Morgunblaðið - 26.02.2004, Síða 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
www.landsbanki.is
sími 560 6000
Varðan - alhliða fjármálaþjónusta
Nokkrir punktar um
beinharða peninga!
Vor í París 14. - 17. maí
Yndisleg vorferð til Parísar þar sem gist verður á 3ja stjörnu
hótelinu Home Plazza Bastille í þrjár nætur. Íslenskur
fararstjóri er Laufey Helgadóttir, listfræðingur.
Verð: 36.475 kr. á mann í tvíbýli auk 10 þús. ferðapunkta.
Innifalið: Flugvallarskattar og þjónustugjöld. Nánari upplýsingar fyrir ofangreind tilboð hjá
Icelandair í hópadeild, sími 505 0406 eða sendið tölvupóst á groups@icelandair.is Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
LB
I
23
72
2
02
/2
00
4
BAKTERÍA Á LEIKSKÓLA
Baktería, sem getur m.a. valdið
heilahimnubólgu, hefur greinst í
einu barni í leikskólanum Álfasteini í
Hafnarfirði og grunur leikur á sýk-
ingu hjá öðru barni í sama skóla. Öll
börnin í skólanum, tæplega 100,
ásamt starfsmönnum, verða sett á
sýklalyf fyrir helgi, eða á annað
hundrað manns.
Skólphreinsun óviðunandi
Um 80% sveitarfélaga eru vart
byrjuð að taka til hendinni í úrbótum
í skólphreinsun og er staðan óvið-
unandi samkvæmt skýrslu Um-
hverfisstofnunar. Ekki verði séð
hvernig þessi sveitarfélög ætli að
uppfylla kröfur um skólphreinsun
fyrir lok árs 2005 samkvæmt reglu-
gerð.
Þorskur vex mishratt
Verulegur munur getur verið á
vaxtarhraða þorsks við Ísland, jafn-
vel þó um sé að ræða þorsk af sam-
liggjandi svæðum. Út frá mælingum
á breidd árhringja í kvörnum mátti
sjá að þorskur, sem hrygnir á fjöru-
svæðinu næst landi undan Eyrar-
bakka, vex hraðar, er lengri, þyngri
og í betra ástandi heldur en jafn-
gamall fiskur frá tveimur aðskildum
samanburðarsvæðum.
Hvatt til friðargæslu
Franska stjórnin hvatti í gær til
þess að friðargæslulið yrði sent þeg-
ar í stað til Haítí þar sem uppreisn-
armenn reyna að steypa forseta
landsins af stóli. Þeir hafa þegar náð
helmingi landsins á sitt vald og
glundroði var í gær á götum höf-
uðborgarinnar þar sem vopnaðir
stuðningsmenn forsetans létu greip-
ar sópa um verslanir.
Málflutningi lokið í Haag
Saksóknarar í réttarhöldunum yf-
ir Slobodan Milosevic, fyrrverandi
forseta Júgóslavíu, luku málflutningi
sínum fyrir stríðsglæpadómstólnum
í Haag í gær, tveimur dögum fyrr en
ráðgert var. Ákveðið var að ljúka
málflutningnum strax vegna veik-
inda Milosevic og sökum þess að yf-
irdómarinn í málinu lætur senn af
embætti af heilsufarsástæðum.
Ætla að stytta múrinn
Stjórnvöld í Ísrael ætla að breyta
áformum sínum um aðskilnaðarmúr
umhverfis svæði Palestínumanna
þannig að hann verði 80 km styttri
en ráðgert var.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 38
Erlent 16/19 Minningar 41/47
Höfuðborgin 20 Skák 45
Akureyri 23/24 Bréf 52
Suðurnes 25 Kirkjustarf 51
Landið 27 Dagbók 54/55
Neytendur 24 Fólk 60/65
Listir 28/30 Bíó 62/65
Daglegt líf 32/33 Ljósvakamiðlar 66
Forystugrein 34 Veður 67
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
ÞÓ AÐ það sé gaman á leikskólanum Urðarhóli í Kópa-
vogi er samt áhugavert að forvitnast um það sem er að
gerast fyrir utan skólalóðina. Það er líka gott að kom-
ast heim eftir annasaman og skemmtilegan dag í skól-
anum. Og þá er spurningin; eru mamma og pabbi ekki
að fara að koma?
Það er gaman á Urðarhóli
Morgunblaðið/Ásdís
ÁSMUNDUR Stefánsson ríkissátta-
semjari segist í samtali við Morgun-
blaðið geta staðfest það mat samn-
ingsaðila að góður gangur sé í
viðræðum Starfsgreinasambandsins
og Flóabandalagsins við Samtök at-
vinnulífsins, þær gangi hratt og vel
fyrir sig. Viðræðunum var vísað til
sáttasemjara í síðustu viku og síðan
þá hafa verið daglegir fundir í húsa-
kynnum hans við Borgartún.
Ásmundur segir að vel hafi gengið
að vinna úr ýmsum flóknum atriðum
í sérkjarasamningum. Ekki sé allt
komið á endastöð en það eigi eftir að
koma í ljós hvert framhaldið verði.
Hann segir vel geta komið til ein-
hvers ágreinings þegar samningsað-
ilar fari að ræða um stóru málin svo-
nefndu, þó vonist allir til að svo verði
ekki. Gangurinn til þessa gefi ekki
tilefni til að halda að alvarlegur
ágreiningur eigi eftir að koma upp,
þó að erfitt sé að segja til um það fyr-
irfram.
