Morgunblaðið - 19.02.2004, Qupperneq 27
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 27
Sellerí....................................... 199 299 199 kr. kg
SPAR Bæjarlind
Gildir til 25. feb. nú kr. áður mælie.verð
Lambasaltkjöt, óflokkað ódýrt ..... 198 298 198 kr. kg
Lambasaltkjöt fituspr.+, blandað. 498 Nýtt 498 kr. g
Lambasaltkjöt fituspr.+, valið ...... 948 Nýtt 948 kr. kg
Lambasaltkjöt magurt, blandað .. 589 Nýtt 589 kr. kg
Lambasaltkjöt magurt, valið........ 1.089 Nýtt 1.089 kr. kg
Lambasaltkjöt úrvals, bl. ............ 648 Nýtt 648 kr. kg
Lambasaltkjöt úrvals, valið ......... 1.198 Nýtt 1.198 kr. kg
F-61 vatnsdeigsb.mix, 350 g ...... 199 Nýtt 569 kr. kg
Kjarna jarðarb.sulta, 400 g......... 189 220 473 kr. kg
Kjarna bl. berjasulta, 400 g ........ 163 186 408 kr. kg
Hoplá jurtarjómi, 250 g .............. 158 211 632 kr. kg
Muesli+orkustangir, 138 g.......... 149 178 1.080 kr. kg
Mc Cain pizza deluxe, 900 g ....... 599 723 666 kr. kg
Mc Cain pizza pepper, 830 g ...... 519 623 625 kr. kg
Toro baunasúpa, 160 g .............. 88 99 550 kr. kg
ÞÍN VERSLUN
Gildir 19.–25. feb. nú kr.áður kr. mælie.verð
Borgarnes saltkjöt, ódýrt ............ 224 299 224 kr. kg
Borgarnes blandað saltkjöt ......... 539 674 539 kr. kg
Borgarnes sérvalið saltkjöt.......... 942 1178 942 kr. kg
1944 saltkjöt og baunir .............. 295 347 295 kr. pk.
Dönsk grísabógsteik .................. 592 789 592 kr. kg
Oetker bollumix, 500 g............... 199 289 398 kr. kg
Mömmu jarðarb.sulta, 400 g ...... 189 348 472 kr. kg
Þeytirjómi, 250 g....................... 149 226 596 kr. kg
Skúffukaka m/súkkul.kr., 370 g.. 219 315 591 kr. kg
Bolludagur og sprengidagur eru greinilega á
næsta leiti þegar litið er yfir helgartilboð mat-
vöruverslana. Þín verslun er með tilboð á sultu,
þeytirjóma, bollumixi og saltkjöti. Spar hefur
lækkað verð á öllum flokkum lambasaltkjöts,
vatnsdeigsbollumixi og jurtarjóma. Í Sam-
kaupum er afsláttur af sultu, baunum, saltkjöti,
beikoni og fleira sem tengist baunasúpugerð.
Nettó er með tilboð á saltkjöti, rófum og lauk og
Krónan hefur lækkað verð á saltkjöti og gulum
baunum. Í Hagkaupum er tilboð á beikoni og í
Bónusi er afsláttur af vatnsdeigsbollum og salt-
aðri lambasíðu. Hvað aðrar vörur varðar er Nóa-
tún með lækkað verð á heilum laxi og laxasneið-
um og ýmsu úr kjötborði og 11-11 er með tilboð
á rauðvínslegnu lambalæri.
Bolludagur og
sprengidagur í nánd
Morgunblaðið/Golli
Saltkjöt og baunir og hráefni til baunasúpugerðar er víða á lækkuðu verði þessa
tilboðsviku. Einnig eru vatnsdeigsbollur, bollumix, sulta og gervirjómi með af-
slætti. Ferskur kjúklingur er á tilboðsverði og líka kryddlegið, lambalæri, ba-
yonne-skinka, ofnsteik, lambafillet og lax.
Saltkjöt og hráefni í
baunasúpu á tilboðsverði
HELGARTILBOÐIN|neytendur@mbl.is
BÓNUS
Gildir 15.–22. feb. nú kr.áður kr. mælie.verð
Ferskur kjúklingur, heill............... 359 539 359 kr. kg.
