Morgunblaðið - 19.02.2004, Side 16
ERLENT
16 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
og hvað segir þú?
Og Vodafone • Sími 599 9000 • www.ogvodafone.is
Aðalfundur Og Vodafone (Og fjarskipta hf.) verður haldinn
í Háteigi, Grand Hótel Reykjavík, 4. hæð, fimmtudaginn
19. febrúar 2004, og hefst hann kl. 15:00.
Á dagskrá fundarins verða eftirtalin mál:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.
2. Tillaga um heimild til handa stjórn félagsins til að kaupa hluti í félaginu
samkvæmt 55. gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995.
3. Önnur mál sem eru löglega borin fram.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins, ásamt skýrslu
endurskoðenda, munu verða hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins viku
fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á fundarstað.
Stjórn Og fjarskipta hf.
Aðalfundur Og Vodafone
LEIÐTOGAR stríðandi fylkinga á
Kýpur hefja í dag friðarviðræður á
nýjan leik en samkomulag náðist um
það í síðustu viku, fyrir milligöngu
Sameinuðu þjóðanna, að gerð yrði
enn ein tilraunin til að leysa ágrein-
ingsefni Kýpur-Grikkja og Kýpur-
Tyrkja. Fréttaskýrendur segja að
um síðasta tækifæri deilenda sé að
ræða til að tryggja að báðir hlutar
Kýpur fái aðild að Evrópusamband-
inu (ESB) 1. maí næstkomandi.
Þrjátíu ár eru nú liðin síðan tyrk-
neski herinn réðst inn í Kýpur en í
framhaldinu var lýst yfir sjálfstæðu
lýðveldi Kýpur-Tyrkja á norðurhluta
eyjunnar. Þetta lýðveldi hefur hins
vegar aldrei hlotið viðurkenningu
umheimsins og ljóst er að aðeins
gríski hluti Kýpur fær aðild að ESB
þegar sambandið verður stækkað 1.
maí nk. nema samkomulag liggi fyrir
um að eyjan lúti einni stjórn á nýjan
leik. Slíkt samkomulag myndi jafn-
framt stuðla að sáttum milli stjórn-
valda í Grikklandi og í Tyrklandi, sem
stutt hafa við bakið á skjólstæðingum
sínum á Kýpur, auk þess sem líkur
myndu aukast mjög á því að draumur
Tyrkja um aðild að ESB gæti ræst
einhvern tímann í náinni framtíð.
Síðasta tækifærið
Viðræðurnar fara fram í Nicosiu
og mun Alvaro de Soto, sérlegur
sendimaður SÞ, gegna hlutverki
sáttasemjara. Mikil áhersla hefur
verið lögð á það undanfarin misseri
að ná samkomulagi um sameiningu
Kýpur en síðasta sáttatilraunin fór út
um þúfur fyrir ári. Það var síðan í síð-
ustu viku sem Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri SÞ, með stuðningi
Bretlands, Bandaríkjanna og ESB,
tókst að fá leiðtoga stríðandi fylkinga
til að samþykkja að setjast aftur við
samningaborðið. Gera áætlanir ráð
fyrir að samkomulag liggi fyrir eftir
rúman mánuð.
„Ég held að hvað svo sem gerist
muni menn finna einhverja málamiðl-
un,“ segir fréttaskýrandinn Christo-
foros Christoforou. „Ég get ekki
ímyndað mér að alþjóðasamfélagið
láti þessar viðræður renna út í sand-
inn; það munu nefnilega ekki gefast
sambærileg tækifæri á næstunni.“
Flestir Kýpur-Grikkir telja að
samkomulag um sameiningu eyjunn-
ar, á grundvelli þeirra tillagna sem
Kofi Annan hefur lagt fram, muni
ekki geta náðst nema á þeirra kostn-
að. Christoforou segir hins vegar lík-
legt að þeir muni leggja blessun sína
yfir slíkt samkomulag í þjóðarat-
kvæðagreiðslu engu að síður, enda
hefði það afar neikvæðar afleiðingar
ef samningar tækjust ekki.
„Meirihluti Kýpur-Grikkja er
óánægður með tillögur Annans og
telja þær ósanngjarnar en þegar í at-
kvæðagreiðslu verður komið þá
munu flestir telja mikilvægast að
sameina landið á ný,“ sagði Christo-
forou.
