Morgunblaðið - 19.02.2004, Qupperneq 14
ERLENT
14 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
TALIÐ er, að meira en 200 manns
hafi farist og nokkur hundruð slas-
ast þegar lestarvagnar hlaðnir
bensíni, brennisteini og áburðar-
efnum sprungu í loft upp við bæinn
Neyshabur í Íran. Sagt er, að
sprengingin hafi verið svo óskap-
leg, að fjögur nálæg þorp séu stór-
skemmd og rúður hafi brotnað í
húsum í 10 km fjarlægð.
Íranska fréttastofan IRNA
sagði, að 51 lestarvagn hefði staðið
á teinunum við Abu Muslim-stöðina
við Neyshabur þegar einhver titr-
ingur, hugsanlega vægur jarð-
skjálfti, varð til þess, að þeir runnu
af stað. Mohammad Maqdouri, yf-
irmaður almannavarna á staðnum,
sagði, að það hefði gerst klukkan
fjögur í fyrrinótt að írönskum tíma
og hefðu vagnarnir, sem voru eim-
reiðarlausir, farið út af sporinu
þegar þeir náðu Khayyam, sem er
næsta stöð. Kom upp mikill eldur í
þeim og dreif þá að fjölmennt lið
slökkviliðsmanna. Voru þeir að
berjast við eldinn þegar vagnarnir
sprungu upp úr hálftíu að staðar-
tíma.
Maqdouri sagði, að hátt í 200
slökkviliðs- og björgunarmenn
hefðu farist og einnig ríkisstjórinn í
Khorassan-héraði, borgarstjóri
Neyshaburs og slökkviliðsstjórinn.
Talið var, að allt að 400 manns
hefðu slasast.
Heyrðist í 75 km fjarlægð
Íranska sjónvarpið sýndi í gær
myndir frá slysstaðnum, sundur-
tætta og brennandi lestarvagna og
einnig myndir af nálægum þorpum
þar sem sprengingin olli miklum
skemmdum. Sagt er, að rúður hafi
brotnað í húsum í 10 km fjarlægð
og sprengidrunurnar heyrðust í
borginni Mashhad í 75 km fjarlægð.
Unnið var að því í gær að koma
slösuðu fólki á sjúkrahús og undir
læknishendur og voru notaðar við
það þyrlur og sjúkraflutningabílar.
Hefur fólk verið hvatt til að gefa
blóð en margir hinna slösuðu eru al-
varlega brenndir.
Rannsókn hafin
Starfsmenn jarðskjálftamið-
stöðvar háskólans í Teheran segja,
að á sama tíma og slysið varð, hafi
mælst jarðskjálfti á þessum sömu
slóðum, 3,6 stig á Richters-kvarð-
anum, og er talið, að annaðhvort
hafi hann valdið því, að vagnarnir
runnu af stað eða að sprengingin
hafi framkallað hann.
Opinber rannsókn á slysinu er
þegar hafin og mun hún meðal ann-
ars beinast að hvernig á því stóð, að
jafnstórhættuleg efni voru flutt
með sömu lestinni.
Skammt er stórra högga í millum
í slysförunum í Íran en í desember
síðastliðnum fórust meira en 40.000
manns er öflugur jarðskjálfti lagði
borgina Bam, sunnarlega í landinu,
í rúst.
Tugir lestarvagna með sprengifimum efnum sprungu í loft upp í Íran
Meira en 200 fórust og
mörg hundruð slösuðust
Bensín, brenni-
steinn og áburð-
arefni flutt með
sömu lestinni
AP
Slökkviliðsmaður sprautar á brakið eftir að lestarvagnarnir höfðu sprung-
ið skammt frá Neyshabur. Myndin er fengin frá íranska sjónvarpinu.
!"#$
! %
&
'(
$
(") ((* +
!+
((
!
&
+
,
!
-
!"
#
$%&
% . / ,
,(*+
Teheran. AP, AFP.
