Morgunblaðið - 26.02.2004, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 26.02.2004, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 56. TBL. 92. ÁRG. FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Sannkölluð rússíbanaferð Þetta er allt að koma frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í kvöld Listir 28 Viðskipti og Úr verinu Viðskipti | Hagræðingarkröfur til bænda  Hvar eiga fyr- irtæki á Netinu að greiða skatta? Úr verinu | Beitningavél í krókabát  Gjöfull alaskaufsi NÆR 14% hlutafjár í Íslandsbanka hafa skipt um hendur í tvennum stórum við- skiptum upp á samtals 12,5 milljarða króna. Annars vegar er um að ræða 8,8% hlut sem félag í eigu Helga Magnússonar keypti fyrir 7,8 milljarða króna af Landsbanka Ís- lands og Landsbankanum í Lúxemborg, fyrir hönd viðskiptavinar. Á Landsbankinn nú engan hlut í Íslandsbanka. Hins vegar er um að ræða 5,17% hlut sem félag í eigu Orra Vigfússonar keypti af Burðarási fyrir tæplega 4,7 milljarða króna. Burðarás á nú engan hlut í Íslands- banka. Kaupverð hvers hlutar í þessum við- skiptum var um 8,5 krónur en lokaverð bréfanna í Kauphöll Íslands er 7,6 krónur á hlut. Landsbankinn og Burðarás selja hluti sína í Íslandsbanka  Helgi /C2 og Orri /C2 FRANSKA stjórnin hvatti í gær til þess að frið- argæslulið yrði sent þegar í stað til Haítí þar sem uppreisnarmenn reyna að steypa Jean-Bertrand Aristide forseta af stóli og hafa þegar náð helm- ingi landsins á sitt vald. Glundroði var á götum höfuðborgarinnar, Port-au-Prince, og vopnaðir hópar stuðningsmanna Aristide fóru ránshendi um borgina. Óttast er að blóðug átök blossi þar upp milli stuðningsmanna forsetans og uppreisn- armanna sem ætla að ráðast inn í borgina. Dominique de Villepin, utanríkisráðherra Frakka, sagði að franska stjórnin hefði samið nýja friðaráætlun þar sem m.a. væri gert ráð fyr- ir friðargæsluliði á Haítí og aðstoð við að und- irbúa forsetakosningar. Franskir embættismenn sögðu að dagar Aristide sem forseta væru senn taldir og Villepin gaf til kynna að Aristide ætti einskis annars úrkosti en að segja af sér. Andstæðingar forsetans höfnuðu í gær alþjóð- legri friðaráætlun þar sem gert er ráð fyrir því að Aristide sitji út kjörtímabilið, eða til 2006, en völd hans verði skert. Hvattir til að flýja ekki George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði að Haítíbúar, sem reyndu að flýja átökin á bátum til Bandaríkjanna, yrðu látnir snúa við og fara aftur til Haítí. Hann kvaðst vilja að friðargæslulið yrði sent til landsins eftir að pólitísk lausn fyndist á deilu Aristide og andstæðinga hans. Frakkar hvetja til friðargæslu á Haítí París, Port-au-Prince. AFP. ÞAÐ gekk mikið á þegar haldin var öskudagshátíð í íþróttahúsi Víkings í Víkinni í gær. Þar mátti sjá börn sem höfðu klætt sig í ýmis gervi í tilefni öskudagsins og spreyttu þau sig meðal annars á því að slá köttinn úr tunnunni. Þessi unga stúlka reiðir til höggs og fylgir vel á eftir. Í tunnunni var sælgæti sem freistaði margra. Fé- lagsmiðstöðin Bústaðir og foreldrafélög Breiðagerðisskóla og Fossvogsskóla stóðu að hátíðinni. Um allt land var sungið og trall- að í furðufötum í