Morgunblaðið - 04.03.2004, Side 49

Morgunblaðið - 04.03.2004, Side 49
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARS 2004 49 ÍSLANDS- og bikarmeistarar ÍBV í handknattleik kvenna leika báða leiki sína gegn Salonastit Vranjic frá Króatíu í átta liða úrslitum Áskorendabikarsins á heimavelli sínum í Vestmannaeyjum. Samn- ingar um það tókust við króatíska félagið í gær og verður fyrri leikur- inn laugardaginn 13. mars klukkan 16.30 og sá síðari daginn eftir klukkan 12 á hádegi. Hlynur Sigmarsson, formaður kvennaráðs ÍBV, sagði við Morgun- blaðið að það væri heldur dýrari kostur að fá Króatana hingað í báða leikina, en að spila heima og heiman. „En við höfum mikinn metnað fyrir því að komast í undan- úrslit keppninnar og leggjum allt í sölurnar til þess. Það er frábært fyrir stúlkurnar og kvennahand- boltann yfirleitt að fá þessa leiki hingað, við höfum fengið góð orð frá Vestmannaeyjabæ og fyrir- tækjum hér í Eyjum um stuðning og vonandi gengur það eftir. Eins vonumst við til þess að Eyjamenn fjölmenni á leikina og styðji liðið af krafti en það komast 700–800 manns í húsið með góðu móti,“ sagði Hlynur. Ágætir möguleikar hjá ÍBV Hann telur að ÍBV eigi ágæta möguleika á að komast áfram. „Samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum aflað okkur eigum við að geta slegið þetta lið út. Það er með fjórar landsliðskonur innanborðs, sem léku á HM í fyrra, og er í öðru sæti deildarinnar, en meiðsli hafa sett einhver strik í reikninginn,“ sagði Hlynur Sigmarsson. Vranjic mætti öðru króatísku liði, Virovitica, í 32 liða úrslitum keppninnar og vann báða leikina, 24:22 á útivelli og 34:25 á heima- velli. Í 16-liða úrslitum lék Vranjic gegn Motor 2 Zaporoshje frá Úkra- ínu og vann báða leikina, sem báðir fóru fram í Króatíu. Fyrst 31:28 og síðan 26:25. Vranjic hefur ekki leikið í Evr- ópumótum félagsliða undanfarin ár. Króatísk kvennalið hafa af og til náð langt og tvívegis spilað úrslita- leiki á síðustu þremur árum, í Áskorendabikarnum og Evrópu- keppni bikarhafa, en beðið lægri hlut í bæði skiptin. Báðir leikir ÍBV og Salonastit Vranjic fara fram í Vestmannaeyjum „ÞETTA virðist vera hörkunagli og er vonandi maðurinn sem þarf til þess að rífa liðið upp,“ sagði Patrekur Jóhannesson, hand- knattleiksmaður hjá Bidasoa, um nýjan þjálfara liðsins, Julian Ruiz, sem kom til starfa hjá liðinu á mánudaginn, en forvera hans, Jordi Ribera, var sagt upp í síð- ustu viku. Bidasoa hefur ekki náð sér á strik á leiktíðinni og er á meðal neðstu liða en lánaðist að lyfta sér upp úr fallsæti með sigri á Teucro um síðustu helgi. Mikið starf er samt framundan hjá nýj- um þjálfara og leikmönnum Bida- soa við að tryggja áframhaldandi veru í deildinni. „Ribera tókst aldrei að ná sér á strik með okkur. Hann var ráðinn síðastliðið sumar og fékk sjö nýja leikmenn. Honum tókst aldrei að hrista mannskapinn saman af ýmsum ástæðum. Lélega frammi- stöðu okkar á leiktíðinni er ekki alfarið hægt að skrifa á hann en það er nú oft þannig að þegar lið- um gengur illa þá blæðir þjálf- aranum fyrir það og sú varð raun- in að þessu sinni,“ segir Patrekur. Ruiz er þrautreyndur þjálfari