LESZEK Miller, forsætisráðherra
Póllands, skýrði frá því á þriðjudag
að hann hygðist láta af embætti for-
manns Lýðræðis-
lega vinstribanda-
lagsins (SLD) í
næsta mánuði.
Mjög hefur ver-
ið þrýst á Miller
um að hverfa úr
formannsstólnum
að undanförnu.
Flokkur hans er fylgi rúinn ef marka
má skoðanakannanir og ásakanir um
spillingu innan ríkisstjórnarinnar
gerast sífellt háværari.
Í síðustu könnun mældist fylgi
flokksins 13% en vinstrimenn unnu
góðan sigur í þingkosningunum 2001.
Frá því það gerðist hefur félögum í
flokknum fækkað um nærri helming
og eru þeir nú um 80.000.
Ákvörðuninni fagnað
Borgaravettvangur, stærsti and-
stöðuflokkur miðju- og hægrimanna
hefur hins vegar 28% fylgi sam-
kvæmt könnunum. Hefur fylgi
flokksins aldrei mælst svo mikið og
kosningar verða á næsta ári.
Ásakanir um spillingu ná alla leið
til forsætisráðherrans. Hann mun
síðar í vikunni koma fyrir rétt í máli
kvikmyndaleikstjórans Lews Ryw-
ins sem sakaður er um að hafa krafist
17,5 milljóna dala mútugreiðslu frá
Agora-fjölmiðlafyrirtækinu í nafni
Millers.
Flokksmenn Millers tóku þeim tíð-
indum fagnandi að hann hygðist
segja af sér sem formaður flokksins.
Töldu þeir þá ákvörðun fallna til að
bæta sóknarfæri flokksins en kosið
verður til þings Evrópusambandsins
í Póllandi 13. júní. Alexander Kwas-
niewski, forseti Póllands og fyrrum
leiðtogi SLD, hafði áður lagt að Mill-
er að segja af sér starfi formanns
með þeim rökum að það færi illa
saman við forsætisráðherraembætt-
ið.
Pólland
Miller
boðar
afsögn
Varsjá. AFP.
Leszek Miller
MJÓTT var á mununum þegar öldungadeild-
arþingmaðurinn John Kerry sigraði í forkosn-
ingum bandaríska Demókrataflokksins sem
fram fóru í Wisconsin-ríki í fyrrakvöld. Kerry
fékk 40% atkvæða, John Edwards öldunga-
deildarþingmaður kom næstur með 35% en gott
gengi hans kom mjög á óvart. Howard Dean,
fyrrverandi ríkisstjóri Vermont, fékk 18% og
þykir nú vart eiga möguleika lengur. Í gær var
enda búist við að hann myndi lýsa því yfir að
hann væri hættur baráttunni þótt nafn hans
yrði áfram á kjörseðlinum í þeim ríkjum þar
sem forkosningar eiga eftir að fara fram.
John Kerry hefur forskot
Forkosningarnar virðast því hafa þróast yfir í
tveggja manna baráttu um hver fái að bjóða sig
fram gegn George W. Bush, núverandi forseta, í
nóvember. Sumir höfðu talið að baráttunni væri
senn að ljúka og Kerry yrði jafnvel strax út-
nefndur sigurvegari í forkosningunum þar sem
hann hefur haft mikla yfirburði hingað til. Þær
vonir urðu þó að engu vegna þess hversu Edw-
ards gekk vel í fyrrakvöld. Hann hyggst halda
ótrauður áfram og sjá hver útkoman verður
þriðjudaginn 2. mars þegar kosið verður í 10
ríkjum, m.a. Kaliforníu og New York.
Kerry hefur þó mikið forskot og stjórnmála-
skýrendur telja flestir að þrátt fyrir að Edw-
ards sé himinlifandi yfir árangrinum í Wiscons-
in sé nánast óhjákvæmilegt að Kerry verði að
lokum útnefndur forsetaframbjóðandi demó-
krata.
„Þetta dregur baráttuna á langinn, en við
verðum að muna að Kerry hefur unnið 15 af 17
forkosningum,“ segir Larry Sabato, yfirmaður
stjórnmálafræðideildar Virginíuháskóla.
