Morgunblaðið - 19.02.2004, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 19.02.2004, Blaðsíða 52
52 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Lukku Láki – Reipi böðulsins © DARGAUD endir HVAÐ ER AÐ VERÐA UM ÞENNAN HEIM? MAÐUR GETUR EKKI EINU SINNI FENGIÐ SÉR SMÁ GÖNGUTÚR Í ELDHÚSSKÁPNUM ÁN ÞESS AÐ REKAST Á HEILU HRÚGURNAR AF DISKUM! BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ORÐIÐ rauð mafía er ef til vill fram- andi þegar talað er við ungt fólk í dag. En mér datt þetta orð í hug og heilaþvottaaðferðir liðsmanna henn- ar þegar Gísli Gunnarsson prófessor sagði að margir þeirra sem for- dæmdu bók Hannesar Hólmsteins um Kiljan hvað harðast, hefðu aldrei lesið hana né ætluðu sér að gera það. Höfum við ekki mörg sem orðin er- um miðaldra eða eldri heyrt að Kristmann Guðmundsson rithöfund- ur hafi verið geðbilaður? Lætur ekki Kristinn E. Andrésson að því liggja í bókmenntasögu sinni og voru það ekki lokaorð Sverris Kristjánssonar í umsögn um ævisögu hans? Í sumar skoðaði ég Kjarvalssýningu á Borg- arfirði eystra. Þar var í skrá getið tveggja rithöfunda sem skrifað hafi um Kjarval: Matthíasar Johannes- sen og Thors Vilhjálmssonar. Ekki var minnst á tveggja binda verk Indriða G. Þorsteinssonar um Kjar- val, sem að margra dómi er það besta sem um hann hefur verið skrif- að. Hvers vegna? Þegar ég ungur maður bað um að fá að lesa í útvarpið úr minni fyrstu bók, Nýjum hugvekj- um fyrir kristna menn og kommún- ista – uppgjörsbók við marxista, þá var það guðfræðiprófessorinn og sjálfstæðismaðurinn Magnús Jóns- son, sem var manna harðastur að varna mér máls. Allt aðrar og betri trakteringar fékk ég hjá Valtý Stef- ánssyni, ritstjóra Morgunblaðsins. Hann birti í blaði sínu stærsta kafla bókarinnar og borgaði mér árið 1955 tvö þúsund krónur. Matthías, verð- andi ritstjóri, sagði hins vegar að verkið væri tjara. Frá því að nýsköp- unarstjórnin starfaði með Brynjólf Bjarnason sem menntamálaráð- herra hefur afstaða margra sjálf- stæðismanna í menningarmálum verið nokkuð á reiki. Það hefur því sannarlega verið á brattann að sækja á síðari hluta fyrri aldar að vera óháðir rithöfundar með Mál og menningu sem leiðandi afl í bókaút- gáfu. Stefán Júlíusson, einn merk- asti höfundur þessa tímabils, taldi til dæmis að ástæða þess að hans er hvergi getið í bókum Heimis Páls- sonar væri m.a. sú að hann hefði skrifað skáldsögur sem gerðust í Ameríku. Jakob Ásgeirsson – sem nú stendur sig best að verja læsilega og góða bók Hannesar Hólmsteins um Kiljan – minnir mig að hafi upp- lýst að Jóhannes Helgi hafi sótt 13 sinnum um styrk úr launasjóði rit- höfunda en verið synjað. Engin kyn- slóð hefur verið eins heilaþvegin og sú sem nú vex úr grasi. Því varð ég undrandi og himinlifandi þegar ung- ur maður, spurður um Kiljan og verk hans, svaraði á 100 ára afmæli skáldsins: „Kiljan hefur ekki mikið aðdráttarafl fyrir mig eða mína fé- laga og sífellt byltingartal hans er mér lítt skiljanlegt.“ Þetta uppgjör sem nú stendur við Hannes Hólm- stein er eðlilegt. Þetta eru dauða- teygjur rauðu mafíunnar á Íslandi sem sér nú fram á áhrifaleysi sitt meðal skálda og listamanna. Halldór Guðmundsson, rauði tindátinn, hefur verið rekinn frá Eddu-útgáfunni og við hefur tekið maðurinn, sem gaf út Moskvulínuna eftir Arnór Hanni- balsson. Hannes Hólmsteinn er að taka upp fallinn menningarfána hægri manna – manna eins og Valtýs Stefánssonar, Davíðs Stefánssonar og Þorsteins Thorarensen. Þessu ber að fagna hvar í flokki sem menn standa. Tekið skal fram, að sá sem hér talar er enginn vinur Hannesar Hólmsteins né skoðanabróðir hans sem frjálshyggjugaurs. HILMAR JÓNSSON, rithöfundur og fv. bókavörður í Keflavík. Rauða mafían riðar till falls Frá Hilmari Jónssyni NÚ er verið að grafa göng austur á fjörðum og fleiri framundan. Ekki fáum við Reykvíkingarnir nein göng. Hvernig væri nú að gera göng frá Grensásvegi og vest- ur í Vatnsmýri. Á leiðinni má svo hafa úttak fyrir þá sem eiga erindi í Kringluna og Umferðarmiðstöð sem stundum hefir verið talað um að hafa þar. Það yrði þá svona einskonar Lækjartorg nútímans og framtíðarinnar, Reykjavík myndi þá e.t.v. endurheimta eitthvað af fyrri reisn. Það er ekki endalaust hægt að lifa á fornri frægð. Með því að gera svona göng ynn- ist ýmislegt. Ekki væri þörf á margra hæða mislægum gatnamót- um við Kringlumýrarbraut. Hávaði vegna hraðrar umferðar myndi hverfa af yfirborði jarðar. Hægt yrði að koma böndum á loftmengun sem nú er komin á hættulegt stig hér í austurbænum. Leiðin í vest- urbæinn yrði fljótfarnari og greiðari. Grjótmulningurinn úr þessum göngum nýttist til frekari landvinninga í vesturbænum. Heilsufar almennings myndi batna vegna minni mengunar og hávaða. Nú, svo er gull þarna niðri á u.þ.b. fjörutíu metra dýpi og því al- veg möguleiki á því að endur- heimta eitthvað af kostnaði gegn- um gullvinnslu. Nú hafa yfirvöld afrekað það að setja sjöttu umferð- arljósin á hálfs kílometra kafla á Snorrabraut. Þetta furðulega fyr- irbæri hefir valdið þeim er þetta ritar nokkrum heilabrotum en svo komst hann að því að stjórnmála- starfsemi á Íslandi er m.a. kostuð af heildsölum og byggingaverktök- um. Það er ekki lítill hávaði og meng- un sem verður til við það að risa- vaxnar bílalestir fara af stað við öll þessi umferðarljós. GESTUR GUNNARSSON, tæknifræðingur, Flókagötu 8, Reykjavík. Göng Frá Gesti Gunnarssyni tæknifræðingi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.