Morgunblaðið - 04.03.2004, Síða 22
AUSTURLAND
22 FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Nýbýlavegi 12, Kópavogi, sími 554 4433
Flott föt fyrir konur á öllum aldri
Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-16
Fiðlunámskeið | Tónlistarnámskeiðið
Fiðlan sem þjóðlagahljóðfæri hefst á föstu-
dagskvöld í grunnskólanum á Eiðum. Nám-
skeiðið er á vegum Tónlistarskóla Austur-
Héraðs og verða leiðbeinendur þau Charles
Ross lágfiðluleikari og Wilma Young fiðlu-
leikari. Á námskeiðinu verða einkum þátt-
takendur frá Reykjavík og Austurlandi. Því
lýkur á sunnudag með tónleikum á Eiðum
og hefjast þeir kl. 14, en aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
Bikarmót á skíðum | Bikarmót Skíða-
sambands Íslands fyrir 13 til 14 ára verður
haldið m helgina á skíðasvæðinu í Stafdal.
Skíðafélag Fjarðabyggðar skipuleggur
mótið ásamt skíðadeild Hugins á Seyð-
isfirði. Reiknað er með á áttunda tug kepp-
enda til mótsins auk föruneytis.
Virkjunarmolar | Aðeins á eftir að setja
tæp 10% fyllingarefnis í svokallaða varn-
arstíflu í Hafrahvammagljúfri og um 35
þúsund rúmmetrar af fyllingarefni bættust
í síðustu viku við Kárahnjúkastíflu. Þar af
fóru um 12 þúsund rúmmetrar í botn gljúf-
ursins. Vel gengur með frárennslisgöng í
Fljótsdal en nokkuð hægar með vinnu við
aðkomugöng og er sprungum og misgengi
þvert á göngin kennt um.
Egilsstaðir | Nú er að fara í gang umfangsmikil leik-
starfsemi í gamla skólahúsinu á Eiðum og hefst hún um
helgina með sýningu Arnars Jónssonar á Sveinsstykki eftir
Þorvald Þorsteinsson. Verkið var frumsýnt í Loftkast-
alanum í Reykjavík skömmu fyrir jól og er sérstaklega ritað
fyrir Arnar, en með sýningunni í Loftkastalanum minntist
hann fjörutíu ára starfsafmælis. Leikritið hlaut lofsamlega
dóma gagnrýnenda og þykir áhrifamikið verk í meðförum
Arnars, sem leikur manneskjuna Svein á ýmsum æviskeið-
um.
Búnaður hússins endurbættur
Leiksýningar á Eiðum eru sérstakt átaksverkefni á veg-
um undirbúningsnefndar fyrir lista- og menningarsetur á
Eiðum og er Páll Baldvin Baldvinsson verkefnisstjóri. Hann
segir að fyrirhugaðar séu á Eiðum leiksýningar að staðaldri
næstu þrjá mánuði. Hann vill þó ekki að svo stöddu tjá sig
um hvaða aðrar sýningar verði á Eiðum næstu vikurnar, en
undirbúningsnefndin sé í viðræðum við nokkra sjálfstæða
leikhópa um framhaldið.
Gamla skólahúsið á Eiðum hefur undanfarin ár verið nýtt
undir uppfærslur Óperustúdíós Austurlands á óperuverkum
Mozarts, en ljóst er að búnaður hússins til leikverka- og tón-
listarflutnings er klénn. Páll segir búið að flytja sérstakan
búnað í húsið, sem tryggja á betri sjónlínur í salnum og
einnig hefur ljósabúnaður verið settur í húsið vegna fyr-
irhugaðra leiksýninga.
Páll segir mikinn áhuga meðal leikhúsfólks á sýning-
arhaldi fyrir austan og reiknar með að fólk úr fleiri list-
greinum sýni Eiðum áhuga í framhaldinu.
Tvær sýningar verða á Sveinsstykki á Eiðum; á laugardag
og sunnudag og hefjast báðar kl. 20.30. Forsala að-
göngumiða er á Eiðum frá kl. 17 sýningardaga og í síma
552 3000 frá kl. 13–18 virka daga.
Leiksýningar undirbúa jarðveginn fyrir lista- og menningarsetur
Lifnar yfir Eiðum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sveinsstykki verður sýnt á Eiðum um helgina: Arnar Jónsson
minntist fjörutíu ára ferils með sýningunni Sveinsstykki sem
frumsýnt var í Loftkastalanum í desember sl.
Djúpivogur | Ásta Birna Magnúsdóttir hef-
ur verið valin íþróttamaður ársins 2003 hjá
Umf. Neista á Djúpavogi.
Ásta Birna er fædd árið 1988 og hefur
stundað íþróttir frá unga aldri. Hún æfir
sund af kappi og hefur unnið til margra
verðlauna í frjálsum íþróttum.
Fyrir fimm árum fór hún að stunda golf
og þykir í dag einn efnilegasti kylfingur
landsins. Árið 2003 keppti hún á ýmsum
mótum á vegum Golfklúbbs Djúpavogs og
vann oftar en ekki til verðlauna.
