Morgunblaðið - 26.02.2004, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2004 63
Charlize Theron:
Golden Globe verðlaun fyrir
besta leik í aðalhlutverki
Tilnefnd til Óskarsverðlauna
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 16.
MIÐAVERÐKR. 500.
www.laugarasbio.is
Kvikmyndir.com
HJ MBL
ÓHT Rás2
Kl. 8 og 10.15. B.i. 14.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Frábær
gamanmynd
frá höfundi
Meet the
Parents
f f i
t t
t
Sýnd kl. 6 Íslenskt tal.
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Tilnefningar til
óskarsverðlauna
Besta leikkona í aðalhlutverki
Besti leikari í aukahlutverki
21
GRAMM
www .regnboginn.is
Sýnd kl. 5.30 og 10.30. B.i. 16.
2
HJ Mbl.
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
ÓHT Rás2
„Dýrmætt
hnossgæti“
EPÓ Kvikmyndir.com
Tilnefningar til
óskarsverðlauna
Besta mynd, besti leikstjóri, besta
handrit og besti leikari í aðalhlutverki
4
BILL MURRAY SCARLETT JOHANSSON
Allir þurfa félagsskap
SV MBL
Fréttablaðið
ÓHT Rás 2
SV Mbl.l
Kvikmyndir.com
ÓHT Rás2
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16 ára.
H A L L E B E R R Y
JÁ, ÞAÐ verður æsispennandi að
fylgjast með spurningakeppninni
Gettu betur í kvöld í sjónvarpinu,
þar sem lið Menntaskólans í Hamra-
hlíð mætir liði Menntaskólans í
Reykjavík. Einn af liðsmönnum
MR-liðsins, Atli Freyr Steinþórsson,
segist ekki vilja kalla skólann sinn
annað en Latínuskólann og að þar
verði stunduð fornfræði og málvís-
indi. Atli Freyr er ekki alveg hlut-
laus í því að stefna að þessari breyt-
ingu, þar sem hann er í
fornmáladeild og nemur latínu og er
mikill aðdáandi hennar. „En ég og
fleiri viljum þetta líka út af því að
skólinn hefur fengið á sig orð fyrir
að vera stærðfræðiskóli og þeim
misskilningi viljum við eyða.“ Ann-
ars segir Atli Freyr að hann og hinir
tveir félagar hans sem mynda
keppnisliðið, þeir Oddur Ástráðsson
og Snæbjörn Guðmundsson, séu
mjög slakir fyrir keppnina, enda eru
þeir að keppa saman í þriðja sinn í
röð í Gettu betur og því sjóaðir í
bransanum. „Við höfum eiginlega
runnið saman í eina spurningasál og
þekkjumst orðið ansi vel. En við er-
um ekkert endilega vissir um að
vinna þótt Latínuskólinn hafi unnið
mörg ár í röð. Við gerum bara okkar
besta og höfum gaman af þessu með-
an á því stendur.“ Þeir þremenning-
arnir fóru strax að undirbúa sig í
haust þegar skólinn byrjaði og hitt-
ust þá einu sinni í viku. „En það
þéttist þegar nær dregur,“ segir Atli
Freyr og vill ekki gangast við því að
Latínuskólinn sé karlrembuskóli í
ljósi þess að aðeins einu sinni hafi
skólinn skartað kvenkyns veru í
keppnisliðinu. „Við höfum einmitt
hvatt stelpurnar til að taka þátt í
forprófinu sem alltaf er haldið til að
velja í liðið, en ég hef enga skýringu
á hógværð þeirra.“ Þeir félagarnir
hafa lagt áherslu á slökun á keppn-
isdaginn. „Eiginlega er það orðin
hefð hjá okkur að fara í sund og gufu
og fá okkur bakkelsi á eftir, áður en
við förum í upptöku. Við ætlum okk-
ur ekki að láta það klikka í dag frek-
ar en hin tvö árin á undan.“
Skiptir máli að líða vel
Krakkarnir sem skipa lið Mennta-
skólans í Hamrahlíð, þau María
Helga Guðmundsdóttir, Andri Eg-
ilsson og Jónas Örn Helgason, segj-
ast hvorki vera með hnút í maga né
þandar taugar, þótt þau séu að fara
að takast á við sigurvegara til ellefu
ára í keppninni. „Reyndar er mjög
gott að fá að takast á við MR því þá
er ekki ætlast til eins mikils af okk-
ur. Það er minni skandall að tapa
fyrir þeim en einhverjum öðrum. En
við stefnum auðvitað að sigri, engin
spurning,“ segir Andri, sem er
fulltrúi liðsins. „Við erum líka svo
heppin að keppa núna einmitt þegar
þemadagarnir eru í skólanum hjá
okkur og kallast Lagningardagar.
