Morgunblaðið - 19.02.2004, Síða 23
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 23
Reykjanesbær | „Dýralæknastofan er gamall
draumur sem við létum rætast,“ sögðu hjónin
Hrund Hólm og Gísli Halldórsson, eigendur
Dýralæknastofu Suðurnesja, sem opnuð var á
dögunum við Hringbraut í Keflavík. Dýraeig-
endur geta komið með smádýrin sín hvenær sem
er á opnunartíma stofunnar en panta þarf tíma
fyrir aðgerðir og þess háttar. „Við sinnum allri al-
mennri dýralæknaþjónustu, auk þess sem við
bjóðum til sölu gæludýrafóður og ýmsar aðrar
vörur fyrir dýr,“ sögðu Hrund og Gísli í samtali.
Heimiliskötturinn Snúður fékk að koma með í
vinnuna þennan daginn og tekur mjálmandi á
móti blaðamanni, sem óskaði eftir nærveru hans.
Hann tekur undir í öðru hverju orði og nokkuð
ljóst að hann vill drífa þetta af. Hann varð ekki
ánægður fyrr en í myndatökunni „Hann saknar
Kúts bróður síns,“ segir Hrund til skýringar á
ámátlegu mjálminu, „þeir eru alveg ómögulegir
án hvor annars.“ Snúður og Kútur eru með norskt
skógarkattarblóð í æðum og í Noregi sótti Hrund
menntun sína. Gísli nam dýralæknafræðin í Dan-
mörku. „Það er með okkur eins og flesta dýra-
lækna. Við ákváðum snemma að verða dýralækn-
ar, auðvitað vegna mikils áhuga á dýrum.“
Vitja dýranna í heimahús
Bæði Gísli og Hrund starfa á aðalskrifstofu yf-
irdýralæknis en það var löngunin til að starfa í
meiri nálægð við dýrin sem varð til þess að þau
opnuðu dýralæknastofuna. „Gísli hefur reyndar
góða reynslu, en frá því ég útskrifaðist fyrir
þremur árum hef ég, auk þess að starfa hjá yf-
irdýralækni, unnið við afleysingar á sumrin. Verk-
legi þátturinn togar alltaf í mann,“ sagði Hrund,
sem sér sérstaklega um smádýrin. „Það er meira
mitt áhugasvið. Gísli sér um hestana enda hefur
hann góða reynslu þar.“ Gísli er ættaður úr
Skagafirðinum og starfaði þar sem héraðs-
dýralæknir í 10 ár. Hann hefur einnig góða
reynslu frá Noregi. „Ég verð að segja það að ég er
mjög ánægður að sjá hversu hestamenn á Suð-
urnesjum búa vel að hestum sínum. Ég hef nú
komið víða í hesthús og öll aðstaða hér er afar
góð,“ sagði Gísli. Ásamt því að bjóða upp á vitjanir
í hesthúsin vitja þau smádýranna í heimahús ef
ekki er hægt að koma með þau á stofuna. „Annars
snýst starfið okkar hér að miklu leyti um almenna
heilsugæslu dýranna. Við bólusetjum og orma-
hreinsum bæði hunda og ketti og nokkuð er um að
komið er með ketti í ófrjósemisaðgerðir. Svo eru
alltaf einhver dýr sem slasast eða veikjast.“
Hrund og Gísli segja að Suðurnesjamenn hafi
tekið þeim vel. Þau fluttu suður sl. haust þegar
þau höfðu ákveðið að láta gamlan draum um dýra-
læknastofu rætast. „Mínar rætur eru hér,“ segir
Hrund, sem alin er upp í Keflavík „og því fannst
okkur kjörið að staðsetja stofuna hér.“
Hjónin Hrund Hólm og Gísli Halldórsson opna Dýralæknastofu Suðurnesja
„Gamall
draumur
að rætast“
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Snúður með góðan hjartslátt: Hrund Hólm og Gísli Halldórsson huga að heimiliskettinum.
TENGLAR
........................................................................
www.dyri.com
Reykjanesbær | Kostnaður við
gerð bæjarhliðs Reykjanesbæjar á
Vogastapa nemur um 2.950 þúsund
kr. Gert var ráð fyrir 3 milljóna
króna kostnaði við aðkomur til
Reykjanesbæjar í fjárhagsáætlun
bæjarins. Kom þetta fram í svari
við spurningum bæjarfulltrúa Sam-
fylkingarinnar og Framsóknar-
flokks sem kynnt var í bæjarstjórn
í fyrrakvöld.
Fram kom í svarinu sem Viðar
Már Aðalsteinsson, framkvæmda-
stjóri umhverfis- og tæknisviðs
Reykjanesbæjar útbjó, að grjót-
veggurinn kostaði 869 þúsund, staf-
ir og uppsetning 1.600 þúsund og
raflagnir 480 þúsund kr. Einnig
kom það fram í svarinu að umhverf-
islistaverk og skyld mannvirki eru
ekki skipulagsskyld og þurfa því
ekki byggingaleyfi.
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinn-
ar gerðu athugasemd við það á
fundinum að svar við fyrirspurn-
inni, sem lagt var fram skriflega á
fundi fyrir hálfum mánuði, fylgdi
ekki fundarboði bæjarstjórnarfund-
arins sem sent var bæjarfulltrúum
síðastliðinn föstudag en var síðan
borið heim til þeirra eftir hádegi á
fundardegi. Gera megi ráð fyrir að
bæjarfulltrúar hafi ekki haft tíma
til að yfirfara svarið. Þá gerðu þeir
athugasemdir við að hafa ekki feng-
ið afrit af reikningum vegna fram-
kvæmdarinnar.
Áskildu bæjarfulltrúarnir sér rétt
til að taka málið aftur á dagskrá
næsta fundar bæjarstjórnar.
Bæjarhliðið
kostaði
tæpar 3
milljónir