Morgunblaðið - 04.03.2004, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 04.03.2004, Qupperneq 10
FRÉTTIR 10 FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÞINGMENN Samfylkingarinnar kölluðu eftir afstöðu Þorgerðar K. Gunnarsdóttur menntamálaráð- herra til innheimtu afnotagjalda Ríkisútvarpsins í fyrirspurnatíma á Alþingi í gær. Ráðherra svaraði því til að það væri óábyrgt ef hún gæfi það út hér og nú að afnema ætti gjöldin. Hún sagði að það þyrfti að fara gaumgæfilega yfir þessi mál og skoða hvaða valkostir væru í stöð- unni. Í máli hennar kom aukinheld- ur fram að rekstravandi Ríkisút- varpsins hefði verið til sérstakrar umfjöllunar í ráðuneytinu um nokk- urt skeið. Sagði hún að skoða þyrfti málefni RÚV í heild sinni. Afnota- gjöld væru þar engin undantekning. „Við verðum að gera okkur grein fyrir því hvaða kosti við eigum ef við segjum nei við afnotagjöldum,“ út- skýrði hún. Ítrekaði hún síðar í um- ræðunni að hún vildi ekki segja af eða á um það hvort afnema bæri af- notagjöldin. Vilja afnotagjöldin burt Ágúst Ólafur Ágústsson, þing- maður Samfylkingarinnar, var máls- hefjandi umræðunnar. Hann sagði að afnotagjöld hefðu margs konar ókosti. „Innheimtuaðferðin er dýr en nefnt hefur verið að það kosti um 80 milljónir króna árlega að reka innheimtudeild Ríkisútvarpsins.“ Hann sagði að afnotagjöldin væru einnig óskilvirk innheimtuaðferð. Talið væri að allt að 9% gjaldenda kæmust hjá því að greiða gjöldin. Menntamálaráðherra leiðrétti þetta hlutfall síðar í umræðunni og sagði það 5,5%. Ágúst sagði að mun væn- legra væri að standa undir rekstri Ríkisútvarpsins með framlagi á fjár- lögum og með þjónustusamningi til langs tíma. Hann sagði að einnig mætti skoða aðrar leiðir til tekjuöfl- unar s.s. auðlindagjald á útvarpsrás- um og gjald á tilteknar auglýsingar sem rynnu til stofnunarinnar. Nokkrir þingmenn tóku til máls í umræðunni um þessi mál og kvaðst Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, algjörlega ósammála því sjónarmiði að fella eigi niður afnotagjöld. „Ég tel það nauðsynlegan tekjustofn fyrir Rík- isútvarpið, bæði til að tryggja afl þess og sjálfstæði.“ Björgvin G. Sigurðsson, Samfylk- ingu, sagði að stefna ætti að því að fella niður afnotagjöld, sem væru úrelt og gamaldags innheimtuaðferð og Mörður Árnason, samflokksmað- ur hans, sagði mikilvægt að ráð- herra gerði grein fyrir afstöðu sinni til þessa máls. Jóhann Ársælsson, Samfylkingu, tók í sama streng. Birkir J. Jónsson, Framsóknar- flokki, sagðist telja að það myndi ógna sjálfstæði RÚV ef það yrði sett á fjárlög. Einar Már Sigurðarson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði það athyglisvert að framsókn- armenn óttuðust það að RÚV yrði sett á fjárlög. Hann sagði að það hlyti að segja nokkuð um það hvern- ig rætt væri um RÚV meðal rík- isstjórnarflokkanna. Gott samstarf milli stjórnarflokka Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, sagði að sinn flokkur styddi það að fundin yrði önnur tekjuöflunarleið en afnota- gjöldin. Jafnvel kæmi til greina að setja RÚV á fjárlög. Jón Kr. Ósk- arsson, varaþingmaður Samfylking- arinnar, sagði að ekki mætti van- meta það sjónarmið að Ríkisútvarpið væri mikilvægur ör- yggisventill og Valdimar L. Frið- riksson, sem einnig er varaþingmað- ur Samfylkingarinnar, velti því fyrir sér hvort ekki ætti að skoða það hvernig þessi 5,5% sem ekki greiddu til RÚV væru hundelt. Hjálmar Árnason, þingmaður Framsóknarflokksins kom einnig í pontu undir lok umræðunnar og sagði það ekki rétt að Framsókn- arflokkurinn