Annan „fyllir í eyðurnar“
Kýpur-Grikkir halda því fram að
ekki sé gengið nógu langt í því að
tryggja þeim aðgang að eignum og
landi sem þeir glötuðu við innrás
tyrkneska hersins 1974. Þá telja þeir
gert ráð fyrir of löngum aðlögunar-
tíma vegna flutninga fólks frá einum
hluta eyjunnar til annars.
Er talið líklegt að Tassos Papado-
poulos, forseti Kýpur-Grikkja, muni
m.a. leggja áherslu á það í viðræðun-
um að fá því framgengt að fyrirhuguð
samstjórn Grikkja og Tyrkja yfir
ríkjaeiningunum tveimur verði eins
valdamikil og mögulegt er.
Rauf Denktash, forseti Kýpur-
Tyrkja, er ekki heldur ýkja mikill
aðdáandi tillagna Annans og hyggst
beita sér fyrir breytingum til að
vernda hagsmuni Kýpur-Tyrkja.
Fréttaskýrendur hafa nokkrar
áhyggjur af því að Denktash og Pa-
padopoulos eigi ekki skap saman,
a.m.k. er samband þeirra ekki talið
eins gott og samband Denktash og
Glafcos Clerides, forvera Papadopou-
los, en Clerides tapaði forsetakosn-
ingum í gríska hluta Kýpur í febrúar í
fyrra og vék í kjölfarið fyrir Papado-
poulos.
Nái leiðtogarnir tveir ekki sam-
komulagi fyrir 22. mars munu stjórn-
völd í Ankara og í Aþenu grípa inn í
og reyna að ýta viðræðum áfram. Ef
ekki hefur náðst samkomulag viku
síðar hafa leiðtogar stríðandi fylkinga
samþykkt að Annan „fylli í eyðurnar“
þannig að hægt verði að leggja sam-
komulag í dóm kjósenda í þjóðarat-
kvæðagreiðslu í aprílmánuði.
Sendifulltrúi SÞ, Alvaro de Soto,
sagði í vikunni að ekkert „plan B“
væri fyrir hendi ef annaðhvort Kýp-
ur-Tyrkir eða Kýpur-Grikkir hafna
friðarsamkomulaginu í þjóðarat-
kvæðagreiðslu. Hann sagðist á
þriðjudag ekki einu sinni vilja hug-
leiða þann möguleika, slík niðurstaða
yrði „sorgleg“.
Deilendur á Kýpur setjast á ný við samningaborðið í dag
Hafa mánuð til að
ná samkomulagi
'(& )*
+ , )
+)*(
,0 ' -
. (
(/)% , )
1*
( !$( ,
!
23
+
4
3
& 012
$%&
'(& )*
+ , )
+)*(
,0 ' -
. (
(/)% , )
1*
(
3
4
3
& 012
3 2456 $1(
.7( 851&$# 2
5-678-97
:7:97
3*127 **$.7( 85 695(
3*12($695(($ &$: %($ ($2; (
6 51 $ 7 21 $;,1 " (%%<1&
3*127 **$.7( 85 695(
3*12* 12$695(
&$=$2; (
3 (&(*>$ & (151$?<@5(
,;<./,=>?3>@1>,4
A.>.B>44C/,=>
1>BB/4/
D"*
?"(!'#!""(3
(
!
*
!$(
!(
(""$("
("-
/
+
(*
('(
("
-
Allt kapp lagt á
að bæði tyrkneski
og gríski hluti
Kýpur geti fengið
aðild að ESB
1. maí nk.
Nicosiu. AFP.
SAMKYNHNEIGÐ pör flykkjast
enn til San Fransisco til að láta gifta
sig eftir að tveir dómarar neituðu í
fyrrakvöld að binda enda á giftingar
homma og lesbía sem borgaryf-
irvöld ákváðu að leyfa fyrir sex dög-
um. Borgarstjórinn, Gavin Newsom,
hefur lýst því yfir að hann muni
halda áfram að gefa saman fólk af
sama kyni.
