Morgunblaðið - 26.02.2004, Side 26
AUSTURLAND
26 FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Stíflan | Nú eru komnir ríflega þrjú hundruð
þúsund rúmmetrar af fyllingarefni í Kára-
hnjúkastíflu. Þar af fóru tíu þúsund rúmmetr-
ar af efni í stífluna í síðustu viku. Alls verða
um 8,5 milljónir rúmmetra af efni í stíflufyll-
ingu Kárahnjúkastíflu í Hafrahvammagljú-
frum.
Þá er unnið að því hörðum höndum að setja
saman risaborinn sem kom til landsins fyrir
jól. Reiknað er með að hann verði full-
samsettur og tilbúinn til notkunar um miðjan
mars.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Egilsstaðir | Brúnás-innrétt-
ingar á Egilsstöðum hafa nú á
milli 10 og 15% markaðshlutdeild
í innrétt-
ingasölu í
landinu. Fyr-
irtækinu hef-
ur vaxið fisk-
ur um hrygg
síðustu árin
og er það með
fullskipaðan
verkefnalista
út þetta ár.
Guðlaugur
Erlingsson er
framkvæmdastjóri Brúnáss.
„Brúnás fór í vöruþróun-
arverkefni um 1988 og í samstarf
við innanhússarkitektana Guð-
rúnu Margréti Ólafsdóttur og
Oddgeir Þórðarson,“ segir Guð-
laugur. „Þá komu fram nýjar
innréttingalínur og við fórum í
miklar breytingar á verslun okk-
ar í Ármúla 17 í Reykjavík, en
þar hefur lengi verið rekin sölu-
deild. Við erum enn í farsælu
samstarfi við Guðrúnu og Odd-
geir með allar breytingar og nýj-
ungar sem eru gerðar hjá okkur
í hönnun.
Fyrirtækið Miðás var svo
stofnað árið 1990 á Egilsstöðum
og keypti þá innréttingafabrikk-
una af Brúnási, sem hafði rekið
hér verksmiðju lengi. Þá komu
nýir menn inn og síðan hefur
þetta gengið á svipaðan hátt og
stofnað var til í upphafi.“
Sala til verktaka
helmingur af veltu
Guðlaugur segir fyrirtækið
einbeita sér að innréttingum til
heimila. „Síðustu árin hefur
Brúnás haft yfrið nóg að gera í
heimilisinnréttingum. Breyt-
ingin seinni ár er kannski sú að
við erum sífellt meira að selja til
verktaka, áður var þetta mest
allt til einstaklinga. Sala til verk-
taka er yfir helmingur af velt-
unni.“
Brúnás hefur skapað sér nafn í
innréttingum á Íslandi og telur
Guðlaugur markaðshlutdeild
fyrirtækisins á innréttingamark-
aði vera á bilinu 10–15%. Þó sé
erfitt að segja um slíkt af nokk-
urri nákvæmni. Heildarvelta fyr-
irtækisins í fyrra nam 220 millj-
ónum króna og myndaðist hún
að níu tíundu hlutum vegna sölu
á höfuðborgarsvæðinu. Vöxtur
er um 5% á milli ára og hagnaður
sagður mjög viðunandi. Mestur
hluti vélakosts fyrirtækisins var
nýlega endurnýjaður og þykir nú
mjög fullkominn.
Hjá fyrirtækinu starfa nú 19
manns, þar af fjórir í söludeild í
Reykjavík. 5–10 manns starfa að
jafnaði sem undirverktakar við
uppsetningu innréttinga.
Öll framleiðsla fer fram á Eg-
ilsstöðum og er seld á innan-
landsmarkaði. Brúnássmenn
flytja mestallt sitt hráefni inn
sjálfir. Það er svo keyrt austur
og 90% framleiðslunnar ekið
suður aftur. Hvað flutninginn
varðar vísar Guðlaugur því á bug
að kostnaður sem af honum leiðir
sé þungur baggi á fyrirtækinu.
Aldrei hafi komið til tals að flytja
fyrirtækið suður. „Fyrirtækið
var stofnað til að vera á Egils-
stöðum. Við erum með mjög
góða verkefnastöðu, hún nær
mjög langt fram á árið og er
svipuð og var í fyrra.“
Ekkert upphlaup þrátt fyrir
fjölda nýbygginga eystra
Brúnás afgreiddi á síðasta ári
innréttingar beint til verktaka í
um 300 íbúðir og 100 innrétt-
ingar til einstaklinga. Að auki
slæðist ýmislegt fleira með í
framleiðsluna, svo sem sól-
bekkir, borðplötur o.fl.