Saltaðar lambasíður .................. 71 Nýtt 71 kr. kg
Kjarnasultur, 400 g .................... 99 149 248 kr. kg
Þeytirjómi, 250 ml ..................... 129 179 516 kr. ltr
Sjófryst ýsa með roði .................. 299 399 299 kr. kg
Gullkaffi, 500 g ......................... 149 Nýtt 298 kr. kg
Pampers bleiur, duo pakki .......... 1.499 1.589 1.499 kr. pk.
Huggies babywipes, 63 st........... 259 299 4 kr. st.
Vatnsdeigsbollur, stórar, 15 st..... 259 Nýtt 17 kr. st.
Fiesta pitsur, 280-400 g ............ 198 259 198 kr. st.
Neskaffi gull, 200 g ................... 599 699 2.995 kr. kg
11-11
Gildir 19.–25. feb. nú kr. áður kr. mælie.verð
Gourmet rauðvínslegið lambalæri 999 1.430 999 kr. kg
1944 saltkjöt og baunir.............. 259 348 259 kr. pk.
Gríms fiskibollur ........................ 319 459 319 kr. kg
Nóa konfektkassi no 5, 150 g..... 498 679 3.320 kr. kg
Nóa myntumolar, 250 g ............. 399 499 1596 kr. kg
Kelloggs fruit & fiber bar, 6 pk. .... 279 Nýtt 47 kr. st.
Kelloggs sp. K bar, 6 pk.............. 279 Nýtt 47 kr. st.
Emmess skafís, 5 bragðteg......... 375 499 375 kr. ltr.
FJARÐARKAUP
Gildir 19.–21. feb. nú kr. áður kr. mælie.verð
Reykt folaldakjöt ........................ 359 599 359 kr. kg
Saltað folaldakjöt ...................... 359 599 359 kr. kg
Fylltar svínasíður........................ 589 898 589 kr. kg
Bounty eldhúsrúllur .................... 319 348 106 kr. kg
Always ultra dömubindi .............. 248 289 248 kr. pk.
Bold aqua, 1.100 g þvottaefni .... 389 458 350 kr. kg
Ariel future, 1.350 g þvottaefni ... 598 698 440 kr. kg
Gouda ostur 26% ...................... 697 997 697 kr. kg
HAGKAUP
Gildir 19.–22. feb. nú kr.áður kr. mælie.verð
Bayonne skinka ......................... 839 1.198 839 kr. kg
Beikon...................................... 879 1.098 879 kr. kg
KRÓNAN
Gildir 19.–25. feb. nú kr.áður kr. mælie.verð
SS Grand orange lambalæri ....... 909 1.398 909 kr. kg
Doris gular baunir, 500 g............ 29 59 58 kr. kg
Krónu saltkjöt............................ 598 748 598 kr. kg
Kea ofnsteik m/dönskum blæ .... 844 1.298 844 kr. kg
Naggal. kjötbollur ...................... 299 399 299 kr. kg
Emmess tívolí lurkar, heim-
ilispakkning ..............................
199 335 199 kr. pk.
Burtons Snap kex, 300 g............ 139 185 463 kr. kg
Myllu möndlukaka, 420 g........... 269 375 640 kr. kg
NETTÓ
Gildir 19.–25. feb. m. b. endast nú kr.áður kr. mælie. verð
Goða saltkjöt, valið .................... 1.123 1.248 1.123 kr. kg
Nettó saltir síðubitar .................. 99 Nýtt 99 kr. kg
Nettó saltkjöt, blandað............... 479 599 479 kr. kg
Rófur ........................................ 69 109 69 kr. kg
Laukur ...................................... 49 54 49 kr. kg
Nettó kartöflur, 2 kg ................... 99 189 50 kr. kg
Cocoa Puffs, 553 g.................... 309 339 559 kr. kg
Náttúru rifsberjahlaup, 400 g...... 119 155 298 kr. kg
Colgate karies kontrol +33%....... 149 159 149 kr. st.
Toro íslensk kjötsúpa.................. 99 115 99 kr. st.
NÓATÚN
Gildir 19.–25. feb. nú kr.áður kr. mælie.verð
Lax í heilu úr kjötborði ................ 399 599 399 kr. kg
Laxasneiðar úr kjötborði ............. 499 899 499 kr. kg
Lambafille m/fitur. úr kjötborði ... 1.998 2.598 1.998 kr. kg
Móa kjúklingur, ferskur 1/1 ........ 399 598 399 kr. kg
Ömmu pitsa og 2 ltr. Coke .......... 599 799 599 kr. pk.
