Morgunblaðið - 26.02.2004, Qupperneq 32
DAGLEGT LÍF
32 FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
BÓNUS
Gildir 26.–29. feb. nú kr. áður kr. mælie.verð
Frosið súpukjöt, sérvalið ................ 499 Nýtt 499 kr. kg
Ferskar kjúklingabr., úrb., skinnl.....1.329 1.709 1.329 kr. kg
Frosið ungnautahakk .................... 599 Nýtt 599 kr. kg
Bónus svínabjúgu ......................... 299 Nýtt 299 kr. kg
Ariel þvottaefni, 3 kg ..................... 599 Nýtt 200 kr. kg
Finish uppþvottavélatöflur, 22 st. ... 299 399 14 kr. st.
Nýmjólk – léttmjólk ....................... 74 76 74 kr. ltr
Gullkaffi, 500 g ............................ 149 179 298 kr. kg
Neskaffi, gull, 200 g ..................... 599 699 2.995 kr. kg
Túnfiskur, 3x170 g dósir ................ 189 229 370 kr. kg
Fiesta pepperoni pitsa, 400 g........ 198 259 495 kr. kg
11-11
Gildir 25. feb.–3. mars nú kr. áður kr. mælie.verð
11-11 hamborgarar, 4 st. með br. .. 269 369 67 kr. st.
Campells cream tómatsúpa ........... 109 138 109 kr. st.
Þykkvabæjar tilboðsfranskar, 700 g 139 199 198 kr. kg
Þykkvabæjar plokkfiskur, 600 g ..... 498 698 830 kr. kg
Homeblest + 50% pakki, 300 g ..... 169 Nýtt 563 kr. kg
Kexsm. skúffuköku muffins, 400 g.. 299 379 748 kr. kg
MS drykkjarjógúrt, 2 teg., 250 ml... 69 85 276 kr. ltr
Nescafé dökkt RC, 100 g .............. 299 398 2.990 kr. kg
FJARÐARKAUP
Gildir 26.–28. feb. nú kr. áður kr. mælie.verð
Rækju nuggets ............................. 529 1.057 529 kr. kg
Bayonne skinka ............................ 798 998 798 kr. st.
Blómkál ....................................... 189 249 189 kr. kg
Bounty eldhúsrúllur, 3 st. í pk. ....... 319 348 106 kr. st.
Always ultra dömubindi ................. 248 289 248 kr. pk.
Bold Aqua, 1100 g þvottaefni........ 389 458 350 kr. kg
Ariel future, 1350 g þvottaefni ....... 598 698 440 kr. kg
HAGKAUP
Gildir 26.–29. feb. nú kr. áður kr. mælie.verð
Lambalæri frosið .......................... 699 Nýtt 699 kr. kg
Óðals hakk................................... 799 999 799 kr. kg
Holtalæri, ferskt í magnp. .............. 349 498 349 kr. kg
Holtaleggir, ferskir í magnp ............ 349 498 349 kr. kg
Holtavængir, ferskir í magnp. ......... 279 398 279 kr. kg
Holta skinnl. bringur í magnp. ........1.399 1.998 1.399 kr. kg
McCain Superquick franskar .......... 399 488 399 kr. kg
KRÓNAN
Gildir 26. feb.–3. mars nú kr. áður kr. mælie.verð
Bautabúrs grísakótilettur, pakki af
grísahakki fylgir frítt með ...............1.046 Nýtt 1.046 kr. kg
SS koníakslegin svínasteik ............ 769 1.099 769 kr. kg
SS áleggsþrenna .......................... 399 Nýtt 399 kr. pk
Krónu súkkulaðikex, 500 g ............ 289 Nýtt 578 kr. kg
Kavli flatbrauð, 300 g ................... 109 139 363 kr. kg
Kavli kavíar, léttur, 150 g............... 169 198 1.127 kr. kg
Kavli kavíar mix, létt, 140 g ........... 129 155 922 kr. kg
Heinz bakaðar baunir, 500 g.......... 179 198 358 kr. kg
NETTÓ
Gildir 26.–29. feb. m. birgðir endast nú kr. áður kr. mælie. verð
Nettó nautahakk........................... 599 956 599 kr. kg
KS súpukjöt, 1. flokkur .................. 279 Nýtt 279 kr. kg
KS lambalæri, grand cru................ 799 Nýtt 799 kr. kg
Myllu Sams. samlokubr. stórt&fínt.. 99 219 99 kr. kg
Myllu Sams. samlokubr. stórt&gróft 99 219 99 kr. kg
Búrf. borgarar, 4 st. m. br. og osti ... 367 459 367 kr. pk.
