Morgunblaðið - 29.10.2003, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 29.10.2003, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 39 DAGBÓK LÍNUR eru nokkuð farnar að skerpast í landsliðs- keppni BSÍ, hinu svokallaða Yokohamamóti, þar sem keppt er um réttinn til að taka þátt í alþjóðamóti í Japan í febrúar á næsta ári. Tólf pör hafa setið yfir spil- um í tvær helgar og lagt að baki 128 spil. Hver umferð er 8 spil og efstir eftir 16 umferðir af 22 eru Bjarni H. Einarsson og Þröstur Ingi- marsson efstir með 570 stig. Næstir koma Sigurður Vil- hjálmsson og Rúnar Magn- ússon með 520, en í þriðja sæti eru Júlíus Sigurjóns- son og Hrannar Erlingsson með 504. Síðustu 6 umferð- irnar verða spilaðar sunnu- daginn 9. nóvember og enn eru 360 stig í pottinum, svo margt getur gerst. En nú liggur fyrir að skoða mark- verðustu spil frá síðustu helgi og við byrjum á slemmu í tígli: Norður ♠ G2 ♥ 952 ♦ K5 ♣K87532 Suður ♠ Á ♥ Á83 ♦ ÁG109872 ♣Á9 Suður verður sagnhafi í sex tíglum og útspilið er smár spaði. Hvernig er best að spila? Tapslagirnir tveir í hjarta fara hvergi nema niður í lauf. Sem þýðir að laufið verður að liggja 3-2 og trompið helst 2-2. Þar sem greinarhöfundur sá til var Sigurbjörn Haraldsson í suðursætinu. Hann spilaði laufás, laufi á kóng og þriðja laufinu úr borði. Austur trompaði með drottningu og Sigurbjörn yfirtrompaði. Og fann nú skemmtilegan leik. Hann spilaði tígultvistinum, þristur frá vestri, og svínaði fimmunni! Norður ♠ G2 ♥ 952 ♦ K5 ♣K87532 Vestur Austur ♠ K10875 ♠ D9643 ♥ DG4 ♥ K1076 ♦ 63 ♦ D4 ♣G106 ♣D4 Suður ♠ Á ♥ Á83 ♦ ÁG109872 ♣Á9 Svíningin djúpa heppn- aðist, en það var aukaatriði, því austur mátti fá slag á trompsexuna. En Sig- urbjörn vildi tryggja vinn- ing ef vestur átti 643 og austur drottninguna staka. Í þeirri legu mátti spila frí- laufum úr borði og geyma kónginn í trompi sem síðari tíma innkomu. Á þessari hugmynd er þó einn fræðilegur hængur: Ef vestur á 643 getur hann rok- ið upp með sexuna og eyði- lagt með því aðra innkom- una! En er einhver svo vakandi? BRIDS Guðmundur Páll Arnarson STJÖRNUSPÁ Frances Drake SPORÐDREKI Afmælisbörn dagsins: Þú ert vel gefin/n, vandvirk/ ur og fær í mannlegum sam- skiptum. Komandi ár getur orðið besta og árangursrík- asta ár ævi þinnar. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú býrð yfir óvenju miklum krafti og framtakssemi í dag sem skilar sér einnig til til- finningalífsins. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú átt einstaklega auðvelt með öll samskipti í dag, bæði við ókunnuga og þína nánustu. Reyndu að koma hugmyndum þínum á framfæri í dag. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Dagurinn hentar vel til til- tektar og skipulagningar. Þig langar til að koma reglu á hlutina og þú munt koma miklu í verk. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú ert í skapi til að stríða, leika þér og daðra. Þú ert einnig óvenju skapandi. Njóttu þessa skemmtilega tíma. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú getur komið miklu í verk á heimilinu í dag. Þú ert í skapi til að henda, þrífa og skipu- leggja þig. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú munt standa fast á skoð- unum þínum næstu tvo daga. Þú sérð hlutina skýrar í dag og ættir því að reyna að ganga frá hvers konar viðskiptum og samningum fyrir morgundag- inn. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú ættir að kaupa eitthvað handa sjálfri/sjálfum þér í dag. Þú ert sátt/ur við sjálfa/n þig og þig langar til að láta það sjást. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú býrð yfir yfirvegun og sjálfstrausti í dag. Gættu þess að setja ekki aðra út af laginu með ákveðni þinni. