Morgunblaðið - 04.03.2004, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.03.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÍRAKSDVÖLIN LENGIST Jeremy Greenstock, fulltrúi bresku stjórnarinnar í Írak, sagði í gær að líklega yrði breska herliðið um kyrrt í landinu í tvö ár enn og hugsanlega lengur. Sagði hann að upplausnin í landinu gerði það nauð- synlegt. Paul Bremer, ráðsmaður Bandaríkjanna í Írak, sagði í gær að gæsla á landamærum Íraks yrði stórhert og verulega fjölgað í liði landamæravarða. Tony Blair, for- sætisráðherra Bretlands, sagði í um- ræðum um hryðjuverkin að nú streymdu til Íraks hryðjuverka- menn alls staðar að frá Mið-Austur- löndum. Fundu blóð úr Vaidas Blóð úr Vaidas Jucivicus fannst í BMW-bifreið annars Íslendinganna sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna lík- fundarmálsins. Litháinn sem situr í gæsluvarðhaldi mun hins vegar hafa haft bifreiðina til umráða. Héraðs- dómur Reykjavíkur úrskurðaði mennina þrjá í áframhaldandi gæsluvarðhald í gær en lögmenn þeirra hyggjast kæra þann úrskurð. Barátta Kerrys hafin John Kerry, sem verður fram- bjóðandi bandarískra demókrata í forsetakosningunum í haust, hóf í gær kosningabaráttuna í Flórída og þykir það táknrænt. Þar var gert út um sigurvonir demókrata í síðustu kosningum. John Edwards, síðasti keppinautur Kerrys í forkosninga- baráttunni, hefur nú lagt árar í bát. Fimm frumvörp um verðbréf Fimm frumvörp til breytinga á reglum um verðbréfamarkaðinn á næstu tveimur árum eru í undirbún- ingi hjá viðskiptaráðuneytinu. Þau verða unnin samkvæmt tilskipunum ESB. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Þjómusta 33 Erlent 15/17 Viðhorf 34 Minn staður 18 Minningar 36/41 Höfuðborgin 19 Kirkjustarf 43 Akureyri 20 Myndasögur 44 Suðurnes 21 Bréf 44 Austurland 22 Dagbók 46/47 Landið 23 Staksteinar 46 Daglegt líf 24 Íþróttir 48/51 Neytendur 25 Fólk 52/57 Listir 26/28 Bíó 54/57 Umræðan 29/35 Ljósvakamiðlar 59 Forystugrein 30 Veður 59 * * * Kynningar – Með Morgunblaðinu í dag er prentað auglýsingablað frá Nettó. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness dæmdi í gær Bjarna Sigurðsson í 3½ árs fangelsi fyrir skjalafals og fjár- svik í tengslum við rekstur á fast- eignasölu. Bjarni var ákærður fyrir að hafa dregið sér um 158 milljónir króna. Þá var ákærði sviptur löggild- ingu til að starfa sem fasteigna-, fyr- irtækja- og skipasali. Hann var einn- ig dæmdur til að greiða 11,3 milljónir í sekt til ríkissjóðs og til að greiða Íbúðalánasjóði rúmar 37 milljónir í bætur, Verðbréfastofunni 27,8 millj- ónir í bætur, Sparisjóði Keflavíkur rúmar 10 milljónir, Virðingu hf. tæp- ar 3,5 milljónir, S. Grétarssyni ehf. rúmar 3,2 milljónir og nokkrum ein- staklingum samtals tæpar 4,5 millj- ónir. Ákærði var löggiltur fasteignasali, framkvæmdastjóri og stjórnarmað- ur Fasteignasölunnar Holts ehf. í Kópavogi. Hann var ákærður fyrir skjalafals og fjársvik gagnvart Íbúðalánasjóði, Verðbréfastofunni hf. og Virðingu hf. með því að hafa á tímabilinu frá janúar 2002 til október 2002 notað