Morgunblaðið - 20.02.2004, Qupperneq 24
AUSTURLAND
24 FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Húsavík | Ákveðið hefur verið að
fyrirtækið Doc hf., sem vinnur m.a.
að gerð rafræns lyfseðils, flytji starf-
semi sína til Húsavíkur. Fyrirtækið
verður með að-
stöðu innan
veggja hjá Heil-
brigðisstofnun
Þingeyinga og
verður auglýst
eftir forriturum
til starfa á næstu
dögum.
Friðfinnur
Hermannsson,
framkvæmda-
stjóri HÞ, segir
þetta mjög ánægjuleg tíðindi og
raunar frábærar fréttir. Það sé stór
áfangi fyrir samfélagið að fá inn á
svæðið fyrirtæki af þessu tagi sem
eykur til muna fjölbreytni þingeysks
atvinnulífs.
„Það hefur verið stefna Heilbrigð-
isstofnunar Þingeyinga síðan 1998,
þegar stofnunin var tölvuvædd, að
vera í fremstu röð heilbrigðisstofn-
ana hvað varðar rafræna þróun í
heilbrigðisþjónustu. Stofnunin hefur
verið í samstarfi við fyrirtæki eins
og Gagnalind, eMR og Íslenska
erfðagreiningu en mest hefur þó
samstarfið verið við Doc hf. Árið
1999 hófst samstarf þessara aðila
um hönnun rafræns lyfseðils (e-
Pref) og árið 2001 var fyrsti rafræni
lyfseðillinn á Íslandi sendur frá HÞ
til Húsavíkurapóteks,“ segir Frið-
finnur.
„Ef rafrænn lyfseðill verður tek-
inn upp á landsvísu má búast við
hröðum vexti fyrirtækisins á næstu
árum en önnur uppbygging fyrir-
tækisins verður væntanlega innan
veggja Þekkingarseturs Þingeyinga.
Framundan er uppbygging rafræns
samfélags við Skjálfanda sem Doc
hf. mun á einhvern hátt koma að og
fleiri spennandi verkefni eru reynd-
ar í farvatninu sem of snemmt er að
fjalla um,“ segir Friðfinnur.
Friðfinnur segir að ákvörðun eig-
enda Doc hf., sem eru Tölvumyndir
hf., að flytja starfsemi sína til Þing-
eyjarsýslna hafi átt sér langan að-
draganda. Það sem mestu skiptir í
því sambandi að hans mati er mark-
viss uppbygging tölvukerfis HÞ
undir stjórn Alberts Arnarsonar
kerfisstjóra. Einnig endalaus já-
kvæðni og dugnaður annarra starfs-
manna við að taka á þeim áföllum
sem óhjákvæmilega koma reglulega
upp þegar unnið er að þróun á nýj-
um hugbúnaði.
„Þá skiptir ekki minna máli dugn-
aður og fagmennska þeirra starfs-
manna sem komu beint að þróun raf-
ræna lyfseðilsins. Sú vinna mæddi
mest á Ásgeiri Böðvarssyni yfir-
lækni. Einnig skipti máli sú ákvörð-
un Húsavíkurbæjar, Aðaldæla-
hrepps og Þingeyjarsveitar um að
taka þátt í og vinna ásamt Árborg-
arsvæðinu samkeppni sveitarfélaga
um að verða rafrænt þróunarsvæði.
Einnig skipti máli stuðningur
Impru upp á eina milljón króna til að
kanna flutning á Doc hf. til Húsavík-
ur sem og hlutafjárframlag Byggða-
stofnunar upp á fimmtán milljónir
króna sem ætlað er til að styðja fyr-
irtækið til að flytja. Þá var aðstoð
starfsmanna Atvinnuþróunarfélags
Þingeyinga, þeirra Tryggva Finns-
sonar og Gunnars Jóhannessonar af-
ar mikilvæg,“ sagði Friðfinnur Her-
mannsson að lokum.
Starfsemi Doc hf.
flyst til Húsavíkur
Friðfinnur
Hermannsson
Hrunamannahreppur | Hrossa-
ræktarfélag Hrunamanna var
stofnað 1912 og hefur starfað af
myndarskap allar götur síðan. Í
tilefni 90 ára afmælisins voru þrjú
hrossaræktarbú í Árnessýslu
heimsótt í nóvember 2002 sem
lauk með veglegri afmælisveislu í
Efstalandi í Ölfusi. Þessi ferð
þótti takast afar vel og því beitti
félagið sér fyrir annarri ferð ný-
lega. Farið var um Rangárþing og
fjögur hrossabú heimsótt, þátttak-
endur voru 55 talsins.
Fyrst var komið að Feti þar
sem Brynjar Vilmundarsson sýndi
gestum hið nýja og glæsilega
hesthús með sambyggðri reiðhöll.
