Morgunblaðið - 19.02.2004, Síða 64
64 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20.
ÁLFABAKKI
Síma-forsýning kl. 8.
21
Sannkölluð stórmynd
sem hlotið hefur
frábæra dóma og
viðtökur um allan heim.
Tom Cruise hefur aldrei
verið betri!
Frábær gamanmynd
með frábærri tónlist.
Með hinni efnilegu Beyoncé Knowles,
fimmföldum Grammy verðlaunahafa og
Óskarsverðlaunahafanum Cuba Gooding Jr.
Forsýning
Frábær gamanmynd frá höfundi
Meet the Parents
Sérstök Síma-forsýning kl.8
Síminn býður 2 fyrir 1 gegn
framvísun tilboðsmiða
HJ. MBL
ÓHT. Rás2
6
Tilnefningar til
óskarsverðlauna
m.a. besta mynd ársins
Sýnd kl. 5.50 og 10. B.i. 16.
Heimur fa rfuglanna
Sýnd kl. 5.50 og 8.
Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára.
Mögnuð mynd með
Óskarsverðlaunahöfunum Ben Kingsley og
Jennifer Connelly
Tilnefningar til
óskarsverðlauna3
Sýnd kl. 10. B.i. 12 ára.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Kvikmyndir.com
HJ MBL „Fínasta
skemmtun“
B.Ö.S.
Fréttablaðið
Gamanmynd eins og þær gerast bestar !
Jack Nicholson, Diane Keaton, Keanu Reevesog Amanda Peet í Rómantískri
Gamanmynd frá Nancy Myers, leikstjóra „What Women Want“.
Roger Ebert
HJ MBL
ÓHT Rás2
Erótísk og örgrandi.
Leikur Óskarsverðlaunahafanna er magnþrungin.
Byggð á verðlaunaskáldsögu eftir Philip Roth.
í i
i l f i .
l l f i ili .
Sýnd kl. 6.
Stefnumót á Borginni allar helgar
Nú verður aftur hægt að
upplifa gömlu stemn-
inguna og fá sér góðan
snúning í sparifötunum
við ekta danstónlist.
Hljómsveitin Stefnumót
ásamt söngvurunum Ruth
Reginalds og André
Bachmann mun leika
danstónlist af bestu gerð
frá kl. 22-01 öll föstudags-
kvöld og frá 22-02 öll
laugardagskvöld í vetur.
Aðgangeyrir 1000 kr.
Í hjarta borgarinnar
Borðapantanir í síma 551 1247
SPURNINGAKEPPNI fram-
haldsskólanna, Gettu betur, hefur
um árabil verið með vinsælasta
sjónvarpsefni á landinu, enda fer
þar saman létt skemmtun og æsi-
spennandi keppni.
Nú eru 8 lið eftir af 28 sem hófu
þátttöku og verður sjónvarps-
keppnin haldin í fyrsta sinn í Vetr-
argarði Smáralindar, að einni við-
ureign undanskilinni. Nýtt útlit er
á keppninni í ár og líka verða
skemmtiatriði skólanna með nýju
sniði, unnin fyrirfram í samvinnu
við Sjónvarpið.
Í fyrstu viðureign 8-liða úrslita
mætast getspakir nemendur nýlið-
anna í Menntaskólanum Hrað-
braut og Fjölbrautaskólans í
Garðabæ.
Í liði Menntaskólans Hraðbraut-
ar eru Davíð Geir Jónasson, Sig-
urður Pálmi Sigurbjörnsson og
Egill Axfjörð Friðgeirsson. Fyrir
Fjölbrautaskólann í Garðabæ
keppa Hulda Guðjónsdóttir, Kári
Eyvindur Þórðarson og Jóhann
Grétar Kröyer Gizurarson. Spyrj-
andi er Logi Bergmann Eiðsson,
dómari og spurningahöfundur
Stefán Pálsson og um dagskrár-
gerð sér Andrés Indriðason.
