Morgunblaðið - 20.02.2004, Page 22
AKUREYRI
22 FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
www.islandia.is/~heilsuhorn
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889
fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum,
Fjarðarkaupum
Árnesaptóteki Selfossi og
Yggdrasil Kárastíg 1.
Eykur fitubrennslu
Nýjung í barnastarfi Glerárkirkju
Kirkjuskóli fyrir 1.-4. bekk
á laugardögum kl. 11.00
Fyrsta samvera 21. febrúar
GLERÁRKIRKJA
Allir hjartanlega velkomnir. Glerárkirkja.
Biblíusögur, söngur, leikir og lofgjörð til uppbyggingar
og þroska fyrir börnin. Umsjón hafa Sylvía Magnúsdóttir,
Ása Arnaldsdóttir og Sólveig Kristjánsdóttir.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Reykjavík | Reykvísk leik-
skólabörn munu í dag mætast á
opnum svæðum til að biðja um
betri og friðsælli heim og færa um
leið heiminn inn í borgina með því
að fylla hana af þjóðfánum heims-
ins. Skilaboð barnanna eru einföld:
„Allt fólkið í heiminum á að vera
vinir eins og við.“ Á opnu svæð-
unum munu börnin taka til við söng
og leiki og eru borgarbúar hvattir
til að mæta á svæðið og meðtaka
fallegan og einfaldan boðskap
barnanna, sem er hluti af yfirstand-
andi Vetrarhátíð Reykjavík-
urborgar.
Börnin mætast á eftirfarandi stöð-
um í borginni:
Grafarvogsleikskólarnir hittast
við Íþróttamiðstöð Grafarvogs v/
Dalhús.
Árbæjarleikskólarnir hittast:
einn hópur við undirgöngin hjá
Árbæjarstíflunni þar sem farið
er út á Árbæjarsafn.
Annar hópur úr Árbæ á svæði
fyrir ofan Rauðaborg v/Viðarás.
Þrír leikskólar í Fellahverfi fara
í göngu um hverfið frá Iðufelli að
Völvufelli.
Leikskólar í Bakkahverfi hittast
á Bakkatúni.
Leikskólar í Kringluhverfi og
Bústaðahverfi hittast á túninu
við Útvarpshúsið.
Leikskólar í Voga- og Heima-
hverfi hittast á túni leikskólans
Steinahlíðar v/Suðurlandsbraut.
Leikskólar í Laugarnesi hittast á
svæðinu við tjaldstæðin í Laug-
ardal.
Leikskólar í Hlíðahverfi hittast á
Klambratúni.
Leikskólar í miðbæ hittast á
Austurvelli.
Leikskólar í vesturbæ hittast á
Ægisíðu – við grásleppuskúrana.
Þrír leikskólar í Skerjafirði og af
Háskólasvæðinu hittast á Holti,
við enda Reykjavíkurvegar.
Leikskólabörn færa friðarboðskap
Kópavogur | Íbúasamtökin Betri
Lundur hafa farið yfir skipulagstil-
lögur dönsku arkitektastofunnar
3XNielsen um Lundarsvæðið í Foss-
vogi og segja þær almennt mjög til
bóta. Þó sé hægt að benda á nokkur
atriði sem betur megi fara.
Hannes Þorsteinsson, talsmaður
Betri Lundar, segir að á fundi sam-
takanna nýlega hafi tillögurnar verið
ræddar ítarlega og rætt við formann
skipulagsnefndar og skipulagsstjóra
Kópavogs „Almennt líst okkur vel á
tillögurnar í heild sinni. Það er
margt mjög gott í þeim og skemmti-
legar hugmyndir settar fram. Þetta
getur orðið mjög skemmtilegt
hverfi,“ segir Hannes. „Þarna var
töluvert komið til móts við okkar til-
lögur og við erum mjög ánægð með
það. Við höfum þó ennþá vissar
ábendingar um úrbætur. Það var
einkum þrennt sem við gerðum at-
hugasemdir við.“
Í fyrsta lagi gerðu samtökin at-
hugasemdir varðandi skipulagið.
Kom fram vilji samtakanna til að
blokkirnar verði lækkaðar, en gert
er ráð fyrir að þær verði tíu hæðir.
„Við viljum sjá þær á bilinu sex til
átta hæðir. Við gerðum líka at-
hugasemdir við tengingu við útivist-
arsvæðin í dalnum, að betur yrði
hugað að göngustígum á mörkum
núverandi byggðar og nýju byggð-
arinnar og göngustígum neðst í
dalnum,“ segir Hannes. Einnig þyk-
ir samtökunum byggðin nokkuð ná-
lægt lóðamörkum neðst í dalnum og
vilja þau tryggja að rými verði fyrir
göngustíga á neðsta svæði dalsins.
