Morgunblaðið - 26.02.2004, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 26.02.2004, Qupperneq 58
ÍÞRÓTTIR 58 FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT ELDSPRENGJU var í fyrrakvöld kastað í veitingastað í Míl- anó á Ítalíu en Christian Vieri, sóknarmaður knatt- spyrnuliðs Inter, er einn af eigendum staðarins. Sprengjan olli nokkrum skemmdum á vegg og auglýsingaskiltum. Svip- að atvik átti sér stað við annan veitingastað í borginni í gær en annar leikmanna Inter, Fabio Cannavaro, á hlut í honum. Árásinni á stað Vieris fylgdi hótunarbréf með eftirfarandi orðum: „Vieri, þolinmæðin er þrotin, þú ert ekki verðugur þess að leika með Inter. Þú verðskuldar ekki stuðning frá borg- inni okkar því þú kærir þig ekkert um okkur. Við skömm- umst okkar fyrir þig. Nú byrjar þú að borga,“ stóð í bréf- inu. Árásin var fordæmd á vef Inter í gær. „Við lítum ekki á þetta sem verknað sannra stuðningsmanna Inter. Við erum mjög leiðir yfir þessum ódæðisverkum gagnvart leik- mönnum okkar og við verðum að sjá til þess að þeir njóti fullkomins öryggis,“ sagði í tilkynningu frá félaginu. Inter tapaði, 3:2, fyrir nágrönnunum í AC Milan í ítölsku 1. deildinni um helgina, eftir að hafa komist í 2:0. Ráðist á veitingahús í eigu leikmanna Inter JÓN Arnar Magnússon, fjölþraut- armaður úr Breiðabliki, verður á meðal keppenda í sjöþraut á heimsmeist- aramótinu innanhúss í frjálsíþróttum sem fram fer í Búdapest í ungverjalandi 5.–7. mars nk. Alþjóða frjálsíþrótta- sambandið, IAAF, staðfesti þetta við Frjálsíþróttasamband Íslands í gær, en IAAF býður aðeins átta keppendum til þess að spreyta sig í sjöþrautarkeppni mótsins. Þar með er ljóst að a.m.k. tveir Íslend- ingar taka þátt í mótinu því nokkuð er síðan Þórey Edda Elísdóttir, stang- arstökkvari úr FH, tryggði sér keppn- isrétt með því að lyfta sér yfir 4,35 metra, en það er lágmarkshæð til þess að vinna sér inn keppnisrétt á mótinu. „Ég er að sjálfsögðu mjög ánægður með að þátttökurétturinn er í höfn eftir að hafa verið á tæpasta vaði,“ sagði Jón Arnar í gær. „Ég er í fínum málum um þessar mundir, er í fínu líkamlegu formi og miðað við árangur minn á Meist- aramóti Íslands á dögunum á ég að geta gert mikið, náð mikið betri þraut á HM en ég náði í Tallin á dögunum,“ sagði Jón Arnar. Þetta verður í sjöunda sinn sem Jón Arnar tekur þátt í HM innanhúss, þar af í fimmta skipti í sjöþraut en á fyrsta heimsmeistaramótinu sem hann tók þátt í árið 1995 var hann á meðal keppenda í langstökki. Jón hefur tvisvar sinnum unnið til verðlauna í sjöþraut á HM, árið 1997 vann hann brons í París og síðan silfurverðlaun í Lissabon árið 2001. Hann setti hins vegar Norðurlandamet sitt, 6.293 stig, á HM í Japan 1999 en það nægði honum samt aðeins til 5. sætis í sterkustu sjöþrautarkeppni sögunnar. Jón Arnar verður með á HM í Búdapest KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeildin, Intersportdeildin: Ásvellir: Haukar – Þór Þ. .....................19.15 Ísafjörður: KFÍ – Breiðablik................19.15 DHL-höllin: KR – Keflavík ..................19.15 Sauðárkrókur: Tindastóll – ÍR.............19.15 Stykkishólmur: Snæfell – UMFN .......19.15 Í KVÖLD KNATTSPYRNA Meistaradeild Evrópu 16-liða úrslit, fyrri leikir: Deportivo La Coruna - Juventus ........... 1:0 Alberto Luque 36. - 30.000. Porto - Manchester United..................... 2:1 Benni McCarthy 29., 78. - Quinton Fortune 14. Rautt spjald: Roy Keane (Man.Utd) 87. - 49.977. Real Sociedad - Lyon............................... 0:1 Gabriel Schurrer 18. (sjálfsm.) - 29.000. Stuttgart - Chelsea .................................. 0:1 Fernando Meira 12. (sjálfsm.) - 50.000. England 1. deild: Nottingham Forest - Gillingham............ 