Morgunblaðið - 26.02.2004, Blaðsíða 52
52 FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Risaeðlugrín
HVAÐ ER
ÞETTA?
© DARGAUD
Grettir
Smáfólk
ÉG ER DRAUGUR
KÓNGULÓARINNAR SEM ÞÚ
KRAMDIR EINU SINNI
OG ÞETTA ER DRAUGUR
DAGBLAÐSINS SEM ÉG NOTAÐI TIL
ÞESS AÐ KERMJA HANA
ÆI! ÉG
BEIT MIG Í
TUNGUNA
ÞAÐ ER EKKI ALLTAF TEKIÐ ÚT MEÐ
SÆLDINNI AÐ VERA EITRUÐ KÓNGULÓ
AFHVERJU
SEGIRÐU
EKKI BARA
FYRIRGEFU
VIÐ HANN?
KALLI SKILUR BARA
EKKI AÐ INNST INNI ERTU
BARA SKOTIN Í HONUM.
ÉG VAR BÚIN
AÐ SEGJA ÞÉR
ÞAÐ! ÉG GÆTI
ALDREI VERIÐ
SKOTIN Í
NEINUM EINS
OG KALLA!!
ÞETTA ER
ÁSTÆÐAN
FYRIR AÐ
ÞETTA
BYRJAÐI.
ERTU BÚIN AÐ
TAKA EFTIR ÞVÍ
AÐ ÉG ER ALVEG
HÆTT AÐ KALLA
ÞIG HERRA?
JÁ!
ÉG
ÞOLI
ÞAÐ
EKKI
TÖLVA. ÉG
VAR AÐ FINNA
HANA UPP
OG HVAÐ
GERIR
HÚN?
ALLT MÖGULEGT...
EÐA ÖLLU HELDUR
ÝMISLEGT... TIL DÆMIS
TIL AÐ TENGJA SIG
VIÐ NET TIL ÞESS
AÐ HAFA
SAMBAND VIÐ AÐRA
NOTENDUR
KLIKK
KLIKK
EN ÞAÐ ERU ENGIR AÐRIR
NOTENDUR ÞVÍ ÞÚ ERT
SÁ EINI SEM HEFUR BÚIÐ TIL
SVONA TÆKI
EHEM... JÁ... EINS OG STENDUR ER
ÞAÐ SATT AÐ ÉG ER EINI
EIGANDINN EN BÍDDU BARA.
BRÁÐUM EIGA ALLIR SÍNA EIGIN
TÖLVU OG ÞAÐ VERÐUR
ÓMÖGULEGT AÐ LIFA ÁN HENNAR.
ÞETTA ER SVOKÖLLUÐ BYLTING
NÆSTUMÞVÍFORSÖGUNNAR SEM
ER HÉR AÐ HEFJAST!!
MAÐUR GETUR NÚ ÞEGAR FARIÐ
Í FULLT AF FRÁBÆRUM LEIKJUM!
ÉG SKAL SÝNA ÞÉR
KLIKK
KLIKK
KLIKK?... KLIKK
KLIKK
KLIKK
...
ÞAÐ SÉST EKKI
NEITT! KANNTU
ÖRUGGLEGA Á
ÞETTA?
ÞAÐ Á AÐ
GERA ÞAÐ...
EÐA ÞETTA
ER Í FYRSTA
SKIPTI EN...
KLIKK
KLIKK
KLIKK
ÞÚ HEFÐIR KANNSKI ÁTT AÐ
FINNA UPP RAFMAGNIÐ
FYRST... (EF MÉR LEYFIST AÐ
SEGJA ORÐ...)
AUÐVITAÐ! ÉG HEFÐI
ÁTT AÐ SJÁ ÞAÐ STRAX!!
USS!
ÉG ÞARF AÐ
HUGSA!
ÞAÐ ER MÚSIN SEM
VIRKAR EKKI!
SKEMMDARVARGUR!!
KLIKK
KLIKK
PFFF...
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÁSTÞÓR minn, hlífðu okkur nú við
þessu! Ég tala hér við þig sem vinur,
því það ertu alltaf. Því sá sem ég tek
mér sem vin er það ævinlega þótt á
móti blási. Athugaðu! Það kostar
ríkið 20 milljónir ef þú ferð í fram-
boð til forseta, ekki nóg með það því
það kostar sveitarfélögin í landinu
80 milljónir í viðbót. Allir sjá að þú
teflir fram vel myndarlegu og vel
menntuðu forsetafrúarefni, en gerðu
konunni ekki þetta, hún er alltof góð
persóna til að láta nota sig svona. Þú
veist líka eins og allir þetta. Ólafur
er mjög svo frambærilegur fulltrúi
þjóðarinnar sem forseti, sér í lagi á
erlendri grund, kemur ákaflega vel
fyrir, ekki skemmir Dorrit myndina,
bæði falleg kona og vel gefin í alla
staði. Þessvegna, taktu orð mín al-
varlega, þú ert meiri maður á eftir ef
þú nú tekur mína einlægu viðvörun
og ferð eftir henni. Hitt er svo annað
mál, það er rétt sem þú heldur fram,
það mætti virkja Bessastaði miklu
betur en gert er í almannaþágu. Það
veit Ólafur líka, en ef til vill hlustar
hann á mínar persónulegu ábend-
ingar, það kemur í ljós.
