Morgunblaðið - 19.02.2004, Síða 68

Morgunblaðið - 19.02.2004, Síða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Sími 588 1200 BETRI INNHEIMTUÁRANGUR Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga NOTKUN á farsímum hefur verið bönnuð í böðum og búningsherbergjum sundstaða í Reykjavík og hefur skiltum þess efnis verið komið fyrir á öllum sundstöðum borg- arinnar á vegum Íþrótta- og tómstunda- ráðs. Að sögn Erlings Þ. Jóhannssonar, íþróttafulltrúa hjá ÍTR, beinist bannið eink- um að GSM myndsímum og er því ætlað að koma í veg fyrir misnotkun á símunum á sundstöðum. Ákveðið hafi verið að banna alla farsímanotkun til að taka af öll tvímæli um bannið. Eftir sem áður sé fólki heimilt að taka símana með sér í búningsklefana. Að sögn Erlings hafa farsímar víða verið bannaðir erlendis á sundstöðum enda brögð að því að myndsímar hafi verið not- aðir til að taka myndir af fólki á Adams- og Evuklæðum og þeim jafnvel dreift á Net- inu. Orðrómur um slíkt hafi verið á kreiki hér en engar sönnur verið færðar á það. Morgunblaðið/Golli Banna alla farsíma á sundstöðum „VIÐ hræðumst ekki brimið,“ sagði Haraldur Einarsson, stýri- maður á Hrungni GK, meðan báturinn klauf öldurnar utan við höfnina í Grindavík. Þegar út fyrir varnargarðinn er komið blasir úthafið við og segir Har- aldur brimið berja oft ansi harkalega á bátnum. Það hræði þó ekki mennina um borð enda séu þeir öllu vanir. Sjálfur hef- ur hann lagt úr höfninni allan sinn 30 ára sjómannsferil. Inn- siglingin hafi mikið breyst á þessum tíma og nú keyri bát- arnir eftir sérstökum skurði. Sín hvorum megin brotni öld- urnar á grynningunum svo landkrabbar horfi agndofa á. Haraldur segir að aldrei hafi verið teflt í tvísýnu og fyr- irhyggjan sé sjómönnum í Grindavík mikilvæg þegar kem- ur að sjósókn. Morgunblaðið/Rax „Við hræðumst ekki brimið“ GRAFARÞÖGN eftir Arnald Indriðason kom í verslanir í Þýskalandi á mánudaginn var og stökk beint í 15. sæti þýska bóksölu- listans. Engin íslensk skáldsaga sem komið hefur út í Þýskalandi hefur náð þessum ár- angri fyrr, að sögn Kristjáns B. Jónassonar hjá Réttindastofu Eddu útgáfu. „Ljóst var þegar síð- asta haust að mikill áhugi var meðal þýskra bóksala fyrir Todes- hauch, eins og Grafar- þögn heitir á þýsku og kynningareintök af bókinni gengu kaupum og sölum á netuppboðsfyrirtækinu Ebay. Í kjölfar þessa áhuga og mikillar velgengni Mýrarinnar, sem selst hefur í yfir 150.000 eintökum í Þýskalandi, ákváðu þýskir út- gefendur Arnaldar að prenta 100.000 ein- tök í fyrstu prentun. Þetta er eitt stærsta upplag sem prentað hefur verið af íslenskri bók fyrr og síðar en nú er ljóst að það nægir alls ekki til að metta áhuga þýskra bóka- kaupenda,“ segir Kristján. Grafarþögn í 15. sæti í Þýskalandi Arnaldur Indriðason HAGNAÐUR bankanna á síðasta ári var langt yfir væntingum sem grein- ingardeildir þeirra gerðu ráð fyrir í upphafi ársins, samtals 16,3 milljarð- ar króna. Höfðu deildirnar spáð lítils háttar samdrætti hagnaðar frá árinu 2002 en hann jókst hins vegar um 56% milli ára. Þessari miklu aukningu hagnaðar bankanna hefur fylgt enn meiri hækkun hlutabréfaverðs þeirra. Hækkunin frá ársbyrjun 2003 hefur verið um 60% hjá Íslandsbanka, tæp 100% hjá Landsbanka og rúm 100% hjá KB banka. Í Viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag kemur fram að gengishagnaður allra bankanna af hlutabréfa- og skuldabréfaeign og gjaldeyristengd- um eignum jókst mikið milli ára, eða úr 6,2 milljörðum árið 2002 í 16,3 milljarða í fyrra. Mest munar þar um gengishækkun hlutabréfaeignar bankanna. Samanlagður gengishagn- aður var langmestur hjá KB banka í fyrra, eða