Morgunblaðið - 04.03.2004, Side 12
FRÉTTIR
12 FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
SÉRA Bjarni Karlsson, sóknarprest-
ur í Laugarneskirkju, gerði samkyn-
hneigð að umræðuefni í predikun
sinni í messu á sunnudag og sagðist
ekki skilja hvers vegna andstaðan við
réttindabaráttu samkynhneigðra
væri hvað sterkust í nafni kristinnar
trúar. Sagðist hann vonast til að þjóð-
in og leiðtogar kirkjunnar í landinu
mættu skjótt finna farsælar lausnir í
þessum efnum því sú tregða sem enn
ríkti ylli skelfilegum þjáningum.
Sr. Bjarni vitnaði í fjallræðu Jesú
Krists sem sagði: „Dæmið ekki, og
þér munuð eigi dæmdir verða. Sak-
fellið eigi, og þér munuð eigi sakfelld-
ir verða.“ Sagði hann að í þessu ljósi
fyndist honum það skrýtið og óskilj-
anlegt að mjög margt gott fólk, sem
opinberlega kallaði sig kristið, væri
alveg sannfært um að samkyn-
hneigðu fólki væri ekki treystandi í
þjóðfélaginu.
„Ég skil ekki af hverju andstaðan
við réttindabar-
áttu sam-
kynhneigðra er
hvað sterkust í
nafni kristinnar
trúar. Mér finnst
það í sannleika
sagt óskiljanlegt.
Ítrekað hef ég
rætt við góðar og
grandvarar
manneskjur, fólk sem aldrei myndi
vilja vinna nokkurri manneskju
ógagn, og ver jafnvel stórum hluta frí-
tíma síns í kærleiks- og líknarþjón-
ustu úti í bæ, en þegar talið berst að
réttindum samkynhneigðra þá
myrkvast svipur þess og yfir varir
sem venjulega blessa allt og alla, velta
orð sem virka meiðandi og dæmandi á
mig,“ sagði sr. Bjarni.
Sagði hann að margir yrðu pirrað-
ir, reiðir og smeykir um hitt og þetta í
þessari umræðu. „Það eru staðreynd-
ir sem ekki verður á móti mælt að
samkynhneigt fólk er á engan hátt
öðruvísi en annað fólk að því frátöldu
að það hneigist til að elska sama kyn.
Þau langar til að eiga ævifélaga af
sama kyni. Samkynhneigðir eru ekki
síðri uppaldendur en gagnkynhneigð-
ir, nema síður sé, og börn þeirra eru
ekki líklegri en börn annarra til að
verða sjálf samkynhneigð, ef einhver
skyldi nú óttast það.“
Jesú bannar fólki
að dæma líf annarra
Sr. Bjarni sagði ástæðu þess að
hjónabönd væru almennt af hinu góða
að með stofnun þess lýsti fólk yfir
þeirri hugsjón að lifa saman í trúnaði,
ást og virðingu og axla ábyrgð á eigin
lífi. Hann spurði hvað væri svo hræði-
legt við að tvær konur eða tveir karl-
menn tækju þetta skref, og hver
leyfði fólki að velta þeim tilfinningum
yfir á ókunnugt fólk, sem væri bara að
reyna að lifa sínu lífi. „Það getur ekki
verið úr Biblíunni, það getur ekki ver-
ið frá Jesú Kristi sú hugmynd, að
banna fólki að lýsa yfir gagnkvæmum
trúnaði, ást og virðingu og axla op-
inbera ábyrgð á heimili sínu. Ég
hafna því,“ sagði hann og benti á að
Jesú bannaði fólki að dæma um líf
annarra.
Í Guðspjöllunum fjórum sé ekki að
finna eina frásögn þar sem Jesús
skammar einhvern fyrir siðferði hans
eða efast um ábyrgð fólks á eigin lífi.
„Einu mennirnir sem hann ávítaði
voru þeir sem töldu sjálfa sig réttláta
en fyrirlitu aðra. Það er þess vegna
sem mér finnst svo nöturlegt þegar
fólk tortryggir samkynhneigða í nafni
trúarinnar. Vil ég loks láta í ljós þá
bæn að þjóðin og leiðtogar kirkjunnar
í landinu megi skjótt finna farsælar
lausnir í þessum efnum. Því sú tregða
sem enn ríkir veldur skelfilegum
þjáningum,“ sagði sr. Bjarni.