3XN haldi áfram hönnun
Önnur athugasemd samtakanna
varðaði arkitektúr, en lögð var
áhersla á að dönsku arkitektarnir
yrðu fengnir til að halda áfram vinnu
við svæðið, til að tryggja að hug-
myndafræðin haldist. „Við óskuðum
einnig eftir fleiri raðhúsum í skipu-
lagið á kostnað klasabyggðar eða
blokkaríbúða,“ segir Hannes, en
einnig óskuðu samtökin eftir því að
snúningur einbýlishúsa yrði í sam-
ræmi við aðra byggð á svæðinu.
Í þriðja lagi álíta samtökin bygg-
ingamagn á svæðinu enn of mikið.
„Við lögðum til að íbúðir yrðu á
bilinu 280 til 300, en samkvæmt til-
lögunum eru þær tæplega 400.“
Hannes segir þessi þrjú grund-
vallaratriði standa upp úr, en sam-
tökin hafi einnig lagt á það áherslu
að íbúðafjöldinn í hverfinu setji ekki
tveggja hliðstæðna skipulag Snæ-
landsskóla, þar sem tveir bekkir eru
í árgangi, í hættu. „Ég hef trú á því
að málið sé að komast á góðan stað
og ef tekið verður tillit til at-
hugasemda okkar nú, er ljóst að
málið er í góðum farvegi,“segir
Hannes að lokum.
Samtök um betri Lund álykta um nýjar skipulagstillögur
Lofa góðu, en þó má bæta
Betri Lundur?: Nýjar tillögur að skipulagi í Lundi hafa mætt mildari gagnrýnisröddum en fyrri hugmyndir.
Vefkönnun | Fræðsluráð Hafn-
arfjarðar hefur ákveðið að efna til
könnunar um nafn á nýja átta
deilda leikskólanum sem verið er að
byggja í Áslandinu. Fræðsluráð
hefur lagt fram fjögur nöfn sem al-
menningi gefst kostur á að velja
milli í einfaldri könnun á vefsíðu
Hafnarfjarðar, www.hafn-
arfjordur.is.
Ás: var nafn á bæ sem stóð í Ás-
landinu ekki langt frá þeim stað er
leikskólinn kemur til með að rísa.
Stekkur: var bær sem talinn er
hafa verið byggður um 1830 á
stakkstæði frá Ási og talinn hafa
verið þurrabúð frá þeim bæ.
Stekkjarás: er samsetning úr ör-
nefnunum Ás og Stekkur.
Stóri Stekkur: er vísun í að leik-
skólinn verður stærsti leikskóli
bæjarins með um 220 börn.
Eyjafjarðarsveit | Freyvangsleik-
húsið frumsýnir á morgun, laug-
ardaginn 21. febrúar, kl. 16, barna-
leikritið góðkunna Ronju
Ræningjadóttur, eftir sænsku
skáldkonuna Astrid Lindgren. Odd-
ur Bjarni Þorkelsson leikstýrir
verkinu. Hönnuður leikmyndar er
Þórarinn Blöndal og tónlistarstjóri
Hjálmar Brynjólfsson. Æfingar
hafa staðið yfir frá áramótum og
mun þetta vera í fyrsta skipti sem
Freyvangsleikhúsið setur upp
barnaleikrit. Ekki er að efa að börn
og unglingar kunna að meta þetta
framtak hjá leikhúsinu.
Sýningin er mjög viðamikil og
koma alls 30 leikarar fram í henni,
og annar eins fjöldi hefur unnið að
tjaldabaki við sviðsmynd, ljós og
búninga og nú að undanförnu hefur
fólkið lagt nótt við dag til að koma
öllu í kring fyrir frumsýningu.
Ingólfur Þórsson leikur Skalla-
Pétur og Hildur Axelsdóttir Ronju
Ræningjadóttur.
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
Freyvangsleikhúsið: Leikritið um Ronju Ræningjadóttur verður frumsýnt
á laugardag. Hér eru þau Ingólfur Þórsson sem Skalla-Pétur og Hildur Ax-
elsdóttir sem Ronja Ræningjadóttir.
Ronja í Freyvangi
BÆJARSTJÓRN Akureyrar sam-
þykkti á fundi sínum í vikunni að
vísa afgreiðslu umhverfisráðs á til-
lögu að breytingu á aðalskipulagi
og deiliskipulagi lóðar dvalarheim-
ilisins Hlíðar og nágrennis, aftur til
ráðsins, með þeim tilmælum að fyr-
irkomulag bílastæða innan skipu-
lagssvæðisins verði endurskoðað.
