Morgunblaðið - 19.02.2004, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 19.02.2004, Blaðsíða 17
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 17 Vor- og sumarlitirnir 2004 Fred Farrugia he im sæ ki ð w w w .la nc om e. co m LANCÔME dagar fimmtudaginn 19. og föstudaginn 20. febrúar. Glæsilegir seyðandi litir við öll tækifæri. Einnig nýr ilmur með sól í hjarta! Vantar þig ráðleggingar varðandi umhirðu húðarinnar? Viltu breyta förðuninni? Notaðu tækifærið og láttu snyrtifræðing frá LANCÔME aðstoða þig. Líttu við og fáðu sýnishorn af farða sem passar þinni húðgerð. Glæsilegir kaupaukar. Austurver, sími 581 2101. JACQUES Chirac Frakklands- forseti ræðir við Gerhard Schröder, kanslara Þýskalands, og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, í Berlín í gær. Leiðtogarnir þrír hitt- ust á fundi og ræddu leiðir til að blása nýju lífi í efnahag Evrópu- sambandsríkjanna. Þeir hafa verið sakaðir um að hafa uppi áform um að mynda þríeyki, sem ráða myndi ferðinni á vettvangi ESB, en sögðu í gær að þeir vildu aðeins stuðla að jákvæðri þróun í álfunni. „Það er markmið okkar, hvorki meira né minna,“ sagði Schröder.Reuters Glatt á hjalla í Berlín ETA-hreyfingin, hinn vopnaði arm- ur aðskilnaðarsamtaka Baska, lýsti í gær yfir einhliða vopnahléi í Kata- lóníu á Norðaustur-Spáni. Í yfirlýsingunni sagði að hún næði aftur til 1. janúar 2004 og var ekki tiltekið hversu lengi vopnahléið myndi gilda. Þá voru engin skilyrði sett fyrir því. Í annarri yfirlýsingu sem birt var síðar um daginn vísaði talsmaður ETA, sem berst fyrir stofnun sjálf- stæðs ríkis Baska, til þess að hreyf- ingin vildi „styrkja samband kata- lónsku þjóðarinnar og hinnar basknesku“. Báðar ættu þjóðirnar það sameiginlegt að sæta kúgun af hálfu ríkisvaldsins í Frakklandi og á Spáni. Talsmaðurinn vísaði líka til hinnar „nýju pólitísku stöðu í Kata- lóníu“. Þar hefur sjálfstæðissinnum og sósíalistum vaxið ásmegin eftir gott gengi í síðustu kosningum til þings Katalóníu, sem er eitt 17 sjálfsstjórnarsvæða Spánar. Yfirlýsingin kemur í kjölfar fund- ar leiðtoga ETA og fulltrúa stjórn- valda í Katalóníu. Fulltrúi Katalón- íumanna á þeim fundi var Josep Carod-Rovira, sem er leiðtogi flokks vinstri-lýðveldissinna. Carod-Rovira var þá annar æðsti embættismaður sjálfsstjórnarinnar í Katalóníu en neyddist til að segja af sér sem leið- togi flokksins eftir að upp komst um fundinn sem átti að vera leynilegur. Hann segist hafa samþykkt að hitta leiðtoga ETA í þeim tilgangi að reyna að miðla málum í átt til friðar. ETA er skammstöfun á nafni sam- takanna, sem nefnast „Heimaland og frelsi“ á máli Baska. Hreyfingin hef- ur áður lýst yfir vopnahléi á Spáni. Því síðasta var lýst yfir árið 1998 og stóð það í 14 mánuði. Frá því síðasta vopnahléi lauk hef- ur ETA myrt 46 manns. Í fyrra myrtu flugumenn á vegum samtak- anna þrjá menn á Spáni. Alls hafa samtökin verið gerð ábyrg fyrir 816 manndrápum á síðustu 35 árum. Yfirlýsing ETA fordæmd Talsmenn stjórnmálaflokka á Spáni fordæmdu yfirlýsingu samtak- anna. Angel Acebes innanríkisráð- herra sagði hana „gildru“ sem spennt hefði verið í þeim tilgangi að koma þeirri ranghugmynd að hjá spænsku þjóðinni að ETA hefði sér- stöku hlutverki að gegna. Svo væri ekki. Yfirlýsingin væri móðgun við lýðræðið, mannlega skynsemi og fórnarlömb hryðjuverkamannanna. Liðsmanna hreyfingarinnar yrði því áfram leitað um gjörvallan Spán og stjórnvöld hygðust hvergi hvika frá þeirri stefnu sinni að tryggja einingu spænska ríkisins. Vopnahlé í Katalóníu Bilbao. AFP. AP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.