Morgunblaðið - 19.02.2004, Side 32
UMRÆÐAN
32 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Í SUNNUDAGSBLAÐI Frétta-
blaðsins (bls. 6) 8. febrúar, var sagt
frá persónulegum
ábyrgðum ein-
staklinga á kosn-
ingaskuldum kjör-
dæmisráðs Vinstri
grænna í Suðvest-
urkjördæmi vegna
síðustu alþingiskosn-
inga. Kemur fram að
þáverandi formaður
kjördæmisráðsins
hafi gengist í per-
sónulega ábyrgð fyrir
skuldum flokksins
sem urðu til vegna
þess að kosn-
ingastjórnin virti ekki
fyrirfram ákveðna
fjárhagsáætlun.
Eyddi þess í stað
100% um efni fram.
Afleiðingin er sú að
sýslumaður hefur
auglýst opinberlega
íbúð viðkomandi
ábyrgðamanns til sölu
á nauðungaruppboði.
Formaður Vinstri
grænna, Steingrímur
J., bregst harkalega við fréttinni í
viðtali við blaðið daginn eftir og
sakar ábyrgðamanninn (og reyndar
blaðið líka) um að senda flokknum
kaldar afmæliskveðjur í tilefni
fimm ára afmælis Vinstri grænna!
Steingrímur hefur ekki miklar
áhyggjur af því þótt íbúðir flokks-
manna séu auglýstar á nauðung-
aruppboði. Þetta sé ekkert sem
hafa þurfi áhyggjur af. Það sé hlut-
verk kjördæmisráðs að ráða fram
úr þessu og fengnir
verði aðrir ein-
staklingar til að setja
eignir sínar að veði
fyrir flokkinn.
Án efa, eða það skul-
um við vona, þarf
ábyrgðarmaðurinn
ekki að hafa áhyggjur
að þessu sinni. Að
flokkurinn standi
reikningsskil gerða
sinna en ekki viðkom-
andi ábyrgðarmaður
eða ábyrgðarmenn.
Það hlýtur hins vegar
að vera full ástæða fyr-
ir flokksmenn VG að
hafa áhyggjur af sið-
ferðisvitund formanns
sem gerir jafnlítið úr
máli sem þessu sem
raun ber vitni. Fyrir
utan það að það fer
ekki mikið fyrir þakk-
læti hans í garð þeirra
sem leggja allt í söl-
urnar fyrir framgang
flokksins. Innan VG
eru einstaklingar með ríka réttlæt-
iskennd. Skyldu ummæli og viðhorf
formanns VG hreyfa við þeim nú?
Þakklæti for-
manns VG
Bolli Valgarðsson skrifar um
kosningaskuldir VG
Bolli Valgarðsson
’Að flokkurinnstandi reikn-
ingsskil gerða
sinna en ekki
viðkomandi
ábyrgðarmaður
eða ábyrgð-
armenn.‘
Höfundur er félagi í Alþýðuflokknum
(ef hann er til ennþá?) og hefur aldrei
verið í VG.
með Karlakórnum HEIMI
& Óskari Péturssyni
H
V
ÍT
T
&
S
V
A
R
T
SKEMMTIATRIÐI m.a.
•Hinn margfrægi söng- og spéfugl Óskar Pétursson
•Gamanmál og ekta skagfirskir hagyrðingar
•Veislustjóri Óskar Pétursson
•Fjöldasöngur
•Hljómsveitin Miðaldamenn leikur fyrir dansi
•Húsið opnað kl. 19.30
- Blótið sett kl. 20.15
•Miðaverð kr. 5.400
(skemmtun, matur, dansleikur)
•Miðaverð á dansleik kr. 1.500
•Miðaverð - skemmtun & ball kr. 2.500
•Forsala aðgöngumiða
í síma 533 1100
milli kl. 13 og 17 virka daga.
HAPPA-
DRÆTTI
V i n n i n g a r
:
1. Folald
2. Lambhrútur á
fæti
3. Hangikjötslæ
ri
á
21. febrúar
FYRIR stuttu kynnti samgöngu-
ráðherra skýrslu sem unnin hafði
verið af Hagfræðistofnun í framhaldi
af erindi flugfélagsins Rayan Air til
stjórnvalda.
Nokkuð hefur verið fjallað um
þann hluta skýrslunnar sem snýr
beint að erindi flugfélagsins.
Minna hefur verið
fjallað um það meg-
ininnihald skýrslunnar
sem er um flug- og
ferðaþjónustu á Ís-
landi.
Í þessari grein verð-
ur minnst á örfá atriði,
sem að mati undirritaðs
eru mjög athyglisverð
þegar rætt er um stöðu
og þjóðhagsleg áhrif
ferðaþjónustu.