0:0 Staða neðstu liða: Crewe 32 11 7 14 40:44 40 Burnley 32 9 11 12 45:52 38 Rotherham 32 9 11 12 38:45 38 Walsall 32 9 10 13 35:43 37 Watford 32 9 10 13 35:44 37 Gillingham 31 10 7 14 33:45 37 Derby 32 8 10 14 35:52 34 Nottingham F. 32 7 11 14 38:42 32 Bradford 33 7 5 21 26:49 26 Wimbledon 31 5 3 23 28:61 18 Bikarkeppnin, 5. umferð: Birmingham - Sunderland ..................... 0:2 Tommy Smith 99., 115. - 25.645.  Eftir framlengingu. Sunderland mætir Sheffield United í 8-liða úrslitum. Holland Den Haag - Roda ...................................... 1:0 Breda - Groningen.................................... 1:1 Heerenveen - Ajax ................................... 4:1 Staða efstu liða: Ajax 22 18 1 3 52:22 55 PSV Eindhoven 22 15 4 3 58:19 49 Alkmaar 22 13 3 6 43:22 42 Feyenoord 22 11 6 5 40:31 39 Heerenveen 22 11 4 7 32:27 37 Roda 22 9 7 6 37:25 34 Willem II 22 9 7 6 33:31 34 Twente 22 10 2 10 38:35 32 Breda 22 8 6 8 36:33 30 Roosendaal 22 8 6 8 25:28 30 HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla ÍBV - Þór............................................... 43:21 Mörk ÍBV: Robert Bognar 7, Josef Böse 7, Sigurður A. Stefánsson 5, Björgvin Rún- arsson 5, Zoltán Belánýi 5, Guðfinnur Kristmannsson 4, Kári Kristjánsson 3, Michael Lauritsen 2, Erlingur Richardsson 2, Sindri Haraldsson 2, Sigurður Bragason 1. Mörk Þórs: Goran Gusic 7, Árni Sigtryggs- son 7, Bergþór Morthens 3, Þorvaldur Sig- urðsson 2, Sigurður Sigurðsson 1, Arnór Gunnarsson 1. Staðan: Selfoss 4 4 0 0 131:109 8 FH 4 3 0 1 125:110 6 ÍBV 3 2 1 0 99:71 5 Víkingur 4 2 1 1 120:97 5 Afturelding 5 1 0 4 123:139 2 Þór 4 1 0 3 97:141 2 Breiðablik 4 0 0 4 108:136 0 Þýskaland Nordhorn - Kronau/Östringen............ 36:30 Pfullingen - Magdeburg....................... 29:36 Kiel - Göppingen................................... 35:26 Wetzlar - Essen .................................... 22:25 Flensburg - Eisenach........................... 38:20 Staðan: Flensburg 21 17 2 2 684:550 36 Lemgo 21 16 2 3 701:589 34 Magdeburg 20 16 1 3 616:520 33 Kiel 21 15 2 4 655:557 32 Hamburg 22 16 0 6 621:555 32 Gummersb. 22 14 1 7 620:575 29 Essen 21 12 2 7 576:523 26 Nordhorn 20 10 2 8 599:574 22 Wallau 21 9 3 9 653:649 21 Grosswallst. 22 8 4 10 535:581 20 Wetzlar 22 8 3 11 550:603 19 Minden 22 8 0 14 579:641 16 Stralsunder 22 7 0 15 489:602 14 Wilhelmshav. 21 5 2 14 550:586 12 Göppingen 22 5 1 16 562:620 11 Pfullingen 22 4 2 16 576:650 10 Eisenach 22 4 2 16 566:678 10 Kr-Östringen 22 4 1 17 574:653 9 KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin Úrslit í fyrrinótt: Indiana - Golden State........................107:96 New Jersey - Toronto ...........................86:74 Atlanta - Philadelphia ...........................86:75 Portland - Orlando ................................94:91  Eftir framlengdan leik. Dallas - LA Clippers ...........................116:91 San Antonio - Houston..........................86:77 Minnesota - Milwaukee.....................108:102 Utah - Seattle.........................................99:86 Sacramento - New York .....................107:99 United byrjaði vel í gær, lék meðtvo frammi og náði að skora snemma leiks. En eftir það tóku heimamenn völdin og héldu þeim til loka leiksins. Ekki bættir úr skák fyrir meistara United að fyrirliðinn, Roy Keane, var rekinn af velli þegar skammt var til leiksloka og verður því í banni í síðari leiknum. Mark- vörður Porto varð á undan honum í boltann inni í teig, renndi sér í hann og greip boltann en Keane stökk upp og steig ofan á markvörðinn í stað þess að stökkva yfir hann. Fyrir þetta fékk þessi leikreyndi leikmað- ur rautt spjald. Leikmenn United áttu erfitt upp- dráttar í gær, vörnin var óörugg ef undan eru skildar fyrstu mínútur