Þá er engin kennsla, mikið um lif-
andi tónlist og alls konar fræðslu og
fyrirlestra og stemningin í skólanum
mjög notaleg. Þá erum við slök og
ekkert lærdómsálag, sem skiptir
miklu máli. Og svo er árshátíðin líka
til að hlakka til daginn eftir keppni.“
Andri segir það skemmtilega til-
viljun að MH hafi líka keppt í fyrra í
Gettu betur á miðjum Lagning-
ardögum en þá unnu þau Versló, svo
allt eykur þetta trú þeirra á vel-
gengni.
Stelpurnar í MH hafa verið
ófeimnar við að taka þátt í keppninni
og Andri segist stoltur af því að síð-
astliðin fjögur ár hafi liðið þeirra æv-
inlega skartað stelpu. „Þetta snýst
líka um fjölbreytni því stelpurnar
vita sumt betur en strákar. Og auð-
vitað gefur stelpa liðinu ákveðinn lit.
Það er svo einhæft að hafa bara
stráka í þessu.“ Andri segir þau
þríeykið taka upptökustundinni sem
nálgast eins og þegar þau fara í próf.
„Við lesum ekkert á keppnisdaginn,
heldur slökum á, því það snýst ekki
síst um að vera vel stemmdur, hvíld-
ur og líða almennt vel. Ef við erum
of stressuð getur verið erfitt að kalla
fram það sem við vitum, og það er
svo svekkjandi,“ segir Andri og bæt-
ir við að þau ætli í sund og elda góð-
an mat á keppnisdaginn.
Bæði liðin segja það skipta öllu
máli að hafa góðan stuðning úr saln-
um og treysta á sitt fólk í þeim efn-
um.
Latínuskólinn (MR) og Hamrahlíðin (MH) mætast í kvöld í Gettu betur
Stelpur vita ýmislegt
sem strákar vita ekki
Morgunblaðið/Jim Smart
Lið Menntaskólans í Reykjavík/Latínuskólans: Oddur Ástráðsson, Snæ-
björn Guðmundsson og Atli Freyr Steinþórsson.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Lið Menntaskólans við Hamrahlíð: Andri Egilsson, María Helga Guð-
mundsdóttir og Jónas Örn Helgason.
Gettu betur er í kvöld í Sjónvarpi
allra landsmanna kl. 20:10.
khk@mbl.is
ARI Í ÖGRI: Dúettinn Acoustics
föstudag og laugardag.
ÁSGARÐUR, Glæsibæ: Harmon-
ikufélag Reykjavíkur heldur dansleik
laugardag kl. 22. Fjórar hljómsveitir
leika fyrir dansi. Ragnheiður Hauks-
dóttir syngur. Fjölbreytt dansmúsik.
Dansleikur kl. 8.00–23.30. Caprí-tríó
leikur fyrir dansi sunnudag.
ÁSLÁKUR, Mosfellsbæ: Trúbador-
inn Óskar Einarsson ásamt dóttur
sinni laugardag.
BROADWAY: Shockwave-kvöld.
Cassius Henry, Ryans Hope, The
T.H.A.D. og Mpho Skeef frá London
laugardag kl. 23. Opee og Igor frá Ís-
landi.
BÚÁLFURINN, Hólagarði, Breið-
holti: Hinn síungi Logamaður Her-
mann Ingi föstudag og laugardag.
CAFE ROSENBERG: „Hilmar“
kynnir nýjan disk fimmtudag,
Lifandi Django-djass föstudag, Snæ-
fríður og stubbarnir laugardag kl. 23
til 3.
CAFÉ 22: Afmælishátíð. Óraf-
mögnuðu helgi. Rúnar GK Ludwig
o.fl. fimmtudag Dj Matti-X föstudag.
Dj Biggi og Palli Maus á efri hæðinni
laugardag. The Moody Company
sunnudag.
CAFÉ AMSTERDAM: Skemmtidú-
ettinn Buff fimmtudag kl. 22:30 til 3.
Rokksveitin Buff leikur föstudag
ásamt Einari úr Dúndurfréttum.
Hljómsveitin Sixties laugardag.
CAFÉ ROSENBERG: Django á
Café Rosenberg föstudag kl. 23 til 3.
Lifandi Django-djass.
CATALINA, Hamraborg 11,
Kópavogi: Rúnar Guðmundsson
föstudag og laugardag.
CELTIC CROSS: Hljómsveitin 3-
Some heldur uppi stuðinu á neðri
hæðinni föstudag og laugardag.
DÁTINN, Akureyri: Dj Andri í
búrinu fimmtudagskvöld kl. 22. MTV-
tónlist á öllum tjöldum.
