Morgunblaðið - 19.02.2004, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.02.2004, Blaðsíða 20
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 20 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Heimar | Nemendur Menntaskólans við Sund tóku sig til í gær, lögðu niður skólastarf og unnu einn dag um allan bæinn í þágu skóla- starfs í Kambódíu. Starfið, sem er hluti af þemadögum menntaskólans, sem jafnframt er árshátíðarvika, var unnið í samstarfi við samtökin Barnaheill. Þemað sem tekið var fyrir í vikunni er þriðji heimurinn og hvernig hægt er að sýna íbúum þróunarlandanna skilning og samstöðu. Sama þema var uppi á teningnum fyrir fjórum árum, en þá söfnuðu nemendur menntaskólans um einni milljón króna fyrir dagsverk sín. Féð rann til þá einn- ig til Barnaheillar og var notað til að byggja fljótandi skóla í afskekktu héraði í Kambódíu. Nemendur Menntaskólans unnu mikið í leik- og grunnskólum Reykjavíkur, auk þess sem sumir unnu verk fyrir Náttúru- fræðistofnun og aðrir fyrir Höfuðborgarstofu og enn aðrir afgreiddu plötur í verslunum Skífunnar, en allir þessir aðilar samþykktu að veita fé til Barnahjálpar í skiptum fyrir að- stoð nemendanna eina dagstund. Aðspurðir atvinnuveitendur sem nutu lið- sinnis nemendanna í gær voru ánægðir með störf þeirra, enda um öflugt ungt fólk að ræða, sem kann til verka. Mikil ánægja með verkefnið Ólöf Heiða Guðmundsdóttir, gjaldkeri skólafélags Menntaskólans við Sund, segir að nú hafi safnast tæpar 1,7 milljónir króna. „Þetta er mjög gaman og fólkið í Kambódíu verður vonandi ánægt með þetta. Þetta er nógur peningur til að byggja tvo skóla. Það getur líka vel verið að þetta verði notað í eitt- hvað annað.“ Ólöf segir alla nemendur skólans, með tölu, hafa tekið þátt í starfinu og flest fyrirtækin sem leitað var til hafi verið afar móttækileg. „Sérstaklega voru leikskólarnir ánægðir að fá stráka úr MS í heimsókn að vinna. Leik- skólastjórum fannst frábært að breyta til. „Krakkarnir í skólanum eru líka mjög ánægð, þeim fannst frábært að prófa þetta og gera eitthvað annað en að vera í skólanum. Það voru allir mjög meðvitaðir um að þetta væri til styrktar góðu málefni og allir til í að taka þátt,“ segir Ólöf að lokum. Kristín Jónasdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, segir að sér lítist frábærlega á framtak unga fólksins. Hún segist að sjálf- sögðu hvetja aðra skóla til að fara í svona átak. „Það er tækifæri til að læra um önnur lönd og verða meðvitaðri og njóta þess að geta hjálpað þeim sem þurfa á því að halda.“ Kristín segir peningana sem safnast eyrna- merkta til uppbyggingar grunnskólamennt- unar í Kambódíu. „Þetta verkefni felst í því að byggja upp svokallaða fljótandi skóla við Tonle Sap vatn, risastórt stöðuvatn í miðri Kambódíu. Þarna er um að ræða skólastofur á bambusbátum sem fljóta á vatninu og hægt er að færa á milli þorpa sem liggja við vatnið. Þetta virkar dálítið eins og gömlu farskól- arnir, við förum með skólana til fólksins,“ segir Kristín og bætir við að sumir íbúanna á svæðinu nánast búi á vatninu vegna þess að það er svo mikill munur á vatnsmagninu eftir árstíðum.“ Tonle Sap vatn er á svæði sem var haldið af Rauðu Khmerunum þar til fyrir fjórum árum. „Þetta svæði sem MS-ingar hjálpuðu síðast við að koma aftur á fætur var þá nýkomið undan yfirráðum Rauðu Khmeranna. Á þessu svæði spruttu alltaf upp erjur milli leifanna af Rauðu Khmerunum og stjórnarhersins, en nú eru þeir farnir af svæðinu,“ segir Kristín að lokum. Aðalsteinn Sigfússon, nemi á félagsfræði- braut, er á sautjánda ári og lét sig ekki vanta á leikskólanum Klettaborg í gær. Hann sagði reynsluna hafa verið mun betri en hann bjóst við. „Þetta var bara fínt, ég var einmitt á leik- skóla þegar ég var lítill og fór út að leika með krökkunum,“ segir Aðalsteinn. „Þetta var mjög gaman og skemmtilegra en ég hélt að það yrði. Mér sýndist konurnar á leikskól- anum kunna vel að meta mig, því þær gátu fengið sér kaffi meðan ég lék við börnin. Við skildum síðan mjög sátt.