Sr. Bjarni Karlsson sóknarprestur í predikun í Laugarneskirkju
Nöturlegt þegar fólk tortryggir
samkynhneigða í nafni trúarinnar
Bjarni Karlsson
hefur formlegt gildi að lögum.
Biskup sagði að kirkjan
þyrfti auðvitað að leggja sitt lóð
á vogarskálarnar. „Sem stendur
höfum við meðal annars sett
okkur að efla fræðslu meðal
starfsmanna kirkjunnar, innan
sálgæslunnar, um samkyn-
hneigð með það í huga að vera
betur í stakk búin til að taka á
móti þeim sem glíma við vanda
vegna hennar, bæði samkyn-
hneigt fólk og aðstandendur þeirra. Einnig fylgj-
umst við grannt með umræðu um þessi mál hjá
systurkirkjum okkar.
Prestafélag Íslands hélt nýlega málþing með
Samtökum foreldra og aðstandenda samkyn-
hneigðra þar sem tekinn var púlsinn á stöðunni og
sú umræða heldur áfram innan þeirra vébanda.
Hér er íslenska þjóðkirkjan samstiga þeim
kirkjum sem þjóðkirkjan er í samstarfi við austan
hafs og vestan og fylgist náið með þeim umræðum
sem þar eiga sér stað. Þar eru miklar umræður og
deilur um þessi mál, en formlega hefur engin ná-
grannakirknanna vígt samkynhneigða sem hjón,“
sagði biskup.
„SAMKYNHNEIGT fólk er líkt og annað kristið
fólk velkomið til starfa innan kirkjunnar, hvort
heldur sem leikmenn eða vígðir. Prestastefnur og
Kirkjuþing hafa fjallað um samkynhneigð og kirkju
og hvatt til umræðu, samtals og fræðslu á vettvangi
kirkjunnar. Samkynhneigðir eru velkomnir í sam-
félag kirkjunnar,“ segir Karl Sigurbjörnsson, bisk-
up Íslands.
Karl sagði að þjóðkirkjan viðurkenndi staðfesta
samvist sem sambúðarform og hún hefði á sínum
tíma fagnað þeirri réttarbót sem lögin um staðfesta
samvist voru. Prestar þjóðkirkjunnar hefðu blessað
samkynhneigð pör, þó að það væri ekki athöfn sem
Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, um málefni samkynhneigðra
Velkomnir í samfélag kirkjunnar
Karl Sigurbjörns-
son biskup
MIKILL fjöldi fólks lagði leið sína í
aðalbyggingu Háskóla Íslands á
þriðjudag til að kynna sér þær leiðir
sem þar standa til boða í framhalds-
námi, en Háskólinn býður nú upp á
um áttatíu námsleiðir í framhalds-
námi auk hátt í fjörutíu leiða í við-
bótarnámi til starfsréttinda.
Kennarar og nemendur í hinum
ýmsu fræðigreinum voru á staðnum
og veittu upplýsingar um námið og
kynntu það fyrir viðstöddum. Fengu
gestir tækifæri til að fræðast um
námið frá báðum hliðum, bæði um
námsefnið og tilhögun námsins og þá
reynslu sem nemendur hafa af nám-
inu. Ennfremur kynntu nemendur
sum af þeim rannsóknarverkefnum
sem unnin eru á framhaldsstigi.
Rannsóknartengt framhaldsnám
er einn helsti áhersluþáttur í starfi
HÍ, en uppbygging framhaldsnáms-
ins styrkir stöðu skólans í sam-
keppni við erlenda háskóla um
starfsfólk, stúdenta og fé til rann-
sókna úr alþjóðlegum sjóðum.
Mikill vöxtur hefur verið í fram-
haldsnámi við Háskólann undanfarin
ár, bæði hefur nemendum fjölgað og
námsframboð aukist. Allar deildir
skólans bjóða nú upp á framhalds-
nám og hefur framhaldsnemum
fjölgað um 150% á síðustu fimm ár-
um. Nú stunda um 1240 manns
framhaldsnám við Háskóla Íslands,
þar af um 110 í doktorsnámi.