En Ástþór minn, eitt gerðum við
þó til gagns saman 1998 þegar við
stofnuðum Lýðræðisflokkinn með
ágætum vinum okkar sem var hópur
góðra drengja. Á fundum hjá okkur
mætti nokkrum sinnum gamla
kempan Sverrir Hermannson. Á
seinasta fundi okkar mættu um milli
40 og 50 Vestfirðingar. Þetta var
átakafundur og þjóðinni í heild mik-
ið stórmál. Svo stórt að fáir gera sér
grein fyrir umfangi þess í heild. Ég
upplýsi það hér og nú, ég var búinn
að hringja út um allt land og vinsa úr
úrvalslið, að ég held sirka 700
manns. Þar á meðal voru þessir
Vestfirðingar sem mættu þarna á
fundinn. Málið var einfaldlega þetta.
Ég var búinn að skipuleggja upp-
reisn án átaka, án skerðingar á hári
nokkurs manns. Allir skyldu róa
þegar ég segði: Nú byrjar ballið. Við
hefðum fengið kærur, verið dæmdir
í fangelsi, farið inn, en beint á sjóinn
aftur. Það eru nefnilega ekki til nógu
stór fangelsi á Íslandi til að loka inni
allt það fólk sem hefur stjórnar-
skrárbundin atvinnuréttindi. Þarna
átti að nota aðeins vistvæn veiðar-
færi, þ.e. handfæri og línu. En það
sem skeði var þetta: Sverrir stóð
upp og taldi strákana ofan af þessari
hugmynd. Ég sagði því þetta: Taktu
við baráttunni Sverrir, gegn um-
fangsmestu mistökum Íslands-
sögunnar, kvótakerfinu. Upp frá
þessum fundi var svo Frjálslyndi
flokkurinnn stofnaður, og því er það
svo, Ástþór minn, að upp úr
samvinnu okkar fæddist þá spor í
rétta átt til góðs í íslensku sam-
félagi.
Vertu svo blessaður, Ástþór minn,
og gangi þér allt ævinlega sem best,
en mundu: Hugsaðu allt gaumgæfi-
lega sem þú gerir, þú mátt hringja
og spyrja ráða ef þú vilt.
GARÐAR H. BJÖRGVINSSON,
framkvæmdastjóri
Framtíðar Íslands.
Ástþór forseti?
Frá Garðari H. Björgvinssyni:
FRÆÐSLUNEFND Náttúrulækn-
ingafélags Íslands hélt á dögunum
málþing sem bar yfirskriftina
Erfðabreyttar afurðir.
Mörg fróðleg erindi voru flutt
þriðjudagskvöldið 27. janúar á Hót-
el Loftleiðum og spunnust líflegar
og athyglisverðar umræður í kjöl-
farið.
Fræðslunefnd NLFÍ hefur staðið
fyrir málþingum um ýmis málefni
sem jafnan hafa vakið athygli al-
mennings og fengið umfjöllun í blöð-
um og öðrum fölmiðlum. Má þar
nefna málþing um ruslfæði, fæðu-
bótarefni, lækningamátt jurta,
skammdegisþunglyndi, streitu, of-
fitu og lífsgleði. Frummælendur
þetta kvöld voru Jónína Þ. Stefáns-
dóttir matvælafræðingur, Þórður G.
Halldórsson garðyrkjubóndi, Einar
Mäntylä plöntuerfðafræðingur og
Gunnar Á. Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri.
Erindin verður hægt að lesa á
heimasíðu Náttúrulækningafélags
Íslands, www. heilsuvernd.is Auk
frummælenda sátu Bjarni Guðleifs-
son plöntulífeðlisfræðingur og
Björn Sigurbjörnsson erfðafræðing-
ur fyrir svörum í umræðunum. Inni-
haldi þessarar umræðu voru gerð
góð skil í dagskrárritinu Birtu,
fylgiriti Fréttablaðsins, sem kom út
6. febrúar 2004.
Svo virðist sem himinn og haf
skilji að sjónarmið þeirra sem eru
hlynntir erfðabreyttum afurðum og
þeirra sem eru andvígir. Vísindaleg-
ar rannsóknir virðast ekki geta sætt
þessi sjónarmið.
Lítið hefur farið fyrir umræðu um
erfðabreytt matvæli hér á landi og
er það einkennilegt miðað við það
sem farið hefur fram í Bretlandi og
víðar í Evrópu. Einhverjir urðu var-
ir við umræðu síðastliðið sumar,
þegar Orf – Líftækni hóf ræktun á
erfðabreyttu byggi til lyfjafram-
leiðslu hér á landi. Færri vita hins
vegar að talið er að 70% matvæla í
hillum verslana í Bandaríkjunum
innihalda mismunandi magn af
erfðabreyttum afurðum. Íslending-
ar flytja inn töluvert af afurðum frá
Bandaríkjunum og á þessum vörum
eru engar upplýsingar um hvort
þær innihaldi erfðabreyttar afurðir
eða ekki. Við undrumst hvers vegna
engin löggjöf er til hér landi um
merkingar erfðabreyttra matvæla
Við veltum fyrir okkur hverra hlut-
verk það er að upplýsa almenning.
Hefur neytandinn ekkert val?
Hvert vilja Íslendingar stefna í
þessum málum? Hefur notkun
erfðabreyttra afurða til ræktunar
hér á landi áhrif á ímynd Íslands
sem hreint og ómengað land?
Umræðan er hafin og viljum við
hvetja landsmenn, lærða og leika, til
að kynna sér málið og segja sitt álit.
FRÆÐSLUNEFND
Náttúrulækningafélags Íslands.
Erfðabreyttar afurðir
Frá Fræðslunefnd
Náttúrulækningafélags Íslands: