Vísir - 15.11.1980, Blaðsíða 13

Vísir - 15.11.1980, Blaðsíða 13
Laugardagur 15. nóvember 1980. vism Mótlæti Þaö er án efa vandaðasta plata hans til þessa, bæði hvað hugmyndir, framsækni og hljóm snertir. Þrátt fyrir þetta seldist platan, eða öllu heldur plöturnar tvær, sáralitið. „Secret Life of Plants” inni- heldur tónlist við samnefnda kvikmynd sem sýnir hið dular- fulla lifriki plantna. Það er all-skrýtið að fá blindan tón- listarmann til að semja tónlist við kvikmynd, hvað þá slika mynd, þar sem spilaö er inná fegurð plantna og fleira i þeim dúr. En að sögn þeirra er til þekkja náði Stevie einstaklega að ná fram þeirri tilfinningu sem þurfti i tónlistinni. En verk- ið var of þungt til að gamlir að- dáendur gætu sætt sig við það og þvi var þörf á skjótum við- brögðum. Stevie lét ekki biða of lengi eftir nýrri plötu og nú er komin platan Hotter than July, ekta Wonder plata að flestu leyti sem allir geta sætt sig við. Tónlistarhiti Stevie Wonder er það lagið að þróa sig áfram og fylgja þeim ■ stefnum sem hæst ber i tónlist- inni, hvert sinn án þess þó að tónlistin verði ódýr eða hallærisleg, Hann hefur aldrei fallið i þá gryfju. Ef eitthvað er, þá er hanp á meðal brautryðj- enda á ýmsum sviðum popptón- listar eðá i það minnsta i fremstu viglinu þegar nýjungar eru annars vegar. Þetta kemur vel i ljós á nýju plötunni. Reggae takturinn ræður ferð- inni i laginu Master Blaster sem nýtur töluverðra vinsælda nú og jafnframt má greina hressilega takta frá nýbylgjurokkinu i tón- list Stevies, an allt er þetta þó I Wonder;-stIl sem enginn getur nokkru sinni stælt. Kröfuharðar Stevie Wonder er I hópu full- komnunar-sinna, þ.e.a.s. hann leitast við að vinna hvert verk eins vel og frekast er mögulegt. Plötur hans hafa i seinni tið borið þess merki að hann pælir mikið i hljómi þeirra og eyðir góðum tima I stúdióinu. En hvers virði er slik vinna i raun- inni, ef menn drepa alla tilfinn- ingu, gelda allar hugmyndir, og skilja eftir sig pottþétta iðn- aðarframleiðslu sem á ekkert eftir nema að seljast i loftþétt- um markaðsumbúðum sem hægt er að nota einu sinni og henda siðan I ruslið? Enn sem komið er hefur leit Stevies að fullkomnun ekki blindað tón- listargáfu hans. Hann kaffærir ekki lög sin i ofunnum smáatrið- um, heldur skilur hann við þau þegar nóg er komið. Það var samt einmitt þetta sem gagnrýnendur fundu hon- um til foráttu á siöustu plötu. Timinn á þó eftir að fara hönd- um um verk Stevie Wonder og þó svo að „Hotter than July” sé mjög góð plata, er ég sann- færður um að „Secret Life of Plants” á eftir að halda nafni hans á lofti þegar ‘fram i'sækir. í minningu Martins Luther King Stevie Wonder er alltaf sami undradrengurinn og nú þegar hann stendur á þritugu, kemur hann manni enn einu sinni á óvart með baráttugleði sinni. Svona i lokin þá má geta þess að Hotter than July er tileinkuð minningu blökkumannaleiðtog- ans Martin Luther King sem eins og svo margir aðrir merkir menn hefur haft meiri áhrif eftir dauða sinn en hann gerði i lifanda lifi. —jg Gillan — Glory Road Virgin V 2171 Þegar þungarokkið var hvað vinsælast fyrir nokkrum árum, voru það Deep Purple með Ian Gillan söngvara I far- arbroddi, sem trónuðu sem ókrýndir konungar þessa rokkforms. Gillan hefur engu gleymt frá þvi hann hætti I Purple og með vaxandi vinsældum þessarar stefnu, hefur stjarna hans risið á ný meðal nýrra og gamalla þungarokkara. Glory Road er plata