Morgunblaðið - 29.10.2003, Side 40

Morgunblaðið - 29.10.2003, Side 40
ÍÞRÓTTIR 40 MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK  KRISTINN Jakobsson, milliríkja- dómari í knattspyrnu, dæmir fyrri viðureign Bordeaux og Hearts í 2. umferð UEFA-keppninnar í knatt- spyrnu sem fram fer á Chaban- Delmas-leikvanginum í Bordeaux 6. nóvember. Aðstoðardómarar með honum verða Einar Guðmundsson og Eyjólfur Finnsson. Þá verður Gylfi Þór Orrason fjórði dómari á leiknum.  RAGNAR Hjaltested, hornamaður Víkinga í handknattleik, leikur ekki meira með liðinu í vetur. Hann þarf að gangast undir uppskurð sam- kvæmt því sem fram kemur á heima- síðu félagsins. Ragnar er eini örv- henti hornamaður liðsins.  PATRICK Vieira, fyrirliði Arsen- al, sem verður frá keppni næstu vik- urnar vegna meiðsla, er farinn til Frakklands. Hann verður þar í sjúkraþjálfun, en ljóst er að hann mun ekki leika með Arsenal fyrr en í fyrsta lagi gegn Birmingham 22. nóvember.  DOUG Ellis, stjórnarformaður Aston Villa, hefur tilkynnt David O’Leary, knattspyrnustjóra félags- ins, að stjórnin hafi ákveðið að láta hann hafa eitthvert fé til að kaupa leikmenn í janúar þegar leikmanna- markaðurinn verður opnaður á ný. Fyrir tímabilið voru skilaboðin þau að O’Leary fengi aðeins fjórar millj- ónir punda til leikmannakaupa, en því hefur verið breytt.  TYRKNESKI landsliðsmaðurinn Alpay, sem var leystur undan samn- ingi hjá Aston Villa á dögunum, eftir að hafa lent í útistöðum við David Beckham, fyrirliða enska landsliðs- ins, í landsleik í Tyrklandi, er á leið- inni til Þýskalands. Hertha Berlín og Hamburger SV vilja fá hann til sín og þá hefur Borussia Möchen- gladbach sýnt honum áhuga. „Ég mun fara til Þýskalands til að ræða nánar við forráðamenn liðanna,“ sagði Alpay.  SEBASTIAN Kehl, leikmaður þýska knattspyrnuliðsins Dort- mund, hefur verið dæmdur í leik- bann í annað skipti á keppnistíma- bilinu. Hann var í gær dæmdur í fimm leikja bann fyrir að ráðast að Thomas Zdebel, leikmanni Bochum, um sl. helgi. Þessi skapbráði 22 ára leikmaður lék ekki með liði sínu sex fyrstu vikurnar á keppnistímabilinu. Kehl var dæmdur í leikbann í júlí, eftir að hann réðist að dómara í leik í deildabikarkeppninni í júlí.  CHELSEA hefur augastað á Seb- astien Frey, 24 ára, markverði Parma. Frey er talinn efnilegasti markvörður Ítalíu og hafa Arsenal, Manchester United og Bayern München sýnt honum áhuga, en Chelsea er talið líklegast til að tryggja sér markvörðinn – og hefur verið rætt um að Carlo Cudicini, markvörður Chelsea, myndi fara í skiptum til Parma. É g er sem betur fer búinn að ná mér að fullu en það tók reyndar sinn tíma, eða um átta mánuði. Ég sleit kross- band og reif liðþófa í hægra hné í fyrsta leik undirbúningstímabilsins í ágúst 2002. Það gerðist þegar ég smeygði mér á milli varnarmanna – hnéð gaf sig. Ég fór í tvær aðgerðir í Dunkerque með tíu daga millibili og síðan tók við langt og strangt end- urhæfingarferli, sem reyndi töluvert á mig bæði andlega og líkamlega. Ég var í endurhæfingu í Dunkerque í ellefu vikur, sem byggðist á því að byrja að þjálfa mig upp í að ganga á ný. Stór þáttur í uppbyggingunni var að synda og styrkja mig á ýmsan hátt,“ sagði Ragnar, sem fór til borg- arinnar Lille, sem er við landamæri Belgíu eins og Dunkerque. Þar var hann í sjö vikur við æfingar. „Þar æfði ég um átta tíma á dag, lyfti og gerði jafnvægisæfingar. Með hjálp góðra manna hefur mér tekist að styrkja mig mikið og ég tel að lík- amlegur styrkur minn