Morgunblaðið - 19.02.2004, Page 59
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 59
MÖLTUBÚAR, sem leika með Ís-
lendingum í riðli í undankeppni HM
2006 í knattspyrnu, komu mjög á
óvart á mánudaginn þegar þeir
unnu Eistland, 5:2, á heimavelli.
Það var annar leikur þeirra í ár-
legu, fjögurra þjóða móti en áður
höfðu þeir gert 0:0 jafntefli við Mol-
davíu. Mótinu lauk í gær en þá töp-
uðu Möltubúar fyrir Ólympíuliði
Hvít-Rússa, 2:0, í nánast hreinum
úrslitaleik. Hvít-Rússar fengu 6
stig, Eistar 6 stig, Möltubúar 4 og
Moldavíumenn eitt stig en Eistar
sigruðu Moldavíu, 1:0, í gær.
Þetta voru fyrstu leikir Möltubúa
undir stjórn nýs þjálfaratvíeykis en
það eru Þjóðverjinn Horst Heese og
heimamaðurinn Carmel Busuttil.
Stórsigur
Möltu
FÓLK
ATLI Jóhannsson náði í gær sam-
komulagi við Knattspyrnudeild ÍBV
um að leika með liðinu út tímabilið
2006. Atli hefur, þrátt fyrir að vera
ungur að árum, orðið einn af burðar-
ásum liðsins auk þess sem hann hefur
leikið með landsliði Íslands skipað
leikmönnum 21 árs og yngri.
ÞAÐ var mikið skorað í Goa á Ind-
landi er liðin Curtorim Gym og Wilf-
red Leisure áttu í höggi við Sangolda
Lightning og Dona Paula. Gym og
Leisure léku bæði á heimavelli og
voru í harðri baráttu um að komast
upp í 1. deild, liðin unnu sína leiki
nokkuð sannfærandi, 61:1 og 55:1.
AÐ sjálfsögðu vöktu þessi úrslit
efasemdir í röðum knattspyrnusam-
bands Goa, en eftirlitsmenn á þeirra
vegum voru á báðum leikjunum. Öll-
um liðunum var vísað úr keppni þar
sem þau eru grunuð um að hafa hag-
rætt úrslitum sér í hag.
MAGNUS Wislander, einn reynd-
asti handknattleiksmaður heims,
tekur við þjálfun Redbergslid í sum-
ar, en hann hefur leikið með liðinu
undanfarin tvö ár. Núverandi þjálfari
er á leið til Danmerkur hvar hann
stýrir kvennaliði Ikast á næstu leik-
tíð. Eitt fyrsta verk Wislanders verð-
ur að finna nýjan markvörð fyrir
Redbergslid en tékkneski landsliðs-
markvörðurinn, Martin Galia, sem
nú stendur á milli stanga liðsins er á
leið til Celje Pivo Lasko í Slóveníu.
ANDREAS Larsson, landsliðs-
maður Svía í handknattleik, hættir að
leika með Nordhorn í Þýskalandi í
vor og flytur heim til Svíþjóðar. Þar
hyggst hann leika með sínu gamla fé-
lagi, IFK Skövde.
KEVIN Toth, kúluvarpari frá
Bandaríkjunum tilkynnti í fyrradag
að hann væri hættur æfingum og
keppni. Hann kynnti ákvörðun í kjöl-
far þess að bandaríska frjálsíþrótta-
sambandið greindi frá því að staðfest
hefði verið að Toth hefði fallið á lyfja-
prófi, hefði neytt THG-stera. Toth
sagði ákvörðun sína ekki tengjast
lyfjamálinu, hann hefði ákveðið í
haust að hætta. Toth varpaði kúlunni
lengst 22,67 metra árið 2002 og var
það þá besti árangur sem náðst hafði
í heiminum í 13 ár.
