Morgunblaðið - 19.02.2004, Blaðsíða 62
GAMLA tónleikaskemman Den Grå Hal í
Kristjaníu tók ævintýralegum stakkaskipt-
um um næstliðna helgi. Þá tók sig til
þorrablótsnefnd Íslendingafélagsins í
Kaupmannahöfn og umbreytti hráu rým-
inu í víkingasal með tilheyrandi skjöldum,
sverðum, rúnaletri, knörrum og seglum til
þess að undirbúa komu 700 gesta sem boð-
að höfðu þátttöku sína. Aldrei hafa jafn-
margir sótt þorrablót Íslendingafélagsins,
en 400 manns tóku þátt í borðhaldi og svo
bættust við hinir dansglöðu gegn vægari
aðgangseyri.
Nafn hljómsveitarinnar Skítamórals var
mesta þversögn kvöldsins, en þeir drengir
héldu uppi góðum móral og forkunn-
arstuði með þéttum leik. Þá lá veislustjóri,
Logi Bergmann Eiðsson, ekki á liði sínu –
sagði báða brandarana sem hann kvaðst
kunna – en treysti síðan á eigin orðheppni
sem gafst vel. Þá stigu á svið óvæntir gest-
ir úr sal eins og Raggi sót, eitt sinn Skrið-
jökull, og hinn gamalkunni liðsmaður
Dúmbó og Steina, Finnbogi Gunnlaugsson,
sem búsettur er í Danmörku. Valinn var
Þorri kvöldsins – að ógleymdum hópsöng,
hólmgöngu víkinga og linnulausum ferð-
um gesta að þorrahlaðborðinu góða.
Það léði þorrablótinu óvenjulegan blæ
að vettvangurinn skyldi vera Kristjanía, og
gafst gestum því færi á að berja hið fræga
fríríki augum. Kannski í síðasta sinn, enda
hafa dönsk yfirvöld uppi hugmyndir um að
leysa Kristjaníu upp – við hávær andmæli
íbúa og velunnara – að sögn Katrínar
Georgsdóttur Elgaard, formanns þorrablóts-
nefndar, sem tók við blómum á blótinu fyrir
vel unnin störf.
Fjölmennt þorrablót Íslendingafélagsins í Kaupmannahöfn
Súrsað stuð í Kristjaníu
Eva, Atli og Berglind, sem búa í Kaupmannahöfn, tóku á móti gestum
við borðið sitt meðan dansinn dunaði.
SKIMO-drengir
slógu hvergi af og
splæstu íslenskri
sveitarómantík við
alþjóðlega stuð-
strauma í tilefni
dagsins.
Ljósmynd/Jean-Marie Babonneau
„Kristalsljósakrónurnar“ í Gráa salnum í Kristjaníu eru að vísu
úr glerflöskum – en áhrifin eru sláandi.
62 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Allir þurfa félagsskap
Tilnefningar til
óskarsverðlauna
Besta mynd, besti leikstjóri, besta
handrit og besti leikari í aðalhlutverki
4
Sýnd kl. 10. Sýnd kl. 6. Íslenskt tal.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16 ára.
Síma-forsýning kl. 8.
Forsýning
Frábær gamanmynd frá höfundi
Meet the Parents
Sérstök Síma-forsýning kl.8
Síminn býður 2 fyrir 1 gegn
framvísun tilboðsmiða
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
„Dýrmætt
hnossgæti“
EPÓ Kvikmyndir.com
Tilnefningar til
óskarsverðlauna
Besta mynd, besti leikstjóri, besta
handrit og besti leikari í aðalhlutverki
4
Allir þurfa félagsskap
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
SV MBL
11 Tilnefningar til óskarsverðlauna
kl. 5 og 9.
Yfir 92.000 gestir
Sýnd kl. 4 og 8. B.i. 12. Sýnd kl. 3.45 og 5.50.
„Glæsilegt ævintýri.
Hreinn unaður frá
upphafi til enda.“
FréttablaðiðSV Mbl.
ÓHT Rás 2 Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8 og 10.40.Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16 ára.
ÓHT Rás2
HESTAMANNAFÉLAGIÐ
Sörli í Hafnarfirði hélt
veglega afmælishátíð á
dögunum. Efnt var til sér-
stakrar hátíðardagskrár í
reiðhöllinni Sörlastöðum
um miðjan dag en síðar um
kvöldið var veisla með til-
heyrandi skemmtikröft-
um.
Ræður voru fluttar, fjór-
ir félagsmenn gerðir að
heiðursfélögum, Sörlakórinn söng
við undirleik og stjórnun Sörlafélag-
anna Magnúsar Kjart-
anssonar og Þuríðar Sigurð-
ardóttur. Þá fór grínistinn
Steinn Ármann Magnússon á
kostum en hann er að sjálf-
sögðu Sörlafélagi og stundar
sína hestamennsku í Hafn-
arfirði.
Sörli er eitt þróttmesta
hestamannafélag á landinu
og telur nú 447 félagsmenn
og er starfsemin fjölþætt
enda öll aðstaða til að stunda hesta-
mennsku ein hin besta á landinu.
Sextugur Sörli
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Þuríður Sigurðardóttir og aðrar söngelskar konur í Sörla tóku lagið.
Steinn Ármann
Mangússon
Í GAGNRÝNI kvikmyndamiðilsins
virta Variety um Kaldaljós eftir
Hilmar Oddsson segir að myndin sé
mjög „vel leikin og mikið fyrir augað
en þó of ójöfn til að vekja eins mikinn
alþjóðlegan áhuga og hin skrítna Nói
albínói hefur gert.“ Þó telur gagn-
rýnandinn Gunnars Rehlins að
sterkustu sölumöguleikarnir í mynd-
inni felist í því hversu framandi hún
er.
Rehlins kvartar undan þeirri al-
mennu tilhneigingu í íslenskum
myndum að nýta „stórbrotna feg-
urð“ landslagsins það mikið að út-
koman virki „eins og auglýsing fyrir
ferðamálaráð“. Það sé þó blessunar-
lega ekki tilfellið í Kaldaljósi, þökk
sé frábærri kvikmyndatöku Sigurð-
ar Sverris Pálssonar og þeirri snilli
Hilmars Oddssonar að takast í senn
að vera „ógnandi og aðlaðandi“.
Þetta telur gagnrýnandinn helsta
kost myndarinnar.
Leikurinn í myndinni er í heild
fínn að mati gagnrýnanda Variety,
sem einnig fagnar þeim efnistökum
Hilmars að standast freistinguna að
meðhöndla töfraraunsæi sögunnar
með einhverjum skrípalátum eða
háði. Þrátt fyrir það segir hann
myndina ekki ná að fanga áhorfand-
ann nægilega mikið til að hann teng-
ist persónum nægilega. Því virki
myndin í senn falleg en kuldaleg.
Kaldaljós gengur enn mjög vel í
aðsókn, er meðal vinsælustu mynda
og hefur dregið að rétt tæplega 20
þúsund áhorfendur.
Ógnandi og aðlaðandi
Ingvar E. Sigurðsson fer með aðalhlutverkið í Kaldaljósi.
Gagnrýni um Kaldaljós í Variety