Morgunblaðið - 29.10.2003, Side 49

Morgunblaðið - 29.10.2003, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 49 ÁLFABAKKI Sýnd kl. 10.10. B.i. 16. AKUREYRI Sýnd kl. 8 og 10. AKUREYRI Sýnd kl. 6, 8 og 10. KRINGLAN Sýnd kl. 8 og 10. KRINGLAN Sýnd kl. 8 og 10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.45, 5.55, 8 og 10.10. EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.50, 8 OG 10.10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8. B.i.10 Stórstjörnurnar George Clooney og Catherine Zeta-Jones fara á kostum í myndinni. Nýjasta mynd Coen bræðra. Frábær rómantísk gamanmynd sem bragð er að. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4. Ísl. tal.  SG DV Empire Kvikmyndir.is SV MBL “Fyndnasta barátta kynj- anna á tjaldinu um langa hríð.” AKUREYRI Sýnd kl. 6. Ísl. tal. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. KRINGLAN Sýnd kl. 6. Ísl. tal. ÁLFABAKKI Kl. 3.40, 5.50 og 8. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8. ÁLFABAKKI Kl. 5.45, 8 og 10.15. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10.15. KEFLAVÍK Sýnd kl. 10.15. B.i. 12 KRINGLAN Sýnd kl. 6. Beint á toppin n í USA Ævintýraleg spenna, grín og hasar ROGER EBERT i l , í KVIKMYNDIR.IS  SG DV  HJ MBL Miðave rð 500 k r. Ævintýraleg spenna, grín og hasari l í The Rundown er mikil rússíbanareið og hún nær þeim ævintýrablæ og húmor sem einkennir m.a. Indiana Jones myndirnar. H.K. DV. frumsýning 5. nóv . BRESKA sjónvarpsstöðin Chann- el 4 stóð fyrir skoðanakönnun á dögunum þar sem leitað var að hryllilegasta atriði kvikmynda- sögunnar. Þarf ekki að koma á óvart að hin sígilda sena úr Shin- ing, er Jack Nicholson rekur grimmúðlegt andlitið inn um brotna hurð, varð hlutskörpust. Nicholson, í hlutverki nafna síns Torrance, hrópar „Here’s Johnny“ er hann ryðst í gegnum gatið. Sagan segir að Nicholson hafi spunnið setninguna á staðn- um. Torrance þessi er að gæta hótels um vetur, er búinn að missa vitið og er að elta konu sína með exi í umræddu atriði. Listi yfir 100 atriði var settur saman af sérfræðingum og síðan var kosið á milli í nokkrar vikur. Fimmtíu efstu atriðin voru sýnd á stöðinni um helgina. Elsta myndin sem náði inn á lista var Psycho og var þar á ferðinni hin gæsahúð- armyndandi sturtusena. Topp tíu 1. The Shining. Er Nicholson brýst í gegnum hurðina. 2. Særingamaðurinn (The Exorc- ist). Höfuðsnúningur ungu stúlk- unnar og ælan. 3. Jaws. Illa leikið höfuð dettur niður úr bát í kafi. 4. Alien. Þegar skrímslið grefur sig út úr bringu Kane (John Hurt). 5. The Blair Witch Project. Heather Donahue grátandi í skóginum. 6. Ring. Sadako skríður úr sjón- varpinu. 7. Halloween. Andlit fjöldamorð- ingjans birtist á bakvið persónu Jamie Lee Curtis í húsi fullu af dauðu fólki. 8. Texas Chainsaw Massacre. Í hvert sinn sem Leðurfés birtist. 9. The Omen. Tónlistin. 10. Martröð á Álmstræti. Þegar Freddy Krueger birtist í fyrsta skipti. Hryllilegustu augnablik kvikmyndasögunnar „Hér er Jonni!