sem hefur víða unnið, bæði á Spáni og í Þýskalandi, og er von- andi rétti maðurinn í starfið, að sögn Patreks. Hann þjálfaði síðast hjá 1. deildarliðinu Cantabria en sagði upp þar til þess að taka við Bidasoa. „Næstu leikir verða afar mik- ilvægir fyrir okkur því þeir eru flestir gegn liðum í neðri hluta deildarinnar. Takist okkur að vinna flesta þeirra þá eigum við möguleika á að að komast upp í miðja deild og bjarga þannig and- litinu,“ segir Patrekur. Heiðmar Felixson leikur einnig með Bida- soa. Patrekur vonar að þjálfara- skiptin hjálpi Bidasoa  FRANZ Beckenbauer, forseti Bay- ern München og varaformaður þýska knattspyrnusambandsins, er efins um að Afríkuríki getið haldið heims- meistarakeppnina í knattspyrnu, en Túnis, Marokkó, Egyptaland, Líbýa og Suður-Afríka hafa sótt um að halda HM 2010. „Ráða Afríkuþjóðir við að taka á móti landsliðum 32 þjóða og um milljón knattspyrnuunnend- um, sem koma til að vera viðstaddir keppnina?“ spurði Beckenbauer í Dubai í gær, er hann var að ganga frá samningum við flugfélagið Emirates Airlines, sem er eitt að stuðningsfyr- irtækjum HM í Þýskalandi 2006.  LOTHAR Matthäus, fyrrum fyrir- liði þýska landsliðsins, sem nú gegnir starfi landsliðsþjálfara Ungverja í knattspyrnu, segist eiga sér þann draum að þjálfa einhvern tímann á Ítalíu og þá lið Inter, en Matthäus lék með Inter í fjögur ár. ,,Tíminn hjá Inter var einn sá besti á ferli mínum og það yrði gaman að koma þangað aftur og gerast þjálfari hjá liðinu,“ segir Matthäus.  MANCHESTER United réð í gær Walter Smith, fyrrum þjálfara Glas- gow Rangers og Everton, í starf að- stoðarframkvæmdastjóra félagsins út leiktíðina. Smith á að fylla skarð Carlosar Quieroz sem hætti störfum hjá United síðastliðið sumar til að við þjálfarastarfinu hjá Real Madrid. ,,Þegar tækifæri gefst til að koma til starfa hjá liði eins og Manchester United þá er ekki hægt að hafna því,“ sagði Walter Smith, en honum og Sir Alex Ferguson hefur verið vel til vina undanfarin ár.  JACQUES Freitag frá Suður-Afr- íku, heimsmeistari í hástökki karla, keppir ekkert næstu sjö mánuði vegna meiðsla í ökkla og missir þar af leiðandi af Ólympíuleikunum í Aþenu í sumar. Freitag segir að það séu í raun gömul meiðsli sem séu að plaga hann en hann fór í uppskurð á ökkla fyrir þremur árum en hefur aldrei náð fullum bata. „Ég er aðeins 22 ára gamall og ætti því að óbreyttu að geta verið með á Ólympíuleikunum 2008 og 2012, þannig að það verður bara að hafa það þótt ég geti ekki verið með í Aþenu,“ segir Freitag. FÓLK Njarðvík er með 26 stig gegn 24hjá Tindastóli en Sauðkræk- ingar unnu fyrri leik liðanna sem fram fór í Njarðvík. Það mun samt sem áður ekki skipta neinu máli þegar uppi er staðið. Verði liðin jöfn fær Njarðvík heimaleikjarétt- inn ef liðin mætast í átta liða úrslit- um. Haukar eru með 24 stig en þeir geta ekki náð fjórða sætinu vegna óhagstæðrar útkomu í innbyrðis leikjum við Njarðvík. Tindastóll á það á hættu að falla niður í sjötta sæti verði liðið með jafn mörg stig og Haukar eftir lokaumferðina. Að öðru leyti eru nokkuð hreinar línur í deildinni fyrir þessa síðustu umferð. Útséð er um að