Fyrirtaks Ömmu brauðstangir ...... 299 479 299 kr. pk.
Axa músli, 375 g, 4 bragðteg...... 199 259 531 kr. kg
Fiskibollur, tilb. úr kjötborði......... 599 749 599 kr. kg
SAMKAUP/ÚRVAL
Gildir 19.–25. feb. nú kr.áður kr. mælie.verð
Búb. Mömmu rabarbs., 400 g..... 189 225 472 kr. kg
Búb. Mömmu bl. áv.sulta, 400 g . 189 249 472 kr. kg
Búb. Mömmu drottn.sulta, 400 g 189 249 472 kr. kg
Búb. Mömmu bláb.sulta, 400 g .. 189 265 472 kr. kg
Búbót jarðarberjasulta, 400 g..... 189 229 472 kr. kg
Þeytitoppur, 250 g..................... 159 226 636 kr. kg
Gular baunir Doris, 500 g ........... 59 76 118 kr. kg
Beikon í bunkum Bautab. ........... 787 1.049 787 kr. kg
Fresca ...................................... 99 163 99 kr. kg
Toppur hreinn, 1,5 ltr ................. 139 179 93 kr. kg
Toppur sítrónu, 1,5 ltr................. 139 159 93 kr. kg
Kjötborð saltkjöt blandað ........... 599 833 599 kr. kg
Kjötborð saltkjöt rif og hálsar ...... 199 299 199 kr. kg
Kjötborð saltkjöt valið................. 998 1.176 998 kr. kg
Blaðlaukur (púrra) ..................... 99 209 99 kr. kg
Laukur ...................................... 39 68 39 kr. kg
NÚ standa yfir æfingar á leikverki
Sigurbjargar Þrastardóttur, Þrjár
Maríur, og verður verkið frumsýnt
á Litla sviði Borgarleikhússins 6.
mars nk. Þetta er fyrsta leikverk
Sigurbjargar í fullri lengd og er
markmið sýningarinnar að sýna
tengsl þriggja merkra kvenna úr
mannkynssögunni hverrar við aðra
og við nútímann og fjalla um hinar
eilífu tilvistarspurningar kvenna
allra tíma. Í verkinu er vitnað í leik-
verk Schillers um Maríu Stúart og
ljóð hennar, einnig Maríuguð-
spjallið, sem er hluti Gnostísku guð-
spjallanna, og söng Maríu Callas.
Leikkonam Maja er að æfa hlut-
verk Maríu Stúart í samnefndu leik-
riti eftir Schiller og býr sig undir að
leika Maríu Callas í kvikmynd. Sjálf
var hún skírð María eftir Maríu
Magdalenu. Um leið og skyggnst er
með augum Maju inn í heim þessara
þriggja María verða áhorfendur
vitni að sálarstríði hennar sjálfrar
og djúpum tilvistarvanda.
Kristjana Skúladóttir leikur
Maju. Leikstjóri er Catriona Mac-
phie. Tónlistin er eftir Kjartan
Ólafsson, leikmynd og búningar
hannar Messíana Tómasdóttir og
lýsingu David Walters. Tónlist
Kjartans er m.a. byggð á upptökum
af söng Maríu Callas.
Á Litla sviðinu verður sýningin á
sexhyrndum palli á miðju gólfi með
áhorfendur allt í kring, en Catriona
Macphie hefur mikla reynslu af því
leikhúsformi og mun tónverk
Kjartans Ólafssonar einnig fylgja
hringleikhúsforminu.
Verkefnið er samstarfsverkefni
Strengjaleikhússins og Leikfélags
Reykjavíkur. Þátttakendur sýning-
arinnar bjóða upp á umræður eftir
sýninguna, sé þess óskað.
Maríur æfðar í
Borgarleikhúsinu
Morgunblaðið/Ásdís
Aðstandendur einleiksins Þrjár Maríur: Sigurbjörg Þrastardóttir, Messí-
ana Tómasdóttir, Kristjana Skúladóttir og Catriona Macphie.