sem inniheldur alla takta þessa stils, en tónlistin er óneitanlega oröin dálitið gömul. Gillan gerir hlutina með stæl enn sem komið er og samverkamenn hans kunna vel til verka. Sérstaka athygli vekur gitarleikur Bernie Tormé. Þessi plata kom þægilega á óvart á ýmsan hátt, þvi hún hljómar betur en ég átti von á. Þrátt fyrir það veröur þvl ekki neitað að það felst enginn nýr sannleikur i tóniistinni eða textunum, sem reyndar eru mjög slappir. Rokktextar eru það reyndar mjög gjarnan. Glory Road er plata sem þungarokk-frikin kunna ef- laust að meta, þó frumieikinn sé ekki settur I fyrsta sætið. Jónatan Garðarsson skrifar GtORT ROAO Suzi Quatro — Rock Hard Dreamland DL 1 — 5006 Suzi Quatro hefur aldrei verið hátt skrifuð hjá mér og ekki breytir þessi plata áliti minu neitt á henni. Rock Hard er ekta Suzi Quatro plata sem einsog áður er pródúseruð af Mike Chapman. Hann skilar hreinum og klárum hijómi einsog ætið, td. eru tromm- urnar sérlega áberandi I hljóð- blöndunni, án þess að vera of framarlega. Hinsvegar tekst honum engan veginn að vinna jafnvel úr efninu á þessari plötu og td. á Parallel Lines með Blondie hér um árið, enda er efniö ekki uppá alltof marga fiska á köflum. Þau lög sem best koma út, eru gamla Dave Clark Five lagið Glad All Over, sem er svotii óbreytt frá upphaflegu útsetningunni, ogtitillagið sem er liklegt til vinsæida. Þegar á heildina er litið, skilur platan Rock Hard litið eftir þegar hún er tekin af fón- inum, en Suzi Quatro á aðdá- endur sem efiaust kaupa þessa plötu. Panasonic Nv-7000 Nú þarft þú hvorki að ieita að myndefni á kasettu þinni, né stilla sérstakt minni. Þú hreinlega hraðspólar i aðra hvora átt, og fylgist með mynd- inni um leið. Auk þess getur þú einnig séð myndefni á tvöföldum hraða, fryst það, eða fylgst með þvi frá ramma til ramma. Still- ingar þessar eru framkvæmdar með þægilegum snertirofum tækisins, eða fjarstýribúnaði þess. Ef þú bregður þér i fjórtán daga fri sér tækið um upptöku á eftir- lætisefni þinu, og þú nýtur þess við heimkomu Léleg hljómgæði geta spillt fyrir góðu myndefni, og þvi hafa þeir hjá Panasonic bætt hinu viður- kennda Dolby-kerfi i tækið sitt. Dolby-kerfið minnkar suð og aðrar truflanir sem eiga sér stað við upptöku, og eykur tónsviðið við afspilun. Kerfi þetta er flestum kunnugt, enda þykir það ómissandi i öll venjuleg hljóm-kasettutæki. Verð kr. 1.759.000.- 10% staðgreiðsluafsláttur til jóla. Þeir hjá Panasonic gera sér fulla grein fyrir, að kaup á myndsegulbandi er mikil fjár- festing, og spara þvi ekkert til öryggisatriða. 1 hinum hárnákvæmu mynd- hausum tækisins er sjálfvirkur rakaskynjari, sem slekkur á tækinu sé myndbandið liklegt til óþæginda eða skemmda. Gleym- ir þú af einhverjum ástæðum að slökkva á tækinu, skaðar það hvorki kasettu né tæki, heldur þvert á móti. Við enda kasettunnar stansar tækið, hraðspólar sjálfkrafa aft- ur að byrjun og slekkur þar á sér. Að lokum Hér hefur verið minnst á örfáa kosti af mörgum, sem prýða þetta nýja tæki frá Panasonic. Panasonic notast við hið út- breidda og viðurkennda VHS kerfi og eru kasettur í þvi kerfi fáanlegur fyrir 60-90 -120 og 240 minútna dagskrá. Sértu enn í vafa, snúðu þér þá til fagmannsins og hann mun trú- lega viðurkenna, að þeir hjá Panasonic eru þekktir fyrir allt annað en óvönduð og fljótfæmis- leg vinnubrögð. Brautarholti 2 • Símar 27192 & 27133

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.