Guðlaugur segir Austfirðinga
kaupa töluvert af innréttingum
hjá sér og ekki þurfi að kvarta
yfir því. „Það hefur náttúrulega
ekki mikið verið að gerast hér
eystra til skamms tíma,“ segir
hann. „Auðvitað alltaf eitthvað
verið byggt á Egilsstöðum og
einhver endurnýjun á fjörð-
unum. Það á eftir að koma í ljós
hver okkar staða verður í allri
þeirri uppbyggingu sem er að
fara í gang hér. Við munum þó
halda áfram að einbeita okkur að
markaðinum fyrir sunnan.“ Ís-
lenskir aðalverktakar eru meðal
viðskiptavina Brúnáss, en þeir
eru nú að byggja töluvert af nýju
húsnæði á Austurlandi.
Brúnás gengur vel og engin
áform eru uppi um stækkun fyr-
irtækisins. Húsa- og vélakostur
er nú fullnýttur og Guðlaugur
segir að með stækkun yrði að
byggja annað hús og fjölga
mannskap, fyrir utan að yf-
irbyggingin í fyrirtækinu, sem
núna er í lágmarki, myndi vaxa.
„Þetta er í einhverjum ballans
núna sem virðist geta gengið
ágætlega,“ segir Guðlaugur.
Brúnássmenn á Egilsstöðum ánægðir með sitt
Verkefni bókuð út árið
Innréttingar snikkaðar: Sigfús Ingólfsson og
Guðgeir Guðmundsson, starfsmenn hjá Brúnás.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Engin vettlingatök: Dagný Pálsdóttir og Silja Arn-
björnsdóttir taka til hráefni í næstu innréttingu.
Guðlaugur
Erlingsson
Egilsstaðir | Læknaráð Heilbrigð-
isstofnunar Austurlands (HSA hefur
sent eftirfarandi ályktun til Jóns
Kristjánssonar, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra:
„Vegna þenslu í þjóðfélaginu hafa
yfirvöld ákveðið að skera niður í
heilbrigðisþjónustu á landsvísu.
Læknaráð HSA álítur að það sé al-
gjörlega á skjön við raunveruleik-
ann, að skera niður á aðalþenslu-
svæði landsins, þar sem nú eiga sér
stað stærstu framkvæmdir Íslands-
sögunnar.“
Í greinargerð sem fylgir álykt-
uninni segir að kostnaður við heil-
brigðisþjónustu á svæði HSA sé að
stórum hluta til kominn vegna launa
lækna. Þegar sé undirmönnun á
svæðinu og nýir læknar fáist ekki
þrátt fyrir auglýsingar.
Ljóst sé að ekki náist tilætlaður
sparnaður nema með því að draga úr
læknisþjónustu og kostnaði. Þegar
sé orðin mikil mannfjölgun á svæð-
inu vegna virkjanaframkvæmda, þar
sem slys og óhöpp eru tíð. Enn meiri
fjölgun sé í vændum vegna áfram-
haldandi virkjanaframkvæmda, ál-
versbyggingar og jarðgangagerðar.
Á Austurlandi er stór hluti heil-
brigðisþjónustunnar grunnþjónusta,
sem ekki er hægt að skerða meira en
orðið er. Það er því ljóst að frekar
ætti að auka framlög til heilbrigð-
ismála á svæðinu en að skera niður,
segir jafnframt í greinargerð.
Ályktunin var samþykkt á fundi
læknaráðs Heilbrigðisstofnunar
Austurlands hinn 19. febrúar sl.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Læknaráð HSA hefur áhyggjur af vaxandi kostnaði vegna virkjana- og stór-
iðjuframkvæmda: Pétur Heimisson, læknir og formaður læknaráðs, og Ro-
berto Velo hjá Impregilo S.p.A. rabba um heilsugæslumálin við Kárahnjúka.