hafi aldrei verið betri en einmitt nú – ég hef aldrei verið eins vel upplagður. Þegar ég kom svo aftur til Dunk- erque æfði ég á hliðarlínunni á með- an liðið æfði á hefðbundinn hátt og það tók virkilega á. Þar var ég undir handleiðslu Jean-Pierre Lepointe, sem var aðstoðarlandsliðsþjálfari Frakka, er þeir urðu heimsmeistar- ar á eftirminnilegan hátt á HM á Ís- landi 1995, en hann er fyrrverandi þjálfari Dunkerque. Lepointe lét mig gera mikið af jafnvægisæfingum til þess að ná stjórn á líkamanum að nýju, og í dag geri ég slíkar æfingar í hálftíma á degi hverjum. Þar sem mikið hefur verið rætt og ritað um ástæður þess að handknattleiksmenn slíti kross- bönd – jafnoft og raun ber vitni – þá velti ég því fyrir mér hvort hand- knattleiksþjálfarar mættu ekki leggja meiri áherslu á fyrirbyggj- andi æfingar. Áður en ég meiddist hugsaði ég aldrei um að æfa líkam- legt jafnvægi, en ég sé núna að slíkar æfingar hefðu hæglega getað verið fyrirbyggjandi. Þess má geta að eftir að hafa gengið í gegnum þetta erfiða tímabil nýt ég þess mun betur að vera heill og er samviskusamari en áður í því að gæta heilsunnar.“ Draumurinn er að leika á Spáni Ragnar samdi við Dunkerque árið sumarið 2000 og gerði þá tveggja ára samning. Hann gerði nýjan tveggja ára samning fyrir rúmu ári og hann verður því samningslaus í júní næst- komandi. Hvað er framundan hjá þér? „Þegar ég kom fyrst hingað til Dunkerque, vildi ég fyrst og fremst sanna mig sem handknattleiksmað- ur – auk þess að læra tungumálið. Ég tel að mér hafi tekist það og ég er mjög ánægður með þann tíma sem ég hefur verið hjá, fyrir utan meiðsl- in að sjálfsögðu. Hér hef ég þroskast sem leikmaður. Ég hef verið hér fjögur keppnistímabil og mér finnst vera komið að því að takast á við nýja áskorun. Ég vil fyrir alla muni halda áfram í atvinnumennsku og draum- urinn er að komast að í spænsku 1. deildinni. Ég tel að handknattleik- urinn, eins og hann er leikinn á Spáni, myndi henta mér. Franska deildin er það sterk, þannig að við- brigðin yrðu ekki of mikil. Spánn væri krefjandi verkefni og vonandi fæ ég tækifæri til að leika þar. Þýskaland er auðvitað einnig góður kostur, en ég er spenntari fyrir því að búa á Spáni. Mér finnst ég eiga mikið inni sem handknattleiksmaður enda er 25 ár ekki hár aldur hjá handknattleiksmönnum.“ Með í meistarabaráttu Hvernig horfir tímabilið við hjá Dunkerque? „Við höfum byrjað vel, höfum við tapað tveimur útileikjum eftir sjö umferðir og annar þeirra var gegn Montpellier, sem því miður er með langsterkasta leikmannahópinn, enda sigurvegarar í Meistaradeild Evrópu. Við gerðum jafntefli á heimavelli gegn Kervadec og fé- lögum í Crétei, en höfum unnið hina fjóra. Það bendir því allt til þess að við verðum í toppbaráttunni, en markmiðið er að ná Evrópusæti. Það hefur liðinu ávallt tekist frá því að ég kom hingað og það er mikilvægt að vera með á þeim vettvangi. Í ár erum við í áskorendakeppni Evrópu sem verður spennandi verkefni en við komust í átta liða úrslit í Evrópu- keppni árið 2001. Annars hefur ár- angur liðsins frá því ég kom verið verið vonum framar, því liðið hafnaði í tíunda sæti árið áður. Besti árangur félagsins er þriðja sæti, sem við náð- um árið 2002. Vorum þá klaufar að ná ekki öðru sæti.