Morgunblaðið - 26.02.2004, Qupperneq 53
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 53
Skoðaðu ferðatilboðin!
nordur.is
Nú er snjórinn...
Útivist! Skíðaparadís! Sundlaugarfjör! Huggulegheit! Rómantík!Vélsleðaferðir!
jarðböðin
við mývatn
THE ICELANDIC FOOD AND HOSPITALITY SHOW
FÍFAN SÝNINGARHÖLL, SMÁRANUM, KÓPAVOGI
FEBRÚAR, 2004
KAUPSTEFNA
DAGSKRÁ
FIMMTUDAGUR KL. 16.00 - 20.00
FÖSTUDAGUR KL.10.00 - 20.00
FIMMTUDAGUR 26/2
KL. 16.00 - HÚSIÐ OPNAÐ
- Opnunarhóf í boði landbúnaðarráðherra
KL. 16.30 - SETNING SÝNINGARINNAR MATUR 2004
ÁVÖRP FLYTJA:
Sigurður Geirdal, bæjarstjóri Kópavogsbæjar
Magnús Hreggviðsson, stjórnarformaður Fróða hf.
Níels Sigurður Olgeirsson, formaður MATVÍS
Gunnar Birgisson, formaður bæjarráðs Kópavogsbæjar
Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra
KL. 16.00 - 20.00 KJÖTIÐNAÐUR
-Útstilling og dæming
KL. 16.00 - 20.00
Svæði matreiðslu- og framreiðslumanna
-Nemakeppni í matreiðslu og framreiðslu
FÖSTUDAGUR 27/2
KL. 11.00 - 20.00 ELDHÚS 1-5
-Forkeppni í keppninni um Matreiðslumann ársins 2004
KJÖTIÐNAÐUR
-Útstilling og dæming
Kl. 12.00 - 18.00
Þjóna- og kokkasvæði
-Æfing nema í framreiðslu vegna Norrænu
nemakeppninnar
KL. 13.00 ELDHÚS 6-10
-Skólakynning á vegum matartækna
KL. 16.00 ELDHÚS 6-10
-Skólakynning á vegum matartækna
OPI‹
UM HELGINA
FYRIR ALMENNING
NÝLEGA afhenti Síminn svæðis-
stjórn björgunarsveita Slysavarna-
félagsins Landsbjargar á höfuð-
borgarsvæðinu tvo GPRS-farsíma
að gjöf. Símarnir munu nýtast
svæðisstjórninni til að tengjast frá
vettvangi björgunar- og leitar-
starfa í stjórnstöð aðgerða í Skóg-
arhlíð. GPRS-farsímar gera svæð-
isstjórninni mögulegt að tengjast
þar sem farsímasamband er inn á
Internetið og með því geta stjórn-
endur á vettvangi haft aðgang að
tölvukerfum svæðisstjórnar þar
sem upplýsingar um hvaða björg-
unarsveitir eru að störfum og hvar
þær eru staðsettar erufærðar inn,
segir í fréttatilkynningu.
Gísli Rafn Ólafsson frá svæðisstjórn
og Eva Magnúsdóttir Símanum.
Færir Lands-
björg GPRS-
farsíma
FÉLAG lögfræðinga á Vest-
fjörðum hefur áhyggjur af nið-
urskurði fjárveitinga til Hér-
aðsdóms Vestfjarða og segir að
hann muni auka álag á dómara
og koma til með að tefja af-
greiðslu mála, en ný mál við
dómstólinn hafi aldrei verið
fleiri en á nýliðnu ári.
Í ályktun sem samþykkt var
á félagsfundi segja vestfirskir
lögmenn að vegna niðurskurð-
arins verði að leggja niður
stöðu aðstoðarmanns héraðs-
dómara eða starf annars af
tveimur löglærðum starfs-
mönnum dómsins.
Í bréfi sem félagið sendi til
Björns Bjarnasonar dómsmála-
ráðherra skora lögmenn á
Vestfjörðum á stjórnvöld að
beita sér fyrir nægjanlegum
fjárveitingum til að tryggja
trausta og greiða meðferð mála
við dóminn.
Fleiri hafa lýst áhyggjum af
fjárhag héraðsdómstólanna.
Áhyggjur
af niður-
skurði hjá
héraðsdómi
80. ársþing UMSK verður haldið
hjá HK í Íþróttamiðstöðinni Digra-
nesi fimmtudaginn 26. febrúar kl. 18.