Tvenn samtök íhaldsmanna höfð-
uðu mál sitt í hvoru lagi þar sem þau
kröfðust þess að dómarar stöðvuðu
giftingarnar. Annars vegar fóru
samtökin Campaign for California
Families, CCF, fyrir rétt, en í því
máli sagðist dómarinn ekki ætla að
kveða upp úrskurð fyrr en í fyrsta
lagi á morgun, föstudag. Í máli
hinna samtakanna, Alliance Defence
Fund, kvað dómarinn upp þann
málamyndaúrskurð að annaðhvort
ættu borgaryfirvöld að stöðva gift-
ingarnar eða koma í réttarsal 29.
maí og útskýra hvers vegna þau
gerðu það ekki. Hann sagðist ekki
telja að sakborningarnir hefðu gerst
sekir um svo alvarleg brot að nauð-
synlegt væri að gefa út neyð-
artilskipun til að stöðva þá.
Talsmenn samtakanna voru æfir
yfir úrskurðunum og sögðu að dóm-
ararnir létu lögbrot viðgangast. „Í
stuttu máli sagt, tveir dómarar neit-
uðu að hindra þessi ólöglegu hjóna-
bönd í dag,“ sagði talsmaður CCF.
„Hvað er að gerast? Eru lög í þessu
ríki eða ekki?“ Lögfræðingur sam-
takanna hugðist í gær biðja áfrýj-
unardómstól að stöðva giftingarnar.
Baráttuhópar fyrir réttindum
samkynhneigðra fögnuðu því hins
vegar að giftingarnar myndu halda
áfram. Meira en 2.600 pör hafa verið
gefin saman í ráðhúsi borgarinnar
frá því á fimmtudag og í gær voru
enn langar biðraðir við bygginguna.
Gavin Newsom fagnaði einnig úr-
skurðinum og sagði ekkert hafa
komið fram fyrir rétti sem hefði
fengið sig til að skipta um skoðun.
„Við munum mótmæla stjórnlyndi
og mismunun alls staðar,“ sagði
hinn ungi og umdeildi borgarstjóri.
„San Francisco er umburðarlynd
borg þar sem gagnkvæm virðing
ríkir og við sættum okkur ekki við
neitt minna en full borgaraleg rétt-
indi fyrir alla íbúa.“
Talið er að deilurnar geti orðið til
þess að réttindi samkynhneigðra
verði meira áberandi í aðdraganda
forsetakosninganna í nóvember.
Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri
Kaliforníu og repúblikani, lýsti því
yfir á þriðjudag að hann væri
andsnúinn því að hommar og lesbíur
fengju að ganga í hjónaband rétt
eins og George W. Bush Bandaríkja-
forseti hefur sagt.
AP
Pör bíða eftir að fá að ganga í hjónaband við ráðhúsið í San Francisco.
Haldið áfram að
gifta samkynhneigða
San Francisco. AP. AFP.
AÐ minnsta kosti ellefu Írakar
biðu bana í sjálfsmorðsárás á bæki-
stöðvar pólskra hermanna í bæn-
um Hilla, suður af Bagdad, í gær.
Nokkrir tugir hermanna særðust í
árásinni en í hópi hinna látnu voru
bæði konur og börn. Frá þessu er
sagt á fréttasíðu BBC.
Bifreið var ekið á hlið inngangs
pólsku herbúðanna og skutu pólsk-
ir hermenn þá bílstjórann. Í kjöl-
farið fylgdi flutningabíll og var
honum ekið á fyrri bifreiðina og
sprungu þá báðir bílarnir í loft upp
með fyrrgreindum afleiðingum. Er
talið að 700 kg af sprengiefni hafi
verið í flutningabílnum.
Al-Qaeda-liðar handteknir
Talsmenn pólska hersins sögðu
að 58 hermenn hefðu særst í árás-
inni og 44 Írakar. Atburðurinn átti
sér stað eldnemma í gærmorgun
og eyðilögðust fjögur heimili, ná-
lægt innkeyrslunni í pólsku búðirn-
ar, í sprengingunni. Haft var eftir
Mieczyslaw Bieniek, hershöfðingja
í pólska hernum, að um vel skipu-
lagða hryðjuverkaárás hefði verið
að ræða. Pólverjar stýra um 9.500
manna alþjóðlegu herliði suður af
Bagdad og í hópi særðra í gær voru
ungverskir og filippeyskir her-
menn, auk pólskra. Árásin í gær
kemur viku eftir að tvær sjálfs-
morðsárásir í Írak kostuðu meira
en 100 manns lífið.
Síðar í gær tilkynntu Banda-
ríkjamenn að þeir hefðu handtekið
sjö menn norðaustur af Bagdad
sem taldir eru hafa tengsl við al-
Qaeda-hryðjuverkasamtökin.
Ellefu Írakar fórust í árás