Pressan


Pressan - 03.11.1988, Qupperneq 3

Pressan - 03.11.1988, Qupperneq 3
Fimmtudagur 3. npvemtjer, 1988. ■3 TÆKNIOG ÞJÓNUSTA í ÞÍNA ÞÁGU! Fyrir um hálfri öld, er Einar J. Skúlason hóf verslunarrekstur í Reykjavík, voru hvorki tölvur né rafdrifnar rit- eða reiknivélar á boð- stólum. Styrjaldarástandið á meg- inlandi Evrópu varð sífellt alvar- legra og skipasamgöngur til íslands því erfiðar. Fjárhagur íslenskra heimila var bágur sem og efnahagur landsins í heild. Það þurfti því mikla áræðni og framsýni til að stofna og reka fyrirtæki í þá daga. Með framsýnina að leiðarljósi hefur fyrirtækið Einar J. Skúla- son siglt í gegnum súrt og sætt, kreppur sem breytingar. En þrátt fyrir ótrúlega örar tæknibreytingar og mikla framþróun á verslunar- sviðinu er einn þáttur í starfsemi fyrirtækisins sem ekki hefur breyst. Sá þáttur hefur verið einn lykilþátt- urinn í velgengni fyrirtækisins gegnum tíðina, nefnilega vönduð og góð þjónusta. Einar J. Skúlason hf. býður ein- ungis fyrsta flokks vörur og þjónustu sem þróast hefur í Scim- skiptum við ánægða viðskiptavini í hálfa öld. Meira en 60 sérþjálfaðir starfsmenn leitast við að þjóna sem best hinum fjölmörgu viðskiptavin- um fyrirtækisins. Ef þú þarft á tölvum, skrifstofutækjum, hugbún- aði, kerfisþróun eða rekstrarvörum að halda, er Einar J. Skúlason hf. fyrirtæki sem þú getur lagt traust þitt á. Einkunnarorð okkar eru: Tækni og þjónusta í þína þágu! Hjá Einari J. Skúlasyni hf. fást öll tæki og rekstrarvörur til nútíma skrifstofuhalds s.s. tölvur, jaðartæki, hugbúnaður, ritvélar, reiknivélar, Ijósritunarvélar og búðarkassar. Einar J. Skúlason hf. \ Grensásvegi 10, sími 68-69-33

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.