Morgunblaðið - 19.02.2004, Blaðsíða 57
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 57
DANIR gerðu góða ferð til Tyrklands þar sem þeir
léku vináttulandsleik gegn heimamönnum í borginni
Adana. Fyrri hálfleikur þótti mjög fjörugur og voru
Danir mikið með knöttinn í sínum röðum og skoruðu
eina mark leiksins á 21. mínútu. Thomas Helveg gaf þá
knöttinn á framherjann Martin Jørgensen sem leikur
með Udinese á Ítalíu og sendi hann knöttinn framhjá
hinum litríka markverði Tyrkja, Rüstü Recber.
Þetta er þriðji landsleikurinn í röð sem að Jørgensen
skorar sigurmark fyrir Dani. Danskir fjölmiðlar eru í
skýjunum yfir árangri liðsins enda ekki á hverjum
degi sem Tyrkir tapa á heimavelli en heimamenn sóttu
mun meira í síðari hálfleik en nýttu tækifæri sín illa,
auk þess sem Thomas Sørensen markvörður danska
landsliðsins og Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni lék
vel.
Senol Gunes landsliðsþjálfari Tyrkja notaði tækifær-
ið og var með marga nýja leikmenn í sínu liði en Tyrk-
ir komust ekki í lokakeppni EM að þessu sinni.
Jørgensen hetja
Dana gegn Tyrkjum
MORTEN Gamst Pedersen, framherji Tromsö, lét mikið
að sér kveða í sínum fyrsta A-landsleik með Norðmönnum
í gær sem mættu Norður-Írum á Windsor Park í Belfast.
Pedersen skoraði tvívegis í 4:1 sigri Norðmanna en
heimamenn settu heimsmet í fyrri hálfleik en þá hafði liðið
leikið í 1.287 mínútur án þess að skora mark.
Framherji Preston, David Healy, skoraði í síðari hálf-
leik og batt enda á 1.298 mínútna martröð N-Íra sem
höfðu ekki skorað í landsleik frá því að Steve Lomas skor-
aði 2. febrúar árið 2002 í 1:4 tapleik gegn Pólverjum.
Pedersen skoraði fyrsta markið á 17. mínútu og bætti
við öðru á 35. mínútu. Steffen Iversen framherji Wolves
skoraði það þriðja á 44. mínútu og Thorstein Helstad inn-
siglaði sigurinn með marki á 58. mínútu, en líklega verður
markið skráð sem sjálfsmark hjá Keith Gillespie.
Norskir fjölmiðlar segja að hið „nýja“ norska landslið
hafi tekið gríðarlegum breytingum undir stjórn Åge Ha-
reide sem blási nú til sóknar. En því hafa Norðmenn ekki
átt að venjast fram til þessa.
N-Írar settu heims-
met í Belfast
Reuters
Andrew Smith í rimmu við Norðmanninn Magne Hoseth.
ADRIAN Mutu, félagi Eiðs
Smára Guðjohnsens hjá Chelsea,
skoraði tvívegis fyrir Rúmena í
gær þegar þeir unnu Georgíu, 3:0, í
vináttulandsleik í knattspyrnu.
Florian Cernat gerði þriðja mark-
ið.
LANDSLIÐ Letta sem leikur í
fyrsta sinn í sögunni í úrslitum
Evrópumóts landsliða í knatt-
spyrnu í sumar lagði Kazakhstan,
3:1, í vináttulandsleik í gær. Youri
Aksenov kom gestunum yfir á 24.
mínútu en Marian Pahars leikmað-
ur Southampton jafnaði leikinn og
Jurijs Laizan bætti við tveimur
mörkum fyrir heimamenn. Lettar
eru í riðli með Þjóðverjum, Tékk-
um og Hollendingum á EM.
MARK Hughes þjálfari landsliðs
Wales í knattspyrnu er bjartsýnn á
að Wales muni leika til úrslita á
Evrópumóti landsliða í sumar á
kostnað Rússa, en Wales hefur
áfrýjað úrskurði Knattspyrnusam-
bands Evrópu, UEFA, vegna lyfja-
máls Jegors Titovs leikmanns
Rússa. Hinn 3. febrúar s.l. hafnaði
UEFA kæru Wales en Titov féll á
lyfjaprófi eftir fyrri leik liðanna í
Rússlandi. Hann kom ekki við sögu
í þeim leik en hann lét mikið að sér
kveða í síðari leiknum fjórum dög-
um síðar í Wales.