MIKLAR sviptingar hafa orðið í ís-
lensku viðskiptalífi undanfarin miss-
eri. Umsvifamikil fyrirtæki hafa skipt
um eigendur, mörg sameinast öðrum
og öðrum jafnvel verið sundrað. Ný-
skráningum og gjaldþrotum hefur
fjölgað og mikil læti verið á hluta-
bréfamarkaði, verð sveiflast hátt upp
og langt niður og ýmis fyrirtæki horf-
ið af markaðinum. Við slíkar aðstæð-
ur reynir iðulega mjög á lög og reglur
um hlutafélög og fjármálamarkaði
enda þurfa margir að taka ákvarðanir
um ráðstöfun mikilla verðmæta við
flóknar aðstæður.
Það er því mikill fengur að því að
geta gengið að skýrri og greinargóðri
umfjöllun um löggjöf um þessi efni og
bók Stefáns Más Stefánssonar, pró-
fessors í lagadeild Háskóla Íslands,
um hlutafélög, einkahlutafélög og
fjármálamarkaði á án efa eftir að
koma að góðum notum. Bókin byggir
að verulegu leyti á eldra riti Stefáns
Más, Hlutafélög og einkahlutafélög,
frá árinu 1995 sem er uppselt. Árið
1985 kom einnig út bókin Hlutafélög,
réttarreglur eftir Stefán Má. Höfund-
urinn hefur því þegar ritað mikið um
efnið en auk þess kom hann að samn-
ingu laganna um hlutafélög og einka-
hlutafélög og þekkir því fræðasviðið
vel.
Efni bókar Stefáns Más frá árinu
1995 hefur allt verið uppfært í ljósi
lagabreytinga og dóma sem fallið
hafa frá útgáfu þess. Auk þess hefur
verið bætt við tveimur köflum. Annar
fjallar um fjármálafyrirtæki, starf-
semi þeirra, eftirlit með þeim og fleiri
tengd atriði. Hinn fjallar sérstaklega
um verðbréfamarkaði. Báðir kaflarn-
ir eru tímabær viðbót enda hefur ís-
lenski fjármálamarkaðurinn og lög-
gjöf um hann tekið miklum
breytingum á undanförnum árum og
vægi markaðarins í efnahagslífi
landsmanna vaxið umtalsvert.
Í formála segir að þess sé vænst að
bókin geti nýst þeim sem koma að
starfi fyrir hlutafélög og einkahluta-
félög eða eiga í viðskiptum við slík fé-
lög. Það er vitaskuld afar stór hópur
en sennilega mun ritið helst nýtast
stjórnendum, bæði stjórnarmönnum
og þeim sem koma að framkvæmda-
stjórn. Í nútíma viðskiptaumhverfi er
þeim bráðnauðsynlegt að kunna ein-
hver skil á umfjöllunarefni þessa rits,
a.m.k. að því marki að þeir sjái hve-
nær þeir þurfa að leita sér sérfræði-
aðstoðar.
Bókin er ágætlega aðgengileg.
Uppsetning er skýr og öll framsetn-
ing með hefðbundnum hætti fyrir rit
af þessum toga. Það er að vísu lítið
gert til að gera bókina skemmtilega
aflestrar en út af fyrir sig er engin
ástæða til þess.
Það skiptir meira máli að textinn sé
skýr og réttur og þar sé að finna svör
við þeim spurningum sem brenna á
lesandanum. Frágangur er að mestu
hnökralaus, prentvillur virðist mega
telja á fingrum annarrar handar en á
örfáum stöðum hefur uppsetning riðl-
ast lítillega, ekki þó svo illa að merk-
ing brenglist nema hvað niðurlag
einnar neðanmálsgreinar hefur horf-
ið. Þetta verður að skrifast á útgef-
anda. Allt eru þetta þó smáatriði og
breyta engu um það að hér hefur ver-
ið gefið út vandað og hagnýtt rit sem
mikil vinna liggur að baki.
Lög og reglur um hluta-
félög og fjármálamarkaði
BÆKUR
Viðskipti
Eftir Stefán Má Stefánsson. 493 bls. Hið
íslenska bókmenntafélag, 2003.
HLUTAFÉLÖG, EINKAHLUTAFÉLÖG OG
FJÁRMÁLAMARKAÐIR
Gylfi Magnússon
LISTIR