DON King umboðsmaður í at-
vinnuhnefaleikum segir að hann geti
lofað George Foreman fyrrum
heimsmeistara í þungavigt um 1,4
milljörðum ísl. kr. taki hann ákvörð-
un um að keppa á ný. Foreman er 55
ára gamall og segir sjálfur að hann
þyrfti að léttast um 20 kg., áður en
hann tæki ákvörðun um slíkt. Fyrir
áratug kom Foreman á ný til keppni
og varð heimsmeistari á ný í þunga-
vigt með því að leggja Michel Moo-
rer, en síðast keppti Foreman árið
1997. Foreman varð fyrst heims-
meistari árið 1973 er hann lagði Joe
Frazier, en ári síðar tapaði hann titl-
inum á ný í rimmu sinni gegn Mu-
hammad Ali.
Haukarnir hófu leikinn af miklumkrafti og gáfu tóninn fyrir það
sem koma skyldi í leiknum. Staðan
eftir tveggja mínútna
leik var 3:0 og Hauk-
arnir höfðu eftir það
Stjörnumenn í helj-
argreipum. Ásgeir
Örn Hallgrímsson og Vignir Svavars-
son fóru mikinn í liði Hauka á upp-
hafskaflanum. Ásgeir skoraði fjögur
af fimm fyrstu mörkum Hauka og
Vignir var gríðarlega sterkur á lín-
unni, skoraði fimm mörk í fyrri hálf-
leik og fiskaði að auki tvö vítaköst.
Stjörnumenn reyndu af veikum
mætti að standa uppi í hárinu á Hauk-
unum en sofandaháttur í vörninni og
óðagot í sókninni varð þess valdandi
að Haukarnir bættu við forskot sitt
jafnt og þétt og höfðu sex marka for-
skot í hálfleik.
Stjörnumenn náðu að snúa sex
marka tapi í hálfleik á móti Val á dög-
unum í sigur og kröftug byrjun þeirra
í seinni hálfleik gegn Haukum á Ás-
völlum í gærkvöld minnti leikmenn
Hauka á það. Stjarnan skoraði fjögur
mörk í röð og minnkaði muninn í þrjú
mörk, 19:16, en þá sögðu þeir rauð-
klæddu hingað og ekki lengra. Þeir
svöruðu góðum leikkafla Stjörnunnar
með fjórum mörkum í röð og þegar
stundarfjórðungur var liðinn af síðari
hálfleik var forysta Haukanna orðin
átta mörk. Hafnarfjarðarliðið slakaði
ekkert á klónni og þó svo Páll þjálfari
Ólafsson gæfi minni spámönnum
tækifæri þá héldu Haukarnir góðum
dampi og framkölluðu sannkallað
stjörnuhrap á heimavelli sínum.
„Þetta gengur bara býsna vel hjá
okkur og Palli er greinilega að gera
góða hluti með liðið. Eftir erfiðleikana
sem fylgdu í kjölfar þess að Viggó yf-
irgaf liðið þá höfum við leikmenn
þjappað okkur vel saman og spilum
meira sem lið en fyrr í vetur. Það
þurftu allir að taka á sig meiri ábyrgð
og það er létt yfir mönnum,“ sagði Ás-
geir Örn Hallgrímsson sem átti stór-
leik í liði Hauka. Ásgeir skoraði tíu
mörk með þrumuskotum, skotnýting
hans var ákaflega góð og þá var hann
iðinn við að mata félaga sína með góð-
um sendingum.
„Það má kannski segja að við séum
að vinna upp gamlar syndir og hægt
og bítandi erum við að nálgast þann
stað sem við viljum vera á. Hin liðin
hafa verið að hiksta en við höfum ekki
tapað nema einu stigi og ef við höld-
um áfram á sömu braut þá endum við
í efsta sæti,“ sagði Ásgeir ennfremur.
Spurður hvort hann hafi ekki verið
sáttur við sína frammistöðu sagði
hann; „Ég fann mig mjög vel og ég
var staðráðinn í að bæta fyrir lélegan
leik minn á móti Stjörnunni fyrr í vet-
ur.“
Það var nánast hvergi veikan hlekk
að finna í liði Haukanna og til marks
um góða og mikla breidd í þeirra liði
þá kom ekki að sök að stórskyttan
Robertas Pauzuolis kæmist ekki á
blað. Ásgeir Örn sá um að draga
vagninn í sóknarleik Hauka og hann
skilaði að auki góðri varnarvinnu.
