Morgunblaðið - 04.03.2004, Page 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 17
LÖGREGLAN í Austurríki til-
kynnti í gær að 113 kg af heróíni
hefðu fundist falin í rúmönskum
flutningabíl sem var á leið til
Frakklands. Er þetta mesta
magn eiturlyfja, sem lagt hefur
verið hald á í einu í Austurríki.
Lögreglan fékk ábendingu frá
lögreglunni í Þýskalandi og
stöðvaði vörubílinn á hraðbraut
á mánudag. Tveir Rúmenar, 28
og 52 ára, voru í bílnum en þeir
sögðust ekki hafa vitað um
fíkniefnið. Austurríska lögregl-
an segir að heróínið sé metið á
um 56 milljónir evra eða um 5
milljarða króna í götusölu.
Föngum ekki
sleppt?
TALSMENN bandaríska varn-
armálaráðuneytisins hafa stað-
fest, að hugsanlega verði föng-
um í Guantanamo ekki sleppt,
þótt þeir verði sýknaðir fyrir
herrétti. Bandarísk yfirvöld
réttlæta þessa stefnu með því,
að fangarnir geti verið hættu-
legir áfram þótt engin sök verði
fundin hjá þeim. Kom þetta
fram á fréttavef BBC, breska
ríkisútvarpsins.
Yfirvöld segja, að málið sé
tvíþætt. Annars vegar sé föng-
unum haldið vegna þess, að þeir
séu grunaðir um að vera óvina-
hermenn í yfirstandandi stríði,
og hins vegar vegna þess, að
sumir kunni að verða ákærðir
fyrir stríðsglæpi eða önnur af-
brot. Verði einhver fundinn sek-
ur um stríðsglæpi verði hann að
sitja af sér dóminn þótt öðrum
yrði sleppt að hryðjuverka-
stríðinu loknu.
Mannfall
í Nepal
MINNST 41 maður féll í hörð-
um átökum öryggislögreglu-
manna og uppreisnarmanna
maóista í Nepal aðfaranótt mið-
vikudags, að sögn talsmanns
hersins í gær. Sagði hann að um
2.000 vopnaðir uppreisnarmenn
hefðu ráðist á borgina Bhojpur í
austurhluta landsins. Þar eru
aðalstöðvar héraðsstjórnar á
svæðinu og var skorið á símalín-
ur og reynt að ræna ríkisrekinn
banka. Uppreisnarmenn náðu
ekki að leggja borgina undir sig.
Afnema
ferðabann
BANDARÍSK stjórnvöld hafa
slakað verulega á refsiaðgerð-
um gegn Líbýu og fellt úr gildi
tveggja ára-
tuga gamalt
bann við ferð-
um banda-
rískra borg-
ara þangað.
Með þessu
er Banda-
ríkjastjórn að
launa
Muammar
Gaddafi, leið-
toga Líbýu, þá ákvörðun hans
að hætta öllum áætlunum um
smíði gereyðingarvopna og taka
upp fullt samstarf við Alþjóða-
kjarnorkumálastofnunina.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti tilkynnti einnig, að banda-
rísk fyrirtæki, sem haft hefðu
einhver ítök í Líbýu áður en
refsiaðgerðirnar voru ákveðnar,
mættu endurvekja þau við-
skipti. Hann skoraði á Líbýu-
stjórn að senda sendiherra til
Washington.
STUTT
Yfir 100 kg
af heróíni
Muammar
Gaddafi
BELGÍSKI barnaníðingurinn Marc
Dutroux bar fyrir rétti í gær að hann
væri óheppinn blóraböggull barna-
níðingagengis. Fullyrti hann í vitnis-
burði sínum, á þriðja degi „réttar-
halda aldarinnar“ í Belgíu þar sem
réttað er yfir Dutroux og meintum
samverkamönnum hans, meðal ann-
ars að tveir lögreglumenn hefðu átt
þátt í að ræna tveimur stúlkum sem
hann er sakaður um að hafa rænt,
nauðgað og myrt. Hann er alls ákærð-
ur fyrir að ræna og nauðga sex stúlk-
um og myrða fjórar þeirra.
Er þetta í fyrsta sinn sem Dutroux
lýsir opinberlega því sem gerðist í
þeirri hryllingsatburðarás sem haldið
hefur belgísku þjóðinni hálflamaðri af
hryllingi og hneykslan frá því málið
tók að skýrast í ágúst 1996. Þá bjarg-
aði lögreglan tveimur stúlkum, þá 12
og 14 ára, úr leynilegu herbergi í
kjallara húss sem Dutroux átti og
fann lík hinna fjögurra grafin í jörðu.
Dutroux ávarpaði réttinn innan úr
skotheldum glerklefa. Lýsti hann sín-
um þætti í atburðarásinni. Í eina
skiptið sem hann virtist við það að
vikna í þriggja tíma löngum vitnis-
burðinum var þegar dómarinn bað
hann að lýsa hvernig honum liði er
hann minntist þessara atburða.
„Ég gerði mistök, ég drýgði jafnvel
glæpi. Ef það bara væri hægt að fara
aftur til þess sem var áður en … en
það er ekki hægt,“ sagði hann.
Dutroux innréttaði falið kjallara-
rými í húsi sínu sem dýflissu þar sem
stúlkum var haldið og þær beittar
ólýsanlegu kynferðislegu ofbeldi.
En maðurinn sem belgískir fjöl-
miðlar hafa nefnt „skrímslið frá
Charleroi“ neitaði aðild að morðunum
á stúlkunum fjórum, og neitaði jafn-
framt að hafa átt nokkurn þátt í rán-
inu á tveimur átta ára stúlkum, en
fréttir af örlögum þeirra vöktu á sín-
um tíma viðbjóð um allan heim.
Fullyrti Dutroux að meginsökin
lægi hjá meðsakborningunum, þ. á m.
eiginkonu hans, og hjá manni sem
Dutroux sjálfur síðar drap. Lögmenn
fórnarlambanna og eins meðsakborn-
ingsins, kaupsýslumannsins Michel
Nihoul, hneyksluðust á því hvernig
Dutroux reyndi að varpa sök á aðra.
Réttarhöld hafin yfir belgíska barnaníðingnum Marc Dutroux
Varpar sök á samverkamenn
Arlon. AFP.