TOMAS Rosicky tryggði Tékk-
um jafntefli, 2:2, í vináttulandsleik
við Ítala í Palmeró á Sikiley í gær-
kvöldi. Rosicky jafnaði leikinn á 89.
mínútu eftir að allt leit út fyrir að
Antonio Di Natale hefði tryggt
Ítölum sigur með skallamarki
tveimur mínútum fyrr eftir send-
ingu frá Carlo Nervo. Christian Vi-
eri kom ítalska landsliðinu yfir á
14. mínútu en Jiri Stajner jafnaði
metin rétt fyrir hálfleik.
FJÖLMARGAR skiptingar settu
mjög svip sinn á leik Ítala og
Tékka. Meðal annars skiptu Ítalar
öllu byrjunarliði sínu smátt og
smátt út af í síðari hálfleik.
HINN ungi framherji PSV
Eindhoven, Arjen Robben, tryggði
Hollendingum sigur á Bandaríkja-
mönnum, 1:0, með marki á 57. mín-
útu er þjóðirnar áttust við í Amst-
erdam. Robben er einn efnilegasti
framherji heims um þessar mundir
og hefur þráfaldlega verið orðaður
við Manchester United. Hann lék í
fremstu víglínu hollenska liðsins
við hlið Ruuds vans Nistelrooys
sem gæti orðið samherji hans á
næstu leiktíð í Englandi. Nistelro-
oy skoraði í tvígang í leiknum en
bæði mörkin voru dæmd af vegna
rangstöðu. Þá fékk hann gult spjald
á 37. mínútu. Annars olli hollenska
liðið stuðningsmönnum vonbrigðum
í leiknum, liðið þótti ekki leika eins
vel og það best getur og ljóst að
það verður að taka sig saman í and-
litinu fyrir EM í Portúgal í sumar.
FÓLK
Carsten Ramelow leikmaður Ba-yer Leverkusen kom inná sem
varamaður og tryggði Þjóðverjum
2:1 sigur gegn Króatíu í gær er liðin
áttust við í Split. Miroslav Klose
kom Þjóðverjum yfir í fyrri hálfleik
en Mato Neretljak jafnaði fyrir
heimamenn á 86. mínútu, en
skömmu síðar skoraði Ramelow sig-
urmarkið.
Heimamenn voru mun sterkari í
fyrri hálfleik þar sem leikmenn úr
þýskum liðum létu mikið að sér
kveða, en sex leikmenn í byrjunar-
liði Króatíu leika í Þýskalandi.
Earnshaw með
þrennu í Cardiff
Robbie Earnshaw framherji Car-
diff City kunni vel við sig á Þúsald-
arleikvanginum í kvöld þar sem Wa-
les gjörsigraði Skota í
vináttulandsleik, 4:0. Earnshaw
skoraði þrennu en Gareth Taylor
bætti við fjórða markinu undir lok
leiksins.
Hvorugt liðanna er á meðal liða
sem keppa á EM í sumar en Wales
heldur enn í vonina um að taka sæti
Rússa vegna lyfjamála eins leik-
manns úr röðum Rússa.
Markverðirnir
góðir í Dublin
Heimsmeistaralið Brasilíu gerði
markalaust jafntefli gegn Írum á
Lansdowne Road í Dublin í gær að
viðstöddum 44 þúsund áhorfendum.
Ronaldo og Ronaldinho fengu
tækifæri til þess að skora fyrir
Brasilíumenn og einnig áttu Robbie
Keane og Stephen Carr leikmenn
Tottenham fín færi fyrir heima-
menn. Markverðirnir Dida og Shay
Given þurftu að hafa sig alla við í
leiknum til þess að forða því að
knötturinn færi í markið.
Átta leikmenn í byrjunarliði Bras-
ilíu í gær léku úrslitaleikinn gegn
Þjóðverjum á HM árið 2002, aðeins
Dida, Ze Roberto og Kaka voru fjar-
verandi í þeim leik.
Góð byrjun hjá Saha
Louis Saha framherji Manchester
United skoraði í sínum fyrsta A-
landsleik fyrir Frakka sem lögðu
Belgíu, 2:0, á útivelli í Brussel.
