Morgunblaðið - 04.03.2004, Side 15
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
04
Yfir 32.000 sjúkrafljálfarar,
kírópraktorar og læknar um
heim allan mæla me› Tempur
Pedic, fl.á.m. á Íslandi.
Heilsud‡nur
Hei lsukoddar
Barna - hei lsukoddar
fiægindakoddar
Vi›urkenndur lífsstíll
Faxafeni 5
Sími 588 8477
www.betrabak.is
Opi› virka daga frá kl. 10-18
Laugardaga frá kl. 11-16
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 15
Hámarksrefsing í báðum tilvikum
er tveggja ára fangelsi en saksóknari
fer einungis fram á sektir.
Sagði af sér í júní
Jäätteenmäki er 49 ára gömul og
lögfræðingur að mennt. Hún sagði af
sér eftir að hafa verið sökuð um að
ljúga að þingheimi varðandi það að
hafa lekið upplýsingum til fjölmiðla
ANNELI Jäätteenmäki, fyrrverandi
forsætisráðherra Finnlands, vísaði í
gær á bug ákæru um að hún hefði
hvatt aðstoðarmann forseta til að
brjóta lög. Réttarhöld hófust í gær í
máli Jäätteenmäki en með embætt-
istöku hennar sem forsætisráðherra
urðu Finnar á sínum tíma fyrstir lýð-
ræðisþjóða til að hafa konur í tveim-
ur æðstu embættum landsins, emb-
ættum forseta og forsætisráðherra.
Aðstoðarmaðurinn fyrrverandi,
Martti Manninen er sakaður um að
hafa látið Jäätteenmäki hafa leynileg
gögn um stefnu Paavos Lipponens,
þáverandi forsætisráðherra, gagn-
vart Íraksdeilunni fyrir þingkosning-
ar á síðasta ári. Manninen er ákærð-
ur fyrir að hafa brotið lög er kveða á
um leynd opinberra gagna. Jäätteen-
mäki, sem neyddist til að segja af sér
í júní í fyrra eftir að hafa verið við
völd í fáeina mánuði, var sökuð um að
hafa hvatt hann eða stutt til að brjóta
lög.
um stefnu Finnlands gagnvart
Íraksdeilunni fyrir þingkosningarn-
ar í mars 2003. Hún varð forsætis-
ráðherra í apríl eftir að hafa leitt
flokk sinn, Miðflokkinn, til naums
sigurs í kosningunum. Í kosninga-
baráttunni notaði hún upplýsingarn-
ar til að saka Lipponen um að tefla í
tvísýnu hlutleysisstefnu Finna með
því að styðja stríð bandamanna gegn
Írak. Máli sínu til stuðnings birti
Jäätteenmäki útdrætti úr leynilegu
gögnum á vefsíðu sinni um fund
Lipponens og George W. Bush
Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu í
desember 2002.
Jäätteenmäki ítrekaði í gær fyrri
ummæli sín um að hún hefði ekki
beðið Manninen um gögnin og henni
hefðu óvænt borist þau í hendur.
Hún hefði talið nauðsynlegt að al-
menningur vissi um efni þeirra. Bú-
ist er við að vitnaleiðslum ljúki á
morgun, föstudag, og að dómur verði
kveðinn upp hálfum mánuði síðar.
Réttarhöld hafin
yfir Jäätteenmäki
Reuters
Anneli Jäätteenmäki á leið inn í
réttarsalinn í Helsinki í gær.
Helsinki. AP, AFP.
SVO tryggir hafa gamlir hlustendur
hans sumir verið að þeir hafa ekki
misst úr einn einasta þátt af Bréfi
frá Ameríku. En
nú er Bretinn Al-
istair Cooke orð-
inn 95 ára gamall
og heilsan að bila,
hann flytur sinn
síðasta þátt á
föstudaginn kem-
ur. „Í 58 ár hef ég
notið þess mjög
að flytja þessa
þætti og vona að
ég hafi miðlað einhverju af ánægj-
unni til hlustenda. Þeim vil ég nú
þakka fyrir tryggðina – og góðar
stundir,“ verða síðustu orð Cookes,
að því er kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá breska ríkisútvarpinu,
BBC. Sjálfur hafði hann reyndar
hugsað sér að flytja tíðindin sjálfur í
síðasta þættinum.
Cooke er verkamannssonur frá
Blackpool en lauk námi við Cam-
bridge, Harvard og Yale. Hann varð
kvikmyndagagnrýnandi hjá BBC ár-
ið 1934 en fluttist til New York og
varð bandarískur borgari árið 1941.
Fimm árum síðar bauðst hann til
að flytja vikulega 15 mínútna þætti
fyrir BBC um bandarísk málefni, allt
milli himins og jarðar, og átti verk-
efnið að standa í sex vikur. En að
sögn AFP-fréttastofunnar fullyrðir
Cooke að yfirmenn BBC hafi
„gleymt“ að stöðva þáttinn!
Menn sáu hann fyrir sér í hug-
anum, prúðmannlegan Bretann,
með hljóðnemann í bókaherbergi
sínu með útsýni yfir Central Park.
Cooke fræddi landa sína handan
hafsins og aðra um það sem efst var
á baugi vestra en ekki síður banda-
ríska sögu og stjórnmál, lífgaði upp
á frásögnina með ýmsum frum-
legum athugasemdum, sagði frá
mörgu kynlegu og reyndi af þol-
inmæði að skýra það sem var að ger-
ast í þessu geysistóra og undarlega
landi. En hann var líka á staðnum
þegar dramatískir atburðir gerðust.
Sem dæmi má nefna morðið á Ro-
bert Kennedy í Kaliforníu árið 1968.
Cooke var einnig höfundur að
þrettán sjónvarpsþáttum um banda-
ríska sögu og árið 1973 ritaði hann
bók um sama efni. Hún heitir ein-
faldlega Ameríka og varð met-
sölubók. Aðeins þrisvar hefur það
gerst að þáttur Cookes hafi fallið
niður. Síðast var það um síðustu
helgi og þá heyrðu hlustendur að
röddin var veik og hann var þjáður.
Síðasta Ameríkubréf í loftið
Alistair Cooke
hefur haldið uppi
vikulegu útvarps-
rabbi í 58 ár
Alistair Cooke