Sífellt vaxandi áhugi
Guðrún J. Bachman, kynning-
arstjóri Háskólans, segir mikinn
vöxt framhaldsnáms endurspegla
aukna þörf fyrir menntað vinnuafl í
landinu. „Kröfur um nám eru að
verða sífellt meiri og þörf á vel
menntuðu fólki. Gárungarnir kalla
þetta stundum menntunarverð-
bólgu. Mesti vaxtarbroddur Háskól-
ans er í framhaldsnáminu. Fram-
haldsnemar eru nú yfir tólf hundr-
uð, en við gerum ráð fyrir því að sú
tala nálgist fimmtán hundruð á
næstu tveimur árum,“ segir Guð-
rún.
Aðstaða Háskólans hefur þó ekki
vaxið samhliða fjölgun nemenda og
hefur því þrengt nokkuð að bæði
nemendum í grunn- og framhalds-
námi. Guðrún segir þetta allt stefna
til bóta með nýja náttúrufræðihús-
inu Öskju og Háskólatorgi, sem
komi til með að rísa á næstu árum
og tengja saman nemendur skólans
á nýjan hátt. „Það er mikil uppbygg-
ing framundan og aðstaðan verður
sífellt betri. Háskóli Íslands er í
raun samfélag nemenda og kennara,
lifandi og í stöðugri mótun. Þar er
hlutverk rannsóknarnáms auðvitað
mjög mikilvægt.“
Guðrún segist ennfremur ákaf-
lega ánægð með þær undirtektir
sem kynningardagurinn hefur feng-
ið. „Þetta er í fjórða sinn sem við
höldum kynningu af þessu tagi og
gestirnir verða fleiri með hverju
árinu. Hér var allt orðið fullt út úr
dyrum um leið og kynningin hófst
klukkan fjögur. Við höfðum örlitlar
áhyggjur af því að veðrið myndi
setja strik í reikninginn, en fólk lét
það greinilega ekki aftra sér,“ segir
Guðrún að lokum. Meðal nýrra
námsleiða sem kynntar voru má
nefna meistaranám í blaða- og
fréttamennsku, meistaranám í
bókasafns- og upplýsingafræði,
þverfaglegt meistaranám í upplýs-
ingatækni á heilbrigðissviði auk
þess sem Lagadeild býður nú upp á
alþjóðlegt meistaranám í alþjóða-
og umhverfislögfræði.
Framhaldsnemum fjölgar ört við HÍ
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Margir nýttu sér tækifærið og kynntu sér fjölbreytilega möguleika á framhaldsnámi við HÍ.
PERSÓNUVERND hefur úr-
skurðað miðlun mynda af
kynlífsathöfnum þriggja ung-
menna í sundlaug Bolung-
arvíkur í ágúst sl. ólöglega.
Tildrög málsins voru þau
að tveir piltar og ein stúlka
fóru að næturlagi í heitan
pott við sundlaugina og áttu
þar ástarleik sem tekinn var
upp á myndband með eftir-
litsmyndavél við laugina.
Myndbandið bar síðan fyrir
augu ótilgreinds fjölda fólks í
bænum og var kvartað yfir
þeirri meðferð. Þess var kraf-
ist að myndbandinu yrði eytt
og að starfsfólk sundlaugar-
innar yrði látið sæta ábyrgð
fyrir brot á trúnaðar- og
þagnarskyldum sínum.
Ekki var um það deilt að sú
rafræna vöktun sem fram
færi í sundlauginni væri í ör-
yggis- og eignavörsluskyni og
ætti sér því málefnalegan til-
gang.
Fór í bága við
persónuverndarlög
Persónuvernd taldi á hinn
bóginn að miðlun þeirra per-
sónuupplýsinga sem hér um
ræddi gæti ekki talist sam-
rýmanleg almennum viðhorf-
um um það hvað teldist vera
sanngjörn notkun persónu-
pplýsinga né yrði komið auga
á að hún hefði þjónað mál-
efnalegum tilgangi. Fór um-
rædd miðlun því í bága við
persónuverndarlög.
Miðlun
mynda af
kynlífs-
athöfnum
ólögleg