tilefni dagsins. /20 Morgunblaðið/Brynjar Gauti Kötturinn sleginn úr tunnunni VERULEGUR munur getur ver- ið á vaxtarhraða þorsks við Ís- land, jafnvel þó um sé að ræða þorsk af samliggjandi svæðum, samkvæmt rannsókn sem gerð var á vexti og kynþroska þorsks á á þremur samliggjandi hrygning- arsvæðum við Suðvesturland. Gróa Þóra Pétursdóttir, líf- fræðingur við Hafrannsókna- stofnunina, gerði rannsóknina í tengslum við meistaraprófs- erfðamengi þessara hópa, sér- staklega ef um aðskilda stofna er að ræða. Þorskur af fjörusvæðinu sé verðmæt útflutningsvara og því hafi mikið verið sótt á þessi svæði. Telur Gróa hugsanlegt að vernda þurfi þessi svæði meira en nú er gert, t.d. með því að minnka neta- möskva enn frekar og loka svæð- unum yfir allan hrygningartímann. en jafngamall fiskur sem hrygnir utar og dýpra á Selvogs- banka og Grindavík- urdjúpi. Gróa segir að munurinn geti orðið allmikill. Þann- ig hafi 6 ára gamall þorskur á fjörusvæðinu vegið um 10 kíló en jafngamlir fiskar af hinum svæð- unum undir 4 kílóum. Gróa segir mikilvægt að viðhalda og vernda ritgerð sína í líf- fræði við Há- skóla Íslands. Út frá mæl- ingum á breidd árhringja í kvörnum frá þessum þremur svæðum mátti sjá að þorskur, sem hrygnir á fjöru- svæðinu næst landi undan Eyr- arbakka, vex hraðar, er lengri, þyngri og í betra ástandi heldur Þorskurinn vex mishratt  Mikill munur/C1 STJÓRNVÖLD í Ísrael ætla að breyta áformum sínum um aðskilnaðarmúr um- hverfis heimastjórnarsvæði Palest- ínumanna þannig að hann verði 80 km styttri en ráðgert var. Heimildarmenn í Ísr- aelsher skýrðu frá þessu í gær þegar mál- flutningi vegna deilunnar um múrinn lauk fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag. Heimildarmennirnir sögðu að eftir breytingarnar yrðu aðskilnaðarmúrinn og aðrar hindranir á Vesturbakkanum alls um 640 km að lengd. Ísraelskir hermenn hafa þegar byrjað að rífa niður átta kílómetra múr umhverfis palestínska bæinn Baka al-Sharkiya. Heim- ildarmennirnir sögðu að herinn hygðist m.a. fjarlægja kílómetra langan múr aust- an við Qalqilia á Vesturbakkanum og hætt yrði við 20 kílómetra múr sem átti að reisa milli þorpanna Al-Mutilla og Taysir. Ísraelar ætla að stytta múrinn FORSETI Túrkmenistans, Saparmurat Niyazov, hefur gefið út tilskipun sem bannar ungum, túrkmenskum karl- mönnum að safna skeggi eða vera með sítt hár, að því er fram kom á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC, í gær. Forsetinn tilkynnti þetta í sjónvarpi og sagði að mennta- málaráðuneytið ætti að sjá um að fylgjast með hári landsmanna þar sem þörfin á slíku eft- irliti væri brýnust með- al unga fólksins. Hökutoppsskegg hefur verið í tísku í höfuðborginni, Ashgabat. Niyazov tilgreindi enga ástæðu fyrir banninu – en það er ekki óvenjulegt þeg- ar hann á í hlut. Hann hefur verið einráð- ur í landinu frá því að Sovétríkin leystust upp og hefur meðal annars bannað fólki að hlusta á útvarp í bílum og reykja á götunum. Þá hafa óperur og ballettsýn- ingar verið bannaðar þar sem forsetinn telur þær óþarfar, að sögn BBC. Bannar skegg og sítt hár Saparmurat Niyazov
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.