Epli rauð í poka, 1,36 kg ............... 99 229 73 kr. kg
Iceberg ........................................ 99 312 99 kr. kg
Combo: 2 ltr Coca-cola og
Freschetta pitsa, pepperoni, 340 g 499 589 499 kr. st.
Rúbín kaffi, rauður, 500 g.............. 298 329 596 kr. kg
Twist. Squeeze appels.safi, 200 ml 39 49 150 kr. ltr
NÓATÚN
Gildir 26. feb.–3. mars nú kr. áður kr. mælie.verð
Lax í heilu úr kjötborði ................... 399 599 399 kr. kg
Laxasneiðar úr kjötborði ................ 499 899 499 kr. kg
Lambafille m/fiturönd úr kjötborði..1.998 2.598 1.998 kr. kg
Móa kjúklingur ferskur 1/1 ............ 399 598 399 kr. kg
Fyrirt. Ömmu pitsa og 2 lítra Coke .. 599 799 599 kr. pk.
Fyrirtaks Ömmu brauðstangir ......... 299 479 299 kr. pk.
Kartöflur, Skrúður, gullauga,
eða .......................................
rauðar, 2 kg poki .......................... 99 169 50 kr. kg
Emmess Skafís 1,5 ltr, 5 bragðteg.. 599 719 399 kr. ltr
SAMKAUP/ÚRVAL
Gildir 26. feb.–2. mars nú kr. áður kr. mælie.verð
Lambalæri, villikrydd. gourmet ...... 999 1.430 999 kr. kg
Naggal. cordon bleu, 350 g .......... 399 492 1.140 kr. kg
Naggal. kjúklinganaggar, 400 g ..... 599 664 1.497 kr. kg
Naggal. kjötbollur, 450 g .............. 299 399 664 kr. kg
Lýsi sportþrenna, 16 dagar ...........1.190 1.590 74 kr. sk.
Lýsi lýsi&liðamín, 30 dagar ...........1.690 1.998 56 kr. sk.
Freyja hríspoki, risa, 250 g ............ 269 319 1.076 kr. kg
Apollo lakkrískonfekt, 400 g .......... 229 289 572 kr. kg
Nescafé, dökkt, 100 g .................. 329 389 3.290 kr. kg
Nescafé, gull, 200 g ..................... 799 889 3.995 kr. kg
Nescafé, gull, 100 g ..................... 449 529 4.490 kr. kg
River basmati, suðup., 4x125 g..... 169 219 1.352 kr. kg
Meller súkkulaðikaramellur, 40 g ... 64 82 1.600 kr. kg
Farm frites franskar, riffl., 750 g..... 197 279 262 kr. kg
SPAR Bæjarlind
Gildir til 2. mars nú kr. áður kr. mælie.verð
Kjúlli, vængir, lausfrystir ................ 109 486 109 kr. kg
Kjúlli, leggir, lausfrystir .................. 269 611 269 kr. kg
Ariel þvottaduft, 1,35 kg................ 679 768 503 kr. kg
Burger hrökkbrauð, classic, 250 g.. 129 155 516 kr. kg
Pauly saltstangir, 125 g................. 55 75 440 kr. kg
Marabou sælgætisrúllur, 78 g ........ 89 114 1.141 kr. kg
Hoplá jurtarjómi, 250 g................. 158 211 632 kr. kg
Muesli+ orkustangir, 138 g............ 149 178 1.080 kr. kg
McCain pitsa, deluxe, 900 g .......... 599 723 666 kr. kg
McCain pitsa, pepperoni, 830 g..... 519 623 625 kr. kg
Jaka cappuccino kúlur, 200 g ........ 168 198 840 kr. kg
Jaka rommkúlur, 200 g ................. 168 198 840 kr. kg
ÞÍN VERSLUN
Gildir 26. feb.–3. mars nú kr. áður kr. mælie.verð
Ísfugls kjúklingaleggir.................... 306 611 306 kr. kg
Ísfugls kjúklingavængir .................. 146 486 146 kr. kg
Bautabúrs grísahakk ..................... 258 323 258 kr. kg
Tilda hrísgrjón .............................. 139 159 139 kr. kg
Tilda sósur, 6 teg., 350 g .............. 269 349 753 kr. kg
Gevalia kaffi, 500 g ...................... 299 339 598 kr. kg
Guld korn, 500 g .......................... 279 298 558 kr. kg
Yankie bar, 80 g ........................... 89 112 1.112 kr. kg
Kjúklingur á lækkuðu verði
HELGARTILBOÐIN | neytendur@mbl.is
Kjúklingur í ýmsum myndum er víða á tilboðsverði um helgina. Einnig er afsláttur
af súpukjöti, lambakjöti, laxi og grísakjöti, svo fleiri dæmi séu tekin.