Þetta er afar vönduð og glæsileg
bygging. Fyrir á Brynjar annað
stórt og vandað hesthús. Með hon-
um vinna fimm manns en 75 hross
eru á járnum, þar af 18 stóðhest-
ar. Það gaf því sitthvað á að líta,
m.a. landsfræga kostagripi.
Því næst lá leiðin að Ármóti þar
sem Hafliði Halldórsson ræður
ríkjum. Þar eru starfsmenn 7, en
um 60 hross eru á járnum á
búinu, af þeim eru 10 stóðhestar.
Hafliði lét vel af hestakostinum.
Þar á nú enn að auka við húsa-
kost, verið er að byrja á glerhúsi
miklu, einskonar grillhöll og reið-
höll sagði Ármótsbóndinn vera á
næsta leiti.
Hjá Sigurði Sigurðarsyni, Þjóð-
ólfshaga, eru tæplega 40 hross í
tamningu og þjálfun. Þar gaf m.a.
að líta stóðhestinn Kjarna
Kringluson og Andvara á fjórða
vetri sem miklar vonir eru bundn-
ar við. Með Sigurði vinna við búið
tveir starfsmenn.
Að lokum var komið að Hest-
heimum en þar eru núna um 50
hross á járnum. Starfsmenn eru 6
auk húsfreyjunnar, Ástu Beggu
Ólafsdóttur, sem sér mestu um
gegningar og matseld, enda veit-
ingahús á staðnum. Dætur þeirra
Ástu Beggu og Gísla Sveinssonar,
Inga Berg og Katla, sem hafa
unnið til margra verðlauna á
hestum, bregða sér einnig gjarn-
an á bak þegar þær hafa frí frá
skólanum. Boðið var upp hesta-
sýningu í reiðhöllinni á góðum
hestum. Þau Ásta Begga og Gísli
eru löngu annáluð fyrir frábærar
móttökur og ekki brást veislan
sem þau buðu uppá af sinni al-
kunnu snild.
Hrossaræktarmenn í skoðunarferð
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Sigurður Sigurðarson, hrossabóndi í Þjóðólfshaga, með efnilegan stóðhest, Kjarna Kringluson.
Egilsstaðir | Ráðstefna um litlar vatnsaflsvirkjanir var
haldin á Egilsstöðum nýverið. Meðal þess sem vakti
athygli var að komið hefur á óvart hversu margar um-
sóknir um smávirkjanir berast af Austurlandi.
Ráðstefnan var haldin af Orkusjóði, Þróunarstofu
Austurlands, Landssamtökum raforkubænda og Félagi
áhugamanna um smávirkjanir.
Ólafur Eggertsson, formaður Landssambands raf-
orkubænda, sagði við hæfi að ráðstefnan væri haldin á
Austurlandi, þar væri mestur áhugi á gerð smávirkj-
ana á landinu og stæðu þar yfir umfangsmestu virkj-
anaframkvæmdir sögunnar. „Hér mætist afl þess
stóra og smáa í virkjunum,“ sagði Ólafur.
Annar áfangi rammaáætlunar
í gang á þessu ári
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra hafði einn-
ig framsögu á fundinum og sagði m.a. ný raforkulög
vera til hagsbóta fyrir sjálfstæða raforkuframleið-
endur. „Aukið frjálsræði reynist vel með aukinni sam-
keppni og möguleikum eigenda smávirkjana til að
selja orku inn á dreifikerfið í landinu og sama innmöt-
unargjald er á alla raforku í landinu,“ sagði Valgerður.
Allar virkjanir sem eru yfir 1 megavatt eru leyf-
isskyldar ásamt virkjunum sem selja orku.
Valgerður sagði annan áfanga rammaáætlunarinnar
fara í gang á þessu ári. Þar verði metnir fleiri virkj-
anakostir nær byggð og smærri en þeir kostir sem
voru í fyrsta áfanga áætlunarinnar. Sagði hún það
myndi koma smávirkjunum til góða.
Austfirðingar áttu frumkvæðið
Jakob Björnsson, framkvæmdastjóri Orkusjóðs,
sagði gert ráð fyrir aðkomu sjóðsins að fjármögnun
smávirkjana. „Sjóðurinn hefur reyndar þegar komið
að þessari fjármögnun með aðkomu að rannsóknum
Orkustofnunar á vatnsmagni lækja og áa sem til
greina kæmi að virkja“ sagði Jakob. Hann sagði Félag
áhugamanna um smávirkjanir á Austurlandi hafa átt
frumkvæði að fjármögnum Orkusjóðs að smávirkj-
unum.
Benedikt Guðmundsson, verkefnisstjóri á orkusviði
Orkustofnunar, sagði hafa komið á óvart hversu marg-
ar umsóknir um smávirkjanir hafi komið af Austur-
landi. Af 46 umsóknum alls á landinu er 31 héðan af
Austurlandi, þar af eru 22 afgreiddar. Benedikt sagði
núverandi stöðu og framhald vinnu við smávirkjanir
vera rennslismælingar, úrvinnslu umsókna af Austur-
landi, tölvuúrvinnslu gagna og gerð afrennsliskorts
fyrir allt landið.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Áhugasöm um raforkuna: Nær 70 manns mættu á ráðstefnu um litlar vatnsaflsvirkjanir á Egilsstöðum.
