Morgunblaðið - 26.02.2004, Síða 59
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 59
ÍSLAND hefur hækkað sig um tvö
sæti á styrkleikalista evrópskra
félagsliða karla í handknattleik
fyrir tímabilið 2004-2005 sem gef-
inn var út í vikunni. Ísland er í
22. sæti en var í 24. sæti fyrir yf-
irstandandi keppnistímabil.
Góð frammistaða Hauka í vetur
hækkar Ísland á listanum en þeir
komust í riðlakeppni Meist-
aradeildar Evrópu og síðan áfram
í Evrópukeppni bikarhafa eftir
það. HK komst ennfremur í gegn-
um eina umferð í Evrópukeppni
bikarhafa.
Ísland á möguleika á sama
fjölda liða í Evrópumótunum
næsta vetur. Einu í forkeppni
Meistaradeildar Evrópu, einu í
EHF-bikarinn, einu í Evrópu-
keppni bikarhafa og tveimur í
Áskorendabikarinn.
Spánverjar hafa náð efsta sæt-
inu úr höndum Þjóðverja en báð-
ar þjóðirnar fá að senda þrjú lið í
meistaradeildina. Í næstu sætum
eru Ungverjar, Slóvenar, Króatar
og Danir, eins og á síðasta ári, en
þessar þjóðir mega senda tvö lið
hvert í meistaradeildina.
Frakkar fara úr 10. sætinu upp
í það sjöunda og síðan er röðin
þessi: 8. Serbía, 9. Rússland, 10.
Noregur, 11, Svíþjóð, 12. Portú-
gal, 13. Makedónía, 14. Pólland,
15. Sviss, 16. Ítalía, 17. Rúmenía,
18. Úkraína, 19. Grikkland, 20.
Tyrkland, 21. Austurríki, 22. Ís-
land. Alls eru 46 þjóðir á listan-
um.
Ísland í 22. sæti á Evrópu-
lista félagsliða í handbolta
CIUDAD Real náði á ný fimm
stiga forystu í spænsku 1.
deildinni í handknattleik í
gærkvöld með því að sigra
botnliðið Pilotes Posada á
heimavelli, 30:22. Staðan var
18:12 í hálfleik og leikmenn
Ciudad tóku lífinu með ró eftir
það. Ólafur Stefánsson hafði
sig ekki mikið í frammi og
skoraði tvö mörk fyrir Ciudad
en markahæstir voru Egypt-
inn Hussein Zaky með 7 mörk
og Slóveninn Ales Pajovic með
5 mörk.
Ciudad Real er með 34 stig
en síðan koma Barcelona,
Ademar Leon og Portland
með 29 stig hvert og á etir
þeim eru Valladolid og Altea
með 25 stig.
Auðvelt hjá
Ciudad Real
RÓBERT Gunnarsson, landsliðs-
maður í handknattleik, skoraði 9
mörk fyrir Århus GF og Þorvarður
Tjörvi Ólafsson tvö gegn AaB í
dönsku úrvalsdeildinni í gærkvöld.
Lið þeirra beið þó lægri hlut á
heimavelli, 32:34, en siglir lygnan
sjó í níunda sæti deildarinnar.
GÍSLI Kristjánsson og félagar í
Fredericia náðu óvæntu jafntefli,
26:26, gegn toppliðinu Kolding og
skoraði Gísli 3 mörk í leiknum.
Fredericia er í 7. sæti dönsku úr-
valsdeildarinnar.
RÓBERT Hlöðversson, leikmaður
Stjörnunnar í blaki karla, mun taka
út eins leiks bann þegar Stjarnan
mætir ÍS á laugardaginn. Róbert
var rekinn af velli í leik Stjörnunnar
og HK í síðustu viku.
BRYNJAR Björn Gunnarsson lék
fyrri hálfleikinn með Nottingham
Forest sem gerði markalaust jafn-
tefli við Gillingham á heimavelli í
ensku 1. deildinni í knattspyrnu í
gærkvöld. Forest er þar með áfram
í fallsæti deildarinnar.