Morgunblaðið/Kristinn
Doug Goodkin er búsettur íKaliforníu og ferðast umallan heim til að haldanámskeið. Honum hafa
verið veitt Pro Marito-verðlaunin af
Orff-stofnuninni í München og hann
er eftirsóttur kennari víða um lönd.
Aðspurður um starfsvettvang í
heimalandi sínu segist hann starfa
við Montessori-skóla fyrir 3–13 ára
börn auk þess að kenna við Tónlist-
arháskólann í San Francisco þegar
hann er ekki að ferðast og halda
námskeið fyrir tónlistarnema og
-kennara. Ég byrja á því að spyrja
hann um aðferðir hans við að kenna
börnum tónlist.
„Aðferðir mínar við kennslu barna
eru einfaldar. Ég tek gjarnan nöfn
þeirra og finn út hrynjanda og hljóð
sem í nafninu eru og úr þessu sköp-
um við tónlist. Börn eru svo hæfi-
leikarík og opin að það er hrein unun
að upplifa hvernig einföldustu hlutir
lifna við. Ferðalög mín hafa gert mér
keift að skoða hvað er bundið við sér-
stök menningarsvæði og tungumál
og hvað það er í tónlistinni sem við
eigum öll sameiginlegt. Ég hef kom-
ist að því að þörfina til að skapa tón-
list eigum við öll sameiginlega, það er
aðeins blæbrigðamunur á því hvernig
sú tónlist hljómar. Börn geta gert
flóknustu hluti á stuttum tíma ef
þeim er kennt að skilja hvað það er
sem þau eru að gera. Við kennslu
barna lít ég á mig sem ábyrgan jafn-
ingja og reyni að kenna þeim listina
að samlagast hópnum, en um leið að
skera sig úr og finna sérstöðu sína.
Þetta hljómar ef til vill eins og mót-
sögn en þetta er hvort tveggja mjög
mikilvægt.“
Við ræðum aðeins nánar um gildi
þess að geta spilað af fingrum fram
og hvaða þýðingu það hefur t.d. fyrir
börn sem eru í hefðbundnu tónlist-
arnámi og kunna að lesa nótur.
„Þetta snýst allt um hlustun,“ seg-
ir Goodkin. „Þegar ég hóf að kenna
nemendum við Tónlistarháskólann í
San Francisco var ég sannfærður um
að ég gæti litlu bætt við þekkingu
þeirra, en annað kom á daginn.“
Ekki aðeins voru þau heilluð af
þessari nálgun heldur fannst þeim
hreint ekki auðvelt að tileinka sér
hana og þegar ég spyr hvaða gildi
snarstefjun hafi fyrir börn sem eru
læs á nótur segir hann: „Það má eig-
inlega skipta þeim sem iðka tónlist í
tvo hópa. Annars vegar þá sem lesa
nótur og nálgast tónlistina utan frá,
ef svo má segja, og hins vegar þá sem
ekki lesa nótur en geta tjáð í tónum
eitthvað sem þeir heyra innra með
sér og geta sungið eða leikið. Báðir
hópar þjást af þeirri tilfinningu að
þeir séu ófullkomnir. Ég reyni að láta
þá mætast á miðri leið.“
Nálægð tónlistarinnar
Ég spyr hann nánar út í hvernig
hann beri sig að í þeirri viðleitni:
„Tónlistinni má líkja við hús,“ seg-
ir hann, „ef það eru aðeins einar dyr á
húsinu og þær fennir í kaf er ekki
hægt að komast inn í húsið frá öðrum
hliðum og við verðum að hírast úti í
kuldanum. Barn sem hefur verið í
hefðbundnu tónlistarnámi í mörg ár
og er loksins farið að geta leikið verk
eftir Bach upplifir þetta verk á annan
hátt ef það getur tileinkað sér tónlist-
ina eins og þegar það leikur af fingr-
um fram, þ.e.; að heyra fyrst, syngja
svo og síðan leika tónlistina. Þannig
verður tónlistin nærtæk og nálæg