fasteignaveðbréf Íbúða- lánasjóðs og yfirlýsingar um ráðstöf- un andvirðis viðbótarlána frá Íbúða- lánasjóði, eftir að hann hafði falsað og breytt framsölum á fasteignaveð- bréfunum og upplýsingum um ráð- stöfun andvirðis viðbótarlána á yfirlýsingunum, sem hann hafði fengið í hendur frá viðskiptavinum fasteignasölunnar. Með þessu hafði ákærði samtals 96 milljónir króna af viðskiptavinum fasteignasölunnar þegar hann ýmist tók sér andvirði veðbréfanna eða blekkti aðila til að ráðstafa andvirð- inu á grundvelli falsananna. Dró sér 62,4 milljónir króna í 24 skipti Þá var ákærði sakaður um fjár- drátt með því að hafa dregið sér í 24 skipti, á tímabilinu frá 29. nóvember 2001 til 24. október 2002, samtals 62,4 milljónir sem hann fékk í eigin vörslur og Fasteignasölunnar Holts frá viðskiptavinum fasteignasölunn- ar í tengslum við milligöngu hennar um sölu á fasteignum. Ákærði játaði sakir fyrir dómi. Hann var einnig sakfelldur fyrir að hafa sem fyrirsvarsmaður Fast- eignasölunnar Holts ekki staðið skil á virðisaukaskatti, sem lagður var á félagið vegna tímabilsins frá nóvem- ber 2001 til og með apríl 2002, sam- tals 2,8 milljónir króna, og stað- greiðslu opinberra gjalda, sem hann hélt eftir af launum starfsmanna fé- lagsins frá janúar til og með júlí 2002, alls 2.826.739 krónur. Ákærði hefur ekki áður sætt refs- ingu og segir í dómnum að hann hafi verið samvinnufús við lögreglurann- sókn málsins og gengist greiðlega við þeim sakargiftum sem hann var borinn. Að þessu frágengnu eigi hann sér engar málsbætur. „Þau brot sem hann hefur hér ver- ið sakfelldur fyrir og tengjast skjöl- um og fjármunum sem honum hafði verið trúað fyrir vegna starfs síns sem fasteignasali eru mjög stórfelld. Með háttsemi sinni braut ákærði gróflega gegn hagsmunum skjól- stæðinga sinna í skjóli opinberrar löggildingar sem honum hafði verið veitt til að starfa sem fasteigna-, fyr- irtækja- og skipasali og olli umtals- verðu tjóni sem hann hefur ekki bætt nema að óverulegu leyti. Til þyngingar á refsingu horfir enn- fremur að brotavilji ákærða var ein- beittur,“ segir m.a. í dómnum. Málið dæmdi Þorgeir Ingi Njáls- son héraðsdómari. Verjandi ákærða var Gylfi Thorlacius hrl. og sækjandi Helgi Magnús Gunnarsson, fulltrúi efnahagsbrotadeildar ríkislögreglu- stjóra. Fyrrverandi fasteignasali dæmdur í 3½ árs fangelsi fyrir fjárdrátt, skjalafals, fjársvik og skattabrot Mjög stórfelld brot og einbeittur brotavilji LOÐNUVEIÐAR hófust á ný í gær eftir bræluna í fyrrinótt og veiðist loðnan nú í grennd við Ingólfshöfða. Loðnufrystingu hefur víða verið hætt þar sem loðnan er komin það nálægt hrygningu. Nú tekur við loðnukreisting en góður markaður er fyrir loðnuhrogn í Japan þetta árið. Sighvatur Bjarnason VE landaði 1.500 tonnum í Vestmannaeyjum í gærmorgun og fór strax á miðin aft- ur að sögn Guðna Ingvars Guðna- sonar, útgerðarstjóra Vinnslustöðv- arinnar. Ísleifur VE var á miðunum í gær en Kap VE heldur til veiða í dag. Í gær var verið að frysta loðnu- hrogn úr Sighvati Bjarnasyni VE og Berg VE. Guðmundur