Fyrir Kerry er slæmt að baráttan haldi
áfram að því leyti að hann þarf að halda áfram
að eyða miklu fé og kröftum sem hann hefði
fremur viljað geyma þar til, og ef, hann tekst á
við Bush.
Talið er að gott gengi Edwards megi rekja til
þess að hann lagði áherslu á atvinnumál og tal-
aði gegn fríverslunarsamningum á borð við
NAFTA sem margir telja að valdi því að
Bandaríkjamenn missi störf sín. Sá boðskapur
er sagður hafa fallið íbúum Wisconsin mjög í
geð þar sem atvinnumál eru þeim ofarlega í
huga auk þess sem þeir hafa verið mjög and-
snúnir NAFTA-samkomulaginu.
Kosningarnar í Wisconsin voru opnar,
þ.e.a.s., þeir sem eru ekki félagar í Demókrata-
flokknum máttu kjósa líka. Um 10% kjósenda
voru repúblikanar og 30% óháðir en báðir þess-
ir hópar kusu Edwards.
Edwards var afar ánægður með úrslitin enda
höfðu kannanir ekki bent til þess að honum
myndi ganga vel. „Ég held að þetta þýði að ég
geti sigrað George Bush,“ sagði hann á CNN.
Kerry notaði tækifærið er sigurinn var ljós og
þakkaði eiginkonu sinni stuðninginn en í síðustu
viku var hann sakaður um að hafa haldið fram
hjá henni. Hann var hreinsaður af þeim áburði.
Kosningaherferð Bush hafin
Bush hefur einnig hafið kosningaherferð en
samkvæmt nýjustu könnunum virðist hann hafa
tapað talsverðu fylgi. Ef kosið væri nú fengi
Kerry 52% atkvæða en Bush einungis 43%,
samkvæmt könnun sem Washington Post og
ABC-fréttastofan gerðu í síðustu viku. Ræddi
hann við kjósendur í Flórída á mánudag, að-
allega um efnahagsmál. Á þriðjudag ávarpaði
hann þjóðvarðliða í Louisiana, þar sem hann
lagði áherslu á að hann væri „stríðsforseti“.
Baráttan heldur áfram
Reuters
John Edwards fagnar góðum árangri á þriðju-
dag þrátt fyrir að John Kerry hafi sigrað.
John Edwards náði
góðum árangri í for-
kosningum demó-
krata í Wisconsin
HOLLENSKA þingið samþykkti á
þriðjudag að vísa burt 26.000 manns,
sem beðið höfðu um pólitískt hæli í
Hollandi. Hafa vinstriflokkarnir og
ýmis mannréttindasamtök mótmælt
brottrekstrinum.
Að samþykktinni stóðu hægri-
flokkarnir á þingi, utan sem innan
stjórnar, en vinstriflokkarnir voru á
móti. Tekur brottreksturinn til fólks,
sem aðallega kom til Hollands á ár-
unum 1999 til 2001, en því hefur end-
anlega verið neitað um landvist.
Ný lög og strangari en áður voru
samþykkt í Hollandi 2001 og var hert
mjög á framkvæmd þeirra eftir að
flokkur Pim Fortuyns, sem vildi
stöðva innflytjendastrauminn, fékk
mikið fylgi í kosningum 2002. Síðan
hefur umsóknum um landvist fækk-
að verulega. Hollendingar hafa einn-
ig komið upp sérstökum búðum fyrir
fólk, sem neitað hefur verið um hæli,
og flutt burt þúsundir manna.
Mannréttindasamtökin Human
Rights Watch lýstu áhyggjum sínum
af þróun þessara mála í Hollandi og
bentu á, að allt væri í óvissu um ör-
yggi fólksins í sínu heimalandi, til
dæmis Afganistan, Sómalíu og Téts-
níu.
Þúsundum
manna
vísað frá
Hollandi
Haag. AP, AFP.
♦♦♦