“ VARLA er hægt að ganga lengra í að gera hlutina sjálfur en Hjörtur Blöndal sem vélar um allt sem við- kemur plötu hans Keen Sabid. Af vefsetri Hjartar, hjortur.dk, má ráða að hann hefur starfað sem hljóð- maður og upptöku- stjóri í Danmörku undanfarin ár. Keen Sabid er þriðja platan sem hann sendir frá sér síðan árið 2000, en rétt er að geta þess að platan sem hér um ræðir kom út á síðasta ári. Lögin á Keen Sabid eru nýstárleg að því leyti að þau eru einskonar sambræðingur af rokki og danstón- list, þ.e. þau byggjast mörg á síend- urteknum stefjum áþekkt og í dans- tónlist en aðalhljóðfæri eru yfirleitt hefðbundin rokkhljóðfæri studd af ýmislegum rafeindaklækjum. Hirti er lagið að semja grípandi danstakta, nokkuð gamaldags reyndar, en oft prýðilega útfærða. Flest laganna eru einmitt endurteknir taktkaflar, ekki eiginleg lög, sem kemur ekki að sök í sjálfu sér en fyrir vikið verður skífan fulleinsleit. Þannig er varla rétt að kalla You Got It lag, framvinda í því er lítil sem engin, og eins er lítið á seyði í Take it og Fall, svo dæmi séu tekin Ekki hugnast mér útgáfa Hjartar af Man of Constant Sorrow; drunga- leg útsetningin með þunglamalegum takti og veinandi röddum gerir lítið fyrir lagið, það er frekar að hún fletji það út. Í því lagi koma takmarkanir Hjartar sem söngvara vel í ljós og eins í The Day sem er annars prýði- legt lag. Eitt besta lagið á plötunni er Now and Here þar sem skemmti- legt kassagítarspil er á hægfara sveimkenndum grunni, gott lag en enn og aftur dregur söngurinn það niður. Annað gott lag er Call og eins er I’ll Fix Your Feet prýðilegt þar sem sellóhljómur og píanó kallast á með ágætlega útfærðu slagverki og skemmtilega óvæntum millikafla. Hjörtur kann greinilega til verka í hljóðverinu, handbragð er fagmann- legt og útsetningar vel unnar. Í öðru lagi sklífunnar, New York Woman, skreytir hann til að mynda skemmti- lega með fjölbreyttum röddum og eins eru raddir vel notaðar í You Got it. Hann er ekki ýkja mikill söngvari, hefur frekar eintóna rödd, en kemst jafnan vel frá sínu, þarf ekki alltaf að syngja. Framburður hans á ensku er óneitanlega nokkuð sérstakur, fellur ekki vel að viðurkenndum framburði sem kenndur er í skólum, en hann er sjálfum sér samkvæmur. Helsti galli þessarar plötu Hjartar er það hve platan er löng, 73 mínútur eru of mikið af því góða þegar fjöl- breytnin í lagasmíðum er ekki meiri en raun ber vitni þótt útsetningar séu breytilegar. Með færri lögum og betri samsetningu, þ.e. ef lögunum væri raðað betur á diskinn, hefði Keen Sabid orðið mun betri plata að ekki sé talað um ef Hjörtur legði meiri vinnu í sönginn eða fengi ein- hvern til að aðstoða sig við hann. Tónlist Einskonar sambræð- ingur Hjörtur Keen Sabid Around the Corner Records Keen Sabid, breiðskífa Hjartar Blöndal. Hjörtur semur öll lög utan eitt, Man of Constant Sorrow, sem er líklega eftir Carter Stanley. Hjörtur leikur á öll hljóð- færi, útsetur lögin og stýrir upptökum. Hann hannaði líka umslag og gefur skíf- una út á merkinu Around the Corner Re- cords. Árni Matthíasson LOKAMYND Matrix-þríleiksins, Matrix-byltingarnar, var heimsfrumsýnd í Los Angeles á mánudaginn. Myndin verður svo frumsýnd annars staðar í heiminum 5. nóvember næst- komandi og búast spekingar fastlega við því að aðsóknarmet verði slegin. Myndin er frumsýnd samtímis til þess að sporna við netþjófnaði á mynd- inni en undanfari hennar, Matrix endurhlaðið, var komin á Netið tveimur vikum eftir frumsýningu. Þriðja Matrix-myndin frumsýnd í Los Angeles Snúið á netþjófa AP Nokkrir af aðalleikurum myndarinnar stilltu sér upp af tilefninu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.