Pressan - 03.11.1988, Blaðsíða 11
11
PRESSU
Þ
að er háleitt markmið að
bjarga lífi blásnauðs fólks. Og það
er heldur ekki forkastanlegt að
reyna að skemmta því svoiitið um
leið. Rauði kross íslands virðist
hafa það alveg á tœru að þessi tvö
markmið má samþætta, jafnvel
þótt þau séu dálítið ólík við fyrstu
sýn. Eða hvaða skýring önnur getur
verið á þessari kyndugu auglýsingu
sem birtist í ei'nu dagblaðanna í vik-
unni — „Hingó í Kþíópíu"? Varla er
Rauði krossinn farinn að afrækja
hjálparstarfiö og reka í staðinn
spilavíti suður í svörtustu Afríku?
AFSLÁTTUR
RÝMING ARSAL A!!
Viö eigum nokkra MAZDA626 árgerö 1988, sem viö seljum í dag og næstu daga meö
VERULEGUM AFSLÆTTI:
■ Fullt verð VERÐ NÚ Þú sparar
2 stk. 4 dyra LX 1.8 L 5 gíra/vökvast. 826.000 710.000 116.000
5 stk. 4 dyra GLX 2.0 L sjálfsk./vökvast. 956.000 844.000 112.000
3 stk. 5 dyra LX 1.8 L 5 gíra/vökvast. 845.000 725.000 120.000
5 stk. 5 dyra LX 1.8 L sjálfsk./vökvast. • 903.000 773.000 130.000
5 stk. 5 dyra GLX 2.0 L sjálfsk./vökvast. 989.000 852.000 137.000
V 2 stk. 5 dyra GLX 2.0 L sjálfsk./vökvast. m/álfelgum og sóllúgu 1.088.000 945.000 143.000
1 stk. 5 dyra GTi 2.0 L 16v 5 gíra/vökvast. m/álfelgum og sóllúgu 1.134.000 968.000 168.000
2 stk. 2 d. Coupe GLX 2.0 L sjálfsk./vökvast. 959.000 839.000 120.000
- 1 stk. 2 d. Coupe GLX 2.0 L sjálfsk./vökvast. m/sóllúgu 999.000 870.000 129.000
3 stk. 2 d. Coupe GTi 2.0 L 16v 5 gíra/vökvast. m/álfelgum og vindskeiðum 1.100.000 954.000 146.000
1 stk. 2 d. Coupe GTi 2.0 L 16v 5 gíra/vökvast. m/álfelgum, vindskeið og sóllúgu 1.170.000 998.000 172.000
Þetta eru án efa bestu bílakaup ársins. Tryggid ykkur því bíl strax!!
OPIÐ LAUGARDAG FRÁ KL. 10~5.
^^BÍLABORG H.F.
ÆSSméP FOSSHÁLSI 1.SÍMI6812 99
Eða er þetta liður i að flytja vest-
ræna menningu inn í Afríku? Bingó
hefur reyndar aldrei verið talið neitt
sérstaklega menningarlegur leikur,
svo kannski væri skákþjóðinni nær
að flytja þangað töfl og klukkur?
Og enn er manni spurn: Ef bingóið
á annað borð skilar sér til Rauða
krossins, þarf þá ekki líka einhverja
frækna bingómenn til að kenna
innfæddum að leika eftir settum
reglum?
í iklar framkvæmdir voru í
alþingishúsinu áður en þing var
loks sett í haust. Lagt var kapp á að
Ijúka við að innrétta háaloftið fyrir
aðstöðu handa fréttamönnum
sjónvarpsstöðvanna. betta hafði
m.a. verið krafa þeirra um nokkurt
skeið, en engin sérstök aðstaða hef-
ur verið i húsinu fyrir sjónvarps-
upptökur. Frétta- og tæknimenn
hafa þurft að húka á göngum og oft
lagt kringluna undirsig fyrir minni-
háttar viðtöl við þingmenn. Þetta
hefur verið til mikilsama fyrir þing-
menn og starfsmenn þingsins, sem
ekki hafa getað hvislast á af ótta við
hljóðnema og linsur. Nú, þegar allt
er klárt, halda fréttamenn þó upp-
teknum hætti og eru sagðir forðast
stúdióið eins og heitan eldinn.
Þingforséfar munu því láta málin til
sin taka og eru sagðir ætla að kalla
til sín fulltrúa fréttastolanna 'og
setja fram skilyrði um að annað-
hvort verði aðstaðan notuð eða
fréttamennirnir standi úti. Nýja
aðstaðan mun liafa kostað sex
milljónir króna...
M
llt er enn í Iausu lolti á Þjóð-
viljanum, þrátt fyrir að Ólafi Ragn-
ari Grimssyni flokksformanni tæk-
ist að fá Úlfar Þormóðsson stjórn-
arformann til að fresta fundi, þar
sem ganga átti frá ráðningu tveggja
nýrra ritstjóra í stað Óttars Proppé
og Marðar Árnasonar. Þeir höfðu
báðir verið ráðnir til eins árs. Óttar
hugðist ekki halda áfram og virðist
ákveðið að ráða Silju Aðalsteins-
dóttur í hans stað. Þá virðist sem
stjórnarformaðurinn vilji losna við
Mörð, en sú ráðstöfun nýtur hvorki
stuðnings á vinnustaðnum né hjá
Ólafi Ragnari. Álflieiður Ingadótt-
ir framkvæmdastjóri, fyrrum
blaðamaður á Þjóðviljanum, er
sögð kandídat Úlfars i stólinn...
öðrum Pressumolavett-
vangi er fjallað um hæstarétt. í því
sambandi er vert að geta þess að
hæstaréttardómarar eiga formlega
séð að hætta 65 ára aldur en mega
hætta 70 ára. Ástæðan fyrir því að
þeir hætta yfirleitt um 65 ára er sú,
að þá fá þeir tvöföld laun eða hátt
i það. Þeir halda sínum fullu laun-
um og fá lífeyrinn að auki sem er
70"/o af launum. Þetta minnir á að
árið 1991 á að afnema að lullu pró-
sentur sýslumanna og bæjarfógeta
af nauðungaruppboðum og slíku,
en fyrir tveimur árum var þessunt
embættismönnum gefinn 5 ára
frestur til að laga sig að þessari
kjararýrnun. Hún er nefnilega mik-
il þvi talið er að t.d. Jón Skaftason
yfirborgarfógeti fái allt að 2 millj-
ónum króna á mánuði vegna þess-
arar prósentureglu. Fyrir Jón var
aðlögunartíminn heppilega langur,
því árið 1991 er hvort sem er kom-
inn tími fyrir hann að fara á eftir-
laun, þá verður hann 65 ára...
Leiðrétting
Hvimleið mislök urðu við fni-
gang síðasla tölublaðs Pressunnar.
Þar birtist grein um skákmeistara
og skákgáfur undir fyrirsögninni
„Konur œttu ekki að tefla skák“,
sem er tilvitnun í viðtal við Bobby
Fischer, fyrrum heimsmeistara. AJ
misgáningi hnýtti þessi fyrirsögn,
reyndar í örlítið breyttri mynd, sig
aftan við greinina, þannig að henni
lauk á feitletruðum orðunum:
„Konur kunna ekki að tefla skák! “
Sem var alls ekki œtlunin.