héldi Ríkisútvarpinu í gíslingu. Hann sagði að það væri af- skaplega gott samstarf milli ríkis- stjórnarflokkanna um RÚV. Þingmenn kölluðu eftir afstöðu menntamálaráðherra til afnotagjalda Rekstrarvandi RÚV til skoðunar í ráðuneytinu Morgunblaðið/Þorkell Þingmenn fylgjast grannt með umræðum á Alþingi. Fremstir sitja Guðjón Hjörleifsson og Magnús Stefánsson. IÐNAÐARRÁÐHERRA, Valgerð- ur Sverrisdóttir, hefur lagt fram á Alþingi lagafrumvarp þar sem lagt er til að lög um jöfnun flutnings- kostnaðar á sementi falli úr gildi og að jöfnunin verði afnumin frá og með 1. júní 2004. Samkvæmt frum- varpinu er gert ráð fyrir því að stjórn flutningsjöfnunarsjóðs annist uppgjör og frágang vegna skuld- bindinga hans, s.s. gerð ársreikn- ings, og skal því lokið fyrir 1. októ- ber 2004. Skv. gildandi lögum er flutnings- jöfnunargjald lagt á hvert selt tonn af sementi og er gjaldið lagt í flutn- ingsjöfnunarsjóð sements. Í athuga- semdum frumvarpsins segir að út- gjöld flutningsjöfnunarsjóðs hafi verið 156 milljónir árið 2002. „Sam- kvæmt upplýsingum flutningsjöfn- unarsjóðs sements fór hlutfallslega stærstur hluti tekna sjóðsins miðað við innheimt gjöld sjóðsins í að jafna kostnað vegna flutning sem- ents til Norðurlands eystra og Austurlands. Stærstur hluti tekna sjóðsins kom hins vegar af inn- heimtu flutningsjöfnunarsjóðs- gjalda af sementi sem flutt var til Reykjavíkur og á Reykjanes eða tæpar 105 milljónir króna,“ segir í athugasemdunum. Hafi leitt til hærra verðs Lög um jöfnun flutningskostnað- ar á sementi tóku gildi 24. maí 1973. Iðnaðarráðherra skipaði nefnd, í lok ágúst 2003, til að end- urskoða þau lög. Pétur Örn Sverr- isson frá iðnaðarráðuneytinu var formaður hennar. „Í áliti nefndar- innar kemur fram að frá því lög um jöfnun flutningskostnaðar á sementi voru sett hafi markaðsaðstæður og leikreglur á markaði gjörbreyst, hvort sem horft er til samkeppn- isreglna eða viðhorfa til afskipta ríkisins af atvinnulífi. Þá hafi bygg- ingaraðferðir, samgöngur og dreifi- leiðir gjörbreyst,“ segir í athuga- semdum frumvarpsins. „Þá telur nefndin að núverandi kerfi hafi leitt til hærra sements- verðs en ella þar sem það hafi í för með sér að flutningskostnaður sé hærri en vera þyrfti. Fyrirkomulag- ið leiði til þess að aðilar á markaði leiti ekki leiða til að auka hag- kvæmni í flutningum.“ Í athuga- semdunum segir ennfremur að af- nám flutningsjöfnunar muni að öllum líkindum leiða til einhverrar lækkunar sementsverðs á suðvest- urhorni landsins þar sem um 85% sements, sem ekki fer til stórfram- kvæmda, er notað. Jafnframt megi vænta einhverrar hækkunar á sem- entsverði á öðrum stöðum. „Líkur bendi hins vegar til þess að hagræðing í flutningum og sam- keppni á sementsmarkaði leiði til þess að hækkun sementsverðs á landsbyggðinni verði óveruleg.“ Telur fyrrgreind nefnd iðnaðarráð- herra því umrædd lög úrelt og er hún sammála um að leggja til að starfsemi flutningsjöfnunarsjóðs sements verði lögð niður og hætt verði sérstakri jöfnun flutnings- kostnaðar sements. Iðnaðarráðherra leggur fram frumvarp um sement Afnumin verði jöfnun flutningskostnaðar BJÖRN Bjarnason dómsmálaráð- herra sagði í umræðu utan dagskrár á Alþingi í gær að enginn þyrfti að ótt- ast það að hættuástand skapaðist um sjúkraflutninga Landhelgisgæslunn- ar vegna þess að samningum Land- spítala – háskólasjúkrahúss, þriggja ráðuneyta og Landhelgisgæslunnar um þyrlulækna hefði verið sagt upp. Læknum sem starfa á þyrlu Land- helgisgæslunnar hefur verið sagt upp störfum frá og með 1. maí næstkom- andi. „Það ríkir ekkert hættuástand,“ sagði ráðherra, „samningurinn er í gildi og það er verið að fylla það tóma- rúm sem skapast ef þessi samningur gildir ekki áfram. Og það þarf enginn að óttast að það skapist eitthvert slíkt tómarúm; að það verði hér hættu- ástand vegna þess að það verði ekki unnt að sinna þessari þjónustu á þann veg að öryggi landsmanna sé tryggt.“ Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, var málshefj- andi umræðunnar. „Störf fyrir þyrlu- lækna eru í upnámi,“ sagði hann, „ekki fer á milli mála að það getur skipt sköpum um lífsvon slasaðra og verndun lima að læknir sé í för. Þetta vita starfsmenn Landhelgisgæslunn- ar afar vel og bera eðlilega þá von í brjósti að allir landsmenn fái notið þjónustunnar.“ Hann og fleiri þing- menn skoruðu á ráðherra að beita sér fyrir því að útvega fé til Landhelg- isgæslunnar svo hægt yrði að hafa lækna á þyrlum hennar. Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsókn- arflokksins, var einn þeirra. „Ég skora á hæstvirtan ráðherra að beita sér fyrir því að útvega það fé til Land- helgisgæslunnar þannig að við þurf- um ekki að búa við óvissu um nokk- urra vikna hríð til viðbótar við það sem þegar er liðið á þessu ári. Hæst- virtur dómsmálaráðherra hefur þeg- ar sýnt það að hann getur beitt sér og verið fundvís á fé þegar öryggismál eru annars vegar. Og ég trúi ekki öðru en að honum reynist það létt verk að finna nauðsynlegt fjármagn til að tryggja áframhaldandi rekstur flugbjörgunarsveita Landhelgisgæsl- unnar. Það er alveg jafn mikið örygg- ismál eins og að fjölga í sérsveitum lögreglunnar,“ sagði hann. Dómsmálaráðherra um sjúkra- flutninga Landhelgisgæslunnar Enginn þarf að óttast hættuástand Í FRUMVARPI sex þingmanna Framsóknarflokksins, sem lagt hef- ur verið fram á Alþingi, er lagt til að krafa um ábyrgðarmann á námslán- um verði felld úr lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Þess í stað eigi hver námsmaður að ábyrgjast endurgreiðslu eigin láns. „Eitt af meginmarkmiðum ríkisstjórnarinn- ar er að Lánasjóður íslenskra náms- manna gegni áfram því hlutverki að vera félagslegur jöfnunarsjóður sem tryggi öllum tækifæri til náms,“ seg- ir í greinargerð frumvarpsins. „Lið- ur í að tryggja slík markmið er að fella burt ábyrgðarmannakröfu á námslánum,“ segir ennfremur. „Vit- að er að nokkur fjöldi námsmanna hefur ekki tök á að leita til aðstand- enda eða annarra til að ábyrgjast námslánin. Þessir námsmenn eiga ekki kost á að stunda nám. Mikil- vægt er að leiðrétta þetta óréttlæti.“ Fyrsti flutningsmaður frumvarps- ins er Dagný Jónsdóttir. Meðflutn- ingsmenn eru Birkir J. Jónsson, Magnús Stefánsson, Kristinn H. Gunnarsson, Hjálmar Árnason og Jónína Bjartmarz. Frumvarp um breyt- ingar á lögum um LÍN Krafa um ábyrgðar- mann verði felld úr gildi ♦♦♦ AFNEMA á einkarétt ríkisins á inn- flutningi og framleiðslu á tóbaki 1. júlí nk. samkvæmt frumvarpi fjár- málaráðherra. Áfengis og tóbaks- verslun ríkisins (ÁTVR) mun þó áfram hafa einkarétt á heildsölu. Ívar J. Arndal, forstjóri ÁTVR, segir þetta leiða til þess að allir sem vilja geti flutt inn tóbak að uppfyllt- um tilteknum skilyrðum. Telur hann líklegt að innflytjendum tóbaks muni fjölga nokkuð. „Við munum sjá um heildsöludreifinguna og innkaupa- reglur okkar munu stýra flæði tób- aks inn á markaðinn,“ segir Ívar. Því muni ÁTVR kaupa tóbak af innlendum aðilum í stað þess að flytja það allt inn. Innflutn- ingur tóbaks verði frjáls

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.