leiksins þegar hún virtist ætla að leika vel. En þegar heimamenn höfðu náð sér eftir fyrstu mínúturn- ar jókst hraði þeirra og tækni á þann veg að vörn United átti í miklum erf- iðleikum. Benni McCarthy var hetja Porto, skoraði tvívegis og átti mjög góðan leik. Bæði mörk McCarthy voru fal- leg, sérstaklega síðara markið þar sem hann skallaði fast í slána og inn. Quinton Fortune gerði mark United. „Það sem Benni gerði var frábært. Hann átti mjög góðan leik en þetta var sigur liðsheildarinnar og ég hlakka til síðari leiksins því við ætl- um að leika jafn vel í Manchester,“ sagði Jose Marinho, þjálfari Porto, alsæll í leikslok. Alex Ferguson var hins vegar ekki eins kátur. „Ég er svekktur vegna þess að við byrjuðum svo vel. En svo gerðist eitthvað, menn urðu óþolin- móðir og þegar við höfðum boltan töpuðum við honum allt of fljótt. Á útivelli verða menn að sýna þolin- mæði þegar þeir eru með boltann og halda honum. En það er mikið eftir enn í þessari viðureign, þetta var fyrri hálfleikur, og við gerðum mark á útivelli. Ég er ekki í vafa um að við getum komist áfram og það ætlum við okkur,“ sagði Ferguson. Deportivo með tak á Juve Á Spáni skoraði Albert Luque eina mark leiksins á 37. mínútu og tryggði Deportivo sigur á Juventus. Markið var fallegt því Luque tók boltann á lofti og sendi hann í netið. Greinilegt að spánski landsliðsmað- urinn ætlaði að sýna að hann væri verðugur þess að vera í liðinu, en á mánudaginn strunsaði hann út af æf- ingu hjá félaginu eftir deilur við Jav- ier Irureta þjálfara. Svo virðist sem Deportivo hafi ákveðið tak á Juve því liðin hafa mæst sjö sinnum síðustu fjögur árin og Juve hefur aðeins einu sinni sigrað. Að þessu sinni réðu heimamenn lögum og lofum í leikn- um og gestirnir fengu ekki mörg tækifæri. Lyon í góðum málum Það ríkti ekki jafn mikil hamingja meðal heimamanna á hinum leiknum sem fram fór á Spáni, en þar gerði franska liðið Lyon sér lítið fyrir og lagði heimamenn í Real Sociedad með sjálfsmarki argentínska varnar- mannsins Gabi Schurrer á 18. mín. Frakkarnir standa því vel að vígi fyrir síðari leikinn og eiga það skilið því þeir bundu enda á 26 leikja sig- urgöngu Sociedad á heimavelli í Evr- ópukeppninni, en liðið hafði ekki tap- að heima í Evrópukeppni síðan 1975. Xabi Alonso, fyrirliði Sociedad, sagði eftir leikinn að úrslitin þýddu aðeins eitt. „Við höfum aðeins um eitt að velja í Frakklandi eftir hálfan mánuð, við verðum að sækja. Það er enginn annar möguleiki í stöðunni en að sækja og sigra því við ætlum okk- ur áfram,“ sagði fyrirliðinn. Erfitt hjá United eftir tap í Porto Reuters Benni McCarthy frá Suður-Afríku fagnar fyrra marki sínu gegn Manchester United í gær. ÞAÐ er alveg ljóst eftir fyrri leik Manchester United og Porto í Portúgal í Meistaradeildinni í gærkvöldi, þar sem heimamenn höfðu betur 2:1, að síðari leik- urinn verður United erfiður. Tveir leikir voru á Spáni, Deportivo lagði Juventus og Lyon gerði sér lítið fyrir og vann Real Sociedad, 1:0. Sunderland fór áfram SUNDERLAND komst í gærkvöld í átta liða úrslit ensku bikarkeppn- innar í knattspyrnu með því að sigra úrvalsdeildarlið Birmingham, 2:0, á útivelli. Bæði mörkin voru skoruð í framlengingu og varamað- urinn Tommy Smith var á ferðinni í bæði skiptin. Með þessum úrslit- um er ljóst að tvö lið utan úrvalsdeildar komast í undanúrslit keppn- innar því Sunderland mætir öðru liði úr 1. deild, Sheffield United, í átta liða úrslitunum og Millwall mætir Tranmere. Um leið varð Paul Peschisolido, sóknarmanni Sheffield United, að ósk sinni því hann vildi helst forðast að mæta Birmingham þar sem eiginkona hans, Kar- en Brady, er þar í áberandi starfi sem framkvæmdastjóri.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.