Snæfell er deildarmeistari, Grindavík í öðru sæti og Keflavík í því þriðja. Njarð- vík hreppir 4. sætið, en Haukar gætu jafnframt náð 5. sætinu af Tindastóli. Síðan verða KR og Hamar í 7. og 8. sæti en þau eru jöfn að stigum og KR verður fyrir ofan ef staðan verður þannig eftir leikina annað kvöld. ÍR og KFÍ eru í níunda og tíunda sæti og eru komin í sumarfrí eftir lokaumferðina, ásamt Breiðabliki og Þór úr Þorlákshöfn sem eru bæði fallin úr úrvalsdeildinni. Í kvöld mætast Grindavík – Breiðablik, Haukar – Keflavík, KFÍ – Snæfell, KR – ÍR, Tindastóll – Njarðvík og Þór Þ. – Hamar. Ef röð liðanna breytist ekkert, munu þessi lið leika saman í 8-liða úrslitunum: Snæfell – Hamar Grindavík – KR Keflavík – Haukar Njarðvík – Tindastóll  Snæfell gæti einnig mætt KR og þá myndi Grindavík mæta Hamri. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ungu stúlkurnar sem sjá um dansatriði á milli leikhluta í Stykk- ishólmi hafa gaman af því sem þær eru að gera og Björg Guð- rún Einarsdóttir leyndi ekki ánægju sinni. Tindastóll í vandræðum TINDASTÓLL og Njarðvík áttu samkvæmt öllu að berjast um fjórða sætið í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í lokaumferð hennar í kvöld. En í gær úrskurðaði eftirlitsnefnd KKÍ að Tindastóll getur ekki endað ofar í deildinni en lið sem er með jafnmörg stig og þeir. Ástæðan er sú að fyrr í vetur braut Tindastóll reglur um launaþakið sem sett var á síðastliðið sumar og var liðinu refsað með þeim hætti að liðið var sektað. ar að næsta stóra verkefni kemur, sem eru leikirnir við Ítala í undan- keppni HM í vor og síðan Ólympíu- leikarnir. Auðvitað getur ýmislegt sett strik í reikninginn svo sem meiðsli og eins það að Guðmundur taki aðra leikmenn framyfir mig. Ég tel hins vegar að báðir aðilar séu á því að halda áfram, en vissulega er aldrei hægt að fullyrða um það. Guð- mundur velur sitt landslið vegna undankeppni HM og Ólympíuleik- anna í vor og þá verðum við að sjá til hvernig ástandið verður á mönnum. Kannski hef ég leikið minn síðasta landsleik, þá verður svo að vera en auðvitað þætti mér það slæmt. Ég vildi hætta á annan og betri hátt með landsliðinu.“ Patrekur segir að þrátt fyrir að hann búi á Spáni og hafi þar af leið- andi verið aðeins utan skotlínunnar hér heima hafi hann ekki komist hjá því að verða var við harða gagnrýni á sig og aðra leikmenn liðsins. „Þegar vel hefur gengið hjá landsliðinu þá hefur mér og öðrum verið hælt á hvert reipi og stundum höfum við fengið meira hól en við verðskuld- uðum í samanburði við suma sam- herja okkar í liðinu. Þá er ekki óeðli- legt að ég, Ólafur og Dagur fáum stærri hluta af gagnrýninni þegar illa gengur. Menn verða líka að vera menn til þess að taka skítnum og ég færist ekki undan því, enda lærir maður einnig mikið af því að lenda í mótbyr. Þá kemur maður oft sterk- ari til baka og það tel ég að við getum gert að þessu sinni,“ segir Patrekur Jóhannesson, handknattleiksmaður hjá Bidasoa á Spáni. Morgunblaðið/Sverrir Patrekur Jóhannesson sækir að marki Slóvena í leik í Evrópukeppninni í Slóveníu sem fram fór í byrjun ársins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.