um 10 milljarðar króna. Þjónustutekjur bankanna jukust einnig mikið á síðasta ári, eða um 5 milljarða króna frá fyrra ári, í tæpa 19 milljarða. Enn voru þessar tekjur langmestar hjá KB banka, eða um 3½ milljarður. Sýnir þetta hvaða áhrif starfsemi KB banka í Svíþjóð eru far- in að hafa. Auknar þjónustutekjur bankanna á sl. ári stöfuðu aðallega af auknum umsvifum í verðbréfavið- skiptum og fyrirtækjaráðgjöf. Hagnaður banka óx um 56%  Mikill hagnaður/C6 Tvímenningarnir voru handteknir í gær þar sem þeir dvöldu í Rauða kross-húsinu við Tjarnargötu og vistaðir hjá lögreglu í nótt. Katrín Theodórsdóttir, lögmaður tvímenn- inganna, segir þá hafa verið miður sín þegar þeir voru leiddir á brott af lögreglu, hálfgrátandi. Þetta hafi verið óþarflega harkalegar aðgerðir í máli barna. Katrín segir þá hafa þriggja mánaða frest til að kæra úrskurð Útlendingastofnunar um að senda þá til baka. Allt að fjórir mánuðir geti liðið þangað til niðurstaða dómsmálaráðuneytisins liggi fyrir. Ber að taka málið til meðferðar Mennirnir sögðust vera yngri en 18 ára og segir Katrín að reynist það rétt beri íslenskum stjórnvöld- um að taka mál þeirra um dvalar- leyfi á Íslandi til efnislegrar með- ferðar samkvæmt Dyflinnar- samningnum. Þá skipti engu hvort þeir hafi komið í gegnum annað Schengen-ríki eða ekki. Útlendingastofnun þykir full- sannað að mennirnir séu 26 ára. Katrín segir að þeim hafi aldrei ver- ið gefinn kostur á að sýna fram á réttan aldur sinn hjá stofnuninni. Ekkert hafi verið talað við þá. Þeim hafi verið birtur úrskurður, boðið að kæra, sem þeir gerðu, og þá fyrst hafi þeim verið skipaður talsmaður. Hún tekur fram að hún hafi komið nokkrum dögum fyrr að þessu máli þar sem mennirnir gátu sett sig í samband við hana sjálfir. „Undir venjulegum kringumstæðum væri ég ekki komin að málinu núna.“ Katrín segir að þegar umsækj- anda er skipaður talsmaður sé hann fyrst upplýstur um rétt sinn en þá sé oft þegar búið að senda útlend- inginn úr landi. „Ég hef verið að kæra úrskurði fyrir umsækjendur sem ég hef ekki hugmynd um hvar eru staddir. Það hefur komið fyrir að ég nái ekki einu sinni til þeirra,“ segir hún. „Þetta er framkvæmd sem ég er óánægð með.“ Í gærmorgun barst afrit af fæð- ingarvottorði annars mannsins frá Sri Lanka með símbréfi. Katrín segir að ekki hafi verið gerlegt að lesa það þar sem það var svo óskýrt. Hún hafi látið dómsmálaráðuneytið vita í gærmorgun að óskað hafi ver- ið eftir frumritum með hraðpósti. Það taki einfaldlega nokkurn tíma og mennirnir eigi nú ekki kost á að sýna fram á réttan aldur sinn. Hún segir þessa málsmeðferð ekki tryggja öryggi hælisleitenda hér á landi. Það sé ekki farið að vinna að vörnum í máli þeirra fyrr en þeir séu komnir úr landi. Ekki sé verið að biðja um að breyta ákvörðuninni efnislega. „Það er verið að biðja um að bíða með að senda þá út á meðan það verður tekin endanleg ákvörðun í málinu. Eðlilegt er í því ferli að gefa þeim kost á að sanna aldurinn,“ seg- ir Katrín. Tvímenningarnir frá Sri Lanka verða sendir úr landi í dag Leiddir hálfgrátandi á brott DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ synjaði í gær beiðni ungu mann- anna tveggja frá Sri Lanka um að þeir fengju að dveljast á Íslandi á meðan ráðuneytið afgreiðir kæru þeirra á úrskurði Útlend- ingastofnunar um að senda þá úr landi. Voru þeir því sendir með flugi til Þýskalands í morgun en þaðan komu þeir hingað til lands. Morgunblaðið/Árni Sæberg Mennirnir frá Sri Lanka voru hálfgrátandi þegar lögreglan handtók þá í húsi Rauða krossins. Þeir eiga að fara með flugi til Þýskalands í dag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.