“ Er mikið um erlenda leikmenn í frönsku deildinni? „Í okkar liði eru ásamt mér fimm útlendingar, fjórir landsliðsmenn frá Póllandi, Úkraínu og Túnis. Mark- vörðurinn er fyrrverandi landsliðs- maður Júgóslavíu. Hann var í lands- liðshópnum sem varð heimsmeistari árið 1986. Hann er fertugur og er fyrirliði Dunkerque. Í flestum liðum eru þetta þrír erlendir leikmenn, en þeim hefur fjölgað töluvert í ár, líklega vegna þess að Montpellier Ragnar Óskarsson er kominn á fulla ferð með franska liðinu Dunkerque, eftir að hafa verið lengi frá vegna meiðsla á hné Ragnar Óskarsson, landsliðsmaður í hand- knattleik, er kominn á fulla ferð á ný með franska 1. deildarliðinu Dunkerque, eftir að hafa meiðst illa á hné fyrir rúmu ári. Meiðslin urðu til þess að Ragnar lék nánast ekkert á síðastliðnu tímabili, en sem af er þessu tímabili hefur honum gengið allt í haginn. Kristján Jónsson leit við hjá Ragn- ari í Dunkerque á dögunum. Eftir sjö um- ferðir í Frakklandi er Ragnar á meðal markahæstu manna og í hópi þeirra sem hafa átt flestar stoðsendingar. ÓLAFUR H. Kristjánsson verður Svíanum Sören Åkeby til aðstoðar sem þjálfari danska úrvalsdeild- arliðsins AGF en Åkeby var í gær ráðinn nýr þjálfari liðsins í stað Poul Hansens sem rekinn var úr starfi fyrir síðustu helgi. Ólafur hefur verið aðstoðarmaður Han- sens undanfarin tvö ár en í kjölfarið á brottrekstri hans var óvíst um framtíð Ólafs hjá félaginu. Leik- menn lögðu ríka áherslu á að Ólaf- ur yrði áfram þjálfari liðsins og á blaðamannafundi í gær þar sem ráðning Åkeby var tilkynnt var frá því greint að Ólafur og Åkeby yrðu þjálfarar liðsins. Åkeby kemur til AGF frá Djurgården en undir hans stjórn hefur liðið hampað meist- aratitlinum undanfarin tvö tímabil en Åkeby hefur þjálfað Djurgården undanfarin fjögur ár. „Það voru fréttir í blöðunum og þá aðallega í Svíþjóð að Åkeby kæmi með aðstoðarþjálfara sinn frá Djurgården í minn stað en þær fréttir áttu ekki við rök að styðjast. Åkeby leggur þetta öðruvísi upp en Hansen. Ég á ekki að vera beint að- stoðarmaður hans heldur erum við saman með þetta en hann hefur þó úrslitavaldið,“ sagði Ólafur við Morgunblaðið í gær. Ólafur er samningsbundinn AGF til næsta vors. Fyrsti leikur þeirra Ólafs og Åkeby með liðið er í kvöld þegar AGF tekur á móti OB. Ólafur H. Kristjánsson áfram hjá AGF „ÞETTA gekk nú ekki alveg nógu vel á síðustu holunum í dag,“ sagði Ragnhildur Sigurðardóttir, kylf- ingur úr Golfklúbbi Reykjavíkur, í samtali við Morgunblaðið í gær eftir að hún hafði lokið leik á fyrsta degi úrtökumótsins fyrir evrópsku móta- röðina í kvennagolfi. Hún kom inn á 77 höggum, fimm höggum yfir pari Aroeira-golfvallarins í Portúgal. Ragnhildur byrjaði ágætlega og eftir fyrstu tólf holurnar var hún á pari. „Ég var mjög sátt við megnið af þessum fyrstu tólf holum, en ég fékk skramba á þrettándu holuna og síðan þrjá skolla áður en yfir lauk,“ sagði Ragnhildur. Hún sagðist hafa slegið ágætlega en púttað illa. „Flatirnar eru rosa- lega stórar og mikið landslag í þeim þannig að menn verða að vanda sig. Ég er í mjög góðri æfingu og hef leikið vel síðustu dagana, en þetta er alltaf spurning um hvernig maður bregst við úti á vellinum. Miðað við það skor sem er komið inn þá sýnist mér að ég komist áfram ef ég spila svipað á morgun og ég gerði í dag,“ sagði Ragnhildur. „Ég ætla reyndar rétt að vona að ég geri það ekki; það er að vera á svipuðu skori og í dag því ég er langt frá því að vera ánægð með það. Ég ætla að komast áfram. Besta skorið sem var komið inn áðan var tveir undir pari,“ sagði hún, en margir kylfingar áttu eftir að ljúka leik. Ragnhildur byrjaði ekki vel í Portúgal Hef aldrei verið eins vel upplagður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.