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Láttu ekki hugmyndir þínar koma af stað leiðindum á heimilinu. Gerðu það sem er í þínu valdi og láttu aðra um sitt. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þér gengur sérlega vel að vinna með öðrum í dag. Þú getur sannfært aðra án nokk- urrar fyrirhafnar. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú hefur skýrar hugmyndir varðandi vinnuna og ákveðnar skoðanir á því hvernig verja eigi peningum. Sýndu öðrum þolinmæði. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú ert óvenju kraftmikil/l og þarft að fá útrás fyrir orkuna. Farðu í leikfimi eða út að hlaupa. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. VAKRI SKJÓNI Hér er fækkað hófaljóni – heiminn kvaddi vakri Skjóni; enginn honum frárri fannst; – bæði mér að gamni’ og gagni góðum ók ég beizla-vagni til á meðan tíminn vannst. Á undan var ég eins og fluga; oft mér dettur það í huga af öðrum nú þá eftir verð. – Héðan af mun ég hánni ríða, – hún skal mína fætur prýða, einnig þeirra flýta ferð. Lukkan ef mig lætur hljóta líkan honum fararskjóta, sem mig ber um torg og tún: vakri Skjóni hann skal heita; honum mun ég nafnið veita þó að meri það sé brún. Jón Þorláksson LJÓÐABROT 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 c5 4. d5 exd5 5. cxd5 d6 6. Rc3 g6 7. Bf4 a6 8. e4 b5 9. De2 Be7 10. h3 0-0 11. 0-0-0 b4 12. Rb1 He8 13. Rbd2 Bf8 14. Dd3 Rbd7 15. He1 Rb6 16. Dc2 Bd7 17. Bc4 Bb5 18. g4 Rxc4 19. Rxc4 Bxc4 20. Dxc4 Rd7 21. Kb1 Rb6 22. Dc1 Bg7 23. Bg5 Dd7 24. Df4 Staðan kom upp í fyrri hluta 2. deildar Íslandsmóts skákfélaga sem lauk fyrir skömmu í Menntaskólanum í Hamrahlíð. Nick DeFirm- ian (2.553) hafði svart gegn Guðmundi Halldórssyni (2.282). 24. ... f6! 25. Bh4 svartur hefði einnig unnið mann eftir 25. Bxf6 Bxf6 26. Dxf6 Hf8. 25. ... g5 26. Rxg5 fxg5 27. Dxg5 Rc4 28. He2 Db5 29. Hhe1 b3 30. a3 Rxa3+! 31. bxa3 Dd3+ og hvítur gafst upp. Staðan í 2. deild er þessi: 1. Skákfélagið Hrókurinn C-sveit 16½ vinning af 24 mögulegum. 2. Taflfélag Akraness 14 v. 3. Taflfélag Garðabæjar a-sveit 13 v. 4. Taflfélag Bol- ungarvíkur 12 v. 5. Taflfélag Reykjavíkur c-sveit 11 v. 6. Skákfélag Selfoss og ná- grennis 10½ v. 7. Taflfélag Kópavogs 10 v. 8. Skákfélag Reykjanesbæjar og ná- grennis 9 v. 1. umferð Mjólkurskákmótsins hefst í dag á Hótel Selfossi. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. ÁRNAÐ HEILLA 75 ÁRA afmæli. Sunnu-daginn 26. október sl. varð 75 ára Hjalti Bjarnason, Litlagerði 7, Hvolsvelli. 50 ÁRA afmæli. ÞorkellJóhann Jónsson, framkvæmdastjóri Sam- eyjar ehf., verður fimm- tugur föstudaginn 31. októ- ber nk. Hann mun ásamt konu sinni, Helgu Hauks- dóttur, taka á móti gestum á heimili sínu, Digranesvegi 67, kl. 19. Hjónin vona að fjölskylda, samstarfsmenn, vinir og kunningjar komi og samfagni með þeim á þess- um tímamótum. 50 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 29. október, er fimmtugur Gylfi Guðmundsson, Lyngheiði 16, Selfossi. Eiginkona hans er Margrét Stefánsdóttir. Þau taka á móti ættingjum og vinum laugardaginn 1. nóvember í Reiðhöllinni, á Ingólfshvoli í Ölfusi, frá kl. 16 til kl. 19.              Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega sérhæð í Þingholtunum eða í vesturbæ. Sterkar greiðslur í boði fyrir rétta eign. Upplýsingar veitir Magnea Sverrisdóttir fasteignasali í síma 588 9090 eða 861 8511. Hæð í Þingholtunum óskast Kvenfélagi Hafnarfjarðarkirkju hafa verið færðar 500.000 kr. að gjöf til minn- ingar um Guðríði Þórðardóttur, Reykjavíkur- vegi 16, Hafnarfirði, frá Birnu og öðrum afkom- endum hennar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.