Morgunblaðið - 26.02.2004, Side 33
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 33
Manneldisráð lagði fram til-lögu á sínum tíma til heil-brigðisráðherra um að
setja sérstakan skatt á gosdrykki í
ljósi gífurlegrar aukningar á neyslu
þeirra, segir Laufey Steingríms-
dóttir næringarfræðingur og sviðs-
stjóri rannsókna hjá Lýðheilsustöð.
Enginn starfsmaður er nú hjá
Manneldisráði, sem enn mun vera
starfandi sem fagráð, samt sem áð-
ur.
Greint var frá því í Morgun-
blaðinu að breska ríkisstjórnin
íhugaði að setja sérstakan „fitu-
skatt“ á óhollan mat, vegna sívax-
andi offitu meðal þjóðarinnar. Seg-
ir Laufey slíka ráðstöfun „eitthvað
sem við þurfum að líta á með opnum
huga“.
„Heilbrigðisráðherra fór með er-
indið um skatt á gosdrykki í fjár-
málaráðuneytið, eftir því sem ég
best veit, og þar er það statt,“ segir
Laufey.
Hún segir gosdrykki einn af þeim
þáttum sem stuðlað hafi að því að
þjóðin sé að fitna, en engan veginn
þann eina. Hvað fituskatt varðar,
segir Laufey hann jafnframt erf-
iðan í framkvæmd.
„Það er mjög erfitt að flokka
matvæli í heilsusamleg og óheilsu-
samleg því allt mataræðið kemur
við sögu og það er pláss fyrir allt, ef
menn neyta þess eðlilega og í hófi.
Á móti kemur að menn eru nánast
ráðþrota og það er heldur ekki
hægt að horfa upp á þessa þróun án
þess að bregðast við. Offita er orðin
vandamál hjá fjölda þjóða og við-
eigandi ráðstafanir eru til umræðu
hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnun
og víðar. Í þeim er talað um að huga
þurfi að markaðssetningu og sölu
matvara. Bandarísk stjórnvöld hafa
sett sig mjög upp á móti aðgerða-
áætlun Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar og eru Bandaríkin
eina ríkið sem hefur gert það. En
menn horfa upp á þessa framvindu
og eitthvað þarf að gera,“ segir
hún.
Skattur eða frjálsræði
Laufey segir ennfremur ljóst að
mjög erfitt sé að snúa framvindunni
við.
„En það þarf að koma í veg fyrir
að þessi þróun haldi áfram. Þá er
spurt hvað sé hægt að gera. Skatt-
lagning er ein leið og þá þurfa
menn að velja á milli hennar og
frjálsræðis á markaði. Það er líka
hægt að segja sem svo að menn eigi
að bara að vera ábyrgir og fjöl-
skyldan og einstaklingurinn eigi að
velja af skynsemi. Auðvitað hlýtur
það að vera grundvallaratriði.“
Lífsstíll nútímamannsins krefst
fljótlegra og tilbúinna rétta og seg-
ir Laufey hægt að gera þá kröfu að
heilsusamlegir kostir séu fyrir
hendi í þannig mataræði líka.
„Mér finnst alveg sjálfsagt að
skoða möguleika [á skattlagningu]
en átta mig á því að það er erfitt að
hrinda henni framkvæmd og
flokka matvæli í „vond“ og „góð“.
Sú flokkun er huglæg og það sem
er vont fyrir einn þarf ekki að vera
svo slæmt fyrir einhvern annan.“
Aðspurð hvort nota megi mann-
eldismarkmið til hliðsjónar, segir
Laufey þau ekki til lengur.
„Manneldismarkmið hafa verið
lögð niður. Nú er talað um ráð-
leggingar um mataræði og þar er
ekki talað um að eitt sé bannað og
annað ekki. Horft er á heildar-
samsetninguna og því erfitt að
draga í dilka. Skattlagning verður
alltaf umdeild en ég held að við
þurfum að líta á þennan mögu-
leika með opnum huga,“ segir
Laufey Steingrímsdóttir að síð-
ustu.
HEILSA | Sviðsstjóri rannsókna hjá Lýðheilsustöð segir Manneldisráð hafa lagt til sérstakan skatt á gosdrykki
Þurfum að líta á fitu-
skatt með opnum huga
Morgunblaðið/Sverrir
Neysla Íslendinga á ávöxtum hefur aukist á liðnum árum, en ofneysla og
hreyfingarleysi ógna heilsu landsmanna, samkvæmt nýjustu könnun.
Breska ríkisstjórnin
íhugar „fituskatt“ á
óhollan mat, vegna vax-
andi offitu meðal þjóð-
arinnar. Laufey Stein-
grímsdóttir segir slíka
ráðstöfun „eitthvað sem
við þurfum að líta á með
opnum huga“.