Morgunblaðið - 19.02.2004, Síða 22

Morgunblaðið - 19.02.2004, Síða 22
Umhverfisþing ungs fólks | Umhverfisþing ungs fólks verður haldið í Sapporo í Japan í ágúst í sumar og hefur Akureyrarbær auglýst eftir tveimur þátttak- endum á aldrinum 15 til 18 ára. Þingið mun sækja ungt fólk víðs vegar af norðurslóðum til að ræða um umhverfismál og fræðast um þau. Markmiðið er að gefa ung- mennum af norðlægum slóðum tækifæri til að hittast og deila reynslu sinni og upplýsingum hver frá sínu svæði og dýpka þannig skilning sinn á umhverfismálum, lífi og framtíð á norðurhveli jarð- ar. Yfirskrift þingsins er Tengsl umhverfis og manna, en viðfangs- efnin verða m.a. vatn, orka, nátt- úrulíf, dýralíf og úrgangur. Nort- hern Forum-samtökin standa fyrir þinginu en það eru samtök 25 svæða, fylkja og borga á norð- urhveli jarðar. fyrir konur verður í kirkjunni föstudagskvöldið 21. febrúar kl. 19:30-22:30 og laugardag kl. 9:30-13:30 Námskeiðið, sem er 6 klst., byggir á sjálfsskoðun og sjálfsrækt. Kennt er eftir kerfi Maju Osberg. Skráning fer fram í Glerárkirkju í síma 464 8800 milli kl. 10.00 og 16.00 og í síma 847 9025 eftir kl. 17.00. Námskeiðsgjald kr. 3.500. Gögn og hressing innifalin. Leiðbeinendur eru Sigríður Björg Albertsdóttir og Hanna Björg Jóhannesdóttir. SJÁLFSTYRKINGARNÁMSKEIÐ GLERÁRKIRKJA Allir hjartanlega velkomnir. Glerárkirkja. AKUREYRI 22 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Parket Flísar Furugólfborð Kamínur Njarðarnesi 1, Akureyri, sími 462 2244. Opið á Hríshóli | Fjósið á Hríshóli í Eyjafjarðarsveit verður opið gestum og gangandi um komandi helgi. Ábú- endur, þau Sigurgeir B. Hreinsson og Bylgja Sveinbjörnsdóttir, tóku síðla á liðnu ári í notkun nýtt lausagöngufjós með legubásum og mjaltaþjóni af gerðinni DeLaval, en hann er sá fyrsti sinnar tegundar í Eyjafirði. Þau ásamt starfsmönnum sem seldu tæknibúnaðinn verða á staðnum og svara spurningum, m.a. um búnaðinn og fjósið sem er úr límtré. Kostnaður við uppbygginguna var umtalsverður en Sigurgeir segir að á móti komi mikill vinnusparnaður. Kýrnar una sér að sögn vel og koma að jafnaði til mjalta þrisvar á dag. Norðurmjólk og Límtré bjóða upp á veitingar af þessu tilefni. Fjósið verður opið á laug- ardag, 21. febrúar, frá kl. 15 til 18 og á sunnudag verður opið frá kl. 13 til 18.    VATN flæddi yfir veginn í Krossa- nesi í gær, en hiti komst upp í 12 gráður yfir miðjan daginn og skap- aðist af þeim sökum mikill vatns- elgur í kjölfar þess að snjó tók að leysa í miklum móð. Vatnselgur var víða í útjaðri Akureyrarbæjar og neðan Hlíðarfjalls, en Gunnþór Há- konarson, yfirverkstjóri gatnamála hjá bænum, sagði að menn hefðu sérstaklega haft varann á við Merki- gil, Réttarhvamm og við Krossanes, en þar hefðu þrengsli í ræsi valdið því að vatn flæddi um víðan völl. Morgunblaðið/Kristján Vatnselgur í hlýindum Benni sýnir í Deiglunni | „Fólk og fjöll“ er yfirskrift málverkasýningar Bernharðs Steingrímssonar sem opnuð verður í