Morgunblaðið - 26.02.2004, Blaðsíða 25
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 25
Keflavík | Hljómar og tímabilið sem
hljómsveitin var sem vinsælust er
efni þemadaga sem nú standa yfir í
Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Við-
fangsefnið tengist söngleiknum
Bláu augun þín og byggist á sögu
Hljóma sem nemendur skólans eru
að undirbúa. Verður söngleikurinn
frumsýndur 19. mars næstkomandi.
Allir nemendur skólans skrá sig í
hópa á þemadögunum en hóparnir
eru alls tæplega fjörutíu. Allt var á
fullu í gærmorgun þegar blaða-
maður leit inn. Í einni stofunni voru
ungir menn að smíða hluta af sviðs-
mynd söngleiksins. Í annarri var
verið að hanna og smíða skartgripi
af sama tilefni. Í þeirri þriðju var
hárgreiðsla. Þar var hárgreiðslu-
fólkið að æfa sig á leikurum úr
söngleiknum og fleirum. Um allan
skólann voru svona hópar að vinna
að ýmsum viðfangsefnum sem
tengjast Hljómum og tíðarand-
anum sem var á þeirra gullaldar-
árum.
Ekki er hefð fyrir því að setja
upp leikrit í Fjölbrautaskóla Suður-
nesja en söngleikurinn um Hljóma
á að vera upphafið að því að koma
slíkri hefð á, að sögn Írisar Jóns-
dóttur kennara. Kveikjan var af-
mæli Hljóma og umræða um þenn-
an tíma enda segir hún að fötin séu
að komast aftur í tísku.
Þorsteinn Eggertsson var feng-
inn til að semja söngleikinn og leik-
stýra honum. Hann segir að ekki
hafi verið mikið mál að skrifa söng-
leik um þetta efni enda hafi hann
þekkt meðlimi hljómsveitarinnar
frá blautu barnsbeini. Hann fór þá
leið, til þess að hafa verkið ekki of
annálskennt, að láta roskið par
rifja upp feril hljómsveitarinnar og
þennan tíma eins og það man hann.
Að sjálfsögðu eru notuð gömul og
ný Hljómalög og ýmis lög innlend
og erlend frá 1963 til dagsins í dag.
Æfingar eru hafnar auk þess
sem verið er að vinna í leikmynd og
búningum. Undirbúningurinn er
umfangsmikill, að sögn Kristínar
Rúnarsdóttur sýningarstjóra. Og
það er ekki nóg með að allur skól-
inn sé undirlagður í þessu verkefni,
nemendurnir hafa beðið íbúa Suð-
urnesja að gá í geymslurnar og sjá
hvort ekki sé til einhver fatnaður,
skór og hljóðfæri frá þessum tíma.
Kristín segir að ýmislegt vanti enn
og væri vel þegið ef fólk vildi lána
slíka muni í sýninguna.
Söngleikur
um feril Hljóma
settur upp
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Harðhent hárgreiðsludama? Það sést á andlitsdráttum stráksins að það er ekki tekið út með sældinni að leyfa
notkun á hári sínu við æfingar á þemadögum. Ekki bætir það úr skák að þúsund augu fylgjast með úr hillunum.
Ekið á sandhaug | Bifreið var ekið
á sandhaug á götunni Heiðarhorni í
Keflavík að morgni þriðjudags.
Sandhaugurinn skagaði rúma fjóra
metra út í götuna sem er átta og
hálfur metri að breidd. Samkvæmt
upplýsingum lögreglu urðu
skemmdir á framenda bifreiðar-
innar.
Reykjanesbær | „Út í bæ“ er yfir-
skrift þemaviku sem Tónlistarskóli
Reykjanesbæjar er með. Eins og
hún ber með sér eru nemendur
skólans þessa dagana víðs vegar
um bæinn að spila.
Nemendum og kennurum hefur
alls staðar verið vel tekið, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu frá
skólanum, en meðal þeirra stofnana
sem nemendur heimsækja í vikunni
eru allir leikskólar bæjarins, bæjar-
skrifstofur Reykjanesbæjar og fé-
lagsaðstaða eldri borgara.