Segist Ásmundur ómögulega geta
spáð því hvenær skrifað verði undir
samninga. Núna sé að minnsta kosti
vel unnið og ötullega beggja vegna
borðsins, þannig hafi viðræður stað-
ið yfir fram á kvöld á þriðjudag og í
gærkvöldi.
Fjögurra ára samningstími
Á vef Eflingar - stéttarfélags, sem
tilheyrir Flóabandalaginu svo-
nefnda, segir að sérkjarasamningar
nú séu flóknari en áður þar sem sam-
hliða sérkröfum í ýmsum samning-
um sé verið að máta alla helstu sér-
kjarasamninga við nýtt launakerfi.
Þetta sé tímafrek vinna, ekki síst þar
sem að auki sé verið að taka upp og
undirbúa ýmsar breytingar á vinnu-
fyrirkomulagi í nokkrum fyrirtækj-
um.
Segja Eflingarmenn ennfremur
að viðræður um aðalkröfur, s.s.
launaliði, lífeyrismál og fræðslumál,
séu komnar á fullt skrið. Aðilar
samninganna hafi gengið út frá fjög-
urra ára samningstíma þannig að um
mitt tímabil verði samningsforsend-
ur til skoðunar að nýju. Launaþáttur
sérkjarasamninga miðist einnig við
þetta fyrirkomulag og skiptist þann-
ig í tvo áfanga.
Ríkissáttasemjari er ánægður með stöðu samningamála
Viðræðurnar ganga
hratt og vel fyrir sig
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðs-
dóms Reykjavíkur yfir Litháanum
Tomas Malakauskas, einum mann-
anna þriggja sem hnepptir voru í
varðhald vegna líkfundarins í Nes-
kaupstað.
Mennirnir voru handteknir um
síðustu helgi í tengslum við rann-
sóknina á líkfundinum og úrskurð-
aðir í gæsluvarðhald. Malakauskas
kærði þann úrskurð til Hæstarétt-
ar en þeir Grétar Sigurðsson og
Jónas Ingi Ragnarsson undu úr-
skurðinum. Þeir voru allir úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald til 3.
mars.
Gæsluvarðhald
yfir Litháanum
staðfest
GUÐRÚN Hálf-
dánardóttir, sem
verið hefur
fréttastjóri við-
skiptafrétta á
Morgunblaðinu
frá árinu 1998,
lætur af störfum
hjá Morgun-
blaðinu í dag.
Guðrún mun
hefja störf hjá
Pharmaco hf. 11. mars næstkomandi
og annast fjölmiðlatengsl fyrir
Pharmaco-samstæðuna. Guðrún hef-
ur starfað á Morgunblaðinu frá 1996.
Ólafur Þ. Stephensen, aðstoðarrit-
stjóri Morgunblaðsins, tekur við
daglegri stjórn
viðskiptafrétta
blaðsins og sinnir
henni ásamt öðr-
um störfum. Ólaf-
ur hefur verið að-
stoðarritstjóri
blaðsins frá 2001.
Hann var blaða-
maður á Morgun-
blaðinu 1987–
1998, forstöðu-
maður upplýsinga- og kynningar-
mála hjá Símanum 1998–2000 og
forstöðumaður stefnumótunar- og
samskiptasviðs Samtaka atvinnulífs-
ins um stutt skeið þar til hann kom
aftur til starfa á blaðinu.
Breytingar á
viðskiptaritstjórn
Morgunblaðsins
Ólafur Þ.
Stephensen
Guðrún
Hálfdánardóttir
GRUNUR lék á að leiguskip á vegum
Eimskips hefði misst olíu í Straums-
víkurhöfn í gærmorgun. Lögreglan í
Hafnarfirði segir að áhöfn skipsins
beri af sér sakir, en búið sé að taka
skýrslu af áhöfn skipsins og vitnum.
Kristinn Aadnegard, verkstjóri
Hafnarfjarðarhafnar, segir að lítil
brák hafi verið í höfninni og ekki þótti
ástæða til að setja upp olíugirðingar
og hreinsa sjóinn. Þetta atvik hafi
kallað á svo sterk viðbrögð því þetta
sé í annað sinn sem olía virðist sleppa
í höfnina frá skipinu og skipstjórn-
endur reyni að hylja mistök sín með
því að gangsetja skrúfuna og dreifa
þannig brákinni. Kristinn segir vél-
stjórann hafa gefið þá skýringu að
hann hafi verið að skola túrbínu vél-
arinnar. Það sé þó vanalega gert rétt
áður en skip fari úr höfn en ekki í
miðri innilegu.
„Þeir eru búnir að fá góða viðvör-
un,“ segir Kristinn og minnir á að allt-
af geti orðið óhöpp. Að klóra yfir þau
sé önnur og verri saga.
Olía í Straumsvíkurhöfn
Fengu
viðvörun
♦♦♦
♦♦♦
MIKIÐ var um innbrot í bíla í
Teiga- og Túnahverfi í Reykjavík í
fyrrinótt. Alls var brotist inn í, eða
gerð tilraun til að brjótast inn í, sex
bifreiðir í hverfunum tveimur ein-
hvern tímann eftir miðnættið. Lög-
regla biður þá sem geta gefið upp-
lýsingar um grunsamlegar
mannaferðir á svæðinu í nótt að
hafa samband við sig í síma 569
9013.
Mikið um
innbrot í bíla