Deiglunni á laug- ardag, 21. febrúar, kl. 15. Um er að ræða yfirlitssýningu, sem hefst á nokkrum verkum frá bernsku hans og til okkar daga. Þetta er 6. einkasýning Bern- harðs, en auk þess hefur hann tekið þátt í nokkrum samsýningum. Við- fangsefni hans er fjölbreytt, fólk, landslag, erótískar myndir unnar upp úr kínverskum og indverskum kennslubókum um ástaratlot og þá eru sýnishorn af auglýsinga- og hönnunarvinnu, m.a. bókarkápum, veggspjöldum og frímerkjum. Á sýningunni verða einnig ker- amikplattar, en þemað í þá er sótt í goðafræðina. Alls eru um 50–60 myndir unnar með olíu á striga, vatnslitum á papp- ír auk annarra verka. Sýningin stendur til 7. mars. STEFNT er að því að hefja raf- orkuframleiðslu í Djúpadalsár- virkjun í Eyjafjarðarsveit í kringum 20. mars nk., eða heldur seinna en upphaflega var gert ráð fyrir. Vinnu við uppsetningu vélasamstæðanna tveggja lýkur í vikunni og allur rafbúnaður er kominn upp, að sögn Aðalsteins Bjarnasonar hjá Fallorku ehf., sem byggir virkjunina. Fallorka er í eigu Aðalsteins og fjölskyldu en á laugardag verður skrifað undir samning um kaup Norður- orku á 40% hlut í félaginu. Fram- leiðslugeta Djúpadalsárvirkjunar er 1,8 MW og hefur Fallorka gert samning við Norðurorku um kaup á rafmagni frá virkjuninni, sem félagið afhendir á Botni í Eyjafjarðarsveit. Virkjunarframkvæmdir hófust í apríl á síðasta ári en um er að ræða stærstu einkavirkjun lands- ins. Djúpadalsá er stífluð ofan við gljúfrið og ofan stíflunnar mynd- ast uppistöðulón. Vatninu er veitt eftir skurði að inntaksmannvirki og þaðan er 900 metra fallpípa að stöðvarhúsinu, þar sem eru tvær vélasamstæður til raforkufram- leiðslu. Fulltrúar frá þýskum framleiðanda vélanna hafa að undanförnu unnið að uppsetn- ingu þeirra. Að sögn Aðalsteins er stefnt að því að byggja aðra virkjun við ána, innar í Djúpadal en ekki liggur endanlega fyrir hvenær af þeim framkvæmdum getur orðið. Málið er til umfjöll- unar hjá Skipulagsstofnun og iðnaðarráðuneyti sem gefur út virkjunarleyfi. Uppsetningu vélasamstæða í Djúpadalsárvirkjun að ljúka Raforkuframleiðsla hefst eftir mánuð Morgunblaðið/Kristján Uppsetning vélasamstæðna. Björgvin Smári Jónsson starfsmaður Kötlu t.v. og Aðalsteinn Bjarnason einn eigenda Fallorku vinna við vélasamstæðurnar í Djúpadalsárvirkjun ásamt fulltrúum frá þýskum framleiðanda þeirra. HALLGRÍMUR Arason, veitingamaður og ákafur golfspilari, gerði sér lítið fyrir í gærdag og setti 19. holuna upp á flöt skammt neðan við Bautann. „Maður verð- ur að vera góður í stutta spilinu í sumar,“ sagði hann þar sem hann æfði af kappi. Snjórinn er sem óðast að hverfa úr bænum og veðrið lék við bæjarbúa í gær. Það má því segja að vorfiðringur hafi gripið um sig og þeir sem tök höfðu á nýttu daginn til útiveru. Líkt og Hallgrímur, sem greinilega ætlar að mæta vel undirbúinn á Jaðarsvöll þegar golftíð hefst. Morgunblaðið/Kristján Góður á 19. holunni! AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.