Í skýrslunni er
fjallað um bein efna-
hagsleg áhrif ferða-
þjónustu og síðan óbein og afleidd.
Hér er eftir því sem ég kemst næst í
fyrsta sinn á faglegan hátt reynt af
vísindamönnum að reikna öll efna-
hagsleg áhrif af neyslu erlendra
ferðamanna og áhrif þeirrar neyslu í
krónum á hagkerfið. Aðferðafræðin
er nákvæmlega skýrð. Við sem höf-
um lengi unnið í þessari atvinnugrein
höfum oft í gegnum tíðina bent á mik-
ilvægi hennar fyrir íslenskt hagkerfi
og höfum í því sambandi nefnt fjöl-
marga þætti og ýmsar tölur, en hér
er það gert af hlutlausum aðila.
Hver er svo niðurstaða Hag-
fræðistofnunar?
Samkvæmt upplýsingum Seðla-
banka Íslands voru gjaldeyristekjur
vegna neyslu erlendra ferðamanna
hér á landi árið 2002 um 22,8 millj-
arðar.
Hagfræðistofnun skiptir þessum
útgjöldum á einstakar atvinnugrein-
ar og umreiknar í framleiðsluáhrif.
Niðurstaða þessara útreikninga
Hagfræðistofnunar er sú að óbein og
afleidd áhrif útgjalda erlendra ferða-
manna hér á landi árið 2002 hafi verið
69,4 milljarðar þannig
að heildarumsvif sem
verða til í hagkerfinu
vegna útgjalda er-
lendra ferðamanna eru
um 92,2 milljarðar.
Þetta svarar til um 5%
heildarframleiðslu og
veltu þjóðarbúsins árið
2002.
Árið 2002 var fjöldi
erlendra ferðamanna
279.600. Bein áhrif af
þeim nema 82 þúsund
krónum í eyðslu á
ferðamann. Ef á hinn
bóginn er tekið tillit til efnahags-
áhrifa útgjalda innanlands af hverj-
um ferðamanni á veltu og framleiðslu
nemur sú upphæð um 330 þúsund
krónum á hvern ferðamann. Á síð-
asta ári komu hér um 320.000 gestir.
Gera má ráð fyrir að vera þeirra hér
hafi því skapað um 105 milljarða
heildarumsvif í hagkerfinu.
Það skal undirstrikað að hér er
eingöngu verið að tala um neyslu er-
lendra ferðamanna í landinu. Í þess-
um tölum er ekki tekið tillit til þeirra
tekna sem verða af þeim flugfar-
gjöldum sem þeir greiða til að kom-
ast til landsins og ekki er á nokkurn
hátt fjallað um umsvif vegna ferða-
laga Íslendinga sjálfra í eigin landi.
Það er því ljóst að vægi ferðaþjónust-
unnar í hagkerfinu er verulegt og
fróðlegt væri að það yrði reiknað á
sama hátt hver efnahagsleg áhrif eru
vegna tekna flugfélaganna af þessum
gestum svo og áhrif innlenda mark-
aðarins.
En það er á fleiri sviðum sem þjóð-
hagslegur ábati ferðaþjónustunnar
kemur fram og nefnir Hag-
fræðistofnun nokkur dæmi um
hvernig ferðaþjónustan hefur skapað
þjóðhagslegan ábata hérlendis:
Bætt framleiðni vinnuafls: Sköpun
nýrra starfa í ferðaþjónustu sem gef-
ur fólki tækifæri til að afla sér hærri
tekna en ella hefði orðið, að gefinni
menntun, búsetu og starfsþjálfun.
Bætt framleiðni einkafjármagns:
Aukin nýtni fastafjármuna vegna
meiri veltu hjá fyrirtækjum sem
tengjast ferðaþjónustu bæði beint og
einnig óbeint.
Bætt framleiðni opinbers fjár-
magns og innviða: Hlutdeild í kostn-
aði vegna notkunar innviða íslensks
þjóðfélags, svo sem samgöngu-
mannvirkja, sem kemur fram með
beinum og óbeinum hætti til íslenska
ríkisins. Hagræðið kemur einkum
fram ef notkun landsmanna sjálfra er
fremur lítil og aukinn fjöldi notenda
tefur ekki fyrir þeim sem þegar nýta
sér umferðarmannvirkin.
Þjóðhagslegur ábati ferðamennsk-
unnar vegna samnýtingar sam-
göngumannvirkja er líklega mestur í
flugsamgöngum við útlönd segir í
skýrslunni. Í þessu sambandi skal
enn einu sinni bent á að mikill fastur
kostnaður fylgir flugrekstri og
ákveðinn lágmarksfjölda farþega
þarf til þess að halda uppi tíðni ferða
og fjölda áfangastað.