“ Aðspurður um hvort hann hyggist sækja um sumarstarf með skólanum á leikskóla seg- ist hann líta það jákvæðum augum. „Maður veit aldrei, ég er núna að vinna í Hagkaupum aðra hverja helgi og ætla að sækja um þar í sumarvinnu. Það væri líka mjög fínt að vinna á leikskóla eitthvert sumarið. Ég hefði ekkert á móti því, þetta er mjög fínt starf og mér fannst skemmtilegast úti í sandkassa með krökkunum,“ segir Aðalsteinn. Hann er einn- ig afar ánægður með útkomu dagsins og þann árangur sem náðist í fjársöfnuninni. „Það er verið að búa til skóla þarna í Kambódíu og það er frábært að geta lagt eitthvað að liði,“ segir Aðalsteinn að lokum. Nemendur Menntaskólans við Sund vinna dagsverk til stuðnings samtökunum Barnaheill Féð rennur til bygging- ar fljótandi skólastofa Morgunblaðið/Eggert Ungir vísindamenn: Ármann Ingvi Ármannsson, Baldur Helgi Snorrason og Egill Tómasson flokkuðu krabbadýr í Náttúrufræðistofnun. Morgunblaðið/Eggert Jákvæð fyrirmynd: Aðalsteinn Sigfússon prófaði að starfa með börnunum á Klettaborg og kunni vel að meta þann skemmtilega starfsvettvang. Kópavogur | Ný stærðfræði- þrautasíða var opnuð í Digranes- skóla í gær, í tilefni af fjörutíu ára afmæli skólans, en tilgangur henn- ar er að glæða áhuga nemenda og almennings á stærðfræðinni og gera hana að leik sem fólk getur sameinast um. Á hverjum föstu- degi mun birtast á síðunni ein stærðfræðiþraut, sem almenningi er boðið að glíma við og senda inn lausn. Dregnir verða út að minnsta kosti tveir vinningshafar úr nöfn- um þeirra sem senda inn réttar lausnir. Síðan var unnin fyrir frumkvæði Þórðar Guðmundssonar, stærð- fræðikennara við Digranesskóla. Þórir hafði farið með nemendur skólans í norrænu stærðfræði- keppnina Kappabel, en á síðu keppninnar er að finna þátt sem heitir „hneta vikunnar“ sem er stærðfræðiþraut. Þórður safnaði þessum hnetum og langaði síðan að gera Íslendingum kleift að spreyta sig á viðlíka dæmum. Þórður stakk því upp á því að svipuð síða hér- lendis yrði kölluð „Peran“ og fólk myndi „kveikja á perunni“ þegar það tæki þátt í þrautinni. Vinnsla síðunnar tók mjög stuttan tíma, einn og hálfan mánuð, og eru allir aðstandendur afar ánægðir með skjót og góð vinnubrögð við að koma upp þessari skemmtilegu nýjung. Það var Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir menntamálaráðherra sem kveikti á fyrstu perunni. Sagði hún að tími væri kominn á jákvæða um- fjöllun um stærðfræði eftir langa mæðu neikvæðrar gagnrýni. Hún sagði einnig mikilvægt að gagnrýni ætti sér stað, en hún yrði líka að vera á jákvæðum nótum og ekki mætti einblína á það sem illa fer. „Þetta er mjög lofsvert framtak af hálfu Digranesskóla og þeirra sem standa að þessari síðu. Þetta er eingöngu til eftirbreytni og hvatn- ingar fyrir þá sem hafa áhuga á stærðfræði. Þarna er verið að gera námið aðlaðandi og sýna fram á þá óendanlegu möguleika sem stærð- fræðin býr yfir. Helgi Halldórsson, skólastjóri Digranesskóla, segir ánægjulegt að skólinn sé orðinn virkari þátttak- andi í samfélaginu. „Við erum að tengja okkur svolítið við almenning og nú hefur fólk tækifæri til að kynnast okkur og jafnframt að taka þátt í skemmtilegum leik sem ég tel að þessi síða sé,“ segir Helgi. Stærðfræðiþrautasíðan er unnin í samvinnu við Morgunblaðið. Munu þrautirnar birtast á kross- gátusíðu sunnudagsblaðsins og einnig lausnir síðustu gátu. Ýmis fyrirtæki hafa gefið vönduð verð- laun, þar á meðal Byko, Heimilis- tæki og Jónar transport. „Kveikt á perunni“ í Digranesskóla TENGLAR .............................................. http://digranesskoli.kopvogur.is Morgunblaðið/Sverrir Kveikt á fyrstu perunni: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta- málaráðhera leysti fyrstu stærðfræðiþrautina með léttum leik.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.