Sidney Govou, framherji Lyon,
skoraði fyrsta markið með skoti úr
utanverðum vítateig eftir að Geert
De Vlieger markvörður Belga hafði
misst knöttinn frá sér.
Zinedine Zidane var maðurinn á
bak við mark Saha á 75. mínútu og
átti hann ekki í vandræðum með að
setja knöttinn í netið.
Frakkar hafa nú sigrað í 14 leikj-
um í röð og Thierry Henry og David
Trezeguet léku ekki með Frökkum
vegna meiðsla en þeir verða án vafa
í fremstu víglínu í sumar þegar
Frakkar mæta til leiks í Portúgal til
þess að verja Evrópumeistaratitil-
inn.
Belgar komust ekki upp úr riðla-
keppninni fyrir EM að þessu sinni,
en Frakkar virðast vera á góðum
skriði með sitt lið á þessari stundu.
Spánverjar léku gegn Perú á
Spáni og mörðu heimamenn 2:1 sig-
ur. Solano leikmaður Newcastle
skoraði fyrir Perú á 21. mínútu, Jo-
seba Etxebarria jafnaði fyrir heima-
menn á 31. og Ruben Baraja skoraði
sigurmarkið mínútu síðar.
Albanar sterkir í Tirana
Svíar töpuðu gegn Albaníu á úti-
velli, 2:1, í vináttulandsleik sem
fram fór í kvöld. Svíar eru sem
kunnugt er í riðli með Íslendingum,
Búlgörum, Króötum og Möltu í und-
ankeppni HM og í apríl leikur Ís-
land vináttuleik gegn Albönum í
Tirana. Þetta er níundi heimaleikur
Albana á heimavelli sem þeir standa
af sér sóknir mótherja sinna en þeir
hafa ekki tapað í s.l. níu viðureign-
um á heimavelli sínum.
Svíar komust yfir með marki frá
Stefan Selakovic en mörk heima-
manna skoruðu Ervin Skela á 68.
mínútu og sjö mínútum síðar bætti
Adrian Aliaj við marki með hnitmið-
uðu skoti í markvinkilinn. Skela
leikur með Frankfurt þýsku 1.
deildinni.
Fyrri hálfleikur var ekki mjög líf-
legur og fengu sóknarmenn sænska
landsliðsins ekki frið til þess að at-
hafna sig. Sænskir fjölmiðlar segja
að sænska liðið hafi leikið betur í
síðari hálfleik og skapað sér fjöl-
mörg færi sem ekki nýttust.
Búlgaría tapaði
Grikkir léku á heimavelli gegn liði
Búlgaríu og höfðu betur gegn gest-
unum, 2:0. Mörkin skoruðu Haris-
teas Papadoupulos og Zivis Vryzas.
Það fyrra í fyrri hálfleik og Vryzas
bætti við marki í þeim síðari.
Mättheus fagnaði sigri
Ungverjar sem eru í riðli með Ís-
landi í undankeppni Heimsmeistara-
mótsins í léku gegn Armenum en
leikið var í Ungverjalandi. Heima-
menn höfðu betur, 2:0, en þjálfari
liðsins er Lothar Mättheus, fyrrum
fyrirliði þýska landsliðsins og Bay-
ern München.
Imre Szabics skoraði fyrra mark
Tyrkja á 63. mínútu og Krisztian
Lisztes bætti við öðru marki átta
mínútum síðar.
Louis Saha nýtti
fyrsta tækifærið
FJÖLMARGIR vináttulandsleikir
fóru fram í gær þar sem 15 af
þeim 16 liðum sem leika til úr-
slita á EM í sumar voru í eldlín-
unni. Aðeins lið Rússa sat hjá í
gær. Englendingar sóttu gest-
gjafa Evrópumótsins heim í
Faro í Portugúal og lauk þeim
leik með jafntefli, 1:1. Ledley
King skoraði fyrir England.
Carsten Ramelow var hetja
Þjóðverja, Skotar voru nið-
urlægðir í Cardiff og Lois Saha
lét mikið að sér kveða í framlínu
Evrópumeistara Frakka í sínum
fyrsta leik. Mótherjar Íslendinga
í undankeppni HM léku einnig í
gær með misjöfnum árangri.
Reuters
Louis Saha og Zinedine Zidane fagna fyrsta marki þess fyrrnefnda fyrir franska landsliðið.
■ Úrslit/58