið - 29.10.2003, Qupperneq 37
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 37
Alltaf á laugardögum
Smáauglýsing
á aðeins 500 kr.*
Áskrifendum Morgunblaðsins býðst smáauglýsing fyrir aðeins 500 kr.*
Almennt verð er 1.689 kr.
Pantanafrestur er til kl. 12.00 á föstudögum.
*5 línur; tilboðið gildir til 31. desember 2003.
Hafðu samband! Auglýsingadeild Morgunblaðsins,
sími 569 1111 eða augl@mbl.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
M
O
R
21
22
0
0
9/
20
03
HEIMDALLUR, félag ungra sjálf-
stæðismanna í Reykjavík, hefur sam-
þykkt ályktun þar sem harmað er að
„bæði veraldlegir og andlegir yfir-
menn þjóðkirkjunnar skuli vera mót-
fallnir aðskilnaði ríkis og kirkju, svo
sem fram kom á nýafstöðnu kirkju-
þingi,“ eins og segir í ályktuninni.
„Trúfélög standa ekki jafnt að vígi
á Íslandi svo sem gleggst má sjá á því
að stuðningur við þjóðkirkjuna er
meiri en stuðningur við önnur trú-
félög.
Stjórnarskrá íslenska lýðveldisins
leggur þá skyldu á herðar Alþingis að
styðja þjóðkirkjuna og vernda. Í því
felst skylda löggjafans við eitt trú-
félag umfram önnur. Verður það að
teljast óviðunandi í ríki þar sem trú-
frelsi er við lýði og áhersla er lögð á
jafnrétti borgaranna.
Heimdallur leggur því áherslu á að
ríki og kirkja verði aðskilin hið
fyrsta,“ segir í ályktun Heimdallar.
Vilja aðskilnað ríkis og kirkju
Tóku þátt í stuttmyndagerð
Í frétt um stuttmyndagerð í Há-
teigsskóla síðasta laugardag urðu
þau leiðu mistök að Laugarnesskóli
var nefndur þátttakandi í verkefninu
í stað Laugalækjarskóla. Það voru
vissulega nemendur í tíunda bekk
Laugalækjarskóla sem tóku þátt í
stuttmyndaverkefninu og leiðréttist
það hér með.
Rangt föðurnafn
Missagt var í blaðinu á laugardag-
inn að myndlistarmaðurinn Kristinn
Pálmason væri Pálsson. Morgun-
blaðið biðst velvirðingar á mistökun-
um.
LEIÐRÉTT
SVÆÐISSKRIFSTOFA málefna
fatlaðra Reykjanesi mun flytja
starfsemi sína frá Digranesvegi 5 í
Fjörðinn, Fjarðargötu 13–15 í
Hafnarfirði, 6. hæð. Skrifstofan
verður lokuð mánudaginn 3. nóv-
ember vegna flutninga. Skrifstofan
verður opnuð á hefðbundnum tíma
þriðjudaginn 4. nóvember kl. 9.
Nánari upplýsingar í síma og á
http://www.smfr.is.
Svæðisskrif-
stofa flytur
Ráðstefna um hafsbotninn og
ströndina, samræmd vinnubrögð
og gagnaöflun er haldin í dag, mið-
vikudaginn 29. október, kl. 9.30–14
á Hótel Sögu, Sunnusal. LÍSA,
samtök um landupplýsingar á Ís-
landi fyrir alla, halda ráðstefnuna.
Á ráðstefnunni verður kynnt kort-
lagning og gagnaöflun á haf-
svæðum Íslands og mörg sam-
starfsverkefni sem eru í gangi á
ýmsum sviðum; jarðfræðirann-
sóknir, botnrask, botndýrarann-
sóknir, auðlindakönnun og hafrétt-
armál. Þá verður kynnt verkefni
um samræmingu gagnagrunna um
landgrunnið.
Árni M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra flytur ávarp. Fund-
arstjóri er Jón Gunnar Ottósson,
forstjóri Náttúrufræðistofnunar
Íslands.
Karlahópur Femínistafélagsins
kynnir: Fyrirmyndakvöld á Grand
Rokk kl. 20 í kvöld. Karlar úr
ýmsum áttum ræða um fyr-
irmyndir og segja frá æskufyr-
irmyndum sínum.
Fram koma: Arnar Eggert Thor-
oddsen blaðamaður, Einar Már
Guðmundsson rithöfundur, Jón
Gnarr leikari, Ómar Ragnarsson
fréttamaður og Stefán Pálsson
Múrverji. Fundarstjóri er Hulda
Proppé mannfræðingur.
Stuðningshópur kvenna sem
fengið hafa krabbamein í eggja-
stokka halda rabbfund í húsi
Krabbameinsfélagsins að Skóg-
arhlíð 8 í Reykjavík í dag, mið-
vikudaginn 29. október, kl. 17.
Gestur fundarins verður Sigfinnur
Þorleifsson, sjúkrahúsprestur við
Landspítala – háskólasjúkrahús.
Í DAG
Málstofa á Viðskiptaháskólanum
á Bifröst á morgun, fimmtudaginn
30. október, kl. 16. Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra mun fjalla um al-
þjóðavæðinguna og hvaða áhrif hún
hefur á einstaklinginn og öryggi
hans. Allir velkomnir.
Á MORGUN
Námskeið í jólaskreytingum eru
að hefjast hjá Uffe Balslev Fyrsta
námskeiðið verður haldið sunnudag-
inn 2. nóvember, í vinnustofu Uffe í
Hvassahrauni 2, Vatnsleysuströnd.
Kennt verður að búa til aðventu-
kransa, borðskreytingar, hurða-
kransa o.fl. ef tími vinnst til.