DUBLINER: Tríóið Fíklarnir
föstudag og laugardag.
FELIX: Atli skemmtanalögga
föstudag og laugardag.
GAUKUR Á STÖNG: Tónleikar
með 200.000 naglbítum fimmtudag kl.
21. Sixties heldur uppi stuðinnu
ásamt DJ Rikka föstudag. Á móti sól
laugardag. Tónleikar með Dúndurf-
réttum, bestu lög Pink Floyd og Led
Zeppelin miðvikudagskvöld kl. 21.
GLAUMBAR: Gunnar Óla og Einar
Ágúst til kl. 23, Dj Bjarki eftir það
fimmtudag, Dj Þór Bæring föstudag
og laugardag.
GRANDROKK: Dr. Gunni og
Saktmóðigur fimmtudagskvöld kl. 22.
Pub-Quiz kl. 17. 30, Heiða og Heið-
ingjarnir, Post Mortem kl. 23 föstu-
dag. Singapore Sling laugardag kl.
23.
GULLÖLDIN, Stuðsveit Ásgeirs
Páls föstudag og laugardag.
HITT HÚSIÐ: Hljómsveitin Nec-
ropoliz ásamt Brothers Majere, And-
lát og Still Not Fallen troða upp
fimmtudagskvöld kl. 20 á Fimmtu-
dagsforleik í kvöld.
HÓTEL BORG: Angurgapi, HOD,
Refleks, fimmtudag kl. 20 í tónleika-
röð undir yfirskriftinni UNG Jazz í
Reykjavík. Jogujo circuit, B3 Tríó,
Rodent föstudag kl. 20 í tónleikaröð
undir yfirskriftinni UNG Jazz í
Reykjavík.
Hljómsveitin Stefnumót með Ruth
Reginalds og André Bachmann föstu-
dag kl. 22 til 1. Stórsveit Reykjavíkur
leikur Dizzy Gillespie laugardag kl.
15.
HÓTEL ÖRK: Hljómsveitin Papar
laugardag.
HVERFISBARINN: Ferdinand
leikur fimmtudag kl. 22:30. Bítlarnir
fimmtudag. Dj Valdi föstudag og
laugardag.
KAFFI LIST: Tríó Gregs Hopkins
fimmtudag. Djasskvartettinn Kompa
laugardag.
KAFFI STRÆTÓ: Njalli í Holti
föstudag. Tú og ég laugardag.
KLÚBBURINN VIÐ GULL-
INBRÚ: Í svörtum fötum laugardag.
KRINGLUKRÁIN: Rokksveit Rún-
ars Júlíussonar föstudag og laugar-
dag kl. 23.
LEIKHÚSKJALLARINN: 80’s-
dansveisla föstudag. Gullfoss og
Geysir laugardag.
NASA VIÐ AUSTURVÖLL:
Hljómsveitinn Straumar og Stefán
Hilmarsson föstudag og laugardag kl.
23.
NELLY’S CAFÉ: Hlynur með gít-
arinn fimmtudagskvöld, Jón Gestur í
búrinu, á sunnudag verður Nelly’s-
bingó, á þriðjudaginn verður Bjarni
Tryggva.
ODD-VITINN, Akureyri: Hljóm-
sveitin Douglas Wilson laugardag.
PADDY’S, Keflavík: South River
Band fimmtudag kl. 22.
PLAYERS-SPORT BAR, Kópa-
vogi: Milljónamæringarnir, Bogomil
Font og Páll Óskar föstudag. Geir-
mundur laugardag.
RAUÐA LJÓNIÐ: Blátt áfram um
helgina.
SJALLINN, Akureyri: Hljómsveit-
in Von, Dj Leibbi á Dátanum laug-
ardag kl. 00.
SJALLINN – DÁTINN: Hvann-
dalsbræður, Skytturnar, Dr. Gunni,
Dj Leibbi föstudag kl. 22.
SNÚLLABAR, Hveragerði: Feðg-
arnir föstudag. Hraun laugardag.
SPORTBARINN, Sauðárkróki:
Gunnar Óla og Einar Ágúst laugar-
dag.
STÚDENTAKJALLARINN: Fær-
eyska söngdívan Eivör Pálsdóttir
með tónleika föstudag kl. 21:30 í boði
FS. Aðgangur ókeypis. Djassbandið
Angurgapi með tónleika laugardag.
SYSTRAKAFFI, Kirkjubæjar-
klaustri: Hermann Ingi jr. laugardag.
FráAtilÖ
Morgunblaðið/Árni Torfason
200.000 naglbítar verða á Gauknum
í kvöld, fimmtudagskvöld.