Efnilegust: Ásta Birna Magnúsdóttir,
íþróttamaður Neista á Djúpavogi 2003.
Með efnilegustu
kylfingum
Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir
Fáskrúðsfjörður | „Þeir eru montn-
ir Fáskrúðsfjarðarmegin yfir
hvernig gengur og við erum hissa á
því að þeir séu ekki komnir lengra,
miðað við hvernig þeir láta,“ segir
Þórir Sigurðsson, verkstjóri hjá Ís-
taki í Fáskrúðsfjarðargöngum.
Albert Kemp, fréttaritari Morg-
unblaðsins á Fáskrúðsfirði, brá sér í
göngin Reyðarfjarðarmegin á dög-
unum og komst að því að nokkurt
kapp er hlaupið í gangamenn og
metast þeir um hvort gengið fer
fljótar gegnum fjallið með tækjum
sínum og tólum.
„Það er fínt að vera í vinnu
hérna,“ segir Þórir. „Vinnuaðstað-
an er góð, fyrirtækið ágætt og við
erum með góð tæki. Fengum nýjan
þriggja bóma borvagn í fyrra. Hann
er tölvuvæddur og menn sitja bara í
þægilegum sætum meðan miðað er
út fyrir borana með leysigeisla og
borað í.“
Sprengt tvisvar á sólarhring
„Mesta hættan fyrir mennina í
göngunum er grjóthrun úr stafni og
lofti,“ heldur Þórir áfram. „Þegar
verið er að hlaða sprengiefninu í
holurnar í stafninum er mest hætt-
an á hruni. Bergið vill líka losna í
borun.“
Þórir lýsir verkferlinu svo að
fyrst sé hafist handa um að losa
burtu lausa steina í lofti. „Svo förum
við að bora. Boraðar eru tæpar 100
holur, fimm metra inn og það tekur
hátt í fjórar klukkustundir. Allir
fara út úr göngunum og við
sprengjum. Þegar sprengt er kast-
ast megnið af berginu 10–15 metra
út í göngin í einn haug, en svo geta
steinar skotist 200–300 metra fram
í göngin. Þegar reykurinn er farinn
byrjar útmokstur og eftir það för-
um við með fleyga eða vélsprota á
bergið til að ná því niður sem situr
laust. Þegar því er lokið þvoum við
bergið og sprautusteypum og bolt-
um til styrkingar í framhaldinu,
þannig að klappirnar inni í berginu
hreyfist ekkert. Eftir það getum við
farið að bora aftur og þá er kominn
einn hringur.
Við höfum náð því að sprengja
einu sinni á vakt sem er þá tvisvar á
sólarhring. Það er svipað hinum
megin. Reyndar höfum við komist
upp í að sprengja þrisvar á sólar-
hring en það verður að vera mjög
gott fjall til þess og þeir ná þessu
oftar Fáskrúðsfjarðarmegin, þar
sem fjallið er betra.“
Bergið allt á hreyfingu
Þórir segir sex menn vera á vakt-
inni inni í fjallinu á hverjum tíma.
„Inni í göngunum er öryggisbúnað-
ur, svokallaður lífgámur, ef eitthvað
gerist. Til dæmis ef hrynur úr berg-
inu, göngin lokast eða kviknar í.“
Tvíbreiður vegur verður í göng-
unum og eru útskot með 500 m bili
og jafnframt tvö stærri útskot þar
sem hægt verður að snúa við drátt-
arbílum. Er þetta sambærilegt við
hvernig háttar til í Hvalfjarðar-
göngum.
Þórir segir jarðgangavinnu mikið
breytta frá því sem áður var. „Leisi-
geisli sér um að stilla vagninn inn og
halda okkur á réttri stefnu svo við
lendum nú örugglega á Fáskrúðs-
firði!“
Þegar lokið verður við að bora
göngin, sem gæti orðið seint í sum-
ar, er töluverð vinna eftir við loka-
styrkingu og frágang. „Það er auð-
vitað mikil spenna í berginu sem
þarf að taka tillit til,“ segir Þórir.
„Þegar svona hátt fjall er ofan á
göngunum myndast spenna í berg-
inu, þannig að maður heyrir smelli
þegar fjallið pressast saman. Í
svona spennu geta blokkir í veggj-
um þrýst inn og við komum sjálf-
sagt til með að styrkja veggina bet-
ur eftir því sem að þrýstingurinn
eykst. Það gerist í jöfnu hlutfalli við
fargið ofan á, eftir því sem hærra er
upp í fjallstoppinn.“
Ánægðir með hversu vel gengur að sprengja
Ljósmynd/Páll Björgólfsson
Hægt og bítandi fara gangamenn gegnum fjallið og þegar þeir mætast í miðju í sumar eru Fáskrúðs-
fjarðargöng orðin að veruleika. Á minni myndinni er Þórir Sigurðsson, verkstjóri hjá Ístaki.
Skyggnst inn í Fá-
skrúðsfjarðargöng