Læknaráð HSA mótmælir samdrætti
í þjónustu á Austurlandi harðlega
Niðurskurður á skjön
við raunveruleikann
Læknisþjónusta | Í fréttum
mbl.is af vinnuslysi við Kára-
hnjúkavirkjun 19. febrúar, þegar
starfsmaður í göngum rifbeins-
brotnaði og marðist í grjóthruni,
var frá því greint að hvorki væri
læknir né hjúkrunarfólk tiltækt á
virkjunarsvæðinu. Var þetta haft
eftir Sveini Jónssyni, verkfræðingi
og umsjónarmanni Landsvirkjunar
á staðnum. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Ómari Valdimarssyni,
talsmanni Impregilo S.p.A., starfa
þrír læknar á virkjunarsvæðinu að
staðaldri. Þar af einn íslenskur
læknir frá Heilbrigðisstofnun Aust-
urlands og er misjafnt hver sá aðili
er hverju sinni. Ítalskur læknir,
Barbara Di Candia, starfar einnig á
svæðinu, sem og rússneski lækn-
irinn Vladimir Stanovko sem vinnur
sem fyrstuhjálparsérfræðingur, þar
sem hann hefur ekki tilskilið lækn-
ingaleyfi á EES-svæðinu. Einnig
eru hjúkrunarfræðingar á virkj-
unarsvæðinu, bæði á aðalsvæðinu
og við göng. Er þetta samkvæmt
samkomulagi við Heilbrigðisstofnun
Austurlands frá því í fyrra.
Hröpuðu | Tveir starfsmenn Rarik
hröpuðu í fyrradag til jarðar þegar
festing á körfu sem þeir unnu í gaf
sig.
Guðlaugur Valtýsson hjá Rarik á
Egilsstöðum segir mennina hafa
verið að fara upp í rafmagnslínu í
Reyðarfirði þegar karfan sem þeir
voru í bilaði. Hröpuðu þeir til jarðar,
um fimm metra fall.
Mennirnir sluppu furðu vel, að
sögn Guðlaugs, eru hvergi brotnir
en illa marðir og skrámaðir. Menn-
irnir héldu áfram vinnu að hluta til,
en fóru svo á heilsugæslustöð í
myndatöku og frekari athugun. „Það
er í rannsókn núna hvað bilaði, enda
eru slys sem þessi mjög fátíð hjá
okkur,“ segir Guðlaugur.
Ráðhúsið | Um nokkra hríð hefur verið í at-
hugun hjá bæjarstjórn Austur-Héraðs að flytja
bæjarskrifstofur sínar úr óhentugu húsnæði í
iðngörðum við Lyngás í betra húsnæði. Um tíma
var hugmyndin sú að Nýsir byggði stjórnsýslu-
hús á miðbæjarreit Egilsstaða og leigði bænum
þar aðstöðu, en því var drepið á dreif þegar
kostnaður hafði verið gaumgæfður. Gerðist þá
ekkert um hríð. Nú virðast húsnæðismál sveit-
arfélagsins enn komin til umræðu, þar sem bæj-
arstjóri lét í fyrradag bóka samþykkt á bæj-
arráðsfundi um að taka þyrfti málið til
skoðunar. Var það í kjölfar þess að Sverrir Her-
mannsson, eigandi Hótels Valaskjálfar á Egils-
stöðum, hefur boðið bænum aðstöðu fyrir skrif-
stofur sínar á neðstu hæð 5500 fm húsnæðis
sem hann hyggst fljótlega byggja við hótelið.
Eiríkur Bj. Björgvinsson bæjarstjóri sagði í
samtali við Morgunblaðið að viðræður við Nýsi
um stjórnsýsluhús í miðbænum væru enn í
gangi. „Nú vilja menn jafnvel bjóða fleiri aðilum
að bjóða í okkur, ef hægt er að orða það þann-
ig.“ Eiríkur segir aðila sem hyggjast reisa skrif-
stofuhúsnæði á Fagradalsbraut 15 einnig inni í
myndinni og því séu þessir þrír möguleikar
hugsanlega til skoðunar fyrir bæjarskrifstof-
urnar. Eiríkur segist reikna með að ræða við
Nýsi, Valaskjálf og húsbyggjendur á Fagradals-
braut 15 á næstunni og sé málið þannig ein-
göngu á umræðustigi enn sem komið er.
Brúðkaupsblaðið fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 5. mars. Meðal efnis eru
greinar um mat, förðun, hárgreiðslu, fatnað, skreytingu og gjafir.
Auglýsendur: Pantið fyrir kl. 16 mánudaginn 1. mars.
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar á auglýsingadeild
Morgunblaðsins í síma 569 1111 eða á augl@mbl.is
Segðu já!
Auglýstu í Brúðkaupsblaði Morgunblaðsins
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
M
O
R
23
67
5
0
3/
20
04