Elíasson, framleiðslustjóri í Vinnslustöðinni, sagði að búið væri að frysta 770 tonn af loðnu á Japan og 290 tonn á Rússlandsmarkað. Hann reiknaði með að frystingu á loðnu væri lokið þar sem hrognafylling væri ekki nægileg lengur. Áhersla á hrognatöku Antares VE, Sigurður VE og Harpa VE voru á miðunum þegar rætt var við Eyþór Harðarson hjá Ísfélaginu í gær. Síðast landaði Ant- ares 700 tonnum í Eyjum á þriðju- dag. Lítið var hægt að frysta af loðnunni og þar af leiðandi lögð áhersla á hrognatöku. Morgunblaðið/Sigurgeir Vinnsla og frysting loðnuhrogna hófst hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum í gær og létu starfsmenn hendur standa fram úr ermum, enda mikil verðmæti í húfi og stuttur tími til stefnu á loðnuvertíðinni. Frysta loðnuhrogn í Eyjum Vestmannaeyjum. Morgunblaðið. LEITIN að björgunarskipinu sem skolaðist fyrir borð af Skaftafelli í stórsjó í fyrrakvöld bar ekki árangur í gær og fundust engin ummerki um skipið. Leitað var meðfram strönd- inni frá Selatöngum að Krýsuvíkur- bergi ásamt því að Fokker-flugvél Landhelgisgæslunnar leitaði úr lofti. Björgunarskipið er 43 tonn að stærð og rúmlega 16 metra langt. Um 10–12 metra ölduhæð var þeg- ar skipið fór útbyrðis og var beðið með leit vegna veðurs fram til mið- vikudagsmorguns. Óvíst er hvort skipið er sokkið eður ei, en skip af þessu tagi eru illsökkvanleg og eiga að geta rétt sig við ef þeim hvolfir. Hins vegar gæti hafa komið gat á skrokkinn og það sokkið, að því er segir í tilkynningu frá Landsbjörg.                              Björgunar- skipið enn ófundið FRANZ Fischler, framkvæmda- stjóri sjávarútvegsmála hjá Evrópu- sambandinu, segist gjarnan vilja að Ísland og Noregur sæki um aðild að sambandinu. Hann segir að ekki eigi aðeins að stækka sambandið til aust- urs. Evrópusambandsþjóðunum fjölg- ar um tíu í maí nk. en nýju aðildar- þjóðirnar eru einkum í Mið- og Aust- ur-Evrópu. Í samtali við sjávar- útvegsvefinn IntraFish minnir Fischler á að þjóðir á borð við Ís- land, Noreg og Sviss standi enn utan ESB. Hann segir hefð fyrir samvinnu sambandsins við Ísland og Noreg um stjórn fiskveiða en gerir sér samt grein fyrir að í þessum löndum hafi margir efasemdir um fiskveiði- stefnu sambandsins. Hann telur að fiskveiðistefnan sé samt sem áður ekki ástæða þess að þjóðirnar standi enn utan ESB. Það eigi einkum við um Noreg en málin séu hins vegar flóknari þegar kemur að hugsanlegri aðild Íslendinga. ESB tilbúið að koma til móts við kröfur Íslendinga Segir Fischler að ESB líti til að mynda hvalveiðar Íslendinga horn- auga, auk þess sem fiskveiðistjórn- unarkerfi Íslendinga sé nokkuð frá- brugðið fiskveiðistefnu ESB. Fischler segir útilokað að ESB breyti fiskveiðistjórnunarkerfi sínu til samræmis við það íslenska, aðeins til að Ísland geti fengið aðild að sam- bandinu. Íslendingar þyrftu frekar að breyta sínu kerfi. Hann segir ESB engu að síður tilbúið að koma til móts við kröfur Íslendinga. Ísland þyrfti að breyta fisk- veiðistjórn- un sinni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.