Fjöldi erlendra farþega lækkar
meðalkostnað við ferðalög Íslendinga
sjálfra. Byggð hefur verið upp flug-
umferð með erlendum farþegum til
þess að tryggja tíðni ferða og fjölda
áfangastaða. Hér er bæði um að
ræða erlenda ferðamenn til Íslends
en einnig farþega sem flogið er með á
milli Bandaríkjanna og Evrópu með
viðkomu hérlendis.
Hlutverk stjórnvalda mikilvægt
Hagfræðistofnun fjallar mikið um
hlutverk ríkisins í umræddri skýrslu
og bendir á nauðsynlega aðkomu
stjórnvalda að greininni á ýmsum
sviðum.
M.a. segir eftirfarandi um hlutverk
stjórnvalda í markaðs- og kynning-
armálum:
„Stjórnvöld þurfa að huga sér-
staklega vel að markaðsbrestum sem
gætu hindrað þróun í greininni og
ennfremur að reyna að stýra notkun
á innviðum og framleiðslufjármunum
til þess að auka þjóðhagslegan ábata
sem greinin gefur af sér. Stærsti og
augljósasti markaðsbresturinn í
þessu tilliti felst í því að illfært er að
ná nægilegri landkynningu.
Vegna þess að slík kynning er al-
mannagæði sem nýtist öllum ferða-
þjónustuaðilum hefur hvert fyrirtæki
um sig ekki nægjanlega hvata til þess
að fjármagna slíka kynningu. ... Af
þessum sökum verða stjórnvöld að
taka að sér að samhæfa slíka kynn-
ingu fyrir greinina sem heild, t.d.
með því að veita hluta af þeim skatt-
tekjum sem greinin skapar til kynn-
ingarmála.“
Stjórnvöld hafa í vaxandi mæli
komið að almennum kynning-
armálum ferðaþjónustunnar og sam-
hæfingu þeirra í samræmi við það
sem hér að ofan er sagt.
Nægir þar að minna á viðbrögð
samgönguráðherra í framhaldi af at-
burðunum 11. september 2001, en
síðan þá hafa stjórnvöld aukið fram-
lög til almennra kynningarmála um
alls 800 milljónir.
Sú kynning skilar einnig ríkissjóði
sem stærsta hagsmunaaðilanum
auknum tekjum, enda færð rök að því
í skýrslunni að aðeins beinar tekjur
ríkissjóðs af virðisaukaskatti af
eyðslu erlendra ferðamanna und-
anfarin þrjú ár séu um 10 milljarðar.
Það er því mikið í húfi að auka
samkeppnishæfnina með aukinni
kynningu en það hafa stjórnvöld í
vaxandi mæli verið að gera eins og
áður hefur komið fram.
Í skýrslunni er fjallað um mun
fleiri þætti varðandi þjóðhagslegan
ábata af ferðaþjónustu og einnig að-
komu stjórnvalda á fleiri sviðum en
hér hefur verið gert að umtalsefni.
Þar kemur m.a. fram að fjölgun
starfa ein og sér sé ekki endilega
merki um þjóðhagslegan ávinning.
Þar skipti máli framleiðni starfanna
og í því sambandi bent á að afköst
vinnuafls í ferðaþjónustu hafi tvö-
faldast á síðastliðnum 30 árum þegar
litið er til fjölda erlendra gesta.
Þeir sem vinna í ferðaþjónustu
hljóta að fagna þessari vinnu sem
Hagfræðistofnun hefur unnið að
frumkvæði samgönguráðherra.
Í henni er staðfest á fjölmörgum
sviðum mikilvægi þessarar atvinnu-
greinar fyrir þjóðarbúið bæði fjár-
hagslegt og ekki síður byggðarlegt
og samfélagslegt.
Þá er þar einnig staðfest að stjórn-
völd hafi skilgreint hlutverk sitt í
uppbyggingu ferðaþjónustunnar á
þann hátt sem eðlilegt er og unnið í
samræmi við það.
Niðurstöðurnar eru gott veganesti
og hvatning til samstarfs opinberra
aðila og greinarinnar til áframhald-
andi uppbyggingar ferðaþjónustu til
framtíðar með það að markmiði að
vinna gott verk sífellt betur.
Skýrsla Hagfræðistofnunar er í
heild aðgengileg á vef samgöngu-
ráðuneytisins og hvet ég alla til að
kynna sér hana
Ferðaþjónustan eykur lífsgæði
Magnús Oddsson
skrifar um ferðamál ’Þeir sem vinna í ferða-þjónustu hljóta að fagna
þessari vinnu sem Hag-
fræðistofnun hefur unn-
ið að frumkvæði sam-
gönguráðherra.‘
Magnús Oddsson
Höfundur er ferðamálastjóri.