Morgunblaðið - 26.02.2004, Síða 56

Morgunblaðið - 26.02.2004, Síða 56
ÍÞRÓTTIR 56 FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÍSLENSKA landsliðið í handknatt- leik mætir Grikkjum í tveimur æf- ingaleikjum fyrir leikina gegn Ítöl- um sem skera úr um hvor þjóðin kemst á heimsmeistaramótið í Tún- is á næsta ári. Leikirnir við Grikki verða ytra 25. og 26. maí en fyrri leikurinn við Ítalíu verður laug- ardaginn 29. maí og sunnudaginn 6. júní fer síðari leikurinn fram í Laugardalshöll. Helgina 21.–23. maí er áætlað að íslenska landsliðið taki þátt í móti í Belgíu og að sögn Guðmundar Þórðar Guðmundssonar landsliðs- þjálfara verður uppistaðan í því liði leikmenn sem spila hér heima ásamt þeim leikmönnum sem eru á „lausu“ erlendis. Eftir mótið í Belg- íu verður haldið til Grikklands. Guðmundur er að bíða eftir að fá í hendur upptökur af leikjum Ítala í undankeppni HM en Ítalir voru í riðli með Austurríkismönnum og Hvít-Rússum og stóðu uppi sem sig- urvegarar á hagstæðari markatölu en allar þjóðirnar hrepptu fjögur stig. „Ítalir eru með mjög frambæri- legt lið og það segir sína sögu að þeim hafi tekist að vinna bæði Aust- urríkismenn og Hvít-Rússa. Við þurfum að vanda okkur gegn Ítöl- unum og við getum ekki gengið að því vísu að það verði létt verkefni. Í liði Ítala eru fyrrum Rússar og Júgóslavar, þrír talsins, svo þetta eru andstæðingar sem við verðum að taka með fullri alvöru,“ sagði Guðmundur Þórður. Ísland mætir Grikklandi fyrir Ítalíuleikina FÆREYINGAR hafa samið við Hollendinga um að leika gegn þeim landsleik í knatt- spyrnu 1. júní. Leikurinn fer fram í Sviss, þar sem Hollend- ingar verða í æfingabúðum fyrir Evrópukeppni landsliða í Portúgal. Leikurinn verður fyrsta viðureign Hollands og Færeyjar í knattspyrnu. Færeyingar gegn Hollandi  HERMANN Hreiðarsson lék sinn 150. leik í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn þegar Charlton vann Blackburn, 3:2. Hann er fyrsti Ís- lendingurinn sem nær þessum leikjafjölda í deildinni. Guðni Bergs- son spilaði 135 leiki með Bolton og Tottenham í úrvalsdeildinni, en að auki lék hann 67 leiki með Totten- ham í gömlu 1. deildinni.  JAMES Hayter, leikmaður Bournemouth, komst í metabæk- urnar í Englandi á þriðjudagskvöld- ið er hann skoraði þrjú mörk á tveimur mín. og tuttugu sek. Hayter, 24 ára, sem kom inn á sem varamað- ur á 84. mín., skoraði mörk sín á 86 mín. – tvö – og á 88. mín. Enginn leikmaður hefur verið svo fljótur að skora þrennu í sögu ensku deilda- keppninnar. Hayter og félagar fögn- uðu sigri á Wrexham, 6:0. Hann bætti met Jock Dodd, Blackpool, sem var frá 1943, um 10 sek.  WERDER Bremen, toppliðið í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu, er við það að ná samningum við þýska landsliðsmiðherjann Miroslav Klose hjá Kaiserslautern um að hann gangi í raðir Bremen í sumar. Fjög- urra ára samningur liggur tilbúinn á borðinu en Klose er ætlað að fylla skarð Brasilíumannsins Ailtons sem hefur gert samning við Schalke.  BREMEN hefur gert samning við brasilíska varnarmanninn Gustavo Nery sem leikur með Sao Paolo í Brasilíu. Nery er 26 ára gamall en hann þykir ákaflega öflugur og fjöl- hæfur leikmaður. FÓLK leik Wetzlar og Essen. Í dag kemur Guðmundur að máli við Ólaf Stef- ánsson á Spáni og Patrek Jóhann- esson hittir hann á laugardaginn en Guðmundur ætlar að sjá Patrek og Heiðmar Felixson í leik með Bida- soa gegn Teucro á laugardaginn. Guðmundur lýkur svo við að ræða við lærisveina sína í Frankfurt á sunnudaginn þegar hann spjallar við Guðmund Hrafnkelsson og Jal- iesky Garcia. Hvað vakir fyrir þér að hitta landsliðsmennina og ræða við þá undir fjögur augu? „Ég er að fara yfir Evrópumótið og ræða ýmsa hluti við þá varðandi keppnina og það sem fram undan er. Mér finnst nauðsynlegt að fara yfir Evrópumótið með leikmönnun- um núna þegar ég er búinn að fara yfir leiki okkar til hlítar. Það eru hlutir sem ég vil ræða við leikmenn- ina einslega svo sem frammistöðu þeirra sjálfra og liðsins. Mér finnst mjög mikilvægt að gera þetta núna og taka stöðuna á þeim gagnvart framhaldinu. Þetta er bara eins og á vinnustöðum. Það er nauðsynlegt að Guðmundur heldur til Spánar ídag í sömu erindagjörðum