Vignir Svavarsson átti sömuleiðis
skínandi leik. Hann var öflugur á lín-
unni og ásamt Pauzuolis mynduðu
þeir þéttan varnarmúr sem Stjörnu-
mönnum gekk illa að glíma við. Birkir
stóð fyrir sínu á milli stanganna og
hornamennirnir Jón Karl og Þórir
Ólafsson áttu góða spretti. Haukaliðið
í heild ákaflega vel stemmt og vél
meistaranna er svo sannarlega farin
að mala eins og hún best getur.
Stjörnuliðið, sem hefur á að skipa
mörgum ungum og efnilegum leik-
mönnum, hitti einfaldlega fyrir
ofjarla sína á Ásvöllum í gær. Vörn
Garðbæinga var hriplek, hraðaupp-
hlaup liðsins voru illa útfærð og í
sókninni gekk leikmönnum illa að
finna glufur á sterkri vörn Haukanna.
Sigtryggur Kolbeinsson stóð upp úr í
liði Stjörnunnar, David Kekelia
komst klakklaust frá sínu en aðrir
leikmenn voru í meðalmennskunni og
það gengur ekki gegn jafnsterku liði
og Haukar hafa á að skipa. Engum
dylst þó að Sigurður Bjarnason þjálf-
ari Stjörnunnar er að gera fína hluti
með þetta unga lið og þó að hlutirnir
hafi ekki gengið að þessu sinni er
óþarfi fyrir Garðbæinga að örvænta.
Morgunblaðið/Þorkell
Arnór Atlason, sem hér gefur boltann inná félaga sinn Andreas Stelmokas án þess að Hörður
Gylfason úr Gróttu/KR fái rönd við reist, voru atkvæðamiklir á Nesinu í gær en það dugði ekki til.
Þeir skoruðu nítján af 28 mörkum liðsins og eru þeir tveir markahæstu menn deildarinnar.
Stjarnan auðveld bráð
fyrir Meistaralið Hauka
HAUKAR eru á góðri siglingu í úrvalsdeildinni og eftir stórsigur á
Stjörnunni, 36:24, eru Íslandsmeistararnir komnir upp í annað sæti
deildarinnar. Haukarnir eru eina taplausa liðið í deildinni og ef
marka má frammistöðu þeirra í undanförnum leikjum þá eru þeir til
alls líklegir.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
DAVID Sanders, körfuknatt-
leiksmaður úr Tindastóli, hef-
ur verið úrskurðaður í
tveggja leikja bann af aga-
nefnd KKÍ og Kristinn Frið-
riksson, þjálfari og leikmaður
liðsins, fær eins leiks bann.
Það tekur gildi á föstudag
þannig að báðir verða með
gegn Hamri í kvöld. Þeir
taka út bann gegn ÍR og
Sanders verður jafnframt í
banni gegn Breiðabliki.
Sanders fékk þrjár tækni-
villur í leik Tindastóls gegn
Þór í Þorlákshöfn í síðustu
viku. Kristinn þarf sem þjálf-
ari að taka út bann vegna
þess að villur voru dæmdar á
varamannabekk liðsins vegna
framkomu Sanders í sama
leik.
Auk þeirra fengu tveir
leikmenn úr 1. deild eins
leiks bann, þeir Sigmar Eg-
ilsson úr Skallagrími og Páll
Sigurðsson úr Ármanni/
Þrótti.
Sanders í
tveggja
leikja
bann
UM helgina fer fram heimsmeist-
arakeppni í skíðaflugi í Planicia og
verða margir keppendur sem munu
fljúga yfir 200 metra á því móti. Nú
hafa þeir bestu á þessu sviði sagt að
næsta takmark sé að ná 300 metra
stökki af risastökkpalli framtíð-
arinnar. Heimsmetið er 231 m, en
það er í eigu Matti Hautamaki frá
Finnlandi, en það setti hann fyrir
ári í Planicia.
Árið 1936 var metið 101 m og
hafa skíðastökkvarar náð að
stökkva lengra og lengra með
hverju árinu sem líður. Finninn
Matti Nykänen fór yfir 190 metra
árið 1985. Sá sem rauf 200 metra
múrinn var Toni Nieminen frá
Finnlandi árið 1994.
300 metra
skíðastökk?