Flestar umsóknir um smá-
virkjanir koma að austan
Fjallapóstur | Í verslun Olís á
virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka
verður framvegis rekin póstþjón-
usta. Hefur Íslandspóstur samið við
Olís um að hafa í versluninni aðstöðu
til móttöku og afhendingar bréfa og
böggla. Aðalbúðirnar líkjast nú æ
meira hefðbundnu þorpi á lands-
byggðinni, því þar má nú finna orðið
skóla, dagvöruverslun, bensínstöð
og sjoppu, ásamt heilsugæslu- og
lögreglustöð, svo eitthvað sé nefnt.
Að auki stendur til á næstu dögum
að opna klúbbhús í búðum
Impregilo.
Fljótari | Verktökusamsteypan
Fosskraft, sem annast jarð-
gangagerð í Fljótsdal, reiknar með
því að ljúka verkinu nokkru fyrr en
áætlað var, eða seint á þessu ári í
stað fyrri hluta næsta árs. Er þetta
samkvæmt nýrri verkáætlun. Unn-
ið er að þrennum göngum, frá-
rennslis-, aðkomu- og strengja-
göngum allan sólarhringinn í
Fljótsdalnum og hefur bergið, eink-
um í frárennslisgöngum, verið gott
til borunar.
Samgöngur | Málþing um sam-
göngur eystra verður haldið 10.
mars nk. Það er Samband sveitarfé-
laga á Austurlandi í samvinnu við
samgönguráðuneyti sem gengst fyr-
ir ráðstefnunni, sem ber heitið Sam-
göngur á Austurlandi til framtíðar.
Hún verður haldin á Hótel Héraði á
Egilsstöðum og stendur frá kl. 13 til
18. Dagskrá málþingsins verður birt
á vefnum ssa.is 26. febrúar nk.
Álver | Fundur um viðskiptatæki-
færi tengd byggingu og rekstri
Fjarðaáls á Reyðarfirði verður hald-
inn í næstu viku á vegum Bechtel, í
samstarfi við HRV og Þróunarstofu
Austurlands. Fundurinn verður í
Valhöll á Eskifirði, miðvikudaginn
25. febrúar kl. 17. Dagskrá fund-
arins verður kynnt á vefnum
austur.is.
Þorrablót | Verkmenntaskóli Aust-
urlands heldur árlegt þorrablót sitt
í kvöld. Í ár er það umfangsmeira
en nokkru sinni fyrr og verða þeir
Simmi og Jói úr Idol-keppninni
veislustjórar. Hljómsveitin Skíta-
mórall er band kvöldsins og mun
vera langt síðan þeir sóttu Austur-
land heim síðast. Ballið eftir þorra-
blót er fyrir 16 ára og eldri og verð-
ur m.a. boðið upp á rútuferðir frá
Menntaskólanum á Egilsstöðum.
Egilsstaðir | Í kvöld frumsýnir Leik-
félag Menntaskólans á Egilsstöðum
verkið Gretti, eftir þá Ólaf Hauk Sím-
onarson, Egil Ólafsson og Þórarin
Eldjárn. Verkið er byggt á sögu
Grettis Ásmundarsonar og var fyrst
frumsýnt árið 1980.
Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson
og koma um 30 manns að uppsetn-
ingu verksins, þar af 24 leikarar. Með
helstu aðalhlutverk fara Ragnar Sig-
urmundarson, Björn B. Benediktsson,
Hildur E. Unnarsdóttir, Friðjón
Magnússon og Sigríður E. Zophanías-
ardóttir.
Grettir þykir glettið verk með ýms-
um meiningum þó og er í því mikið af
tónlist og söng sem gerir töluverðar
kröfur á flytjendur. Leikfélag
Menntaskólans á Egilsstöðum sviðset-
ur árlega leikverk og er Hildur E.
Unnarsdóttir formaður félagsins.
Grettir er sýndur í Valaskjálf á Eg-
ilsstöðum og hefst frumsýningin í
kvöld kl. 20. Næstu sýningar eru 22.
febrúar kl. 16 og 26. febrúar kl. 20 og
má panta miða í síma 871-1303.
LME frumsýnir
Gretti í kvöld
Bæjarmálafundir | Atvinnu-
málanefnd Austur-Héraðs heldur nú
áfram með hádegisfundaröð sína,
„Heita pottinn“, sem tekur á ýmsum
málum er tengjast sveitarfélaginu.
Fundirnir eru klukkustundar langir
og haldnir á Hótel Héraði á Egils-
stöðum í hádeginu á þriðjudögum.
24. febrúar verður fjallað um at-
vinnumál kvenna á svæðinu og í vik-
unni þar á eftir um iðnaðar- og at-
vinnulóðir á Egilsstöðum.