Taplaust lið
Ekki mátti trufla Hraðbrautar-
menn á stífum æfingum í gær, en
formaður nemendafélags Hrað-
brautar, Bjartmar Alexandersson
sagði í samtali við Morgunblaðið
að það væri mikill hugur í liði sínu
og stefnt væri að því að fara með
sigur af hólmi í þessari frumraun.
„Við erum eina liðið sem getur
státað af hundrað prósent árangri
í þessari keppni. Við erum taplaust
lið. Að vísu stafar það af því að við
erum nýr skóli og höfum þar af
leiðandi aldrei keppt í Gettu betur
áður,“ sagði Bjartmar og sló á
létta strengi. En svo tók alvaran
við og hann bætti við: „Okkar
menn eru sterkastir í dægurmál-
um, sagnfræði og pólitík. Þeir hafa
æft af gríðarlegu kappi og ætla sér
stóra hluti. Það er búið að gera
prufur og liðið er frábært í bjöllu-
og vísbendingaspurningum og
hraðaspurningarnar eru að koma.
Það er helst að verið sé að æfa þær
á endasprettinum, enda eru mörg
dæmi um að menn stressist upp og
jafnvel þannig að lið eru nánast
búin að vinna keppnina ef þau ná
góðum árangri í hraðaspurningun-
um.“
Mæta vel stemmd
Lið Fjölbrautaskóla Garðabæjar
mætir vel stemmt til leiks, en
Hulda Guðjónsdóttir fyrirliði segir
liðið hvorki óttast hið óþekkta við
mótherjann Hraðbraut né keppn-
ina í heild, markmiðið í upphafi hafi
verið að „verða sér ekki til skamm-
ar,“ en þegar frá leið sé stefnt að
því að „vinna Hraðbraut, sjá svo til
og vona það besta,“ eins og hún
komst að orði.
Hulda sagði það heppilegast fyr-
ir Garðbæinga ef allar spurning-
arnar fjölluðu um landafræði, því
einn í liðinu væri með allt slíkt á
hreinu. Lítið væri þó treystandi á
slíkt og sagði hún æfingar hafa
verið stífar og fjölbreytilegar. „Við
byrjuðum æfingar þann 10.janúar
og höfum verið mjög dugleg að æfa
síðan. Lögðum framan af mesta
áherslu á hraðaspurningar og höf-
um einnig eytt góðum tíma í nokk-
urs konar staðreyndasöfnun. Þá
höfum við tvisvar efnt til æfinga-
móts, gegn Iðnskóla Hafnarfjarðar
og Fjölbrautarskóla Akraness.
Þetta voru fínar æfingar og við
vorum ánægð með útkomuna hjá
okkur. Við mætum því óhrædd til
leiks,“ sagði Hulda.
Hið óþekkta
og vel stemmda
Morgunblaðið/Þorkell
Lið Fjölbrautar í Garðabæ: Hulda Guðjónsdóttir, Kári Eyvindur Þórð-
arson og Jóhann Grétar Kröyer Gizurarson.
Gettu betur er í kvöld á RÚV Kl.
20.10.
Lið Menntaskólans Hraðbrautar: Davíð Geir Jónasson, Sigurður Pálmi
Sigurbjörnsson og Egill Axfjörð Friðgeirsson.
FYRSTA íslenska Idol-stjarnan,
Kalli Bjarni, fékk sér stóran bita
af vænum borgara eftir að hafa
klippt á borðann og opnað form-
lega nýjan Burger King-
veitingastað í Smáralindinni í
gær.
Er um að ræða fyrsta veit-
ingastað þessarar alþjóðlegu
skyndibitakeðju á Íslandi en hún
var sett á laggirnar í Bandaríkj-
unum á 6. áratugnum og eru nú
vel yfir 11 þúsund staðir í 57
löndum.
Kalli Bjarni
fékk sér borgara
Morgunblaðið/Jim Smart