Á dagskrá eru m.a. umræður um
Landsmót UMFÍ 2007 sem fram fer
í Kópavogi.
Í DAG
Má raflýsa Gullfoss? Landvernd og
Bláskógabyggð boða til hádegis-
fundar á Hótel Borg föstudag 27.
febrúar kl. 12–13 til að ræða hug-
myndir sem fram hafa komið um raf-
lýsingu á Gullfossi. Fjallað verður um
hvað kalli á raflýsingu við Gullfoss og
hvernig lýsingu verði komið fyrir og
hver yrðu áhrif lýsingar á ferðamenn
og ferðaþjónustu o.fl. Þátttakendur í
pallborði verða m.a. Oddur Her-
mannsson landslagsarkitekt, Ari
Trausti Guðmundsson jarðfræðingur
og leiðsögumaður, Árni Bragason,
forstöðumaður á Umhverfisstofnun,
og Hjörleifur Guttormsson náttúru-
fræðingur. Fundarstjóri verður Ólöf
Guðný Valdimarsdóttir, formaður
Landverndar.
Á MORGUN
Námskeiðið Frá trú til trúar –
yfirlit yfir trúarbrögð heimsins
hefst 2. mars nk. hjá Háskóla Ís-
lands. Á námskeiðinu „Frá trú til
trúar“ er varpað ljósi á hvað átrún-
aður og trúarbrögð eru, gefið stutt
yfirlit yfir forn trúarbrögð á borð
við fornegypskan átrúnað, Zara-
þústratrú, forngrískan, fornróm-
anskan, fornnorrænan og fornkelt-
neskan átrúnað. Þá er gefið stutt
yfirlit yfir hindúisma, jainisma,
búddisma, shikisma, kínversk og
japönsk trúarbrögð.
Kennari á námskeiðinu er Haukur
Ingi Jónasson, guðfræðingur og
sálgreinir. Frekari upplýsingar er
að finna á vef Endurmenntunar
www.endurmenntun.is.
Íslandsmeistarakeppni hjá
Naglaskólanum í Kópavogi, undir
vörumerkinu Professionails, verð-
ur haldin að Hjallabrekku 1 í Kópa-
vogi laugardaginn 28 febrúar.
Keppt verður í tveimur flokkum,
naglaásetningu, sem byrjar kl. 10,
dæming og sýning kl. 12–13, og
naglaskreytingu sem byrjar kl.
13.30, dæming og sýning kl. 16.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú
efstu sætin.
Fræðslufundur um sölu á ljós-
myndum verður haldinn í Gerðu-
bergi laugardaginn 28. febrúar kl.
14. Yfirskrift fundarins er: Gerðu
mat úr þínum myndum.
Athyglinni verður einkum beint að
því hvað þurfi til að selja myndir.
Hvernig myndir seljast, hverjir
kaupa myndir, hvernig á að verð-
leggja myndir, hvað þarf viðkom-
andi að eiga mikið af myndum,
hvernig á að skipuleggja safnið o.fl.
Fyrirlesarar eru þeir Pálmi Guð-
mundsson, sem rekur Íslensku
ljósmyndaþjónustuna, auk þess að
vera umsjónarmaður vefsíðunnar
www.ljosmyndari.is og námskeiðs-
haldari, og Kjartan Dagbjartsson,
sölustjóri hjá Nordic Photos.
Þátttökugjald er 3.000 kr. og geng-
ur sú upphæð sem greiðsla upp í
ljósmyndanámskeið á vegum
www.ljosmyndari.is (ath. ekki er
tekið á móti greiðslukortum).
Nánari upplýsingar er að finna á
vefsíðunni www.ljosmyndari.is.
Útstillingar í Garðyrkjuskól-
anum. Garðyrkjuskólinn á Reykj-
um í Ölfusi heldur námskeið í út-
stillingum fimmtudaginn 4. og
föstudaginn 5. mars. Námskeiðið
er ætlað starfsfólki í blómaversl-
unum og verður haldið í húsakynn-
um skólans. Námskeiðið verður
bæði bóklegt og verklegt. Leið-
beinendur verða Þórlaug Hildi-
brandsdóttir og Ylfa Pétursdóttir
en þær eru báðar útstillinga-
hönnuðir. Fjöldi þátttakenda tak-
markast við 15. Skráning og nánari
upplýsingar um námskeiðið fást á
skrifstofu skólans eða á heimasíðu
hans, www. reykir.is.
Á NÆSTUNNI
Úrslitin í enska boltanum
beint í símann þinn