og ræðir við landsliðsmennina sem þar leika. Guðmundur sá Sigfús Sigurðsson fara á kostum með Magdeburg í leikn- um við ungverska liðið Fotex Vespr- ém í Meistaradeildinni um síðustu helgi og í fyrrakvöld fylgdist hann með Snorra Steini Guðjónssyni í leik Grosswallstadt gegn Lemgo þar sem Snorri Steinn átti mjög góðan leik og skoraði 8 mörk. „Ég var virkilega ánægður með frammistöðu Sigfúsar og Snorra. Báðir áttu þeir afbragsleik og virka í mjög góðu formi,“ sagði Guðmund- ur við Morgunblaðið í gær. Guðmundur hóf fundarherferð sína á mánudaginn þegar hann hitti Sigfús Sigurðsson. Í gærdag sátu Snorri Steinn, Rúnar Sigtryggsson og Einar Örn Jónsson á fundi með landsliðsþjálfaranum í Frankfurt og í gærkvöldi ræddi hann við Guðjón Val Sigurðsson, Róbert Sighvatsson og Gunnar Berg Viktorsson eftir ræða við þá aðila sem maður starfar með. Ég vil að menn opni sig og láti sínar skoðanir í ljós, bæði gagnvart því sem ég er að gera og öðru sem lýtur að liðinu.“ Guðmundur segist hafa ákveðið að hitta leikmenn sína og ræða við þá einn og einn eftir Evrópumótið í Slóveníu. „Þegar ég var búinn að horfa á leikina og kryfja þá frá a til ö fannst mér ég verða að fara yfir ákveðin atriði með leikmönnunum. Ég hef svo sem áður farið út og fylgst með mönnum í leikjum en núna er ég kominn út á aðeins öðr- um forsendum. Ég er að hitta hvern og einn og ræða við þá sérstaklega.“ Eftir að hafa skoðað leiki ykkar á Evrópumótinu mjög ítarlega, hvað finnst þér helst hafa farið úrskeiðis? „Það sem var gegnumgangandi hjá okkur var að við spiluðum varn- arleikinn ekki nægilega vel og þá var mjög áberandi hversu illa við fórum með upplögð marktækifæri hvort sem það var eftir venjulegar sóknir eða hraðaupphlaup. Þetta eru hlutir sem ég vil fara yfir með strákunum og fleiri sem snúa að lið- inu sem ég vil bara hafa milli mín og leikmannanna. Það byggðust upp miklar væntingar fyrir Evrópumót- ið og mönnum fannst nánast forms- atriði að vinna riðilinn. Eftir á að hyggja held ég að allir sjái það að það var ekki raunhæft.“ Þið settuð ykkur sjálfir þau markmið að vinna riðilinn. Voru það þá of háleit markmið? „Að mörgu leyti tel ég svo hafa verið.“ Eitthvað hefur kvisast út að ósætti hafi verið í landsliðshópnum í Slóveníu. Er það rétt? „Þetta er ekki rétt og ég ræddi þetta mál við Sigfús. Hann lét í veðri vaka í sjónvarpsviðtali að eitt- hvert slíkt hefði verið í gangi en það á alls ekki við rök að styðjast. Við áttum ekki við nein slík vandamál að glíma. Það var ekkert ósætti í hópnum á nokkurn hátt en það er kannski eðlilegt að menn hafi pir- rast inni á vellinum þegar hlutirnir gengu ekki eins og þeir áttu að ganga Það verður í nógu að snúast hjá íslenska landsliðinu á komandi mán- uðum. Í lok maí og byrjun júní mæta Íslendingar Ítölum í tveimur einvígisleikjum um þátttökurétt á HM í Túnis á næsta ári og í ágúst eru Ólympíuleikarnir á dagskrá en þar verða Íslendingar fulltrúar Norðurlandanna. „Áætlunin fyrir sumarið og und- irbúningurinn fyrir Ólympíuleikana er klár en þó hefur ekki verið geng- ið frá leikjaplani. Ég reikna með að undirbúningurinn fyrir Ólympíu- leikana hefjist upp úr miðjum júní,“ segir Guðmundur. Ljósmynd/Günter Schröder Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari sá Snorra Stein Guðjónsson skora átta mörk fyrir Grosswallstadt gegn Lemgo, en það dugði ekki til sigurs – heimamenn unnu 31:25. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari á ferðalagi í Þýskalandi og á Spáni Ræðir við landsliðs- menn undir fjögur augu GUÐMUNDUR Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknatt- leik, hefur undanfarna daga verið í Þýskalandi þar sem hann hefur ekki aðeins fylgst með íslensku landsliðsmönnunum í leikjum liða sinna heldur hefur hann rætt við þá undir fjögur augu. Nýafstaðið Evrópumót hefur verið krufið til mergjar og verkefnin sem fram undan eru kynnt fyrir þeim. Guðmundur Hilmarsson skrifar Ármúla 36, 108 Reykjavík, sími 588 1560. Rýmum fyrir nýju fótboltaskónum Fótboltaskór með miklum afslætti - 20-40% afsláttur af innanhúss- og gerfigrasskóm - Takkaskór frá 1.000 kr.l i l f l i f l f i fi f . .

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.