Í þemavikunni stendur Tónlistar-
skólinn fyrir hljóðfærakynningu
fyrir alla nemendur í 2. bekk
grunnskólanna, en þeir eru nem-
endur forskóladeildar Tónlistar-
skólans og munu ljúka þar námi í
vor.
Strax að lokinni þemavikunni
heldur Tónlistarskóli Reykjanes-
bæjar upp á Dag tónlistarskólanna,
sem er næstkomandi laugardag.
Miklir tónleikar verða haldnir í
Kirkjulundi í samvinnu allra tón-
listarskólanna á Suðurnesjum.
Tónlistarskólinn
„út í bæ“
Keflavík | Alexandra Chernyshova,
sópransöngkona frá Úkraínu, heldur
tónleika í sýningarsal Listasafns
Reykjanesbæjar í Duushúsum á í
dag, fimmtudag, klukkan 20. Gróa
Hreinsdóttir leikur með á píanó.
Alexandra er fædd í Kiev í Úkr-
aínu og lærði þar söng. Hún stund-
aði síðar nám við söngakademíuna
Nezdanova í Odessu og lauk auk
þess háskólanámi í tungumálum og
bókmenntum.
Starfaði sem einsöngvari
Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum
alþjóðlegum samkeppnum og sungið
á hátíðum. Henni hefur nokkrum
sinnum verið boðið á Master class
námskeið til Hanno Blashke í
München í Þýskalandi.
Alexandra var einsöngvari með
úkraínsku
útvarpssinfóníu-
hljómsveitinni í
tvö ár. Hún hefur
unnið í óperunni í
Kíev og sungið
einsöng með
karlakór í heima-
landi sínu.
Alexandra hef-
ur búið hér á
landi frá því í
haust og stundar nám í íslensku við
Háskóla Íslands.
Á efnisskránni eru meðal annars
lög úr óperum og úkraínskir og rúss-
neskir söngvar.
Undirleikari Alexöndru, Gróa
Hreinsdóttir, er organisti við Ytri-
Njarðvíkurkirkju, kórstjórnandi og
tónlistarkennari.
Úkraínsk sópransöng-
kona með tónleika
Alexandra
Chernyshova
1. Skýrsla stjórnar um hag félagsins og starfsemi á liðnu starfsári.
2 Endurskoðaður reikningur lagður fram til staðfestingar.
3. Tekin ákvörðun um greiðslu arðs.
4. Ákveðin þóknun til stjórnar félagsins.
5. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins:
a. breyting á 12. gr. samþykkta um fækkun stjórnarmanna úr níu í sjö og
breytingu á 15. gr. því til samræmis;
b. breyting á 4 gr. um lánveitingar til samræmis við ákvæði hlutafélagalaga.
6. Kosin stjórn félagsins.
7. Kosnir endurskoðendur.
8. Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa á eigin hlutum skv. lögum um hlutafélög.
9. Önnur mál, löglega fram borin.
Aðalfundur Flugleiða hf.
Aðalfundur Flugleiða hf. verður haldinn fimmtudaginn 11. mars 2004 í aðalþingsal
Nordica Hotel að Suðurlandsbraut 2 og hefst fundurinn kl.14:00.
Stjórn Flugleiða hf.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
23
63
7
0
2/
20
04
Dagskrá fundarins:
Hluthöfum er sérstaklega bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn
skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm sólarhringum
fyrir upphaf aðalfundar. Þeir einir eru kjörgengir sem þannig hafa gefið kost á sér.
Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi skulu vera komnar í hendur
stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu
félagsins hluthöfum til sýnis sjö dögum fyrir aðalfund. Ennfremur verður hægt að nálgast
þessi gögn á vefsíðu félagsins www.icelandair.is eða á aðalskrifstofu Flugleiða hf. frá
sama tíma.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á aðalfundardaginn
frá kl. 12:00 á fundarstað í Nordica Hotel.