Morgunblaðið - 04.03.2004, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 04.03.2004, Qupperneq 1
Reuters Kerry var vel fagnað í Orlando á Flórída í gær og fékk hann meðal annars að hampa einum framtíðarkjósanda, sex mánaða gamalli stúlku. JOHN Kerry, öldungadeildarþingmaður og fram- bjóðandi demókrata í forsetakosningunum í Banda- ríkjunum í haust, hóf í gær kosningbaráttuna með táknrænni heimsókn í Flórída, þar sem gert var út um sigurvonir demókrata fyrir fjórum árum. Kerry vann stórsigur í forkosningum demókrata í fyrradag, sigraði í níu ríkjum af 10, og varð það til þess, að eini keppinautur hans, öldungadeildarþing- maðurinn John Edwards, ákvað að leggja árar í bát. Virðast demókratar ganga sameinaðir til kosn- ingabaráttunnar en Kerry sagði í gær, að leiðin framundan yrði torsótt. „Við þekkjum öll áróðursaðferðir repúblikana og vitum hvað þeir hafa gert og hvað þeir munu reyna að gera. Boðskapur okkar til þjóðarinnar er hins vegar skýr: Það er breyting í aðsigi í Bandaríkj- unum,“ sagði Kerry í gær á fundi með stuðnings- mönnum sínum. Repúblikanar og George W. Bush forseti eru einnig komnir á fullt í kosningabaráttunni og dag munu þeir hleypa af stokkunum tveggja mánaða áróðursherferð í sjónvarpi. Verður henni sérstak- lega beint að þeim 17 ríkjum þar sem baráttan er líklegust til að verða hvað jöfnust. Hugað að varaforsetaefni Búist er við, að Kerry muni nú snúa sér að því að velja sér varaforsetaefni en margir telja, að John Edwards komi þar sterklega til greina. Fór Kerry mjög lofsamlegum orðum um hann í fyrradag og Edwards galt í sömu mynt með því að kalla Kerry vin sinn. Annað meginverkefni demókrata á næstunni verður að afla meira fjár til kosningabaráttunnar en repúblikanar ráða nú þegar yfir 140 milljónum doll- ara, 9,8 milljörðum ísl. kr. Kerry byrjar bar- áttuna á Flórída Segir breytingu í aðsigi í Bandaríkjunum Washington. AP, AFP.  Bush blæs/31 STOFNAÐ 1913 63. TBL. 92. ÁRG. FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Rautt er liturinn Rauði liturinn er áberandi í brúðkaupum í ár | Daglegt líf Viðskipti | Tækifæri fyrir flugfélög og farþega Aukin upplýsingagjöf bætir stjórnunarhætti Snýst ekki bara um peninga Úr verinu | Fjárfest í föstum rótum Sala á saltfiski í fullum gangi Háannatími í hrognunum Viðskipti og Úr verinu í dag „ÞETTA er skelfilegt ástand. Ég veit ekki hvað við höldum þetta út lengi,“ segir Gyða Kristinsdóttir sjúkraliði en hún hefur starfað við heimahjúkrun í 28 ár. Gyða var í vitjun í gær ásamt Maríu Teresu Jónsson hjúkrunarfræðingi sem hefur starfað við heimahjúkrun í 25 ár, þegar ljósmyndara Morg- unblaðsins bar að garði. Gyða segist aldrei hafa kynnst öðru eins álagi og nú, þrátt fyrir að hafa einna lengstan starfsaldur þeirra sem starfa við heima- hjúkrun. Hún segir starfsfólk að- eins hafa tök á að sinna allra brýn- ustu verkefnunum, annað verði einfaldlega að bíða. Allir, bæði starfsfólk og aðstandendur, reyni að leggjast á eitt til að leysa sem best úr vandanum sem skapast hefur vegna deilu við Heilsugæsl- una í Reykjavík um aksturssamn- inga starfsfólks sem varð til þess að um helmingur starfsfólks í heimahjúkrun hætti störfum. Hún segir þær sem starfa við heima- hjúkrun bæði sárar og reiðar yfir ummælum forstjóra Heilsugæsl- unnar í Reykjavík, Guðmundar Einarssonar, í hádegisfréttum Út- varpsins í gær og kveðst telja að með þeim hafi hann sakað starfs- fólk hreint og beint um þjófnað. Gyða segir deiluna hafa mikil áhrif á skjólstæðinga heimahjúkr- unar. „Skjólstæðingar eru áhyggjufullir því þeir vita aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Þetta fólk hefur miklar áhyggjur af því að það séu ekki vanar manneskjur sem sinna þeim. Við reynum að redda einum degi í einu. Ég