JÓHANNES Harðarson sat á
varamannabekk Groningen allan
tímann þegar lið hans gerði jafn-
tefli, 1:1, við Breda á útivelli í hol-
lensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu
í gærkvöld.
PABLO Cavallero, markvörður
spænska knattspyrnuliðsins Celta
Vigo, gekkst undir aðgerð á nefi í
gær. Cavallero nefbrotnaði í
árekstri við Edu, leikmann Arsenal,
í leik liðanna í Meistaradeild Evr-
ópu í fyrrakvöld, í sömu andrá og
Edu skoraði fyrsta mark leiksins.
Gert var fjögurra mínútna hlé á
leiknum til að gera að sárum mark-
varðarins en Cavallero sýndi af sér
mikla hörku og spilaði leikinn á
enda.
GRIT Jurack frá Þýskalandi er
orðin langdýrasta handknattleiks-
kona heims. Viborg í Danmörku
hefur fest kaup á henni frá Leipzig
fyrir 18,5 milljónir íslenskra króna.
FÓLK
MAGDEBURG vann góðan úti-
sigur á Pfullingen, 36:29, í þýsku
1. deildinni í handknattleik í gær-
kvöld. Lærisveinar Alfreðs Gísla-
sonar sækja því áfram að efstu
liðunum, Flensburg og Lemgo, og
hafa tapað næstfæstum stigum
allra liða í deildinni. Sigfús Sig-
urðsson skoraði 6 mörk fyrir
Magdeburg en hinn pólski Grzeg-
orz Tkaczyk gerði 11 af mörkum
liðsins.
Essen vann Wetzlar, 25:22, á
útivelli í Íslendingaslag og styrkti
stöðu sína í 7. sæti deildarinnar.
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði
4 mörk fyrir Essen en Róbert
Sighvatsson gerði 3 mörk fyrir
Wetzlar og Gunnar Berg Vikt-
orsson 2.
Jaliesky Garcia var marka-
hæstur hjá Göppingen sem sótti
Kiel heim. Garcia skoraði 7 mörk
en þau dugðu skammt því Kiel
vann öruggan sigur, 35:26. Johan
Pettersson skoraði 12 mörk fyrir
Kiel.
Guðmundur Hrafnkelsson og
félagar í Kronau-Östringen töp-
uðu, 36:30, í Nordhorn og sitja
áfram á botni deildarinnar. Kron-
au hafði yfirhöndina lengi vel en
gaf eftir þegar leið á leikinn. Jan
Filip skoraði 8 mörk fyrir Nord-
horn.
Sören Stryger skoraði 11
mörk fyrir topplið Flensburg sem
burstaði Eisenach, 38:20. Flens-
burg náði um tíma 20 marka for-
ystu í leiknum.
Sigfús
með sex
mörk í
Pfullingen
Það má segja að Chelseamenn hafiverið stálheppnir í gærkvöldi
því heimamenn sóttu mun meira og
fengu nokkur ákjósanleg færi í fyrri
hálfleik á meðan gestirnir áttu í mikl-
um erfiðleikum og komust vart fram
fyrir miðju. Eiður Smári fékk reynd-
ar dauðafæri á 31. mínútu en skaut
hátt yfir einn á móti markverði.
Hann lék með ágætum í fyrri hálf-
leiknum.
Chelsea átti líka sókn á 12. mínútu
þegar Glen Johnson átti fína send-
ingu frá hægri kanti fyrir markið.
Varnarmaðurinn Fernando Meira
var fyrir framan Hernan Crespo,
teygði sig í knöttinn og það tókst ekki
betur til en svo að hann sendi boltann
í bláhornið.
„Við byrjuðum illa, strákarnir virt-
ust taugaveiklaðir og við lékum
hreinlega illa,“ sagði Claudio Ranieri
stjóri Chelsea. Samkvæmt tölfræði
leiksins átti Chelsea ekki eitt einasta
skot sem hitti á mark mótherjanna.