nemandanum. Ég læt hann t.d. leika
fyrstu tvær hendingarnar í verkinu
og bæta síðan við sinni eigin í sama
stíl og Bach, en hann ásamt mörgum
öðrum meisturum lék yfirleitt af
fingrum fram. Þeirri hæfni hefur
ekki verið haldið við í tónlistarnámi
sem skyldi, en ég tel að það geti tví-
mælalaust nýst öllum að kunna það.“
Ég spyr hann út í námskeiðin sem
nú standa yfir, en hann kom hingað
síðast árið 1996. „Það er frábært að
vinna með þessu hæfa fólki sem hér
er, en ég hef verulegar áhyggjur af
endurnýjun í röðum íslenskra tón-
menntakennara. Af þeim þrjátíu og
sex sem hér eru nú eru aðeins tveir
undir þrítugu. Þegar ég kenni full-
orðnum er nálgunin auðvitað frá-
brugðin því sem hún er við kennslu
barna, en ég reyni að laða fram týnda
barnið sem flestir bera með sér og
held að allir hafi þörf fyrir persónu-
lega tjáningu og sköpun. Sköpunin
verður að hafa tilgang og stað í
menningunni. Við erum öll einstök en
tilheyrum samt hinum margradda
kór allra landa.“
Ábyrgur
jafningi
Morgunblaðið/Þorkell
Doug Goodkin við kennslu í sal FÍH við Rauðagerði í vikunni.
Doug Goodkin er einhver fremsti Orff-
kennari í heiminum í dag. Hann heldur um
þessar mundir námskeið fyrir tónmennta-
og tónlistarkennara í sal FÍH. Steinunn
Birna Ragnarsdóttir ræddi við hann um að-
ferðir hans og nálgun í tónlistarkennslu.
Um helgina má finna lækkað verð á mjólkurvörum í
Bónus, sem gefur afslátt af mjólk og léttmjólk, og
11–11 sem er með tilboð á drykkjarjógúrti. Blómkál
er á lækkuðu verði í Fjarðarkaupum og epli í Nettó.
Nóatún og Nettó eru með tilboð á pitsu og kóki í
einum pakka og Krónan hefur lækkað verð á grí-
sakótilettum þar sem pakki af grísahakki fylgir frítt
með. Kryddað lambakjöt er á tilboðsverði í Sam-
kaupum og Nóatún hefur lækkað verð á lambafillet
með fitu úr kjötborði. Hagkaup eru með afslátt af
frosnu lambalæri. Heill ófrosinn kjúklingur er á til-
boðsverði í Nóatúni og kjúklingur í bitum með af-
slætti hjá Hagkaupum, Samkaupum, Spar og Þinni
verslun.
Kjötvörur, jógúrt
og mjólk
NEYTENDASAMTÖKIN telja sér-
staka ástæðu til þess að hvetja neyt-
endur til þess að gera innkaup sín
hjá þeim verslunum sem tekið hafa
upp leiðbeinandi verklagsreglur um
skilarétt. Viðskiptaráðuneytið setti
þessar reglur í janúar árið 2001 í
samvinnu við Neytendasamtökin og
fleiri. Í þeim er fjallað um rétt neyt-
enda til þess að skila ógallaðri vöru
innan 14 daga frá því að kaup voru
gerð. Nú hafa Neytendasamtökin
birt lista yfir þær verslanir sem hafa
tilkynnt til samtakanna að þær hafi
tekið upp skilaréttarreglurnar.
BT Glerárgötu 30, Akureyri
BT Kringlunni, Reykjavík
BT Miðvangi 1, Egilsstöðum
BT Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði
BT Skeifunni 11, Reykjavík
BT Smáralind, Kópavogi
Daman Laugavegi 32, Reykjavík
Office 1 Skeifunni 17, Reykjavík
Rammagerðin Hafnarstræti 19,
Reykjavík
SonyCenter Skeifunni 17, Reykjavík
Verslanir sem vilja taka upp skila-
réttarreglurnar geta fengið upplýs-
ingar um þær hjá Neytendasamtök-
unum.
Verslanir og reglur um skilarétt
TENGLAR
..............................................
www.ns.is