vona bara að þessi deila leysist sem allra fyrst því þetta ástand getur ekki varað mikið lengur að mínu mati,“ segir Gyða. /4 „Veit ekki hvað við höldum þetta út lengi“ Morgunblaðið/Sverrir María Theresa Jónsson og Gyða Kristinsdóttir hlúa að Láru Magnúsdóttur á heimili hennar við Sléttuveg. Þriðja kyn- slóð farsíma fyrir þingið SÍÐAR í þessum mánuði verður lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um þriðju kynslóð farsíma. Ísland er talsvert á eftir flestum löndum Vest- ur-Evrópu í þessu efni og virðist sem lítill þrýstingur sé á það af hálfu ís- lensku símafyrirtækjanna og við- skiptavina þeirra að greiða fyrir þessari tækni. Frumvarp um þriðju kynslóð far- síma var lagt fyrir Alþingi í fyrra en var ekki afgreitt. Í því var gert ráð fyrir að úthluta mætti leyfum til að reka þriðjukynslóðarkerfi með „feg- urðarsamkeppni“ en þá verða þau fyrirtæki hlutskörpust sem hyggjast bjóða upp á mesta og hraðasta út- breiðslu farsímanetsins, bestu þjón- ustu o.s.frv. Gert var ráð fyrir föstu tíðnigjaldi. Karl Alvarsson, lögfræðingur í samgönguráðuneytinu, segir að nú sé verið að leggja lokahönd á nýja út- gáfu frumvarpsins. Ekki verði stór- vægilegar breytingar en þó nokkrar frá fyrra frumvarpi. Hann segir enn gert ráð fyrir útboði á grundvelli feg- urðarsamkeppni.  Símafyrirtækin/C4 BRESKT herlið verður að vera í Írak „í tvö ár að minnsta kosti og líklega lengur“ vegna upplausnarinnar í landinu eins og hryðjuverkin í Karbala og Bagdad eru til marks um. Kom þetta fram í gær hjá Jer- emy Greenstock, fulltrúa bresku stjórnar- innar í Írak. Paul Bremer, ráðsmaður Bandaríkjanna í Írak, sagði í gær, að gæsla á landamærum Íraks yrði stóraukin. Greenstock sagði í viðtali við BBC, breska ríkisútvarpið, að mikil ögurstund væri runnin upp fyrir Írökum, sem nú yrðu að sameinast gegn ofbeldisöflunum. Sagði hann, að þeir, sem vildu koma í veg fyrir uppbyggingu nýs Íraks, ætluðu sér „að herða á ofbeldinu“ þá mánuði, sem enn væru til formlegra valdaskipta í landinu. Greenstock sagði, að breska herliðið yrði áfram í Írak eftir valdatöku íraskrar bráða- birgðastjórnar á miðju sumri og spáði því, að það yrði þar enn næstu tvö árin og hugs- anlega lengur. Sagði hann, að í því yrði þó fækkað eftir því sem Írakar sjálfir næðu betri tökum á ástandinu. Landamæra- vörðum fjölgað Bremer sagði í gær, að 60 millj. dollara, 4,2 milljörðum ísl. kr., yrði varið til að efla gæslu á landamærunum og landamæra- vörðum fjölgað um helming sums staðar. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði í gær á þingi í umræðum um hryðju- verkin í Írak, að þangað „streymdu nú hryðjuverkamenn alls staðar að frá Mið- Austurlöndum“. Breskt herlið í Írak nokk- ur ár enn Gæsla á landamærum Íraks verður stóraukin London. AFP.  Ódæðum ætlað/16 Vilja flytja vatn úr landi út í Flatey FRAMFARAFÉLAG Flateyjar á Breiðafirði er að skoða möguleika á því hvernig megi flytja ferskt vatn til eyjarinnar. Er til skoðunar að leggja plastlögn 20 km leið frá Skálmarnesi í Reykhólahreppi, en slík framkvæmd er talin myndi kosta um 5–6 milljónir og gefa tvö tonn af vatni á klukkustund. Kristinn Nikulásson hefur skoð- að lagningu vatnsleiðslu til eyj- arinnar. Hann vill leggja leiðslu í land eða 20 km. Virkja á sem renn- ur af fjallinu, grafa brunn við ána og láta fallhæðina knýja vatnið út í Flatey. Hann segir vatnsskort vera vandamál í Flatey. „Í dag er safnað vatni úr brunnum og hefur verið reynt að dæla í tanka en vatnið þrýtur yfir sumarið og vandræða- ástand skapast. Þegar flest fólk er í eynni eru þurrkarnir mestir. Það hefur verið þannig að það hefur orðið að flytja vatn úr Stykkishólmi til að anna þessum toppum.“                            

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.