Sérnámskeið eru haldin fyrir t.d.
fyrirtæki, saumaklúbba, kvenfélög
og aðra hópa ef óskað er eftir því.
Skráning og upplýsingar hjá Uffe
Balslev, Hvassahrauni 2, Vatns-
leysuströnd.
Reykjavíkurdeild RKÍ heldur nám-
skeið í almennri skyndihjálp
helgina 31. október –2. nóvember, í
Fákafeni 11, 2. hæð. Kennt verður
kl. 19–23 á föstudagskvöldið og kl.
10–14 á laugardag og sunnudag.
Þátttaka er heimil öllum 15 ára og
eldri. Námskeiðið er 16 kennslu-
stundir. Leiðbeinandi er Ásta Bjarn-
ey Elíasdóttir.
Meðal þess sem verður kennt á nám-
skeiðinu er: aðgerðir á vettvangi,
endurlífgun með hjartahnoði, blást-
ursmeðferðin, hjálp við bruna, bein-
brotum, blæðingum úr sárum, o.fl.
Að námskeiði loknu fá nemendur
skírteini sem hægt er að fá metið í
ýmsum skólum. Skráning er hjá
Reykjavíkurdeild RKÍ.
Námskeið hjá Vista um hvernig
tölvan er notuð sem mælitæki með
LabVIEW 7 Express verður haldið
dagana 5.–6. nóvember kl. 9–16, á
Höfðabakka 9. Kennd verða grunn-
atriði við sýnatökutíma. Notkun á
Express-víum sem einfalda mjög
alla hugbúnaðargerð. Verklegar æf-
ingar. Verð fyrir námskeið er 29.000
kr. Skráning í tölvupósti hjá vista-
@vista.
Byrjendanámskeið í rötun hjá Úti-
vist verður dagana 4.–9. nóvember.
Kennd verður notkun korta, áttavita
og GPS-tækja. Kennt verður inni tvö
kvöld og svo hálfs dags verkleg æf-
ing úti. Námskeiðið verður þriðju-
daginn 4. og fimmtudaginn 6. nóv-
ember kl. 20–23, og sunnudaginn 9.
nóvember kl. 10–14. Leiðbeinandi er
Sigurður Jónsson.
Almennt verð 3.100 kr. og 1.600 kr.
fyrir félagsmenn. Námskeiðið er öll-
um opið, hámarksfjöldi þátttakenda
er 20. Námskeiðið er haldið á skrif-
stofu Útivistar á Laugavegi 178 og
hægt að skrá sig með því að senda
póst á utivist@utivist.is eða hringja.
Á NÆSTUNNI
MJÓLKURSKÁKMÓTIÐ á Hótel
Selfossi 2003 verður haldið dagana
29. október til 7. nóvember en
jafnframt er efnt til skákviðburða
fyrir börn í öllum skólum á Suður-
landi. Meðal keppenda verða sum-
ir af sterkustu skákmönnum heims
auk heimavarnarliðs Íslendinga.
Friðrik Ólafsson stórmeistari er
verndari mótsins og aðalskákskýr-
andi á Hótel Selfossi verður Bent
Larsen.
Fyrsta umferð hefst kl. 17 í dag
en aðrar umferðir verða tefldar kl.
15.
Mjólkur-
skákmótið á
Hótel Selfossi
SVERRIR Haukur Gunnlaugsson
sendiherra afhenti hinn 24. október
sl. Emile Lahoud, forseta Líbanon,
trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Ís-
lands í Líbanon með aðsetur í Lond-
on.
Er þetta í fyrsta skipti sem ís-
lenskur sendiherra afhendir trúnað-
arbréf í Líbanon.
Afhenti
trúnaðarbréf
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Starfshópi
um stofnun sjóminjasafns í Reykja-
vík: „Í grein í Morgunblaðinu 2.
október sl. um sjóminjasafn í
Reykjavík er sagt að Reykjavíkur-
borg hafi á sínum tíma átt sjóminjar
sem hópur manna í Reykjavík safn-
aði árið 1939 og voru síðan flestar af-
hentar Þjóðminjasafninu. Svo var
ekki og skrifast sú skekkja sennilega
á misskilning milli greinarhöfundar
og viðmælanda. Um leið og beðist er
velvirðingar á þessu skal tekið fram
að starfshópurinn hefur fundið fyrir
miklum velvilja af hálfu Þjóðminja-
safns í garð væntanlegs sjóminja-
safns í höfuðborginni, m.a. lýst yfir
góðum vilja til samstarfs og að lána
sjóminjar úr sinni eigu á sýningar.“
Gott samstarf við
Þjóðminjasafnið
BORIST hefur eftirfarandi ályktun
sem var samþykkt á aðalfundi Sam-
fylkingar Seltirninga nýlega: „Aðal-
fundur Samfylkingar Seltirninga 21.
október 2003 átelur vinnubrögð
meirihluta bæjarstjórnar sem án
efnislegs rökstuðnings og án sam-
ráðs við kennara eða foreldra ákvað
á fundi 8. október síðastliðinn að
sameina grunnskóla bæjarins. Ger-
ræði meirihluta bæjarstjórnar hefur
komið skólastarfi í uppnám. Aðal-
fundurinn krefst þess að meirihluti
bæjarstjórnar dragi samþykktina
frá 8. október nú þegar til baka. Að
öðrum kosti blasir við óbætanlegt
tjón á skólastarfi á Seltjarnarnesi.“
Formaður Samfylkingar Seltirn-
inga, Páll Vilhjálmsson, var endur-
kjörinn á aðalfundinum. Aðrir í
stjórn eru Stefán Bergmann, Sunn-
eva Hafsteinsdóttir, Sigrún Bene-
diktsdóttir og Guðfinna Emma
Sveinsdóttir.
Sameining skóla
verði dregin til baka