Umhverfisráð hafði samþykkt að
gera breytingar á skipulagstillög-
unni, vegna athugasemda íbúa við
Suðurbyggð og Álfabyggð, þannig
að möguleiki á akstri og bílastæð-
um ofanjarðar vestan væntanlegrar
nýbyggingar við Hlíð verði tekin
út. Eingöngu yrði leyft að koma
bílastæðum fyrir neðanjarðar eða á
jarðhæð hússins.
Jakob Björnsson, formaður bæj-
arráðs, sagði að því fylgdi mikill
aukakostnaður að koma fyrir bíla-
stæðum í nýbyggingunni, eða sem
næmi allt að 70 milljónum króna.
Hann sagði að bæjarstjórn teldi
það ekki fullreynt að hægt væri að
leysa þetta mál á annan og ódýrari
hátt. Jakob sagði að horft væri til
lóðar í eigu Norðurorku, sunnan
við húsið, og þá með samþykki fé-
lagsins. Einnig væri horft til svæð-
is sem á skipulagstillögunni er gert
ráð fyrir raðhúsum á. Þar væri
möguleiki á að koma fyrir bílastæð-
um eða með öðruvísi skipulagi á
suðurhluta lóðarinnar. „Við teljum
að það þurfi að leita allra leiða til
þess að verða við óskum íbúanna á
annan og ódýrari máta,“ sagði Jak-
ob.
Heildarkostnaður við viðbygg-
inguna við Hlíð er áætlaður 820
milljónir króna, þar af borgar Ak-
ureyrarbær 30%, eða 246 milljónir
króna, en ríkið 70%. Akureyrarbær
er að borga helmingi meira í við-
byggingunni en lögboðið er, eða
sem nemur 123 milljónum króna.
Með því að taka svo á sig kostn-
aðinn við bílastæðahúsið hefði
aukakostnaður bæjarins orðið
nærri 200 milljónir króna.
Aðal- og deiliskipulag við Hlíð
Umhverfisráð end-
urskoði fyrirkomu-
lag bílastæða
VATN hefur flætt í kjallara fjöl-
býlishúss við Tröllagil á Akureyri
í leysingunum undanfarna daga
en þar eru geymslur fyrir íbúðir í
húsinu. Einnig flæddi vatn í íbúð-
arhús við Núpasíðu og þar urðu
einhverjar skemmdir í íbúð á
neðri hæð hússins.
Bergur Þorri Benjamínsson,
íbúi í fjölbýlishúsinu við Tröllagil,
sagði að töluverðir snjóskaflar
hafi verið fyrir utan húsið. Í leys-
ingunum að undanförnu hefur
vatn komið upp í gegnum sprung-
ur í plötunni í kjallaranum og oll-
ið þar einhverjum skemmdum.
Bergur sagði að íbúar hússins
hefðu náð að halda vatninu í
skefjum með vaktaskiptum á
vatnssugunni og vatnsborðið því
ekki orðið hærra en 2 cm. Hann
sagði margt benda til þess að
grunnur hússins væri fullur af
vatni, þar sem vatnið þrýstist upp
í gegnum plötuna og að dren í
kringum húsið hefði trúlega ekki
undan.
Vatn flæddi
inn í hús
Landsmót UMFÍ | Íþrótta- og tóm-
stundaráð Akureyrar fagnar ákvörð-
un stjórnar Ungmennafélags Íslands
að velja Akureyri sem staðsetningu
fyrir 100 ára afmælislandsmót sitt ár-
ið 2009. Stjórn UMFÍ ákvað á stjórn-
arfundi um helgina að landsmót
UMFÍ árið 2007 skyldi haldið í Kópa-
vogi og UMSK yrði mótshaldari en
þá verða 100 frá stofnun UMFÍ.
Einnig var ákveðið að landsmótið
2009 yrði haldið á Akureyri og Ung-
mennasamband Eyjafjarðar og UFA
yrðu mótshaldarar, en félögin sóttu
sameiginlega um að halda landsmót.
Fjögur héraðssambönd innan
UMFÍ sóttu um að halda landsmót
árin 2007 og 2009. Þar var um að
ræða UMSK, HSK, UMSE og UFA,
öll með stuðningi sinna sveitarfélaga,
þ.e. Kópavogs, Árborgar og Ölf-
ushrepps, og Akureyrar.
Sýningu lýkur | Sunnudaginn 22.
febrúar lýkur sýningu Kristínar
Reynisdóttur, „Ég,við og hinir“, í
Gallerí+, Brekkugötu 35 á Ak-
ureyri. Galleríið er opið frá kl. 13–17
laugar- og sunnudaga og aðra tíma
eftir samkomulagi í síma 4627818.