Heimamenn fengu hins vegar nokk-
ur færi en tókst ekki að skora. „Við
börðumst eins og við gátum en því
miður dugði það ekki til,“ sagði Kevin
Kuranyi, sóknarmaður Stuttgart.
Það sem vantaði hjá Stuttgart er
nákvæmlega það sama og hefur vant-
að hjá liðinu í deildinni, að skora
mörk og telja margir að ef liðinu
hefði gengið betur upp við markið í
vetur væri það með betri stöðu en
raun ber vitni, en liðið er sem stendur
í þriðja sæti og hefur aðeins gert 27
mörk.
„Við lékum vel en það vantaði að
skora eins og svo oft áður hjá okkur í
vetur. Ljósið í myrkrinu er að
Chelsea hefur leikið verr á heimavelli
í vetur en útivelli þannig að við telj-
um okkur enn eiga möguleika,“ sagði
Felix Magath, þjálfari Stuttgart.
Reuters
Silvio Meissner, leikmaður Stuttgart, og Eiður Smári Guðjohn-
sen eigast við í leik liðanna í Meistaradeildinni í gærkvöldi.
Frábær úrslit
fyrir Chelsea
CHELSEA náði frábærum úrslitum í Meistaradeildinni í gærkvöldi
þegar liðið heimsótti Stuttgart í Þýskalandi og sigraði, 1:0. Eiður
Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Chelsea og átti ágætan leik en
honum var skipt út af fyrir Jimmy Floyd Hasselbaink á 76. mínútu.
Leikmenn Chelsea mæta því með góða stöðu í síðari leikinn eftir
tvær vikur.
Þetta er nánast frágengið og égfer til La Manga til að sýna að
ég sé með tvo fætur og í góðri æf-
ingu. Samningurinn er tilbúinn og ég
reikna með því að það verði skrifað
undir hann mjög fljótlega. Það á
reyndar eftir að greiða úr málum
gagnvart KR, ég var búinn að skrifa
undir samning við KR-inga en ekki
undir KSÍ-samning, þannig að það
þarf að finna lausn á því. En ég held
að það verði allt gert á góðum nótum,
enda hef ég átt hreint frábæran tíma
í KR undanfarin tvö ár,“ sagði Veig-
ar Páll við Morgunblaðið í gær. Sta-
bæk hefur einnig samið við danska
miðjumanninn Mads Jörgensen sem
kemur frá Ancona á Ítalíu og félagið
ætlar sér stóra hluti á komandi tíma-
bili. Liðið varð í þriðja sæti úrvals-
deildarinnar í fyrra, leikur í UEFA-
bikarnum í ár og í nýju Norður-
landadeildinni sem hleypt verður af
stokkunum næsta vetur.
„Þetta er eitt af þremur bestu lið-
um Noregs og spilar mjög skemmti-
legan fótbolta, ekki þessa dæmi-
gerðu norsku knattspyrnu, og
íslensku leikmennirnir sem hafa spil-
að með Stabæk bera félaginu mjög
vel söguna,“ sagði Veigar.
Hann lék með Strömsgodset í
norsku úrvalsdeildinni árið 2001 en
hafði fram að því spilað með Stjörn-
unni. Veigar hefur orðið meistari
með KR undanfarin tvö ár, hefur
leikið lykilhlutverk hjá Vesturbæjar-
liðinu og skoraði 14 mörk í 30 deilda-
leikjum. Hann á fimm A-landsleiki
að baki, þrjá þeirra á síðasta ári.
Veigar Páll fer til Stabæk
VEIGAR Páll Gunnarsson, landsliðsmaður í knattspyrnu úr KR,
gengur að öllu óbreyttu frá þriggja ára samningi við norska félagið
Stabæk í næstu viku. Veigar Páll hefur komist að samkomulagi við
Norðmennina og fer til móts við liðið á laugardag en það dvelur í
æfingabúðum á La Manga á Spáni.