Morgunblaðið - 19.02.2004, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.02.2004, Blaðsíða 24
AUSTURLAND 24 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Byltingarkennd uppgötvun: NEW SKIN með einstæðum krafti úr hreinu C-vítamíni. Djúpt niðri endurbyggir það húðtoturnar og yngir þannig innri uppbyggingu húðarinnar um allt að tíu ár. Björgunarskip | Á þriðjudagsmorgun var und- irritaður styrktarsamningur milli Slysavarna- félagsins Landsbjargar og Samskipa um kaup og flutning á tveimur björgunarskipum. Þau verða keypt notuð í Bretlandi og staðsett í Neskaupstað og á Raufarhöfn. Skipin kosta rúmar 19 milljónir króna og hljóðar styrktarsamningurinn upp á 6 milljónir króna. Skipin eru af gerðinni Arun og eru fjögur slík skip í björgunarflota Slysavarnafélags- ins Landsbjargar. Þau hafa reynst vel hérlendis með tilliti til getu og rekstrarkostnaðar. Ný myndu skipin kosta um 200 milljónir króna.    Flöskuskeyti | Færeyingur á sjötugsaldri fann á dögunum flöskuskeyti sem nemendur yngstu deild- ar Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar höfðu látið setja í sjó í september á síðasta ári. Færeyingurinn hafði verið til sjós við Íslandsstrendur fyrr á árum og var að vonum glaður að finna flöskuskeyti frá Íslandi. Því, ásamt fjórum öðrum, var hent í sjóinn við Hval- bak, af sjómönnum á skuttogaranum Ljósafelli. Það rak á land í Vogafjörunni við Vestmannssund í Fær- eyjum. Nú eru krakkarnir í yngstu deildinni byrjuð á ýmsum verkefnum tengdum Færeyjum og ætla að senda þangað margvíslegar upplýsingar um sitt byggðarlag, Fáskrúðsfjörð.    Listahátíðarmerki | L.ung.A – Listahátíð ungs fólks á Austurlandi lýsir eftir tillögum að merki fyrir hátíðina. Í fréttatilkynningu segir að merkið þurfi að vera grípandi og höfða til ungs fólks með áhuga á list- um og menningu. Sérstök dómnefnd mun fara yfir til- lögur og skila niðurstöðum eigi síðar en 4. mars nk. Tillögur þurfa að hafa borist fyrir 27. febrúar nk. Hönnuður þeirrar tillögu sem hlutskörpust verður að mati dómnefndar fær 50 þúsund krónur í verðlaun.    Neskaupstaður | Þrátt fyrir óhugnanlega at- burðarás í Neskaupstað undanfarna daga heldur lífið áfram sinn vanagang. Þær mæðgur Sigrún Helga Snæbjörns- dóttir og Hekla Líf Maríasdóttir notuðu góða veðrið og spásseruðu um bæinn, enda ekki annað hægt að þeirra sögn. Í vagni Sig- rúnar sat systir Heklu Lífar, Guðný Ósk Maríasdóttir. Morgunblaðið/Ágúst Blöndal Mæðgur spássera Neskaupstaður | Búland er nýtt nafn á sameiginlegu húsnæði Verk- menntaskóla Austurlands (VA), Náttúrustofu Austurlands (NA) og Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins (Rf) í Neskaupstað. Í fréttatilkynn- ingu segir að Búland vísi til þess að um sé að ræða stað sem vænlegur er til búsetu, en einnig til örnefnis í ná- grenni Neskaupstaðar. Samvinna stofnana í öndvegi Náttúrustofa Austurlands og Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins fluttu árið 1999 í húsnæði Verk- menntaskóla Austurlands, Búlandið. Stofnanirnar í Búlandinu hafa síðan þróað samstarfið og gert með sér samstarfssamning, þar sem m.a. er kveðið á um sameiginleg rannsókn- arverkefni, gagnkvæma sérfræðiað- stoð og uppbyggingu sameiginlegrar upplýsingamiðstöðvar. Einnig hefur starfsfólk stofnana í Búlandinu stofnað sameiginlegt starfsmanna- félag, sem hefur m.a. það að mark- miði að standa fyrir skemmti- og fræðslufundum. Að sögn Guðrúnar Á. Jónsdóttur, forstöðumanns Náttúrustofu Aust- urlands, hafa stofnanirnar haft með sér margvíslegt samstarf í smærri verkefnum frá því þær komu undir sama þak. M.a. hafa sérfræðingar Náttúrustofunnar leiðbeint nemend- um VA í gróður- og fuglaskoðun og Náttúrustofan hefur nýtt aðstöðu í húsnæði VA til fræðslufunda fyrir al- menning. Þá hafa nemendur VA fengið leiðsögn og notað rannsókn- araðstöðu og tæki Rannsóknastofn- unar fiskiðnaðarins, m.a. við ýmiss konar örveru- og efnamælingar og starfsmenn Rf hafa nýtt fjarfundar- búnað skólans að sögn Þorsteins Ingvarssonar, útibússtjóra Rann- sóknastofnunar fiskiðnaðarins í Nes- kaupstað. „Þessi smærri verkefni eru upp- hafið að því sem koma skal, því á stefnuskrá er að þróa stærri rann- sóknaverkefni“ segir Guðrún. Nýjasta dæmið um samstarf stofnananna er þátttaka Verk- menntaskóla Austurlands í sam- keppninni Ungir vísindamenn, sem er verkefni á vegum ESB. Í því verk- efni er gert ráð fyrir að sérfræðingar á NA og Rf leiðbeini um fagleg og vísindaleg vinnubrögð. Búland er nýtt fræðasetur í Neskaupstað Ljósmynd/Búland Kraftarnir sameinaðir: Forstöðumenn Búlands í Neskaupstað, þau Guðrún Jónsdóttir, Þorsteinn Ingvason og Helga M. Steinsson. Upphafið að stórum rannsóknarverkefnum Molinn | Ný verslunar- og þjónustumiðstöð á Reyðarfirði mun að öllum líkindum verða að veru- leika og er verið að ganga frá samningum þessa dagana. Reisa á miðstöðina, sem gengur undir nafn- inu Molinn, í tveimur áföngum. Í þeim fyrri, 2.400 fm að stærð, verður verslun Kaupfélags Héraðsbúa, bæjarskrifstofur Fjarðabyggðar, útibú Landsbanka Íslands og skrifstofa Hönnunar ehf. Þá verður verslunarrými aukreitis, en því mun ekki hafa verið ráðstafað. Síðari áfangi byggingarinnar, sem ekki liggur fyrir hvenær verður byggður, mun ætlaður undir verslanir og skrifstofur. Væntanlega verður hafist handa um byggingu Molans í vor.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.