Morgunblaðið - 26.02.2004, Síða 20
Morgunblaðið/Ásdís
Starfsfólk og heimilisfólk á Grund dansaði kátt á Hattaballi. Þessir krakkar sungu fyrir prúðklæddan
Morgunblaðið/Kristján
Þessum ungu Akureyringum fannst einn öskudagur ekki nóg.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Katla Björnsdóttir og Sonja Geirs-
dóttir voru á ferðinni í Ólafsfirði
með tvo fallega hunda. Birta litla er
í kerrunni en Sonja heldur á Mána.
Beðið í spenningi eftir því hvort einn leikskólakennarinn í skólanum finni ekki
ÖSKUDEGINUM var fagnað á öll-
um landshornum í gær og léku bæði
börn og fullorðnir við hvern sinn
fingur, því hefð er fyrir sprelli á
þessum ágæta miðvikudegi. Bæði
norðan heiða og sunnan klæddist
yngsta kynslóðin skrýtnum múnder-
ingum og söng og trallaði fyrir sæl-
gæti.
Jafnt í göngugötunni á Akureyri
og í Vínberinu ómaði söngur ung-
mennanna bjartur og skær á meðan
heimilisfólk og starfsfólk á Grund
dansaði dátt við harmónikkuleik á
hattaballi, þar sem sjá mátti
skemmtilega furðuhatta á hvers
manns kolli.
Á Suðurnesjunum var líka flippað
dálaglega og víða um land sáust
smávaxnar nornir, jólasveinar, engl-
ar og púkar, kisur og kusur og allra
heima kvikindi hoppandi og skríkj-
andi í blíðskaparveðrinu sem ein-
kenndi daginn.
Í gamla daga var nokkuð rík hefð
fyrir öskudagsfögnuði á Akureyri,
en annars staðar á landinu var lítið
haldið upp á þennan dag. Þá var
jafnan til siðs að slá hrafninn úr
tunnunni, en þá var jafnan fundinn
dauður hrafn og hengdur upp.
Væntanlega hefur þessi siður verið
lagður af sökum þess að hann hefur
verið talinn miður geðslegur og
tunna fyllt af sælgæti í staðinn.
Verslunareigendur tóku þó nær
undantekningarlaust vel á móti ung-
um söngvurum.
Sungið,
trallað og
dansað í
furðufötum
ÖSKUDAGUR UM ALLT LAND
20 FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Þessi unga snót stoppaði örskotsstund í stórfiskaleiknum.